Morgunblaðið - 04.01.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.01.1981, Blaðsíða 23
23 Stórsjgur á Indverjum kom Islandi í 4.—6. sæti hann þvingað fram jafntefli. Það láðist honum og eftir það varð ekki aftur snúið. Jóhanni veittist létt verk að yfirbuga Hassan. Eftir 25. leik hvíts kom upp þessi staða: Svart: Jóhann Ilvítt: Hassan 25. - RÍ4! (Hótar 26. - Hd3) 26. Re4 - Bd5, 27. De3 - Re2+, 28. Khl - Bf4. 29. Dxa7 - Hd3, 30. Da4 — b5, 31. Db4 (hvítur verður mát eftir 31. Dxb5 — Bxe4, 32. Bxe4 - Hxh3+) Da8! (Nú er hótunin 31. — Hxh3+), 32. Í3 — Bxe4, (Einfaldast) 33. fxe4 — Rg3+, 34. Kgl - Da7+, 35. Bd4 (Eina von hvíts. Hann dreymir nú um að máta með drottningu á f8. Gaffallinn á e2 verður honum aftur á móti þungur í skauti.) Dxd4+, 36. Dxd4 - Hxd4.37. Hal (Ef 37. Hxf4 - Re2+, 38. Kf2 - Rxf4, 39. Ke3 þá einfaldlega Re6) b4 og nokkrum leikjum síðar gafst Hassan upp. Ungverjar gjörsigruðu Finna, 3— 'k, þannig að þeir juku Skák eftir Margeir Pétursson forskot sitt geysimikið, því að Rússar urðu að láta sér nægja 2—2 jafntefli við Tékka. Sökudólg- urinn í liði þeirra var Polugaj- evsky. Hann hafði verið í miklu óstuði á mótinu og ekki tekist að vinna eina einustu skák og hafði þó verið inní á móti bæði Venezú- ela og Grikklandi. í viðureigninni við Tékka tapaði hann síðan fyrir Smejkal og þá var þolinmæði Baturinskys, liðsstjóra sovézku sveitarinnar, þrotin. Polugajevsky var settur á varamannabekkinn það sem eftir var mótsins. Afleik- ur hans gegn Smejkal var hroða- lega ljótur af manni sem tefldi fyrir nokkru í undanúrsiitum í keppninni um áskorandaréttinn á Karpov að vera: Svart: Polugajevsky Hvitt: Smejkal 31. — RÍ6?? (Hvítur hótaði að vísu engu í stöðunni, því ef 32. Bxc8 þá Dxfl mát. Allur var þó varinn góður og 31. — Hc2 var ágætur leikur. Svartur ætti þá vart að hafa mikið að óttast, því að riddarinn hvíti á a4 er alveg út ur spilinu). 32. fxe5 (Auðvitað. 32. — Rxe4 má nú einfaldlega svara með 33. Hxd4) dxe5, 33. Hxf6 — Ilcl+, 34. Kg2 - Re2, 35. Kf2 - Rc3, 36. Rxc3 - bxc3,37. He2 - Hdl, 38. Hc6 - Db4, 39. De3 - Ilb4, 40. Dxc3 og svartur gaf. Við þetta duttu Rússar niður í þriðja sætið, því að Júgóslavar unnu Englendinga 2Vi—1!4. Marjanovic og Nikolic unnu Speelman og Mestel, en Miles bjargaði því sem bjargað varð með því að leggja Ljubojevic að velli á fyrsta borði. Þar hljóp reyndar á snærið fyrir unnendur drekaaf- brigðisins alræmda, sem Miles teflir oft og með furðulega góðum árangri: Hvitt. Ljubojevic Svart: Miles Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — g6,6. Be3 — g6, 6. Be3 — Bg7, 7. f3 - 0-0, 8. Dd2 - Rc6, 9. Bc4 (Júgóslavneska árásin, sem stund- um er nefnd Rauzer árásin, hvass- asta svarið við „drekanum ógur- lega“.) Bd7.10. h4 - Hc8,11. Bb3 - h5, 12. 0-0-0 -. Re5,13. Bg5 - Hc5! (Leikur Sosonkos, sá bezti í stöð- unni. Aður var hér leikið 13. — Rh7,) 14. f4 - Rc4,15.1)d3 - b5, 16. e5 - Rg4!, 17. Re4 (Þessi staða kom einnig upp þegar þessir sömu menn úáttust við á millisvæðamótinu í Riga í fyrra. Þá lék Miles 17. - Hd5!? og'fékk erfiða stöðu eftir drottningarfórn- ina 18. Rxd6 — Rgxe5, 19. fxe5 — Rxe5, 20. Bxd5! — Bxd3+, 21. Hxd3, þótt hann ynni um síðir. Nú hefur hann aftur á móti fullvissað sig um það hver sé bezti leikurinn í þessari stöðu og verður á undan Ljubojevic að koma með endur- bót). Hc8! 18. exd6 - f6! (Miles ákveður að vinna mann jafnvel þó það kosti það að kóngsstaða hans splundrist) 19. Hhel - exd6, 20. Rxd6 - Kh7 (En tæplega 20. — Dxd6, 21. Dxg6), 21. f5 — Rxd6 — fxg6+ — Kh8, 23. Bf4 - Re5, 24. Bxe5 - fxe5, 25. Rf3 - e4, 26. Dxd6 - exf3, 27. He7 (Ef 27. Dxd7 þá Df6. Nú hótar hvítur 28. De5) Bg4! 