Tíminn - 08.07.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.07.1965, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 8. júlí 1965 TÍMINN MIÐVIIKUDAGUR 7. júlí NTB—Lundúnum. — f dag hélt Harold Wilson, forsætisráð- herra Bretlamds, fund með helztu ráðherrum sinum til að ræða ástandið, sem skapazt hef ur eftir að ríkisstjórnin hafði síðastliðna nótt tapað þffisvar atkvæðagreiðslu um ýmsa þætti fjárlaganna. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að ekki komi til mála að stjórnin fari frá vegna þessa, en hins vegar er atburð ur þessi mikið áfall fyrir Verka mannaflokkinn sem hefur mjög veika stöðu á þinginu, eða að- eins fjögurra þingsæta meiri- hluta. NTB—Saigon. — Hersveitir Víetcong tóku í dag á sitt vald bæinn Dak Te í Kontum-héraði og á sama tíma biðu hersveit ir stjórnar S-Víetnam, Banda- rfkjamanna og hermemn frá Ástralíu mikinn ósigur á aðal vígstöðvunum um 50 km fyrir norðan Saigon. í dag fóru bandarískar flug- vélar í sextán árááatferðir inn í Norður-Víetnam, eyðilögðu m.a. þrjár radarstöðvar, marg- ar brýr og þjóðvegi. NTB—Bonn. — Fyrrverandi SS-maður, Alies Haefele, ját- aði í dag á sig meðábyrgð á morðum 152.000 gyðinga í út- rýmingarherbúðunum Kulmliof í Bayem í síðasta stríði. — Bg er sekur, en hvað átti ég að gera? sagði hinn 72 ára gamli maður, sem ásamt tíu öðr um SS-mönnum er nú fyrir rétti. Sagði Haefele, að ef hann hefði ekki hlýtt fyrirskipunum yfirboðara sinna, hefði hann sjálfur lent í gasklefunum. . NTB—Genf. — U Thant, fram kvæmdastjóri SÞ sagði í dag, að lítill árangur hefði náðzt í friðarviðræðum þeim, sem hann hefðl komið af stað um deiluna í Víetnam. í því máli er ekki að tala um fullkominn sigur eða algeran ósigur. Við- ræður verða að miða að því, íð hægt verði að ná samkomu lagi, þar sem tekið sé tillit til sjónarmiða beggja jöfnum höndum. <r,. , NTB—Kairó. — 30 manns fór ust, en einn komst lífs af, er stór, rússnesk flutningaflugvél hrapaði til jarðar rétt við þjóð Véginn milli Kairó og Suez. NTB—Santo Domingo. — í dag var skipzt á skotum víðs veg at í Dominiku, og þar með var rofið hið ótrygga vopnahlé, er staðið hefur undanfarið meðan á vlðræðum hefur staðið um myndun bráðabirgðastjórnar í landinu. NTB-—Ottawa. — Lester Pear son, forsætisráðherra Kanda, hefur gért nokkrar breytingar í Stjóm sinni, og er sú mest, að dómsmálaráðherrann hefur orðið að segja af sér. '' Ingibjörg að störfum á flugvellinum í gær. KVENFÓLKIÐ FÆR IR ÚT KVÍARNAR Kennaraskólanemar taka að sér störftollfreyja BÞG—Reykjavfk, biðvikudag Eins og vera bor í nútíma þjóðfélagi jafnréttis og frjáls ræðis sækir kvenþjóðin jafnt og Þétt inn á ný starfssvið, sem einhverntíma hefðu verið köll Hérlendis hefur lengi verið beðið eftir fagurskapaðri kven lögrcglu, án árangurs. Én nú hefur tollgæzlan gefið gott fors* dæmi með því að ráða ungar og fallegar stúlkur til starfa. Við hittum tvær þeirra úti á flugvelli í dag, þegar brezku þingmennimir voru að koma. Það er sannarlega ekki ama- legt fyrir ferðalanga að hafa fyrst broshýrar flugfreyjur til að snúast í kringum sig og mæta síðan fallegum tollfreyj u.m við tollborðið. , Við biðum þangað til toll- afgreiðslu var lokíð og fengum tollfreyjurnar til að spjalla við okkur stutta stund. Þær reyndust heita Ingibjörg Ragnarsdóttir og Sigurborg Gísladóttir, báðar brautskráðar frá kennaraskólanum, sem og hinar þrjár, sem ráðnar hafa verið til þesara starfa. — Hvemig datt ykkur í hug að fara' I tollgæzluna? c.