Tíminn - 08.07.1965, Blaðsíða 14
14.
TÍIVIINN
FIMMTUDAGUR 8. júlí 1965
t &
i &
Menntamálaráð íslands
Fimm ára styrkir
Menntamálaráð mun 1 ár úthluta 7 námsstyrkjum
til stúdenta, sem hyggjast hefja nám við erlenda
háskóla eða Háskóla íslands. Hver styrkur er 40
þúsund krónur. Sá, sem hlýtur slíkan styrk,
heldur honuim í allt að 5 ár, enda leggi hann ár-
lega fram greinargerð um námisárangur, sem
Menntamálaráð tekur gilda. Þeir einir koma til
greina við úthlutun, sem luku stúdentsprófi nú
í vor og hlutu háa fyrstu einkunn..
Við úthlutun styrkjanna verður, auk námsárang-
urs, höfð hliðsjón af því, hve nám það, er um-
sækjendur hyggjast stunda, er talið mikilvægt
frá sjónarmiði þjóðfélagsins.
Styrkir verða veittir til náms bæði í raunvísindum
og hugvísindum.
Umsóknir, ásamt afriti af stúdentsprófsskírteini,
svo og meðmæli, ef fyrir liggja, eiga að hafa bor-
izt skrifstofu Menntamálaráðs, Hverfisgötu 21,
fyrir 10. ágúst n.k. S'krifstofan afhendir umsókn-
areyðublöð og veitir allar nánari upplýsingar.
Reykjavík 5. júlí 1965
JWEIMNTAMÁLARÁÐ ÍSLANDS.
AÐEINS ÞRJÁ DAGA
Seljum næstu þrjá daga stálhúsgögn á eftirtöldu
verði:
Kollar á 95.00 kr., bakstólar 295,00 kr.
eldhúsborð á 785,00 kr.
Athugið, að éftir þéssa þrjá daga-hætfúm við. | 1
Notið þetta einstaka tækifæri og ‘kaupið góð
stálhúsgögn á góðu verði.
STÁLHÚSGAGNASALAN,
Miklubraut 15 — Rauðarárstígs megin.
Auglýsið í TÍMANUM
ENGIN FRÁVIK
<• :1 V
i\v
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakklæti sendi ég öllum þeim, sem glöddu
mig með kveðjum, skeytum og gjöfum á 60 ára af-
mæli mínu, 29. maí s.l.
Sérstakiega þakka ég sveitungum mínum fyrir rausn
arlegt. samsæti, og gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Sigríður Sigurðardóttir,
Berunesi.
Hiris vegar var viðurkenndur rétt
ur Hreggviðs Jónssonar til þess
að byggja á viðbótarlóðinni skv.
lóðarleigusamningi, og í samræmi
við teikningu samþykkta af bæj-
aryfirvöldum. Ársæli Sveinssyni
var gert skylt að fjarlægja timb-
urhúsið af lóðinni innan 15 daga
frá lögbirtingu dómsins, að við-
lögðum 2000.00 króna dagsektum
til Hreggviðs Jónssonar. Skyldi Ár
sæll Sveinsson og greiða Hregg-
viði Jónssyni kr. 6000.00 upp í
málskostnað.
í Hæstrétti fór málið nokkuð
á annan veg. Lögbannið var að
vísu staðfest og bótafjárhæðin til
Ársæls Sveinssonar fyrir niður-
rifið kr. 10.000.00.
En þýðingarmest fyrir skipu-
lagsmál kaupstaða og sem „prin-
cipmál*1 verður það atriði dóms-
ins, að héraðsdúmi um gagnsök
ina var hrundið og Ársæll Sveins
son sýknaður af kröfum Hreggviðs
Jónssonar.
Málskostnaðarákvæði Hæsta-
réttardómsins var í samræmi við
efnisniðurstöðuna þannig, að
Hreggviður Jónsson skyldi greiða
Ársæli Sveinssyni kr. 10.000.00
í málskostnað.
