Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1980 Sameinuðu þjóðanna, er hann samdi ásamt Einari Arnórssyni 1945. Var með þeirri ritgerð m.a. lagður grundvöllur að inngöngu íslands í samtökin ári seinna. Eru þó ótaldar ýmsar merkar ritgerðir um stjórnarskrána, m.a. um mannréttindaákvæði stjórnar- skrárinnar og sjálfsforræði sveit- arfélaga landsins. Aftur hvarf Gunnar til starfa hér við lagadeild snemma árs 1971 sem prófessor í stjórnskipunar- og stjórnarfarsrétti og þjóðarétti. Þegar hér var komið sögu átti hann að baki áralangan feril sem ráðherra, sendiherra og hæsta- réttardómari. Má nærri geta hver fengur það var bæði lagadeiid og laganemum að fá á nýjan leik til starfa mann, sem nú þekkti af eigin reynslu enn betur sannmæli þeirra orða Jónsbókar að trautt fær laganna mannfólkið misst. Þremur árum áður hafði hann varið doktorsritgerðina „Fjöl- mæli“ við Háskóla íslands og aukið þar veglega við þekkingu á sviði refsiréttar og réttarsögu þjóðarinnar. Er sú bók eitt hið bezta framlag til lögvísinda lands- ins á síðari árum. Síðara starfstimabil Gunnars í lagadeild stóð til 1974, er hann varð ráðherra á nýjan leik og þá oddviti ríkisstjórnar Islands. Þar situr hann nú á hefðartindi og horfir fram til margra hýrra verka, enda maður á bezta aldri, eins og hann sjálfur hefur svo vel mælt og vinir hans allir vita að er mála sannast. Fyrir hönd fjölmargra lagamanna færi ég Gunnari Thoroddsen beztu árnaðaróskir á þessum tímamót- um í ævi hans. Megi hans sem lengst njóta við í lífi lands og þjóðar. Gunnar G. Schram Gunnar Thoroddsen er vel þekktur á Vesturlandi frá fornu fari. Hann var frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Mýrarsýslu við alþingiskosningarnar 1934. Þar náði hann ágætum, en óvænt- um árangri, og varð landskjörinn þingmaður, yngstur allra, aðeins 23 ára að aldri. Vorið 1942 bauð hann sig fram í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Hann náði ekki kosningu, en í haustkosningunum sama ár var hann kjörinn á þing í mikilli orrahríð. Hann var alþing- ismaður Snæfellinga 1942—1949. Auk þess hefur hann bæði fyrr og síðar átt óteljandi ferðir um byggðir Vesturlands, bæði sem erindreki Sjálfstæðisflokksins á árunum 1937—1939 og einn af aðalforystumönnum flokksins áratugum saman. Hann hefur ævinlega verið fljótur til að vera við óskum manna um að koma á fundi — eða aðrar samkomur flokksins og jafnan boðinn og búinn til að greiða götu manna og leggja fram krafta sína til úr- lausnar mála. Enn þá lifir í gömlum glæðum minninga frá þingmannsárum hans þar vestra. Þó að hann hefði þá eins og jafnan ærnum störfum að sinna, kom hann mörgum góðum málum fram. Tryggð hans við menn og málefni á Vesturlandi er óbrigðul. Mætti nefna mörg dæmi því til staðfestingar frá síðari áratugum. Hann hafði og yfirleitt sterka aðstöðu til að veita málefnum gott brautargengi. Gunnar var prófessor í lögum við Háskóla Islands frá 1940— 1947, en það ár fékk hann leyfi frá störfum og gerðist borgarstjóri í Reykjavík. Nemendur hans í laga- deild muna hann sem góðan og skemmtilegan kennara og fræð- ara, en jafnframt ágætan félaga, sem í annríki daganna gaf sér tíma til að ræða við þá og taka þátt í félagslífi þeirra gleði og sorgum. Þó að Gunnar sé borinn og barnfæddur Reykvíkingur og hafi lengst af búið og starfað í höfuð- borginni, hefur hann alltaf munað eftir öðrum byggðum landsins. Þeim hefur hann aldrei gleymt. Hann hefur haft næga yfirsýn til að sjá landið allt í einu. Hann hefur alltaf skilið, að gott og náið