Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.12.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1980 17 Skipulagi Iðnaðardeildar Sambandsins gjörbreytt: Fjórar rekstrarein- ingar í stað 13 áður UNDANFARNA mánuði heí- ur verið unnið að breytinKum á innra skipulagi Iðnaðar- deildar. Þessu verkeíni er nú lokið ok verður í ollum me>?in- atriðum byrjað að staría sam- kvæmt nýja skipulaginu frá ok með næstu áramótum. Iðn- aðardeild Sambandsins hefur vaxið mjög ört á undanförn- um árum o>? miklar breyt- injiar hafa orðið í markaðs- ok framleiðslumálum. Hið nýja skipulag tekur mið af undan- genRnum breytingum auk þess, sem þvi er ætlað að tryggja markvissari rekstur deildarinnar. Nauðsynlegt hefur þótt að fækka sjálfstæðum rekstrar- einingum, en byggja í þess stað upp færri, en stærri einingar. Iðnaðardeild Sambandsins verður framvegis skipt í 4 einingar, sem koma í stað 13 sjálfstæðra deilda áður og verður hver eining um sig undir stjórn sérstaks aðstoðar- framkvæmdastjóra. Þessar einingar eru Fjár- mála- og stjórnunarsvið, ullar- iðnaður, skinnaiðnaður og fataiðnaður. Hvert iðnaðarsvið verður ábyrgt fyrir fram- leiðslu, sölu, dreifingu, inn- kaupum og vöruþróun. Fjár- mála- og stjórnunarsvið mun bera ábyrgð á fjármálum, áætlanagerð til lengri og skemmri tíma, tölvudeild, starfsmannamálum og sam- skiptum við sameignarfyrir- tæki Iðnaðardeildarinnar. Af einstökum breytingum má m.a. nefna að markaðsdeild og skrifstofa Iðnaðardeildar í Reykjavík verða lagðar niður. Verkefni markaðsdeildar skiptast framvegis milli fyrr- greindra iðnaðarsviða, en verk- efni skrifstofu Iðnaðardeildár verða leyst af aðalskrifstofu Sambandsins í Reykjavík og skrifstofu Iðnaðardeildar á Ak- ureyri. Þá má nefna að þessar breytingar hafa í för með sér að Gefjun og Hekla verða sameinaðar í eitt fyrirtæki. Aðstoðarframkvæmdastjóri Fjármála- og stjórnunarsviðs verður Bergþór Konráðsson, sem jafnframt er staðgengill framkvæmdastjóra Iðnaðar- deildar. Aðrir aðstoðarfram- kvæmdastjórar verða Sigurður Arnórsson, sem fer með ullar- iðnað, Jón Sigurðsson, sem fer með skinnaiðnað, og Gunnar Kjartansson, sem stýrir fataiðnaði. Allir þessir starfs- menn hafa unnið hjá Sam- bandinu um árabil, nema Gunnar Kjartansson, sem er nýr starfsmaður Sambandsins og hefur hann störf 1. febrúar næstkomandi. Hann hefur undanfarið starfað hjá Ut- flutningsmiðstöð iðnaðarins. Sigurður hefur verið verksmið- justjóri í fataverksmiðju og Jón hefur verið aðstoðarverk- smiðjustjóri skinnaverksmiðj- unnar. Framkvæmdastjóri Iðn- aðardeildar er Hjörtur Ei- ríksson. Arleg flug- eldasala Hojfs á Suður- nesjum Garói 23. des. EINS og undanfarin ár gengst Kiwanisklúhburinn Hof í Garði fyrir flugeldasölu i harnaskólan- um milli jóla og nýárs og er þetta áttunda árið í röð sem klúbbur- inn gengst fyrir flugeldasölunni. Flugeldasalan hefir verið ein aðal-fjáröflunarleið Kiwan- ismanna í Garðinum og hafa Suðurnesjamenn stutt dyggilega við bakið á þeim með því að verzla við þá. Flugeldasalan verður opin alla daga milli jóla og nýárs frá hádegi til kl. 22. Arnór. Námskeið fyrir kirkjukóra- fólk i Rvíkur- prófastsdæmi NÚ eftir áramótin gangast Kirkjukórasamhand Reykjavík- urprófastsdæmis og Söngmála- stjóri Þjoðkirkjunnar fyrir 6 vikna námskeiði í raddþjálfun fyrir kirkjukóra. Á námskeiðinu verður einnig undirhúin efn- isskrá. sem áformað er að flytja við væntanleg hátíðahöld kirkj- unnar 1981. en þá eru liðin 1000 ár frá því að kristniboð hófst hér á íslandi. Kennslan fer fram í Dómkirkj- unni í Reykjavík og hefst mánu- daginn 5. janúar. Verður tilhögun- in þannig að kl. 18.30 skulu koma tenór og bassi, en kl. 20.30 sópran og alt. Kennari í raddbeitingu verður Guðrún Tómasdóttir, en organist- ar munu kenna raddir. Kennslan fer fram á mánudags- kvöldum tvær klukkustundir í senn fyrir hverja rödd. Til þátttöku er boðið öllu kirkjukórsfólki svo og öðrum þeim sem áhuga hafa á þátttöku. Kennslan er ókeypis og öllum opin. (Úr fréttatilk.) 36777 AUCLYSINCASTOFA MYNDAMÖTA HF HVAÐ ER EFST Á ÓSKALISTANUM? Er ætlunin aö eignast nýjan bíl eöa bara hjól? Fagran grip eöa halda út 1 heim? Hægindastól? Vantar eitthvað til heimilisins? Óskirnar eru ólíkar eins og viö sjálf. En miði í happdrætti SÍBS gefur öllum jafna möguleika , meira en einn á móti f jór- um. Allt upp í 10 milljónir (100.000 nýkr.) er hægt aö vinna. Sex sinnum veröur dregiö um 5 milljónir (50.000 nýkr.) — og 40 sinnum um eina (10.000 nýkr ). Nú kostar miðinn tvöþúsund (20 nýkr.) en lægsti vinningur er 50 þúsund (500 nýkr.). Ef til vill þaö sem á vantar — tíT þess að ein ósk geti ræst. Og hver seldur miöi 1 happdrætti SÍBS á þátt í að glæöa vonir sjúkra á leið til sjálfsbjargar. ____ siiaí veskmu en big grunar? HAPPDRÆTTI SÍBS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.