Segir svo um þetta í dómsfor-
sendum Hæstaréttar:
„Tillögur stjórnvalda Vest-
mannaeyjakaupstaðar um breyt-
ingu á skipulagi kaupstaðarins
voru eigi lagðar fyrir skipulags-
nefnd ríkisins og Félagsmálaráðu
neytið til úrlausnar skv. 19. og
20 gr. laga nr. 55/1921, sbr. 14.
gr. sömu laga og 4. gr. laga nr.
64/1938. Málið hefur eigi heldur
verið tekið til meðferðar skv. V.
kafla laga nr. 19/1964 eftir að þau
lög tóku gildi. Hefur því engin
lögleg breyting orðið á skipulagi
Vestmannaeyja til samræmis við
lóðarsamning gagnáfrýjanda frá
14. febr. 1964. Gagnáfrýjanai get-
ur því ekki byggt kröfur síinar á
hendur aðaláfrýjanda, sem hags-
muna hefur að gæta um skipulag
á umræddu svæði, á greindum
samningi, þar sem hann brýtur í
bága við gildandi skipulagsupp-
drátt“.
Fyrir hönd aðaláfrýjanda, Ár-
sæls Sveinssonar, flutti málið Páll
S. Pálsson, hrl., en fyrir hönd
gagnáfrýjanda, Hreggviðs Jónss.,
flutti málið Árni Guðjónsson, hrl.
heimilt að kaupa tillögur fyrir allt
að kr. 40.000.00.
Heimild tíl þátttöku hafa allir
meðlimir Arkitektafélags íslands
og íslenzkir námsmenn í bygg-
ingalist, sem lokið hafa fyrrihluta
prófi við viðurkennda háskóla í
þeirri grein.
Keppnisgögn verða afhent af
trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi
Jenssyni^ Byggingaþjónustu A. í.
Laugavegi 26, gegn kr. 500.00
skilatryggingu skal skila til trún
aðarmanns eigi síðar en 1. nóv.
1965.
í dómnefnd eru: frú Auður
Auðuns, forseti borgarstjórnar,
sem er formaður dómnefndar,
Gíslí Halldórsson, arkitekt, Ragn
ar Georgsson, skólafulltrúi, Guð
mundur Kr. Guðmundsson, arki-
tekt og Skarphéðinn Jóhannsson,
arkitekt. Áíetlað er, að dómnefnd
in hafi lokið störfum í byrjun
des. 1965.
Jarðarför eiginkonu. minnar
Sigurbjargar Sigurðardóttur
fer fram frá Stóra-Vatnshornskirkiu laugardaginn 10. þ. m.
Jóhannes Jónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og
jarðarför konu minnar og móðlr okkar,
Dýrfinnu Óskar Andrésdóttur
Sérstaklega þökkum við mblnnlngargjafir og alla aðstoð sem okk-
ur var veltt,
Krlstján Jónsson og börn.
Konan mín
Guðbjörg Gísladóttir
andaðist að helmili okkar 7. þ. m.
Jóhann Kr. Hafllðason,
Freyjugötu 45.
5AMKEPPNI
Framhald at 5. síðu.
kvæmdir við skólann geti hafizt
um líkt leyti og 1. áfangi hverfis
íns byggist.
Samkvæmt reynslu mun Það
taka nokkur ár að byggja hverfið
upp, en í því fullbyggðu er gert
ráð fyrir að búi um 5500 manns.
Er þvi talið nauösynlegt að hægt
verði að byggja skólann í áföng
um. Óskað er eftir því, að þátt-
takendur geri grein fyrir á hvern
hátt megi skipta byggíngarfram-
kvæmdum í áfanga.
Um leið og gert er ráð fyrir,
að hér sé um að ræða almennan
bama- og unglingaskóla, er einn
ig ráðgert, að nokkur hluti hans
geti verið til afnota fyrir borgara
hverfisíns almennt.
Er t. d. reiknað með, að bóka-
safn, heilzugæzlu, fimleikasal og
íþróttasvæði skólans sé hægt að
nota utan skólatíma.