samstarf verður að vera milli allra landsins barna og byggða, ef þjóðin öll á að geta notið farsæld- ar og hagsældar í ölduróti líðandi stundar. A þessum merkisdegi, þegar Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra fyllir sjöunda áratug ævi sinnar, veit ég, að honum og fjölskyldu hans berast margar hlýjar kveðjur og hamingjuóskir. Enn stendur hann í stafni, ötull og vígreifur. Um hann næða kaldir stormar og siglingaleiðin er vand- rötuð og straumþung. En áfram skal haldið meðan rétt stefnir. Megi honum endast aldur, fram- tak og auðna til enn meiri starfa fyrir land og þjóð. Friðjón Þórðarson. Fyrir rösklega tveimur árum síðan átti ég nokkrar samveru- stundir með umdeildasta manni þjóðarinnar. Eitt sinn ræddum við um skáldskap afa hans. Hann talaði af nokkrum hita um ijóðin, sem væru ekki metin til jafns við sögurnar og benti á að mönnum yfirsæist gjarnan sniildin í þeim vegna þess hvað þau væru „lát- laus“. Hann nefndi nokkur dæmi þessu til staðfestingar og hafði meðal annars yfir ljóðið „Til skýsins" og fjallaði um það á þann hátt að það hefur síðan verið mér sérlega hugleikið. Jafnan þegar það kemur í hugann sé ég fyrir mér skáld og sýslumann í íslenskri sveit sem stendur einn úti á hlaði og ávarpar þetta náttúrufyrir- brigði eins og nágranna sinn: „Eitthvað að þér eins og að mér amar, ég sé þú grætur" í dag er þessi viðmælandi minn forsætisráðherra landsins og haldið er hátíðlegt að sjötíu ár eru liðin síðan hann sá dagsins ljós í húsi einu við Tjörnina í Reykjavík. Flest af því sem okkur fór í milli er þegar komið fyrir almennings- sjónir. Kynni okkar hófust löngu áður vestur á Snæfellsnesi og á þau hefur ekki brugðið skugga. En einhverra hluta vegna situr fastast í mér þessi stund þegar hann gaf mér ljóð afa síns. A þessum tímamótum færi ég Gunnari Thoroddsen einlægar heillaóskir og vil um leið nota tækifærið til að óska honum og Völu til hamingju með hvort annað. Sú virðing og ástúð sem þessi glæsilegu hjón sýna hvort öðru í sérhverju tilliti er beinlínis mannbætandi fyrir þá sem um- gangast þau. Líf stjórnmálamannsins, kenn- arans og listamannsins, Gunnars Thoroddsen hefur verið með þeim hætti að einhver kynni að líkja því við lygasögu. En í raun er það ævintýri, íslenskt ævintýri. Jónina Michaelsdóttir Ég minnist þess frá ungiingsár- um mínum, að gest bar að garði á Akri, sem í sjálfu sér var ekki nýlunda. Honum var tekið opnum örmum af föður mínum og urðu þar augljósir fagnaðarfundir. Mér varð nokkuð starsýnt á gestinn. Mér þótti hann athyglisverður. Hlýleiki og prúðmennska leyndu sér ekki og kímileg tilsvör og sagnir voru á hraðbergi. Glumdi þá mjög hlátur föður míns í hlaðvarpanum. Þessi maður var Gunnar Thoroddsen. Því er þetta minningabrot rifjað upp á sjötugsafmæli Gunnars, að vinátta hans og föður míns stóð óbrigðul meðan báðir lifðu. Er mér óhætt að fullyrða, að minnsta kosti síðari árin mat faðir minn Gunnar Thoroddsen umfram flesta menn aðra, sem stóðu í fylkingarbrjósti á stjórnmálavett- vangi. Ég kynntist Gunnari Thor- oddsen ekki að marki fyrr en hann kom að nýju til starfa á Alþingi, eftir dvöl sem sendiherra í Kaup- mannahöfn. Þau kynni hafa farið vaxandi og þó að sjálfsögðu eink- um eftir að núverandi ríkisstjórn var mynduð. Gunnar á langan og litríkan stjórnmálaferil að baki. Fjölþætt forystustörf hafa aflað honum reynslu, sem er yfirgripsmeiri en títt er hjá stjórnmálamönnum. Hann er laginn í samningum og samvinnufús og á létt með að laða að sér menn. Þó hefur hann bæði kjark og