Tíminn - 08.07.1965, Side 7

Tíminn - 08.07.1965, Side 7
7 FIMMTUDAGCR 8. jnlí 1985 TÍMINN Aðalfundur Aðalfundur Sambands breið- firzkra kvenna var haldinnn að Reykhólum 18—21. júní s. 1. í boði kvenfélagsins „Liljan,“ sem gaf allan dvalarkostnað fundarins. í upphafi fundar var forsetafrúar Dóru Þórhallsdóttur minnzt. Laug- ardag 19. júní minntist formaður sambandsáas Þóru Einarsdótt- ur frá Skógum í Þorskafirði, móð- ur Matthíasar Jochumssonar, en Reykhólakirkja er minningar- kirkja heonar. Síðan var gengið í kirkju og hlýtt messu hjá sóknarprestinum séra Þórami Þór. Því næst voru tekin fyrir mál fundarins. Jafet Ingibergsson Hvammi, flwtti er- indi um uppeklismál. Önnur mál fundarins voru: Garðyrkja, orkxfanál, heimilis- hjálp, skólamál, ráðunautastarf- semi. Kvenfélagið „Liljan" bauð fundarkonum í skemmtiferð að Stað, skoðuð var hin hundrað ára gamla kirkja, og rakti kvenfélags- formaður í stórum dráttum, sögu hennar og þerrra presta, er þar hefðu þjónað. Lagður var Wóm- sveigur á leiði Þóru Einarsdóttur. Kvöldvðkur voru bæði kvöldín, og komu margar konur í berm- sókn á fundhm. Helztu tiHögar fundarins voru 1. Fundur S. B. K. leggnr til, að samstarf foreldra og kenuara aukist á svifS uppeidismála, og samstarf skóla og beimila sé gott, því án þess naest ekki góður ár- angur í uppekli og fræðslu. 2. Fundurnm leggur tD, að kom- ið verfK á ungbarnaeftirfiti á 1. aldursári, á þaxm hátt, að bekn- ir sjái nm það í hverju héraði, og leiíi tíl þess 80540881 Ijóe- mæðra þar sem því verður við komið, en sjúkrasamlög greiði ferðakostnað lækna í þessu sam- bendi. 3. Fundurinn leggur til, að mæð ur vkmi ekkí úti meðan böm þeirra eru ang, en verði móðhin að vera fjarri bðmunum, séu þau faBo öruggri umsjá fuRorðrnna, en ekki óþroskaðra bama. 4. Fundur S. B. K. skorar á Alþmgi og ríkisstjóm, að bæta hið fyrsta úr brýnni þörf fyrir héraðsskóla á miðvesturlandi. Starfandi héraðsskólar eru svo yf- irfullir nemendum, að margir ungl ingar á þessu landssvæði verða útundan hvað mermtun snertir og geta af þeim sökum einnig orðið útundan um lífsstörf og lífsham- ingju. 5. Fundur S. B. K. skorar á K. í. að efla heimilisráðunautastarfsemi í landinu, á þann hátt að sex ráðunautar yrðu ráðnir í starfið til að byrja með, og þeirra starfs- skilyrði yrðu gerð eins og bezt er hjá nágrannaþjóðum vorum, bæði hvað laun og skipulag snert- 6. Fundur S. B. K. leggur til, að hvert heimili á sambandssvæð- inu reyni eftir fremsta megni, að auka garðyrkju bæði að fjölbreytni og stærð og einnig telur fundur- inn æskilegt að komið yrði upp skrúðgarði við hvert heimili í nánustu framtíð og leitað verði aðstoðar garðyrkjuræktarráðu- nauta, svo árangur garðyrkjunn- ar verði öruggari.. Úr sambandinu gengu Snæ- fellsku kvenfélögin, með það fyrir augum að mynda Snæfellskt kven- félagasamband. f S. B. K. eru nú, kvenfélögin í Dala og Barðastranda sýslu 10 að tölu. Stjórnina skipa: Elinbet Jónsdóttir, Fagradal, for- maður. Kristín B .Tómasdóttir, Laugum, ritari, Ingibjörg