Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1980 3 Minnis- merkið í Gdansk ÞRIÐJUDAGINN 16. des- ember söfnuðust hundruð þúsunda Pólverja saman utan við Lenínskipasmíða- stöðina í Gdansk við afhjúp- un minnismerkis um verka- mennina. sem týndu lífi í verkfallsaðgerðunum 1970. í samkomulaRÍ pólsku ríkis- stjórnarinnar ok fulltrúa frjálsra verkamanna frá því síðasta haust fólst heimild til að reisa minnismerkið. Að gerð þess unnu meira 'en 300 starfsmenn skipasmíða- stöðvarinnar launalaust. Merkið er þannig, að þrír stálkrossar teygja sig 40 metra til himins, Þurfti meira en 100 lestir af stáli í kross- ana og á þvertrjám þeirra hanga akkeri, eins og myndin sýnir. Jablonski forsætisráð- herra, erkibiskupinn í Kraká, Macharski kardínáli, og Lech Walesa, verkalýðsleiðtogi, fluttu ræður við afhjúpunina og sá síðastnefndi tendraði hinn eilífa loga, sem blakta mun við minnismerkið. Snjó rutt af vegin- um milli Húsavík- ur og Akureyrar Sveinn Björnsson, varaborgarfulltrúi: Mikill afturkippur í upp- byggingu íþróttamannvirkja - síðan núverandi meirihluti tók við f FYRSTA skipti i sögu Reykja- vikurborgar siðustu áratugi hef- ur sinnuleysi núverandi meiri- hluta borgarstjórnar gagnvart íþróttalegri uppbyggingu verið i algleymingi,- sagði Sveinn Björnsson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. á borgar- stjórnarfundi sem haldinn var sl. fimmtudag. Á fundinum fór fram fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár. Sveinn sagði ennfremur að lítið sem ekkert hefði verið unnið við ný íþróttamannvirki á árunum 1979 og 1980 og ekki væri hægt að sjá fyrir breytingu á þeim málum á árinu 1981. „Síðan núverandi meirihluti borgarstjórnar tók við hefur orðið mikill afturkippur í uppbyggingu íþróttamannvirkja hér í Reykja- vík,“ sagði Sveinn. Sveinn sagði að í tillögum íþróttaráðs fyrir árið 1979 hefði verið lagt til að varið skyldi 296 milljónum til uppbygg- ingar íþróttamannvirkja. „Núver- andi meirihluti afgreiddi tillögur íþróttaráðs," sagði Sveinn, „og í staðinn fyrir 296 milljón króna tillögu ráðsins, kom eitt stórt núll, engu fjármagni veitt til uppbygg- ingar íþróttamannvirkja," sagði Sveinn. Sveinn sagði að íþróttaráð hefði samþykkt í haust að leggja til við borgarstjórn að 910 milljónum yrði veitt til ýmissa íþrótta- framkvæmda, en miðað við með- ferð meirihlutans á tillögum ráðs- ins í þessum efnum hingað til, væri ekki mikils að vænta. Húsavík. 27. dosember. Á AÐVENTUNNI var tíðarfar heldur risjótt. en ekki stórviðra- samt óg samgöngur gengu með nokkuð eðlilegum hætti. flogin flest áadlunarflug hjá Flugleið- um og farþegar komust svo að segja eftir áa'tlun. Tafir urðu þó á vöruflutningum. Bærinn er ljósum prýddur nú um hátíðarnar. Rafveitan flóðlýsir kirkjuna eins og áður, en bæjar- jólatréð er ljósum prýtt sunnan við samkomuhúsið og Lions-menn hafa sett upp stórt jólatré við sjúkrahúsið. Fiskiskip í höfninni eru alsett ljósum. Á aðfangadag var hér hið feg- ursta veður og greiðfært um allar nálægar sveitir, en aðfararnótt jóladags gerði norðaustan hvell og skóf í slóðir, svo að víða varð ófært, en á jóladag mátti heita gott veður, en dálítið kalt. í dag er verið að ryðja snjó af veginum til * Húsavík: Síðustu iðn- nemarnir eftir gamla kerfinu Húsavík á Porláksmessu 1980. SÍÐASTLIÐINN föstudag luku 17 iðnnemar prófi í Iðnskóla Ilúsavíkur og verða það síðustu nemarnir er því námi ljúka samkva>mt gamla iðnnámskerf- inu. Eftir áramótin munu nýir iðnnemar hefja nám í samræmi við nýsettar reglur um samræmt iðnnám í framhaldsskólum á Norðurlandi. — Fréttaritari. Akureyrar, sem á voru nokkur höft. — Fréttaritari. Guðbrands- biblía Jóns Sólness Guðbrandsbiblía sú er Jón Sólnes keypti á uppboði í London fyrr í vetur er nú komin í hendur eiganda síns, en um tíma stóð á útflutnings- leyfi frá Bretlandi. Jón borgaði á tólftu milljón króna fyrir þennan kjörgrip, sem hefur verið til sýnis undanfarna daga í glugga Iðnaðar- bankans og verður eitthvað áfram. Sverrir Pálsson, fréttaritari Mbl. á Akureyri, tók þessa mynd af Jóni með gripinn á heimili sínu fyrir skömmu. Samband málm- og skipasmiðja: Vilja framlengingu tíma- bundins aðlögunargjalds MORGUNBLAÐINU hefur borizt cftirfarandi fréttatilkynning frá Samhandi málm- og skipasmiðja: Fundur í sambandsstjórn Sam- bands málm- og skipasmiðja hald- inn 15. desember 1980, ítrekar þá skoðun samtakanna að lög um tímabundið aðlögunargjald verði framlengd eftir næstu áramót. Fundurinn bendir á, að þær forsendur sem lögin eru byggð á eru — því miður — enn fyrir hendi. Stjórnvöld hafa á þessu og síðasta ári ekki framkvæmt þær leiðréttingar á samkeppnisaðstöðu iðnaðarins sem lofað hafði verið. Ef loforðin hefðu verið efnd, væri engin ástæða til að framlengja umrædd lög. íslenskur iðnaður biður aðeins um jafnrétti í að- stöðu gagnvart öðrum atvinnu- greinum svo og erlendum sam- keppnisaðilum. Fundurinn er þeirrar skoðunar, að ef stjórnvöld framlengja ekki aðlögunargjalds- lögin né fella niður hin ýmsu álög af iðnaðinum þá hafi þau sett iðnaðinn skör lægra en aðrar atvinnugreinar. Með setningu aðlögunargjalds- ins fékkst viðurkenning á því hjá EFTA og EBE, að íslenskur iðnað- ur hafi enn ekki náð þeirri iðn- þróun sem til var ætlast á aðlög- unartímabilinu. Gjaldið var hugs- að sem vernd að nokkru og einnig fjármögnun iðnþróunaraðgerða. Með afnámi aðlögunargjaldsins er verndinni aflétt, án þess að létt sé af iðnaðinum álögum, svo sem launaskatti o.fl. Einnig er kippt fótum undan fjármögnun þess iðnþróunarátaks, sem S.M.S. hef- ur unnið að í anda laganna og stefnir markvisst að því, að efla framleiðni og samkeppnishæfni starfsereina í málmiðnaði. Gimilegur ostabakki gerir ávallt lukku. Vi3 óvænt innlit vina, sem ábætir í jólaboðinu eða sér- réttur síðkvöldsins. OSTABAKKIGÓÐ TILBJREYTING Láttu hugmyndaflugið ráða ferð- inni, ásamt því sem þú átt af ostum og ávöxtum. Sannaðu til, árangurinn kemur á óvart. OG SUKKUIAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.