Tíminn - 08.07.1965, Síða 16

Tíminn - 08.07.1965, Síða 16
Heimingur mann- kynsins sveltur Kjeld B. Juul, yfirmaður Evrópudeildar „Herferðar gegn hungri" í heimsókn TK-Reykjavík, miðvikudag. FYRIR 3 MILLJARDA KR. ÁRSFUNDI NORRÆNA SAMVINNUSAMBANDSINS, SEM HALDINN VAR HÉR Á LANDI í FJÓRÐA SINN, LAUK í GÆR AK—Reykjavík, miðvikudag. — Forystumenn Norræna sam- vinnusambandsins, sem hér hafa setið á ársfundi sínum undan- farna daga, ræddu við fréttamenn í dag og skýrðu þeim frá fundinum. Þetta er í fjórða sinn sem Norræna samvinnusamband ið heldur ársfund sinn hér í Reykjavík. SÍS hefur verið mjög virkur félagi f samtökunum hin síðustu ár og annaðist fundinn. I gær fóru hinir erlendu gestir, sem voru 70—80 samtals í boði SÍS í ýmsar ferðir, meðal annars ríðandi frá Laugarvatni til Þing- valla, í bflum að Gullfossi og Geysi og einnig til veiða út á flóa. f gærkveldi var svo hópurinn allur í boði SÍS á Þingvöllum. Norræna samvinnusamband- ið er sem kunnugt er fyrst og fremst sameiginleg innkaupa- stofnun samvinnufélaganna á Norðurlöndum, en innan þeirra eru um 10 milljónir félags- manna. Það var stofnað 1918, og var einn helzti hvatamaður að stofnun þess Albin Johan- son, hinn kunni sænski sam- vinnuleiðtogi, sem hefur siðan setið í stjórn samtakanna í 47 ár og er heiðursfélagi þeirra. Hann sat fundinn hér í Reykja- vík að þessu sinni. Formaður samtakanna Carl Albert Anderson. formaður Kooperativa Förbundet í Sví- þjóð, gat ekki sótt fundinn, og var hann því haldinn undir stjórn varaformannsins Ebbe Groes forstjóra í Kaupmanna- höfn. Fundurinn hvíldi og að sjálfsögðu mjög á herðum for- ystumanna íslenzkra samvinnu- manna að þessu sinni, einkum þeirra Erlendar Einarssonar forstjóra og Jakobs Frímanns- sonar formanns SÍS. Aðrir stjórnarmenn, sem fundinn sátu, voru Harry Hjalmarsson frá Svíþjóð, John Gillberg frá Svíþjóð, P. Nyboe Andersen og Peter Söiland frá Noregi og Paavo A. Viding og Uuno Takki frá Finnlandi. Ebbe Groes, varaformaður Norræna samvinnusambands- ins skýrði. frá því, að velta sam takanna hefði á síðasta ári orð- ið yfir 3 milljarða íslenzkra króna og vaxið um 24% á ár- inu 1964. Fyrsta varan, sem samtökin keyptu sameiginlega fyrir sam- vinnufélögin á NorðurlÖndum og raunar fleiri, var kaffi og enn er kaffi stærsti vöruflokk urinn. Á síðasta ári keyptu samtökin og fluttu til Norður- landa 665 þús. sekki eða 40 millj. kg. af kaffi, mest frá Santos í Brasilíu, þar sem sam- tökin hafa skrifstofu. Þá hafa samtökin líka skrifstofu í San Francisco og Valencia á Spáni. en þau annast mikil sameigin- ieg innkaup á ávöxtum. Aðalframkvæmdastjóri Nor- ræna samvinnusambandsins er Svíinn Lars Lundin, og í skýrslu hans á fundinum kom fram, að tekjuafgangur af starfsemi samtakanna hefði orðið nær 40 millj. islenzkra króna, en af því hefði nær 18 millj. ísl. kr. verið skilað aftur til félaganna eftir reglum um samvinnuvið- skipti, en annað fer til rekstrar- ins. Ebbe Groes sagði, að jafn- framt þessum ársfundi héldi systurfélag Norræna samvinnu- sambandsins, Nordisk-Andels- Export aðalfund sinn í Reykja- vík þessa daga, enda væri sú stofnun eign sömu aðila og hefði þann tilgang að stuðla að útflutningi framleiðsluvara fé- lagslandanna og greiða fyrir slíkum viðskiptum milli þeirra. Þessi stofnun hefði starfað í 10 ár. í sambandi við