Morgunblaðið - 12.12.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 12.12.1980, Síða 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 278. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 12. DESEMlíER 1980 Prentsmiðja IVlorgunblaðsins. NATO-ríkin ráðgera snörp viöbrögð Átta verðandi ráðherrar í Handa- ríkjastjórn. talið frá vinstri: Cas- ey. yfirmaður CIA. Stockmann. fjárlaxastjóri. Drew Lewis, sam- KónKuráðherra, Schweiker, heil- brÍKðis- og félaKsmálaráðherra. Smith, dómsmálaráðherra, Wein- herKer, varnarmálaráðherra, IteKan fjármálaráðherra <>k HaldridKe viðskiptaráðherra. (AP-NÍmamynd) BrUssel. 11. desember. AP. IIAFT er eftir ítölskum stjórnarerindrekum hjá NATO að Muskie, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi lagt fyrir ráðherrafund bandalassins fjórþætta áætlun um viðbrögð NATO-ríkjanna við huKsanletíri íhlutun Sovétmanna í Póllandi. Að sögn hinna ítölsku heim- ildarmanna er gert ráð fyrir því í áætluninni að endir verði bundinn á allar pólitískar samningaviðræður austurs og vesturs, sendiherrar bandalags- ríkjanna verði kallaðir heim frá Sovétríkjunum og öðrum A-Evrópuríkjum sem þátt tækju í íhlutun, auk þess sem sérstakir samningar um við- skipti og lánakjör yrðu.úr gildi numdir og efnahagssamningar milli Austur- og Vestur-Þýzka- lands yrðu endurmetnir. í áætl- un Muskies er einnig gert ráð fyrir því að skorið verði á samningsbundin menningar- tengsl. Víst er talið að Sovétstjórn- inni verði gerð grein fyrir niðurstöðu ráðherrafundarins, sem fram fór fyrir luktum dyrum, en fulltrúar sendi- nefnda flestra aðildarríkja hafa lagt ríka áherzlu á að halda henni leyndri. Muskie lýsti því yfir á fréttamannafundi í dag, að stjórnir NATO-ríkjanna hefði komið sér saman um viðbúnað til að bregðast skjótt við hugsanlegri íhlutun í Pól- landi. Yrði litið á íhlutun Sovét- manna sem „hina alvarlegustu þróun, sem óhjákvæmilega kall- aði á hin alvarlegustu við- brögð,“ eins og hann orðaði það. Hverju viðbögðin yrðu fólgin vildi hann ekki segja, en ljóst væri að ráðherrafundur yrði kallaður saman í skyndi ef til tíðinda drægi og yrði verkefni þess fundar að velja milli nokk- urra áætlana sem undirbúnar yrðu í Brússel. Muskie margítrekaði að í umræðum utanríkisráðherra NATO-rikjanna um þetta efni í dag hafði ekki komið fram ágreiningur. Uganda: Muwanga vill ráða kosningaúrslitum Kampala. 11. desemher. AP. PAULO MuwanKa, leiðtogi her- stjórnarinnar í Uganda. hefur fyrirskipað að kosningaúrslitum í fyrstu þinKkosninKum í Iandinu í 18 ár skuli haldið leyndum. um leið <>k hann hefur áskilið sér rétt til að óKÍIda kosninKaúrslitin „ef á þurfi að halda". Leiðtogar stærstu flokkanna, sem þátt tóku í kosningunum, Milton Obote fyrrum forseti landsins, úr sósíalistaflokknum UPC, og Paul Ssemogerere frá Lýðræðisflokkn- um, hafa hvor um sig lýst yfir sigri í kosningunum. Tvísýnt var um úrslit kosn- inganna, og hafa mál tekið óvænta og ískyggilega stefnu með þessum umsvifum Muwanga, sem er yfir- lýstur stuðningsmaður Obotes. Er ósennilegt að lýðræðislegri stjórn verði komið á á næstunni, og eru stjórnmálaskýrendur sem fylgzt hafa með kosningunum og undir- búningi þeirra dolfallnir. Kosn- ingarnar þóttu fara furðuvel fram, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á fram- kvæmd þeirra, en nú er óttazt að í kjölfar þeirra komi enn á ný til átaka í landinu, ekki sízt ef Muw- anga lýsir því senn yfir að flokkur Obotes hafi farið með sigur af hólmi. Milton Obote ásamt Marie konu sinni á kosningafundi i Kampala (AP-simamynd) Kania-stjórn rómar Varsjá, 11. desember. AP. PÓLSKA stjórnin Kcrir sér nú sérstakt far um að friða stjórnir annarra VarsjárbandalaKsríkja <>K fullvissa þa*r um að allt sé mcð kyrrum kjörum I Póllandi <>K cnKÍn ásta*ða til að a'tla að þar fari citthvað úr skorðum á næstunni. Af skrifum málgagna komm- únistastjórna nágrannaríkjanna er auðskilið að starfsemi gagn- byltingarafla 4 Póllandi verði ekki látin afskiptalaus, en pólsk blöð benda á að nú sé nokkuð um liðið síðan komið hafi til verk- falla í landinu og sé nú friðvæn- Weinberger fær varnarmál - Casey verður yfirmaður CIA WashinKton, 11. desomber. AP. RONALD Reagan. sem senn tekur við cmhætti Handaríkjaforseta. út- nefndi í dag átta ráðherra í ríkisstjórn sína af fimmtán. Fjár- málaráðherra verður Donald Reg- an, Caspar Weinberger verður varnamálaráðherra. William Franch Smith dómsmálaráðherra. <>K yfirmaður leyniþjónustunnar CIA