-rr- Það var-ósköp einfalt mál. Auglýst var eftir stúlkum í starfið uppi í Kennaraskóla og við slógum til. — Hvenær byrjuðu þið starf ið? — Fyrst í júní, en þetta er í fyrsta sinn, sem við erum hér úti á flugvelli. Við eigum líka að vera við farþegaaf- greiðsluna niðri á höfn, en við förum ekki í tohskoðun um borð. — Tókuð Þið nokkurn óleyfi legan vaming núna? — Nei, nei, þetta voru allt útlendingar með flugvélinni og þeir hafa ekki neina bannvöru með sér. — Ætlið þið að vera lengi í Þessu starfi — Það er alveg óráðið enn, við emm hér til afleysinga í sumar. — Farið þið þá í kennslu í vetur? — Það er ekki afráðið, en ólíklegt er að við byrjum á kennsluní strax. — Og að lokum, hvað mynd uð þið gera, ef einhver stór og feitur maður settist á tösk una sína og neitaði að opna hana? — Við myndum einfaldlega kalla á karlmennina til aðstoð ar. Við ætlum okkur ekki að fara að standa í neínum slags málum, segir Ingibjörg og hlær. MINNZT ALDARAFMÆUS SR. ÓFEIGS VIGFÚSSONAR S. 1. sunnudag 4. júlí var minnzt við guðsþjónustu í Skarðs kirkju á Landi, aldarafmælis sr. Ófeigs Vigfússonar, fyrrum sóknar prests og prófasts í Fellsmúla. Samningafundir TK—Reykjavík, miðvíkudag. Fulltrúar verkalýðsfélaga og at vinnurekenda í Reykjavík og Hafn arfirði sátu á fundum með sátta semjara til miðnættis í gær. Fund ur var settur að nýju kl. 2 í dag. Matarhlé var gert um kl. 7, en fundi haldið áfram í kvöld. ‘ f upphafi athafnarinnar afhentij jGrétar Fells rithöfundur Skarðs- kirkju að gjöf helgiljós, sem hang j jir í kór kirkjunnar, til minningar ‘ um bróður sinn, sr. Ragnar Ófeigs ' json. Standa að gjöf þessari auk ! Grétars, kona hans frú Svava j Fells og uppeldisbróðir, Guðbrand- ; ur Guðjónsson, múrari. Ennfrem- ' ur flutti Björgvin Filippusson frá Hellum kvæði, sem hann hafði ort í þessu tilefni. í ræðu sinni minntist sóknarpresturinn á hið mikla og_ göfuga menningarstarf, sem sr. Ófeigur vann meðal safn- aða sinna, bæði sem prestur og fræðari, en um tíma rak hann VERKFALL Á FÖSTU- DAG OG LAUGARDAG í dag barst blaðinu svohljóð- mannafélagið Dagsbrún og Verka- andi tilkynning: j mannafélagið Hlíf hafa áður boð- „Svo sem kunnugt er, kemur að, til framkvæmda kl. 12 á mið- vinnustöðvun sú, sem Verka- nætti aðfaranótt föstudagsins 9. kvennafélagið Framsókn, Verka- kvennafélagið Framtíðin, Verka- þ. m. og stendur yfir föstudaginn 9. og laugardaginn 10. júlí n. k.