þrek til að standa fast á sinni skoðun þegar því er að skipta og fylgja henni fram, og það svo, að stundum hefur flokks- bræðrum hans þótt nóg um. Þrátt fyrir að Gunnar sé um- deildur stjórnmálamaður, viður- kenna flestir ótvíræða hæfni hans á mörgum sviðum, svo sem glæsi- leik og prúðmennsku í framgöngu og málflutningi, mikla þekkingu og fjölhæfar gáfur. Hitt heyrist sjaldnar viðurkennt, sem ég hef kynnst í ríkisstjórninni, en það er vinnusemi hans og óvenjulegt vinnuþrek. Munu þar fleiri en ég geta borið um vitni. Á sjötíu ára afmæli Gunnars Thoroddsen er ekki ástæða til að skrifa stjórnmálasögu hans. Eng- inn veit að vísu, að hve miklu leyti hún kann að vera óskráð. Hitt er ljóst, að hann stendur nú í þeim sporum, að ýmsir virðast telja sem sálfsagðan hlut, að forysta hans dugi til að leysa þau vandamál þjóðar okkar, sem öðrum stjórn- málaforingjum hefur mistekist glíman við á síðustu árum. Aðrir óska honum heilla í því hlutverki og vona að vel megi til takast. Víst er, að slíkar óskir streyma til hans víða að á þessum degi. Ég flyt Gunnari innilegar heillaóskir á sjötugsafmælinu og bið honum, konu hans og fjöl- skyldu blessunar á komandi tím- um. Pálmi Jónsson Þegar Gunnar Thoroddsen, for- sætisráðherra, fyllir sjöunda ára- tuginn, á hann að baki lengstan stjórnmálaferil allra núverandi þingmanna. Stjórnmálaferill hans er því orðinn óvenju langur, litríkur og samofinn stjórnmálasögu þjóðar- innar í hálfa öld. í rösk 12 ár var Gunnar Thoroddsen borgarstjóri í Reykjavík og þar lágu leiðir okkar fyrst saman, er ég kom inn í borgarstjórnarflokk Sjálfstæð- ismanna eftir kosningar árið 1954. Eins og oft áður var sótt hart að meirihluta Sjálfstæðisflokksins, en með Gunnar Thoroddsen í fararbroddi vannst naumur sigur í kosningunum. Gunnar vann þá mjög mikið starf við undirbúning kosn- inganna, enda hafði hann þá aflað sér mikilla vinsælda borgarbúa, sem talið var að hefði ekki síst dugað flokknum til sigurs. Það var sérstök ánægja og góður félagsmálaskóli að taka þátt í störfum borgarstjórnarflokksins undir öruggri forystu Gunnars. Enda hafði hann þá starfað um áraraðir að borgarmálum, hafði m.a. þá verið borgarstjóri um 7 ára skeið og gjörþekkti borgar- málefnin af eigin reynslu. Það kom þá fram sem endranær, að Gunnar er mikill félagshyggju- maður, samningalipur og prúð- menni í öllum sínum samskiptum. Á þessum árum voru nánustu samstarfsmenn hans, borgarráðs- fulltrúarnir Auður Auðuns, Geir Hallgrímsson og Guðmundur H. Guðmundsson, en í borgarstjórn- arflokknum voru 16 fulltrúar. Stjórnaði Gunnar flokksfundum af festu og lipurð. Þar voru borgarmálin rædd af einurð og komist að sameiginlegri niður- stöðu, sem talin var hin besta í hverju máli með hag borgaranna í heild í huga. Vegna þess að borgarbúum hafði fjölgað meira á undan gengnum árum en nokkru sinni fyrr, voru mjög aðkallandi félags- mál, sem biðu úrlausnar. Má þar til nefna skólamál, húsnæðismál, íþrótta- og æskulýðsmál. Á þessum árum var því samin ný áætlun um skólabyggingar og henni hrint í framkvæmd. Hús- næðismálin voru þau erfiðustu vegna mikils kostnaðar, því þrátt fyrir að mikið væri byggt af einstaklingum, þurfti að gera stórt félagslegt átak á bygginga- sviðinu, en halda þó í heiðri þeirri stefnu flokksins, að sem flestir gætu eignast sína eigin íbúð. Fyrsta átakið sem Gunnar beitti sér fyrir í borgarstjórn, var að láta skipuleggja smáíbúða- hverfið og aðstoða einstaklinga við að byggja sín eigin einbýlis- hús. Gaf þetta það góða raun, að hverfið er enn