Árna- dóttir, Miðhúsum, gjaldkeri. Varastjóm: Steinunn Þorgilsdóttir, Breiða- bólsstað, Steinunn Hjálmarsdóttir, Reyklýlum, Ingibjörg Sigurðar- dóttir, Ásgarði. TILLOGUR OG ALYKTANIR A PRESTASTEFNU iSLANDS Liverpool-bítlarnlr frægu skemmta nú þessa dagana á Spáni og hefur verlð tekið þar eins og frægustu nauta bönum, enda hefur farið svo, að ekkert hús tekur áhorf- endaskarann, og því hefur verið grlpið til þess ráðs að láta þá skemmta á völlum nautabananna. Þessi mynd var tekin um helgina í Madrid ,,Ventas" leikvanginum. Prestastefna íslands haldin í Reykjavík 1965 hefur tekið til at- tougtmar nefndarálit það, sem lagt hefnr verið fyrir prestastefnuna og samið var af nefnd þeirri, er skipuð var samkvæmt ályktun síð nstu prestastefnu til þess að gera tíUögttr um fermingarundirbúning itm og annað, sem ferminguna varðar. Prestastefnan vill eins og áður leggja áherzlu á helgi og þýðingu femiingarinnar og tengsl hennar við skírnina, og nauðsyn og mikil vægi fermingarfræðslunnar fyrir framtíð kristindómsins í landinu og alla sanna og heilbrigða þjóð menningu. Með Þetta í huga sam- þykkir prestastefnan þær tillög- ur, sem fram koma í áliti nefndar innar. Tillagur Prestastefnu íslands 1965 um fermingarundirbúning og önnur atriði, ec ferminguna varða. Markmið; Markmið fermingarundirbún- ingsins er að vekja og glæða trú artraust hinna ungu og laða þá til samfélags við Krist og til fullrar þátttöku í lífi kirkjunnar, svo að þeir fái tileinkað sér þann frelsandi boðskap, sem felst í fagnaðarerindi Krists, og að hann megi verða leiðtogi lífs þeirra. I. Leggja skal sérstaka áherzlu á nokkur grundvallaratriði varð- andi kunnáttu barna undir ferm- ingu. Bömin skulu kunna utan- bókar að minnsta kosti þessi atriði: 1. Signing. 2. Faðir vor. 3. Bless unarorðin. 4. Boðorðin tíu ásamt kærleiksboðorðinu mikla og gull vægu lífsreglunni. 5. Trúarjátn- ingin. 6. Innsetningarorð skírnar- og altarissakramentis. Þá skulu lærðar ekki færri en 35 valdar ritningargreinar og að minsta kosti tíu til fimmtán sálm ar úr sálmabók kirkjunnar. Ganga skal ríkt eftir því, munn- lega eða skriflega, að börnin læri vel ofangreind atriði. Á grundvelli þessa skai fræða bömin ítarlega um þessi atriði: I. Biblíuna. 2. Líf og kenningu, dauða og upprisu Krists. 3. Bæn ina. 4. Kirkjuna og kirkjuárið. 5. Guðsþjónustuna, sálmabókiná, Passíusálmana og bænabók. 6. Meginatriði trúar- og siðalærdóms hinnar evangelisk-lúthersku kirkju. 7. Kristniboð heima og erlendis. Nánar skal kveðið á um framan greind atriði og annað, er til greina kemur, í námsskrá eða námsbók, er út sé gefin í sam- ræmi við ofangreindar meginregl ur. II. Við fermingarundirbúning skal, auk Biblíu og sálmabókar, nota kver, sem hlotið hafa stað- festingu kirkjustjómarinnar, enda byggi þau á fræðum Lúthers hinum minni. III. Fermingarundirbúningstími skal hefjast, þar sem því verður við komið um leið og skólanám almenrit liefst, og spumingum hag að! svo, að hvert barh fái að minnsta kosti 30—40 kennslustund ir fyrir