“ einkaskóla á heimili sínu og und- irbjó ýmsa af menntamönnum þjóðarinnar undir háskólanám. Ennfremur skýrði sóknarprestur- inn frá því, að í tilefni aldaraf- mælis sr. Ófeigs hefðu söfnuðir Skarðs- og Marteinstungusókna lát ið gera minnisvarða á legstað hans. Daginn áður hafði farið fram helgistund í Hagakirkju, en sá söfnuður kaus að minnast sr. Ófeigs með því að láta gera skírn- arfont fyrir kirkjuna, útskorinn af Ríkarði Jónssyni. Kór Skarðs- kirkju söng við guðsþjónustuna, en ungfrú Anna Magnúsdóttir lék á orgel. Að guðsþjónustunni lok- inni bauð kvenfélagið Lóa kirkju- gestum til kaffidrykkju á kirkju- staðnum. Þar tóku til máls Ófeigur Ófeigsson læknir, sr. Sigurður Pálsson frá Hraungerði og Grétar Fells. Einnig flutti Guðni Krist- insson. formaður sóknarnefndar, nokkur þakkarorð. Kveðja barst frá biskupnum yf- ir íslandi, herra Sigurbirni Einars- syni. Síldarfréttir miðvikudaginn 7. júlí 1965. Bræla hefur verið á síldármið unum frá miðjum degi í gær og ekki veiðiveður. Hafa skipin ýmist látið reka eða haldið tíl lands með slatta. Veiðisvæðið er 120 — 130 mílur SAaS frá Gerpi. Síldin, sem veið ist á þessum slóðum er mjög léleg og ekki söltunarhæf. Samtals 44 skip með 14.350 Dalatangi: Reykjaborg RE 600 Víðir II GK 400 Björgvín EA 600 Oddgeir GJK 400 Fróðaklettur GK 350 Björg II NK 300 Búðaklettur GK 450 Akurey SF 250 Guðrún Guðleifsd. ÍS 350 Guðm. Þórðarson 150 Har aldur AK 400 Heiðrún ÍS 150 Guðbjörg ÍS 150 Björgúlfur EA 300 Gullberg NS 400 Ögri RE 200 Héðinn ÞH 150 Arnfirðingur RE 300 Þórsnes SH 100 Snæfell EA 200 Jón Þórðarson BA 150 Ól. Sigurðsson AK 100 Hafrún NK 600 mál Hafrún ÍS 700 Guðmund ur Péturs ÍS 400 Guðrún Jónsdótt Framhald á bls. 14 Yngvi Ólafsson sýslu- maður í Dalasýslu Forseta íslands hefur í dag þókn azt, samkvæmt tillögu dómsmála- ráðherra, að veita Yngva Ólafs- syni, deildarstjóra í viðskiptamála ráðuneytinu, sýslumannsembættið í Dalasýslu frá 1. ágúst n. k. að telja. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 7. júlí 1965. Verðlaun úr Móður- málssjóðnum í dag voru veitt verðlaun úr minningarsjóði Björns Jónssonar, Móðurmálssjóðnum, og var þetta í sjöunda sínn, sem verðlaunin eru veitt. Að þessu sinni hlut Skúli Skúlason ritstjóri verðlaun in, sem eru veitt íslenzkum blaða manni, í viðurkeningarskini fyrir mál og stíl. í stjóm sjóðsins eru Steingrím ur J. Þorsteinsson prófessor, Hall dór Halldórsson prófessor, Tómas Guðmundsson skáld, Bjarni Guð mundsson blaðafulltrúi og Pétur Ólafsson forstjóri. BLAU ENGLARN- IR SÝNA ( DAG Ekkert varð úr lístflugsýningu Bláu englanna yfir Reykjavík í gær, miðvikudag, vegna þess hve lágskýjað var. Flugmála félagið tjáði blaðinu að því hafi tekizt að semja um það að fá að hafa flugsveítina hér ;inn dag til viðbótar. Bláu ;nglarnir munu sýna listir sýn ir yfir Skerjafirðinum í kvöld klukkan 18.30 eða 20.30, endan lega verður tilkynnt um tímann í hádegisútvarpinu, en hann byggist á veðurspánni. Fól'ki er ráðlagt að koma sér fyrir íunnan megin í Öskjuhlíðinni eða í Nauthólsvík. Menn eru varaðir við að reyna að aka upp í Öskjuhlíð vegna þess hve títið bílastæði er þar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.