Þessar deildir þurfa þvf að vera
þannig staðsettar, að nokkuð sjálf
stæðir inngangar geti verið að
þeim. Einnig væri æskilegt, að
unglingar, sem fengju afnot af
íþróttasvæði skólans, gætu notað
búningsherbergi, sem verða við
fimleikasalínn.
Verðlaunaupphæð er samtals kr.
245.000, er skiptist Þannig: 1. verð
laun kr. 120.000.00, 2. verðlaun
sr 75.000.00 og 3 verðlaun ki.
50.000.00. Einnig er dómnefnd
A VlÐAVANGI
manns, sem nýtur sérstakrar
tiltrúar, trúnaðar og virðingar
hjá ríkisstjórninni, en B. B. J.
er forstöðumaður Efnahagsstofn
unarinnar, sem heyrir undir
Gylfa Þ. Gíslason. Skal engu
um það spáð, að þetta þýði,
að AlÞýðublaðið fari að gagn
rýna í svipuðum dúr ýmsa út-
reikninga og fullyrðingar, sem
Efnahagsstofnunin gerir fyrir
ríkisstjórnina um efnahags-
standið og afkomu verkalýðs í
þessu landi. — Kannski eiga
sjónarmið hinna stóru og sterk
ari hljómgrunn í ráðuneytum
Alþýðuflokksins, en sumir vilja
vera láta.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 13 síðu.
Dynamo Zagrep (Júgóslavíu),
Dynamo Kiév ' (Sovét)—Coleraine
(N-írlandi) ,Dulda Prag (Tékkó-
slóvakíu)—Rennes (Frakkl.), Bor
ussia Dortmund (V-Þýzkal.)—Flor
ina (Möltu), Sionk (Sviss)—G.
Istanbul (Tyrkl.), Juventus (ít-
alíu)—Liverpool (Engl.), W. Neu
stad (Austurríki)—Rúm. meist.,
Vitoria (Portúgal)—AGF (Dan-
mörku), Cardiff (Wales)—Stand-
ard Liege (Belgíu), Lahtis (Finn-
landi)—Honved (Ungverjal.) Lime
rich (Eire)—Búlgörsku meist.,
Deventer (Hollandi)—Celtic (Skot
landi), W. Magdsburg (A-Þýzkal.)
—Spora (Luxemb.), Kýpur-meist.
—Grísku meist.
West Ham, núverandi melstari,
situr hjá í fyrstu umferð. Það
skal tekið fram, að það lið, sem
er nefnt á undan, leikur á heima-
velli.
HREINDÝRIN
Framhald at 1. síðu
1960 384, árið 1961 268, árið 1962
285, árið 1963 338 og árið 1964
300.
Rannsóknum Guðmundar Gísla-
sonar læknis á heilbrigði hrein-
dýrastofnsins er ekki svo langt
komið að hann hafi gert um þær
heildarskýrslu, en ekkert bendir
til annnars en að hreindýrastofn-
inn sé hraustur og hafist vel við.
HELMINGUR SVELTUR
Framhald aí 16. síðu.
liða starfar nú víða um heim að
lausn þessa geigvænlega vanda
og verður vel ágengt.
Formaður nefndar hinnar ís-
lenzku herferðar gegn hungri í
heiminum, Sigurður Guðmunds-
son upplýsti á blaðamannafundin-
um í gær með Kjeld Juul, að fs-
land hefði ékkert eða nær ekkert
gert til stuðnings þessu málefni
fram til þessa. Nefndin hefði nú
opnað skrifstofu í Æskulýðshöll-
inni og veitti Jón Ásgeirsson
henni forstöðu. Væri í undirbún-
ingi fjársöfnun en engin loforð
um fjárframlög hefðu enn fengizt
frá ríkisstjórninni og ekkert hefði
nefndin enn ákveðið um það,
hvernig hjálp íslands eða fénu,
sem inn safnaðist, yrði varið.
BENT LARSEN
Framh aí blá 16
Portisch 10 skáka einvígi í Bled
og er Tal talinn sigurstranglegri.
