Morgunblaðið - 04.01.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.01.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1981 15 Evrópubúar hafa misst sjónar á náttúrunni. Þeir eru vanir því að láta stjórnast af vekjaraklukkunni HEILLARÁÐ Listin að hætta að drekka o.fl. Ef þú hefur hug á því að hætta að reykja, hætta að drekka eða vilt jafnvel verða svo mikill brennivínsberserkur að geta inn- byrt þúsund vínbolla án þess að verða öfurölvi, þá skaltu bera þig upp við gamla kínverska bóndann, sem stendur fyrir utan ónefnt kvikmyndahús í því stóra landi Kína. Fyrir fimm fen, u.þ.b. 24 krónur ísl., lætur hann þig fá lítið blað þar sem á eru rituð þrautreynd og vafalaus vísindi í 60 greinum, sem segja þér hvernig best er að gerast mikil fiskikló, fjarlægja freknur og fiskbein, sem stendur fast í hálsi, svo ekki sé minnst á kvef- pest og annað þess háttar. Þekkinguna hefur bóndinn af gömlum bókum, þjóðtrú og trú- lega af vörum gamalla kerlinga. Hér fara á eftir nokkur heilræða hans: Ef þú vilt hætta að reykja skaltu fara í kínverska lyfjabúð og „Ef þú vilt hætta að drekka skaltu taka lifandi fisk ... kaupa þér betel-hnetu, bora gat á hnetuna og fylla hana með tób- akstjöru. Síðan skaltu sjóða hana í vatni í tvær klukkustundir. Þegar tóbakslöngunin kemur yfir þig skaltu bera hnetuna að vitum þér og „eftir þrjá daga er tóbaksfíknin horfin eins og dögg fyrir sólu". Ef þú vilt hætta að drekka skaltu taka lifandi fisk, drekkja honum i hreinu alkóhóli og drekka síðan vínandann í þremur eða fjórum lotum. „Þig mun aldrei framar langa í vín.“ Ef þú vilt hafa fisk á hverjum öngli skaltu verða þér úti um asasoetida-jurt, mala hana, bæta örlitlu af hveiti út í og gera litlar kúlur á stærð við baun úr deiginu. Nú skaltu setja eina kúlu á hvern öngul og þá „máttu hafa þig allan við að draga fiskinn á land“. Ráðið við höfuðverk eða kvefi er á þá leið, að þú skalt blanda saman hálfpotti af ediki, vatni og tveimur únsum af hráum pipar og sjóða allt saman. Siðan skaltu drekka soðið og leggjast fyrir undir sæng þar til þú ert eins og hundur af sundi dreginn af svita. „Þá ertu alheill orðinn og kennir þér einskis meins." - VICTORIA GRAHAM VESÖLD Flóttafólkið fnr óblíóar viðtökur ef það neyðist til að enúa heim í lögregluríki „Baby-Doc“ Duvaliers sem hér sést til hægri í hópi nokkurra stuðningsmanna sinna. Haiti er talin fátækasta ríkið í hinum vestræna heimshluta og þaðan hefur árum saman streymt bátafólk í stórum hópum. Farkost- irnir, sem fólk þetta leggur af stað í, eru oft alls ekki sjófærir. Oft hvolfir þeim á leiðinni, og þeim sem hafa það til Bandaríkjanna líst strandgæzlumönnum ekki bet- ur á en svo að þeir grípa iðulega til þess ráðs að eyðileggja þá. Aðrir bátar eru traustbyggðari. Það eru flatbytnur, sem auðvelt er að landsetja. Þær hafa lágt mastur með langri bómu og einu segli, sem getur hagnýtt hægan and- vara, þannig að síður þarf að grípa til áranna. Þessir bátar eru yfirleitt 21 fet á lengd og í þá má troða 125 manns, líkt og í strætisvögnum á helzta annatímanum. Sé farið beint frá Haiti til Vestur Palm Beach tekur ferðin um það bil þrjár vikur og farið kostar frá 300—800 dollurum eða kr. 180.000-480.000. Margir af þessum flótta- mönnum koma frá norð-vestur skaga Haiti, þar sem fátæktin í landinu er skelfilegust. Þar er landiö fjöllótt og hrjóstrugt og nútima munaður á borð við raf- Hungrið hrekur fólkið f rá Haiti magn, slétta vegi og síma er nánast óþekktur. Lífslíkur manna á þessum stöðum er 52 ár. Meira en þrír fjórðu af börnum landsins þjást af næringarskorti. 