28. Dc5 — Dxdl+, 29. Kxdl — fxg2+, 30. Kd2 - Hfd8+, 31. Bd5 - Ilxd5+ og Ljuhojevic gafst upp. Það þýðir ekki að tefla drekann nema taugarnar séu í lagi. Höfðust við í fjallakofa meðan á leitinni stóð Osló. 2. januar Frá fréttaritara MbL Jan Erik Lauré. TVEIR Danir og 23 ára gamall íslcndingur fund- ust í morRun hcilir á húfi en þcirra hafði vcrið lcitað í sólarhring í fjalllcndinu við Gol í Mið-NorcRÍ. Þcir höfðu farið á skíðum sncmma í KærmorKun cn var saknað þcsar þcir höfðu ckki skilað scr á tilscttum tíma. Fimmtíu menn frá norska Rauða krossinum tóku þátt í leitinni í nótt og auk þess var notuð við hana þyrla. Mennirnir þrír höfðu lent í illviðri og þar sem þeir voru ekki búnir til að liggja úti tóku þeir þann kostinn að brjótast inn í fjallakofa, sem þeir gengu fram á. Þegar veðrinu slot- aði í morgun héldu þeir áfram för sinni og leið þá ekki á löngu þar til fundum þeirra og leitarmannanna bar saman. AKil.V'SINOASIMIXN KR: 22410 Árni Helgason, Stykkishólmi: Áramótabréf Fo í þýðingu Signýjar Pálsdóttur og jóladansleikur var að venju. Senn byrjar nýtt ár og gjöfult og gott ár er á enda. Vertíðin í fyrravetur var með betra móti og skelveiðar hafa verið dagvissar og menn sótt sinn skammt út í flóann og ekki heyrir maður annað en ánægjuhljóð í sjómönnum yfir kaupi sínu. Vorið var eitt hið besta bæði fyrir fugl og fénað. Heyfeng- ur og fénaðarhöld með allra besta móti, nýting heyja ekki oft verið betri. Heyskapur stendur nú ekki lengi yfir. Það gerir vélakosturinn. Hver bær er vélvæddur svo sem möguleikar leyfa. Snemma var sáð og uppskera garðávaxta ágæt. Urmull var hér af berjum sem hvert heimili nýtti. Það var næg atvinna um allt árið og mátti helst tala um skort á vinnuafli. Það hefðu fleiri komist að bæði í byggingum og skipasmíði. Tré- smiðjurnar og Skipavík eiga verk- efni langt fram á næsta ár. Það er allsstaðar uppbygging. Sjaldan hafa fleiri íbúðarhús verið í smíð- um. 39 lóðum var úthlutað og hafa þær verið nýttar. Aldrei fleiri bílar komið í bæinn og þau eru fá húsin sem ekki er bíll fyrir utan og allir hafa það ágætt sem heilsu og hreysti hafa og geta tekið til hendinni. Sem sagt, aldrei meiri velmegun en nú. Því meir verður maður undr- andi yfir því kveini og kvörtunum, sem óma nú í eyrum og öllu því vanþakklæti sem streymir um þjóðlíf vort. Og þó eigum við besta land í heimi. Kröfugerðin er lát- laus, verkfallshótanir og því um líkt og stöðugir sáttafundir allt árið og sér ekki út yfir. Allir vilja meira og eru í stöðugu kapphlaupi og samanburði við aðra. Það má aldrei hjálpa þeim lægstlaunuðu svo ekki sé skriðan komin af stað. Ekki fylgir það sögunni hvaða kjör þessir hópar hafa haft né ofan á hvað sé verið að biðja um meira. Og svo er eyðslan eftir þvi. Það sást í bankaverkfallinu þegar fólk kepptist við að taka peninga sína út og eins og allir byggjust við að þeir yrðu ekki opnaðir aftur. En í sáttafundi, sem standa stundum sólarhringum sarnan, er eytt dýrmætum tíma og fjármun- um og þrefað um smámuni oft á tíðum ... bara að komast sem lengst. Jafnvel gerir ekkert til þótt kökunni sé skipt sem ekki er farið að baka enn. Og alltaf vex órétt- lætið þótt alltaf sé verið að reyna að bera þar í brestina. Saman- burðurinn heidur áfram. Það hlýt- ur því að vera erfitt að stjórna okkar velmegunar- og eyðsluþjóð- félagi. Heilsan er fvrir öllu, það skilja þeir sem hafa þurft að kynnast sjúkrahúsum og heilsuleysi. Okkur vanhagar um fátt meira en betri meðferð fjármuna og meiri ráðdeild í hverju horni. Því hlýtur það að vera ósk allra þeirra er vilja landi og þjóð vel á framtíðarbraut að með meiri velmegun verða vaxandi ánægja, nægjusemi og minni kröfugerð til annara og að sú ánægja og sá friður sem hvorki fæst með fjár- munum né verkföllum megi vera kjörorð ársins 1981: Sönn farsæld og guðsblessun. Með þá ósk í huga óska ég þjóðinni blessunar, blaðinu mínu, Morgunblaðinu, góðs gengis í því að efla manndáð og visku og drengskap landsins barna, og landsmönnum öllum gleðilegs árs. Árni Helgason Tilmæli til viöskiptamanna banka og sparisjóða Vinsamlegast greiðið fyrir gjaldmiðilsskiptum með því að halda gömlu og nýju krónunum aðskildum í öllum greiðslum. Útbúnir hafa verið sérstakir fylgiseðlar til útfyll- ingar fyrir innborganir eða skipti á gömlum seðlum og mynt. Bankar og sparisjóóir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.