Eftir fjórar skákir var staðan
2Vz vinningur gegn IV2, Tal í vil
og hafði hann unnið tvær skákir
— eða í bæði skiptin, sem hann
hefur stýrt hvítu mönnunum. Það
vakti athygli, að í fimmtu skák
inni lék Tal fyrstu 14 leikina »
tveimur mínútum (hafði svart)
— en varð síðan að hugsa lengf
um 15. leikinn. Eftir leikinn virb
ist Portisch geta unnið drottn-
ingu Tals, en við nánari athugun
áhorfenda kom í ljós, að drottn-
ingarfórnin leiddi til máts. Þó að
Tal ætti peði minna tefldi hann
til vinnings — en bauð svo allt
í einu jafntefli, sem Portisch tók
ekki og fór skákin í bið. Sigur-
vegararnir — sennilega Larsen
og Tal — munu tefla einvígi í
: Bled í næsta mánuði um réttinn
1 til að mæta Spassky, og sá, sem
í sigrar í því einvígi, teflir um
heimsmeistaratitilinn við Petros-
j jan, heimsmeistarann.
BREZKIR ÞINGMENN
Framhald af 1. síðu
sækja Alþingishúsið klukkan 10
í morgun, en vegna seinkunarinn
ar varð að sjálfsögðu ekki af því,
en þangað komu þeir klukkan sex
og sýndu þá forsetar þingdeild-
anna og skrifstofustjóri Alþingis
þeim húsið og kynntu þeim starf
semina. í kvöld áttu þeir síðan
að sitja kvöldverð í boði þingfor-
setanna.
Á morgun er ráðgert, að þeir
fljúgi til Akureyrar og skoði þar
verksmiðjur á Akureyri, bæinn og
nágrenni hans. Á föstudaginn fara
þeir til Mývatns, og síðan áfram
norður og austur um land. Frá
Egilsstöðum fljúga þeir til Reykja
víkur á sunnudaginn. Næstu daga
þar á eftir skoða þeir sig um i
nágrenni Reykjavíkur og halda
heimleiðis að morgni föstudags-
ins 16. júlí. Þingmennirnir eru
dr. Reg. Fr. Br. Bennet. sir Harm-
ar Nicholls j.p. og hr. Frank
Henry Taylor, allir þingmenn í-
haldsflokksins, og hr. A. Garrow,
hr. L. Carter-Jones og hr K. Lom-
as, þingmenn Verkamannaflokks-
ins.
AÐALFUNDUR N.A.F.
Framh af bls 16
vilja þakka forystumönnum
SÍS fyrir ágætar viðtökur og
góða fyrirgreiðslu. SÍS hefði
verið góður og mjög virkur
þátttakandi í samtökunum síð-
an 1950.
Erlendur Einarsson sagði, að
þátttakan í Norræna samvinnu
sambandinu hefði orðið SÍS
mjög mikilvæg, ekki aðeins sá
hagnaður og þægindi, sem að
sameiginlegu innkaupunum
væri, en frá árinu 1949 hefði
SÍS keypt vörur fyrir milli-
göngu samtakanna fyrir um
600 millj. ísl. kr., heldur einn-
ig ýmiss konar leiðbeiningar
og tæknihjálp, sem SÍS hefði
notið þaðan og verið hefði ómet
anleg við breytingar verzlunar-
hátta hér heima. Kvaðst hann
vilja leggja áherzlu á þetta og
þakka.
SÍLDIN
Framhald af 2. síðu
ir ÍS 450 Faxi GK 900 Krossa
nes SU 300 Síg. Jónsson SU 300
Guðrún GK 300 Barði NK 300 Jón
Straumnes ÍS 300 Hoffell SU 200
Kjartansson SU 500 Gjafar VE
800 Óskar Halldórsson RE 200 Arn
ar RE 350 Vonin KE 350 Gunnar
SU 200 Sigrún AK 100 Skálaberg
NS 100 Anna SI 100 Þráínn NK
150 Otur SH 100.