Morgunblaðið - 04.01.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1981
37
Dýrt samband?
S.b. hringdi og gerði að um-
talsefni skíðaferð samgönguráð-
herra til Spánar: — Mörgum
finnst nú svona og svona af
Steingrími að vera að sporta sig
á skíðum á þessum alvörutím-
um, meðan allt virtist í óvissu
og á heljarþröm. Samgönguráð-
herra sem einnig er formaður
Framsóknarflokksins, svaraði
því til að hann hefði verið í
stöðugu sambandi við ríkis-
stjórnina. Það vita víst allir, að
það kostar ekkert smáræði að
hringja eitt símtal til útlanda,
en er þó ekki nema hjóm eitt
miðað við það að vera í stöðugu
sambandi landa á milli. Mig
langar ekkert til að vita hvað
skíðaferðin fræga kostaði, hana
hefur Steingrímur sjálfur
greitt. En hvað kostuðu símtölin
með leyfi að spyrja? Skyldi
maður geta fengið svar við því?
mmmmm
minni upphæðir-meira verðgildi
Af hverju lá
svona mikið á?
Það er einnig annað sem mér
leikur forvitni á að fá skýringu
á. Af hverju lá svona mikið á að
fá fólk til að skipta gamalli
mynt og seðlum yfir í nýja?
Linnulausar auglýsingar og
fréttir. Og þó gildir gamla
ntyntin fram í júní, i sex mánuði
enn. Það var helst að skilja á
Seðlabankamönnum að. best
væri, ef allir flyktust til að
skipta sínum krónum strax 2.
janúar. Vafalaust er að fjöl-
margir hafa tekið þetta bókstaf-
lega og hlaupið til. Álagið var
óskaplegt í bönkunum á degi
sem vanalega eru þar róleg-
heitadagar eins og í verslunum.
Af hverju mátti þetta ekki
gerast í rólegheitum eftir því
sem fólk fór að hreyfa sig til að
versla eftir áramótin?
Lýst eftir
gangstéttum
Fótfúinn vegfarandi hringdi
og kvaðst hafa átt í miklum
erfiðleikum í bæjarferð nýlega:
— Það er góðra gjalda vert,
Velvakandi, að greiða fyrir um-
ferð ökutækja, enginn dregur
það í efa. En því má heldur ekki
gleyma, að fleiri eru á ferð en
þeir sem í bílum aka, jafnvel
gömul hró eins og ég og fleiri, og
ekki er ósanngjarnt að einnig sé
tekið nokkurt tillit til okkar.
Það virðist vera orðin lenska hér
að ýta snjónum af götum og
bílastæðum út til hliðanna og
mynda fjallháa ruðninga sem
jafnvel hylja meginhluta
gangstétta og gera þær að al-
gjörum ófærum fyrir eldri borg-
ara, að ég tali nú ekki um þá
sem eru eitthvað að ráði hreyfi-
hamlaðir. Þetta er ekki verst
þar sem akandi umferð er mest,
heldur á hliðargötum. Sums
staðar er ástandið jafnvel svo
slæmt að gangstéttar finnast
engar, aðeins flughálir skaflar
beggja vegna götunnar. Ég leyfi
mér að lýsa eftir þessum
gangstéttum. Finnandi vinsam-
legast skili þeim á sinn stað. Ég
vil einnig benda á furðulegt
sleifarlag á gangstéttarmokstri
við verslunargötur eins og
Laugaveg, Skólavörðustíg og
Bankastræti.
Hvers vegna
ekki sjálfs-
afgreiðsla?
V.Á. hringdi og var heldur
óhress út af bensínverkfalli. —
S\GeA V/öGA í aiLVERAU
Ég er ekki að fella neinn dóm i
þessari kjaradeilu, en þarna
gerist það eins og oftar að
margir líða fyrir fáa. Það liggur
í hlutarins eðli að í þéttbýlinu
hér á Suðvesturlandi, þar sem
fjarlægðir eru miklar og al-
menningsvagnaþjónusta ónóg
og þar á ofan stopul yfir vetr-
artímann, ríður á miklu að
einkabílanotkun geti verið með
eðlilegum hætti. Mér hefur oft
komið í hug að spyrjast fyrir um
það, hvers vegna olíufélögin hafi
ekki enn tekið upp það fyrir-
komulag að gefa viðskipta-
mönnum sínum kost á sjálfs-
afgreiðslu, og greiða fyrir það
lægra verð en með þjónustu. Já,
hvers vegna hafa þau ekki enn
látið verða af þessu? Ég vonast
til þess að fá svar við því frá
réttum aðilum.
Félagsmálastofnun
Akureyrar
vill kynnast góöu fólki sem óskar aö gerast
fósturforeldrar. Um er aö ræöa bæöi skammtíma
fóstur til nokkurra mánaöa og langtíma fóstur yngri
og eldri barna. Umsóknum meö sem nákvæmustu
uppl. um aöstæöur og væntanlegar óskir umsækj-
enda sé skilað sem fyrst til Félagsmálastofnunar
Akureyrar, pósthólf 367, 600 Akureyri.
Litiö veröur á allar upplýsingar sem fram koma í
umsóknum sem algjört trúnaöarmál.
Innritun hefst þriöjudaginn 6. janúar.
Innritun þriöjudag, miövikudag og
fimmtudag frá 10—12 og 13—19 alla
dagana.
Ath. Innritun aðeins þessa þrjá daga.
&
&
&
*
Dansskoli
Heiðars
Ástvaldssonar
Dansskóli
Sigurðar Hákonarsonar
Dansskóli Sigvalda
Dansstúdíóið
Sóley Jóhannesdóttir
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS OOO
TRYGGING fyrir réttri tilsögn í dansi