stærsta samfellda einbýlishúsahverfið sem byggt hefur verið á svo skömmum tíma. En meira þurfti til í húsnæð- ismálum. Á þessum árum höfðu á þriðja þúsund manns flutt inn í herskála, sem herinn hafði látið reisa á stríðsárunum. I stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins hafði því ver- ið lofað, að útrýma skyldi á næstu árum öllum herskálum og tryggja öllum þeim fjölda er þar bjó nýjar íbúðir, sem hver og einn ætti kost á að kaupa með hagkvæmum kjörum og sérstakri lánveitingu úr borgarsjóði. Eitt af fyrstu verkum eftir kosningar 1954, var að Gunnar lét semja heildaráætlun um að byggja fyrir þennan stóra hóp borgara og var strax hafist handa um byggingarframkvæmdir, eftir að borgarstjórn hafði samþykkt áætlunina. Minnihlutaflokkunum í borgar- stjórn þótti áætlun þessi svo stór í sniðum, að þeir töldu að hér væri aðeins um gylliboð og kosningalof- orð að ræða, sem ekki mundi verða framkvæmd. Þegar Gunnar lét af borgar- stjóraembættinu 5 árum síðar, sá fyrir endann á þessari mikilvægu uppbyggingu til hagsbóta fyrir þúsundir borgarbúa og lauk að fullu nokkrum árum eftir að hann gerðist fjármálaráðherra í ríkis- stjórn Ólafs Thors. Á sínum yngri árum var Gunn- ar um árabil stjórnarformaður íþróttavallanna í Reykjavík. Þá kynntist hann íþróttamönnum og aðstöðu þeirra til íþróttaiðkana. Var hann allur af vilja gerður til að bæta aðstöðuna eftir föngum og tala máli íþróttamanna við opinbera aðila. Það ríkti því mikil bjartsýni hjá íþróttahreyfingunni þegar Gunn- ar varð borgarstjóri. Hann þekkti þá betur en nokkur annar þann vanda sem vaxandi íþróttahreyf- ing bjó við og skortinn á íþrótta- mannvirkjum til æfinga og keppni. Iþróttamenn bundu því miklar vonir við störf hins nýja borgarsjóra um að nú væru bjart- ari tímar framundan. Enda varð raunin sú, að á næstu árum rættust margar óskir um stór- bætta aðstöðu íþrótta- hreyfingunni til handa. Þegar Gunnar tók við embætti borgarstjóra var lokið við að skipuleggja íþróttasvæðið í Laug- ardal, en framkvæmdir ekki hafn- ar. Hann lét því fljótlega hefja framkvæmdir við íþróttaleik- vanginn og var fyrsti áfangi því tekinn í notkun 1957 fyrir knattspyrnumenn, en leikvangur- inn var vígður 1959. Langþráðu marki var náð, nú var hægt að leika alla meiriháttar leiki í knattspyrnu á grasvelli, í staðinn fyrir að þeir yrðu að fara fram á gamla Melavellinum. Þegar framkvæmdir við leik- vanginn voru langt komnar, var hafist handa um að byggja glæsi- lega sundlaug í Laugardal, sem verða skyldi aðal-keppnislaug íþróttamanna, en einnig verða til að bæta aðstöðu fyrir almenning, því gömlu sundlaugarnar höfðu þá gengið sér til húðar og lokið sínu mikilvæga hlutverki í sundmenn- ingu borgarbúa. Jafnframt þess- um framkvæmdum, var hafist handa um að efna loforð við Vesturbæinga um að byggja sundlaug í þeim bæjarhluta. Á þessum árum notuðust íþróttamenn við íþróttasal (Há- logalandshúsið) sem herinn hafði byggt, fyrir allar sýningar og kappleiki. Húsið var lítið og lélegt og var það eindregin ósk íþróttahreyfingarinnar að borgin byggði nýtt hús. Á þessum tíma höfðu mörg samtök hug á að byggj a slíkt stórhýsi, en enginn þeirra hafði bolmagn til þess, nema borgin veitti ríflegan styrk til framkvæmdanna. Eftir að Gunnar hafði margrætt við þessa aðila, skipaði hann nefnd til að sameina þá alla til að leysa þetta vandamál og byggja eitt hús fyrir hina margþættu starfsemi og á þeim grundvelli legði borgin fram verulegt fjármagn er nægði til að tryggja framgang málsins. Árangurinn af þessu starfi