87% íbúanna eru vannærðir og 85% búa við kjör sem eru langt undir því að kallast venjuleg fátækt. Þar sem vinnu er að fá eru dagvinnulaun um 250 krónur. Fólk vill leggja hvað sem er í sölurnar til þess að komast úr landi til Freeport á Bahama, Nassau eða Miami á Flórída. Þeir sem eru svo heppnir að eiga landskika til þess að stunda nautgripa-, geita- eða kjúklingarækt láta það fúslega af hendi, bjóðist þeim far með ótraustum farkosti yfir hafið. Ef þeir neyðast til þess að snúa heim aftur, er ógerningur fyrir þá að fá land eða launaða vinnu. Lífskjörin á Haiti voru bág fyrir en eftir að fellibylurinn Allen fór þar yfir, hafa þau versnað að mun. Flóttamenn frá Haiti hafa lagt leið sína til Bahamaeyja um ald- arfjórðungsskeið og búizt þar við gulli og grænum skógum. Ba- hamabúar hafa veitt þeim viðtöku en með tregðu þó. Nú telja þeir hins vegar nóg komið. Á Bahama- eyjum búa nú um 40 þúsund manns frá Haiti og flestir hafa komið til landsins með ólöglegum hætti. Þetta er hvorki meira né minna en fjórðungur landsmanna og samfélag þeirra er mjög ein- angrað. Bahamabúar hafa lýst yfir því, að frá og með þessum áramótum muni þeir senda heim á ný alla þá sem komi frá Haiti með ólöglegum hætti. Ymislegt er á huldu um það, hver örlög þeir flóttamenn hljóta, sem sendir eru aftur til Haiti. Bandarískir dómstólar hafa heyrt að sumir þeirra, sem sendir séu aftur heim í harðstjórnarríki Jean-Claude Duvalier, sem nefnd- ur er Baby-Doc, eigi yfir höfði sér fangelsanir og pyndingar. Brunaútsala Seljum í dag og meðan birgöir endast eftirtaldar vörur með miklum afslætti: Kjólar allskonar, mussur, jerseytrimmgallar, dömu- og barnapeysur og alls- - konar prjónastykki og prjónaefnisbúta í peysur og kjóla. Fatasalan Brautarholti 22, Inngangur frá Nóatúni (viö hliðina á Hlíöarenda). Dregið var í hausthappdrætti Blindrafélagsins 22. desember 1980 Vinningar komu á eftirtalin númer: Myndsegulband nr. 12002. Vöruúttekt fyrir 500 þús. g.kr. nr. 11715, 18820, 18039, 13738, 28932. Reiðhjól fyrir 300 þús. g.kr. nr. 12534, 7041, 7251, 5532, 24461, 8860, 9337, 13451, 23811, 5559. Blindrafélagið þakkar landsmönnum öllum veittan stuðning á liönu ári. Auglýsing frá ríkisskattstjóra um skilafresti launaskýrslna o.fl. gagna sam- kvæmt 92. gr. laga nr. 40/1978 um tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum. Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. nefndra laga hefur skilafrestur eftirtalinna gagna, sem skila ber á árinu 1981 vegna greiðslna á árinu 1980, verið ákveðinn sem hér segir: I. Til og með 20. janúar: 1. Launaframtöl ásamt launamiðum. 2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. 3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. 4. Bifreiöahlunnindamiöar ásamt samtalningsblaöi. 5. Greiðslumiðar, merktir nr. 1, fyrir þær tegundir greiöslna sem um getur í 1.—4. tl. A-liðar 7. gr. nefndra laga. II. Til og meö 20. febrúar: 1. Landbúnaðarafurðamiðar ásamt samtalningsblaöi. 2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. III. Til og með síðasta skiladegi skattframtala, sbr. 93. flr-: Greiðslumiðar, merktir nr. 2, um greiðslur fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eöa afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tl. C-liðar 7. gr. sömu laga. Reykjavík, 1. janúar 1981, Ríkisskattstjóri. Okkar vinsæla vetrarútsala hefst mánudaginn 5. janúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.