verður William Casey, en allir þessir menn hafa um árahil verið nánir ráðgjafar forsetaefnisins. Talið er fullvist að Alexander IlaÍK verði utanríkisráðherra. þótt útnefning hans hafi enn ekki farið fram. Ronald Reagan var fjarstaddur er tilkynnt var um ráðherraefnin, en þau eru auk þeirra sem áður voru talin, Drew Lewis, sem fer með samgöngumál, Malcolm Baldridge viðskiptaráðherra, heilbrigðis- og félagsmálaráðherra verður Richard Schweiker og David Stockmann, sem annast mun fjárlagagerð alrík- isstjórnarinnar. Allir eiga menn þessir það sam- merkt að vera karlkyns repúblikan- ar af hinum hvíta kynstofni, og er það mál sumra fréttaskýrenda að nýja ríkisstjórnin sé samsett á líkan hátt og svo margar aðrar stjórnir, þar sem hæst hafi borið gamla samherja forsetaefnis og þekkta menn úr atvinnulífinu. Yngsti ráð- herrann, sem tilkynnt var um í dag, er Stockmann, sem er 34 ára að aldri, en hann er jafnframt talinn þeirra íhaldssamastur í skoðunum. William Casey, sem verður yfir- friðsæld legra þar en verið hafi um langa hríð. Pravda birti í dag umfangs- mikla grein um innrásina í Tékkóslóvakíu árið 1968 með yfir- skriftinni „Dýrmæt söguleg reynsla", og er litið á greinina sem enn eina viðvörun til Pól- verja. maður CIA, var kosningastjóri Reagans. Donald Regan, verðandi fjármálaráðherra, hefur verið stjórnarformaður stórfyrirtækisins Merill Lynch, og hefur um árabil verið umsvifamikill í Wall Street. Caspar Weinberger hefur farið með yfirstjórn fjármála í Kaliforníu í ríkisstjóratið Reagans, en hann átti á sínum tíma sæti í stjórn Richard Nixons. Smith, sem verður dóms- málaráðherra, hefur lengi verið persónulegur ráðgjafi Reagans um lögfræðileg málefni. Astæðan fyrir því hve útnefning Haigs í embætti utanríkisráðherra hefur dregizt á langinn er talin vera sú, að enn hafi ekki unnizt tími til að ljúka athugun á fjárreiðum hans, en slík athugun er nákvæm og tímafrek og er fastur liður í könnun á ferli hvers manns, sem kemur til greina í ráðherraembætti í Banda- ríkjunum. Lennons minnzt með þögn á sunnudaginn New YTork, 11. desember. AP. YOKO Ono. ekkja John Lennons, hefur mælzt til þcss að þeir. sem hans vilja minnast geri það með tiu minútna þögn og íhugun. sem hefjist klukkan 14 að íslenzkum tima ásunnudaginn kcmur. Hálför Lcnnons fór fram í kyrrþey i Salt Lakc City síðdcKÍs á miðvikudag. en haft er eftir Yoko Ono. að hún hafi með þeirri ráðstöfun viljað koma í vck fyrir móðursýki <>k rinKulreið í sambandi við útförina. Mark David Chapman, sem sakaður er um morðið á Lennon, kom í dag fyrir rétt í New York. Verjandi hans, Herbert Adler- berg, sem sagður er hafa fengið morðhótanir, hefur óskað eftir því að verða leystur frá því að verja Chapman, og er mál hans nú í athugun. Öryggisgæzla var með öflugasta móti er Chapman kom í réttarsalinn, og var fanginn hafð- ur í skotheldu vesti. Hann var sagður fölur og fár og svipbrigða- laus þá skömmu stund sem réttar- haldið fór fram. Eiginkona Chaptnans, sem hingað til hefur ekkert viljað um málið segja, rauf þögn sína í dag. Hún kvaðst miður sín yfir því sem gerzt hefði. Hún harmaði að John Lennon væri ekki lengur í tölu lifenda og kvaðst taka þátt í þján- ingu Yoko Ono og sonar hennar. Hún var að því spurð hvað hún mundi segja við Chapntan, ef hún hitti hann, og svariö var: „Ég mundi segja: „Ég elska þig,“ en hún bætti við að hún hefði ekki í hyggju að verða viðstödd réttar- höldin. Yoko Ono hefur birt yfirlýsingu frá sér og syni sínum, þar sem hún lýsir því hvernig hún gerði Sean, sem er fimm ára að aldri grein fyrir hinu sviplega fráfalli föður hans. „Ég sagði Sean frá því sem gerðizt. Ég sýndi honum mynd af föður hans í dagblaði og útskýrði hvernig högum okkar væri nú komið. Svo fór ég með Sean á staðinn þar sem John lá eftir að hann var skotinn. Sean spurði hví maðurinn hefði skotið John fyrst hann hefði haft mætur á John. Ég sagði að sennilega væri hann ruglaður. Þá sagðist Sean vilja fá að vita hvort hann væri ruglaður eða hvort hann hefði raunverulega ætlað sér að drepa John. Síðan fór Sean að gráta og sagði þá: „Nú er pabbi orðinn hluti af guði. Ég held að þegar maður deyr verði maður miklu merkilegri af því að þá er maður orðinn hluti af öllu.“ Yoko Ono lýkur yfirlýsingunni með því að við þessi ummæli sonar síns hafi hún engu að bæta öðru en því að þau Sean verði með þeim í anda sem minnist John lænnons með tíu mínútna þögn á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.