var sá, að sýningarsamtök atvinnu- veganna, bandalag æskulýðsfé- laga, íþróttabandalag Reykjavík- ur og Reykjavíkurborg gengu til samstarfs um að reisa Iþrótta- höllina í Laugardal. Jafnframt þessum stuðningi við íþróttahreyfinguna, voru styrk- veitingar til íþróttafélaganna og íþróttabandalagsins auknar og m.a. stutt við bakið á skíðadeild- unum svo þær gætu bætt aðstöðu sína til fjalla fyrir félagsmenn og almenning, með því að byggja skíðaskála og þá var einnig hafist handa um að byggja fyrstu varan- legu skíðalyftuna í Skálafelli. Þegar gengið var til kosninga árið 1958, sat vinstri stjórn hér að völdum. Vegna þess nauma sigurs, sem vannst 1954 í borgarstjórn- arkosningunum, töldu andstæð- ingar Sjálfstæðisflokksins að tækifæri væri til að hnekkja meirihlu.ta flokksins í borgar- stjórn. Sérstök lög voru samþykkt sem miðuðu að því að takmarka starfsemi fulltrúaráðsins við framkvæmd kosninganna. Sjálf- stæðismönnum var því mikil nauðsyn á að endurskipuleggja kosningaundirbúning sinn áður en til kosninga kæmi. Þar gekk Gunnar Thoroddsen ötullega fram með fulltrúaráðinu og beitti þá sinni alkunnu samn- ingalipurð og ræðusnilld. Voru þeir ófáir fundirnir sem hann stóð fyrir með félögum, starfshópum og einstaklingum til þess að þjappa mönnum saman við kosn- ingaundirbúninginn. Stærsti kosningasigur Sjálf- stæðisflokksins vannst við þessar kosningar. 10 borgarfulltrúar flokksins tóku sæti í Borgarstjórn Reykjavíkur. Eftir að Gunnar lét af störfum sem borgarstjóri í árslok 1959 og tók við stöðu fjármálaráðherra, hélt hann áfram stuðningi við íþróttahreyfinguna og er sérstök ástæða til að minnast á stuðning hans við ÍSÍ á árunum 1963 og 1964 sem varð til þess að gjör- breyta allri aðstöðu heildarsam- takanna við að gegna skyldu sinni við sérsamböndin og landsbyggð- ina. Og nú við lokafrágang fjár- laga á Alþingi, sýndi hann enn hug sinn til íþróttanna, sem verð- ur mikils metinn af íþrótta- hreyfingunni um allt land. Á þessum merku tímamótum Gunnárs Thoroddsen vil ég flytja honum og konu hans hugheilar árnaðaróskir. Gisli Halldórsson Gunnar Thoroddsen, hefir á fimmta áratug staðið í fremstu röð þeirra manna er mest hafa komið við sögu íslenzku þjóðar- innar. Þjóðkunnur maður fyrir löngu og manna vinsælastur af óvenjumiklum mannkostum. Frá því að dr. Gunnar Thor- oddsen var kosinn til setu á Alþingi íslendinga 1934 og hóf þar starf gat engum íslendingi dulist að sjaldgæfur atkvæða- og gáfu- maður var á ferð, sem fáa á sína líka þó víðar væri leitað í hinum fámenna hópi íslenzku þjóðarinn- ar. Þessa gagnmerka manns minnast margir í dag 29. des. á sjötugsafmælinu, svo víða hefur hann komið við í þjóðlífinu, fv. borgarstjóri Reykjavíkur, prófess- or í lögfræði, erindreki Sjálfstæð- isflokksins, fjármálaráðherra, sendiherra íslands í Danmörku, hæstaréttardómari, fv. forseti Norræna félagsins á íslandi. Margt fleira mætti og nefna. Alþingismaður varð dr. Gunnar sem fyrr segir 1934, var þá fullþroska maður, er teygað hafði djúpt af lindum íslenzkrar menn- ingar og bókmennta. Án þess að rekja nákvæmlega ætt hans og uppruna á sérstaklega fáguðu heimili við Fríkirkjuveg í Reykja- vík og undir leiðsögn greindra foreldra, þar sem tækifærin til menntunar og þroska voru langt framyfir það sem almennt tíðkað- ist. Dr. Gunnar Thoroddsen er karlmannlegur maður í fegurstu merkingu. Hann tekur verkefnin föstum tökum, gengur öruggum skrefum sinn langa og merka æviveg og heldur styrkum hönd-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.