fermingu. Heimilt er prestttm að skipta fermingarund- irbúningnum á tvo vetur. Fræðari hafi ekki fleiri spurn- ingarbörn í tima en sem nemur tölu nemenda í bekkjardeild skóla. Fermingar skulu að jafnaði ekki fara fram fyrr en í apríl- mánuði. Haustfermingar fari að jafnaði fram í október. Prófastar skulu fylgjast með fermingarfræðslunni í prófasts- dæmum sínum, og skila biskupi árlega skýrslu þar um. IV. „ Fermingarathöfnin sjálf fari alls staðar fram eins og helgi siðabók þjóðkirkjunnar gerir ráð fyrir. V. Leitað skal sem nánastrar samvinnu við skólana um kristin dómsfræðsluna og fermingarundir búninginn. Gengið er út frá því, að skólamir veiti þá fræðslu . kristnum fræðum, sem giidandi námsskrá fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri mælir fyrir. Nokkrar ályktanir Prestastefn- unnar fara hér á eftir: í sambandi við umræður þær, sem farið hafa fram um ferming una og fermingarundirbúninginn Framhald á 12. síðu Engin frávik frá skipulagsuppdrætti Síðasta málið, sem Hæstiréttur fjallaði um, áður en réttarhlé hófst fyrir sumarleyfið, var dæmt í Hæstarétti hinn 28. júní s.l. Málið nefndist Ársæll Sveinsson gegn Hreggviði Jónssyni og gagn- sök. Málavextir voru í stuttu máli á þá leið, að bæjarstjórn Vest- mannaeyja úthlutaði Hreggviði Jónssyni bifreiðaverkstæðiseig- anda í Vestmannaeyjum, lóð und- ir viðbótarbyggingu, sem að nokkru var staðsett á fyrirhuguðu götustæði skv. skipulagsuppdrætti fyrir Vestmannaeyjakaupstað, stað festum af stjórnarráðinu hinn 3. nóv. 1932. Þess vegna samþ. byggingarnefnd og bæjarstjórn Vestm.eyja að leggja til, að skipulagi kaupstað- arins yrði breytt, á þá lund, að fyrirhugaður vegur yrði „lagður niður“. Skipulagsstjóra ríkisins var send ályktunin til umsagnar, og svar- aði hann bréflega, að hann gæti fallizt á þessa tillögu. Munu mörg dæmi þess, að stjórnir kaupstaða hafi talið þetta fullnægjandi til breytinga á eldri, staðfestum upp- drætti. Ársæll Sveinsson, sem auk um fangsmikillar útgerðar og fiskverk unar í Eyjum, rekur timburverzl- un þar, átti bráðabirgðahús sem timburgeymslu í þessu áður fyrir hugaða götustæði. Hreggviður fékk samþykkta teikningu hjá bygginganefnd og bæjarstjórn af viðbótarbygging- unni og fékk lóðarleigusamning, sem hann lét þinglýsa. Með þessi gögn i höndunum krafðist hann þess, að Ársæil hyrfi á brott með timburgeymsluhúsið, og þegar því var ekki sinnt, lét hann menn sína hefja niðurrif hússins. Ársæll Sveinsson lagði þá lög bann gegn niðurrifinu og höfðaði síðan mál til staðfestingar og skaðabóta. Hreggviður Jónsson svaraði með gagnsök og krafðist, að réttur sinn til nýbyggingarinnar yrði viður- kenndur, og að Ársæli Sveinssyni skyldi gert að fjarlægja timbur- geymsluhúsið að viðlögðum dag- sektum. Einnig krafðist hann skaðabóta. Dómsniðurstaða bæjarþings Vest mannaeyja varð á þá leið, að lögbannið var staðfest, og Ársæli tildæmdar kr. 10.000.00 í skaða- bætur vegna viðgerða á húsinu Framhald á l4 siðu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.