Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1980 21 fclk f fréttum Tíu þeirra fimmtán sem heiðraðir voru i tilefni af 60 ára afmæli Sjómannafélags Reykjavíkur ásamt formanni félagsins. Aftari röð frá vinstri: Valdimar Jónsson. Björn Andrésson. Theodór Friðríksson, Snorri Ólafsson og Haraldur ólafsson. Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Hallvarðsson formaður SR, Jón Sigurðsson, Jón Hilmar Jónsson, Sigfús Bjarnason, Asgeir Torfason og Eyjólfur Þorvarðarson. Efstir í Konunglega fagskólanum í Svíþjóð Fimmtán sjómenn heiðraðir ... + STJÓRN Sjómannafélags Reykjavíkur hélt hóf í tilefni af 65 ára afmæli félagsins í Lindar- bæ, 13. desember síðastliðinn. Hinn 23. október 1915 var Há- setafélag Reykjavíkur stofnað en árið 1920 var nafni þess breytt í Sjómannafélag Reykjavíkur. í fyrstu stjórn félagsins voru: Formaður, Jón Back; varafor- maður, Jósef Húnfjörð; ritari, Ólafur Friðriksson; féhirðir, Guðmundur Kristjánsson; vara- féhirðir, Guðmundur Hjör- leifsson; aðstoðarmenn, Björn Blöndal og Jón Einarsson, yngri. í tilefni af afmælinu voru fimmtán félagsmenn heiðraðir, þeir: Ásgeir Torfason, Björn J. Andrésson, Bergsteinn Hjör- leifsson, Eyjólfur Þorvarðarson, Erlendur Þórðarson, Haraldur Ólafsson, Jón Ármannsson, Jón Hilmar Jónsson, Jón Sigurðsson, Sigfús Bjarnason, Snorri Ólafs- son, Sæmundur Ólafsson, Theo- dór Friðríksson, Valdimar Jónsson og Þorgils Bjarnason. Núverandi stjórn Sjómannafé- lags Reykjavíkur skipa: Guð- mundur Hallvarðsson, formað- ur; Hilmar Jónsson, varaformað- ur; Erling Richard Guðmunds- son ritari; Sigurður Sigurðsson, gjaldkeri; Guðmundur Haralds- son, varagjaldkeri; Pétur S. Sig- urðsson og Skjöldur Þorgríms- son, meðstjórnendur og vara- menn, Magnús Jónsson, Jón E. Helgason og Bárður Sigurðsson. Fjögurra vikna dvöl í listaborginni Flórenz + TVEIR íslenzkir bakarasvein- ar, Víglundur Jónsson og Birgir Snorrason, voru íslenzkri bakarastétt til mikils sóma er þeir hrepptu efstu sætin í Linn- én skólanum í Uppsölum fyrir skömmu. Bakarasveinar frá öll- um Norðurlöndunum sækja þangað framhaldsmenntun í iðngreininni og koma þeir marg- ir hverjir frá þekktum kökugerð- um í þessum löndum. Birgir Snorrason er Akureyringur og lærði bakaraiðn í bakaríi Kr. Jónssonar þar í bæ en Víglundur Jónsson er Reykvíkingur og lærði í Árbæjarbakaríi. Er Víglundur var spurður um tilhögun Linnén-skólans, sagði hann að námstíminn hefði verið í áföngum og tekið próf að hverju verkefni loknu. Kennarar skólans hefðu verið frábærir hvað snerti þekkingu og verk- kunnáttu og Birgir bætti því við að gæði og fjölbreytni þeirra hráefna, sem skólinn hafði yfir að ráða, ásamt færni kennar- anna hefði gert námið mjög áhugavert. Þá var Víglundur spurður hvort þeim hefði ekki komið á óvart að hreppa efsta sætið og þar með BRONSVERÐLAUNIN sem eru æðsta viðurkenning skólans. — Nei, ekki svo mjög, Við fylgdumst allan tímann með hinum nemendunum og sáum þegar leið að lokum að við stefndum í efstu sætin. Okkur fannst satt að segja að við hefðum yfir meiri reynslu að ráða en hinir nemendurnir — hin fjölbreyttu störf sem ís- lenzkir bakarar verða að kunna skil á komu okkur til góða. Verksmiðjubakstur var okkur hins vegar framandi enda ekki Stjórnandi hinnar