Morgunblaðið - 12.12.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1980
39
ÍS af mesta
hættusvæóinu
ÍS FYLGDI eftir KÓOum sigri
sinum gcgn ÍR á dogunum. með
öðrum KÓðum sigri, nú gegn
Ármanni og hefur liðið farið
langt með að tryggja stöðu sína í
úrvalsdcildinni í körfuknattleik.
Leikur liðanna í Hagaskólanum í
gærkvöldi var í heild mjög slakur
en engum blöðum er um að fletta.
að betra liðið vann. lokatölurnar
urðu 91—80, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 49—43 fyrir
ÍS.
Um gang leiksins er það eitt að
segja, að ÍS hafði ávallt forystuna,
hún var bara mismunandi mikil.
Mest var hún í fyrri hálfleik 17
stig, 37—20, en undir lok hálf-
leiksins tókst Ármanni að minnka
muninn dálítið. En í síðari hálf-
leik mkunaði lengst af 10—12
stigum og sigri ÍS var í raun aldrei
ógnað að neinu ráði.
Liðsheild ÍS er sterkari en
liðsheild Ármanns og auk þess
voru leikmenn ÍS uppfullir
sjálfstrausts og sigurvilja eftir
sigurinn gegn ÍR á dögunum. Það
gerði gæfumuninn og þó að nokkr-
ir í liði Ármanns hafi leikið
bærilega, var það alls ekki nóg.
Mest kvað að Mark Coleman, en
hittni hans var sveiflukennd. Ann-
ars voru þeir Gísli Gíslason og Jón
Oddsson bestu menn liðsins. Þá
voru Ingi, Bjarni Gunnar og Árni
drjúgir og Gunnar Thors var
seigur í vörninni. James Breeler
lék með Ármanni í gærkvöldi og
þó að hann hafi verið stigahæstur
meðal leikmanna liðsins, þýðir
það ekki að hann hafi verið bestur.
I raun var hittni hans léleg og
yfirferðin þaðan af verri. Kristján
írnn 3Q;91
Rafnsson stóð vel fyrir sínu og
Valdemar lék mjög bærilega og
virðist vera að ná sér nokkuð upp
/eftir að hafa verið í öldudal (eða
hreinlega á bekknum) það sem af
er vetri.
Stig Ármanns: James Breeler
26, Kristján Rafnsson 17, Valde-
mar Guðlaugsson 14, Atli Arason
9, Guðmundur Sigurðsson 7, Hörð-
ur Arnarson 4 og Davíð Ó. Árnar 3
stig.
Stig ÍS: Mark Coleman 28, Jón
Oddsson og Gísli Gíslason 15 hvor,
Bjarni Gunnar Sveinsson 12, Árni
Guðmundsson 11, Ingi Stefánsson
9 og Gunnar Thors eitt stig.
— gg.
Ljótur ósiður
LEIKUR Ármanns og IS í Ilaga-
skóla i gærkvöldi var auglýstur
klukkan 20.00. En hann byrjaði
ekki fyrr en 25 mínútur yfir átta.
Aldrei í vetur hefur stundvisin
verið jafn ömurleg, en þó hafa
flestir úrvalsdeildarleikjanna
ekki byrjað stundvislega.
Þetta er ba*ði ósiður og dóna-
skapur gagnvart áhorfendum að
bjóða þeim upp á að hanga allt að
hálfa klukkustund fram yfir
þann leiktíma sem auglýstur er i
mótabók. Vonandi verður þessu
kippt i lag.
Fram sigraði Þrótt
í spennandi leik
LIÐ FRAM sigraði Þrótt með 24
mörkum gegn 21 í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi og lyfti sér
þar með upp í möguleika til þess
að halda sæti sinu i 1. dcild gangi
liðinu vcl í næstu leikjum. Þrótt-
ur missti hinsvegar af möguleika
sínum á að verða meistarar i ár.
Þvi að fullvist má nú telja að
ekkert geti komið i veg fyrir að
Víkingur verði íslandsmeistari.
Leikur Þróttar og Fram var
gífurlega spennandi i síðari hálf-
leiknum sem var lengst af mjög
jafn.
Þróttur náði forystunni í leikn-
um og komst í þriggja marka
forskot en Fram hafði jafnað og
náð að komast marki yfir í lok
hálfleiksins. Það kom því í hlut
Þróttar að jafna metin rétt áður
en flautað var til leikhlés. Staðan
var jöfn 11—11. Síðari hálfleikur-
inn var jafn á öllum tölum upp að
15—15. Þá tókst Fram að ná
tveggja marka forystu og átti góða
möguleika á að bæta þriðja mark-
inu við en það mistókst. Þróttur
jafnaði leikinn og þegar sjö mín-
útur voru til leiksloka var staðan
jöfn 20—20. Björgvin Björgvins-
son átti stórleik með Fram og
skoraði sex mörk í röð fyrir Fram
á þessum tíma og lék mjög vel.
Síðustu mínútur leiksins léku
Þróttarar mjög óyfirvegað og lítil
hugsun var í leik liðsins. Þeir
misstu tvo leikmenn útaf og Fram
tókst að komast yfir 22—20. En þá
var komið að Fram þeir misstu tvo
leikmenn útaf og léku fjórir í
lokin. En allt kom fyrir ekki
leikmenn Þróttar skutu mjög svo
ótímabærum skotum og létu skap-
ið hlaupa með sig í gönur. Fram
sigraði örugglega. Lék mun betur
lokakaflann í leiknum.
Besti maður Fram var Björgvin
Björgvinsson sem sýndi sannkall-
Fram OA.41
Þróttur I
aða snilldartakta á línunni og
misnotaði varla tækifæri. Þá varði
Sigurður Þórarinsson vel í marki
Fram á þýðingarmiklum augna-
blikum. Lið Þróttar lék nokkuð vel
framan af leiknum en missti síðan
leikinn út úr höndum sér. Sigurð-
ur Sveinsson var fullbráður í
skotum og gekk illa að skora.
Sigurður Ragnarsson markvörður
Þróttar snéri sig illa á ökkla í
leiknum og varð að fara útaf en
lék síðari hálfleikinn á öðrum
fætinum. En varði þó sæmilega
vel. Páll Ólafsson er leikmaður
sem nær ekki langt í íþróttum ef
hann lærir ekki að temja skap sitt.
Hann gerði liði sínu um tíma
meira ógagn en gagn með ótíma-
bærum skotum og óyfirveguðum
leik bæði í vörn og sókn.
í STUTTU MÁLI:
ÍSLANDSMÓTIÐ 1. DEILD:
Þróttur—Fram 21—24. (11—11)
Mörk Þróttar: Páll Ólafsson 6 lv,
Sigurður Sveinsson 5, Ólafur H.
Jónsson 3, Gísli Óskarsson 3 lv,
Lárus Lárusson 2, Jón Viðar
Jónsson 2.
Mörk Fram: Björgvin Björgvins-
son 8, Axel Axelsson 6 3v, Atli
Hilmarsson 5, Hannes Leifsson 3,
Hermann Björnsson 2.
Brottvísun af leikvelli: Jón Viðar
og Páll Ólafson Þrótti í 2 mín.
hvor. Magnús Margeirsson Þrótti í
4 mín.
Axel Axelsson Fram í 4 mín. og
Hannes Leifsson í 2 mín.
Varin víti: Sigurður Þórarinsson
varði tvö vítaköst frá Sigurði
Sveinssyni. Kristinn Atlason varði
vítakast frá Axel Axelssyni. Páll
Ólafsson skaut í þverslá. — þr.