þennan fund færu fulltrúar NAE nú til Akureyrar í heimsókn til klæða verksmiðja SÍS meðal annars i þeim tilgangi að athuga mögu Ieika á sölu islenzks húsgagna áklæðis til Bandaríkjanna. Varaformaðurinn sagði. að á síðasta ári hefði sameiginleg velta samvinnufélaganna á Norðurlöndum innan Norræna samvinnusambandsins verið um 60 milljarðar ísl. króna, og þar keyptu um 3,4 milljónir heimila með um 10 millj. manns vörur sínar. Hann kvaðst Framhald á l4. síðu. Hingað kom i gær danski guð- fræðingurinn Kjeld B. Juul, yfir- maður Evrópudeildar hinnar sér- stöku stofnunar innan Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S. Þ. „Her- ferðar gegn hungri“. Sagði hann, að % hlutar jarðarbúa væru nú vannærðir eða syltu heilu hungri. Mannfólkinu fjölgaði miklu hrað- ar en næmi aukningu matvæla- framleiðslu og myndi mannkynið tvöfaldast fram að næstu aldamót- um. Þar við bættist að mestur hluti aukningar matvælaframleiðsl unnar væri á hinum hærra þró- uðu svæðum heimsins. Starfsemi herferðar gegn hungri væri ekki matvælagjafir, heldur hjálp til fólksins til að hjálpa sér sjálft og afla sér fæðu af eigin rammleik. Kjeld B. Juul er hér til við- ræðna við hina nýstofnuðu nefnd- á vegum æskulýðsfélaga í land inu, „Herferðar gegn hungri". Einnig hefur hann rætt við for- ystumenn stjórnmálaflokka, ríkis- stjómina og aðra ráðamenn um það vandamál, sem hér um ræðir. Sagði hann, að allir hefðu tekið máli sínu vel og heitið stuðningi. Juul sagði, að „Herferð. gegn hungri“ grundvallaðist á sam- vinnu alþjóðastofnana, ríkisstjórna og fólksins í hinum ýmsu þjóð- löndum, samtökum þess og stofn- unum. ísland væri eina landið, þar sem þessi starfsemi hefði ver- ið hafin fyrir forgöngu og ein- göngu af ungu fólki og bar hann lof á ÆSÍ og aðildarfélög þess 1 því sambandi. FAO vænti sér mik- ils af starfi ungs fólks á þessu sviði, en fjöldi ungra sjálfboða- Framhald á 1*. síðu. tvær myndir hér að ofan og neðan voru teknar af stjorn og framkvæmdast|ora Norræna sam- vinnusambandsins á aSalfundinum. Á efri myndinni eru taldir frá vinstri: Erlendur Einarsson for- sijéii SfS. Ebbe Groes forstjóri danska samvinnusambandsins, Lars Lundin aðalframkvæmdastjóri Norræna samvinnusambandsins, prófessor Paul Nyboe Andersen formaður danska sambandslns. Og á myndinni fyrir neðan eru frá vlnstri: Harry Hjalmarsson framkvæmdastjóri sænska sambandsins, John Gitlberg framkvæmdastjórl, dr. Uuno Takki framkvæmdastjóri annars finnska samb. O.T.K. og Paavo A. Vkitng framkvæmdastjóri hins finnska sambandsins S.O.K. SAMEIGINIEG VÖRUKAUP Bent Larsen hefur náð góðu forskoti Hsím-Reykjavík, miðvikudag. Bent Larsen hefur mikla mögu- leika til að komast áfram í heims- meistarakeppninni í skák, því eft- ir fjórar skákir við Ivkov hafði hann tryggt sér tvo vinninga í forskot. Larsen vann fyrstu og þriðju skákina, og missti niður vinning í þeirri fjórðu, en jafn- tefli varð einnig í annarri skák þeirra. Fimmtu skák þeirra var frestað vegna veikinda Ivkovs, sem lagði fram læknisvottorð. Jafnframt tefla þeir Tal og Framhald . A síðu. Myndin var tekin i útrelðartúr sem nokkrir af þátttakendum á aðalfundi N. A. F. fóru frá Laugarvatnshellum tll Þinqvalla. (Ljósmyndir Þorvaldur Ágústsson) 180. HA. — Fimmtuöagur 8. jWí T965 — 49. arg HMtuj

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.