nýju strengjasveitar er Guðmundur Emilsson. en hann er þriðji frá hægri í öftustu röð. + MÁNUDAGINN 29. desember kl. 20.30 heldur nýstofnuð strengjasveit sína fyrstu tónleika í Bústaðakirkju. Sveitin er skipuð ungu fólki sem er ýmist starfandi hér á landi eða við nám og störf erlendis. Stjórnandi á þessum tónleikum ét Guðmundur Emilsson en hann er við nám í hljómsveitarstjórn í Bandaríkjunum. Sigríður Vil- hjálmsdóttir leikur einleik á óbó í konsert eftir Hándel. Hún hefur verið búsett í Berlín undanfarin ár. Á efnisskránni verða auk óbókonsertsins sinfónía eftir C.P.E. Bach, adagio eftir Samuel Barber og serenada eftir Tsjæ- kovski. Aðgöngumiðar verða seld- ir við innganginn. til þess fallinn að skapa fjöl- breyttni og gæði, — hvað þá gott handbragð. Okkur finnst þessi verðlaun sem við fengum ekki síður viðurkenning fyrir bakarí- in sem við lærðum hjá en okkur sjálfa. En hver er staða íslenzkra bakaría miðað við bakarí á hinum Norðurlöndunum að ykk- ar mati? — Það fer ekki á milli mála að bakarí hér á landi hafa meira brauðúrval en það sem vekur furðu er að verðið hér er veru- lega lægra en verð á sambæri- legum brauðum á hinum Norð- urlöndunum, þrátt fyrir dýran flutning á hráefnum hingað til landsins. Kökuúrval er aftur meira á hinum Norðurlöndun- um. Sænskar húsmæður eru t.d. mjög kröfuharðar, þær kaupa helzt ekkí annað en vandaðan bakstur úr úrvals hráefnum og sjá ekki eftir að greiða hærra verð fyrir slíka vöru. Þetta hefur gert sænskum bökurum fært að leggja sig mjög fram um vöru- vöndun. Verksmiðjubakstur á hins vegar ekki miklum vinsæld- um að fagna á Norðurlöndum enda eru slíkar vörur að mestu framleiddar til útflutnings. Við urðum mjög varir við það er við heimsóttum sænsk bakarí að neytendur vildu verzla þar sem bakað er á staðnum og ábyrgur fagmaður til staðar. Það er líka full ástæða til því þessar vörur eru viðkvæmar og þola illa geymslu. Islenzkar húsmæður er nú einnig farnar að gera sér betur ljósan mismuninn á vörum í bakaríum og vélpökkuðum verksmiðjubakstri — innflutn- ingur á erlendum bakstri hefur einmitt flýtt fyrir þessu sjálf- sagða gæðamati hér á landi. + PÉTUR Bjarnason, nemandi í höggmyndadeild Myndlista- og handíðaskólans, h-laut fyrstu verðlaun í samkeppni um mynd- ir á álveggskildi sem Isal efndi til meðal nemenda skólans fyrir skömmu. Voru verðlaunin fjög- urra vikna dvöl í listaborginni Flórenz á Ítalíu en sjö peninga: verðlaun voru veitt að auki. I samtali við Morgunblaðið sagði Pétur að myndin, sem hann fékk verðlaunin fyrir, 'væri lands- lagsmynd frá Þingvöllum og væri landslagið talsvert stíliser- að. Hefði frummyndinni verið skilað í gifsi en Isal sæi um að taka álafsteypur af henni. Um væntanlega kynnisferð til Flór- anz sagði Pétur að þar myndi hann örugglega hafa meira en nóg að gera við að skoða lista- söfn og kynnast þessari forn- frægu listaborg en og varla hafa mikinn tíma til að láta sér leiðast. Pétur Bjarnason með verðlauna- myndina. o w Q w Hluti af því prófverkefni sem Viglundur og Birgir leystu af hendi ekki viðvaningar í hlut. % það er greinilegt að þarna eig Frá Linnénskólanum í Uppsölum. Birgir Snorra- son er lengst til hægri á myndinni. Viglundur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.