Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
20. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skrafað.
l.joMn. Mbl. RAX
Dómar kveðnir
upp í Peking
Peking, 24. jan. — AP.
HIN opinbera kínverska
fréttastofa Xinhua sagði í
dag, að á morgun, sunnu-
dag, yrðu kveðnir upp
dómar yfir ekkju Maós
heitins og níu öðrum sak-
horningum. Þeir eru sak-
aðir um ofsóknir, uppreisn
og æsingar á dögum
„menningarbyltingarinn-
ar“, sem mikilli ringulreið
olli í Kína á árunum
1966-76.
voru opnar.
Samkvæmt athugunum Sam-
stöðu sátu tæplega 10 milljónir
pólskra verkamanna heima laug-
ardaginn 10. janúar, en af hálfu
stjórnvalda var á sínum tíma
fullyrt, að aðeins um þrjár millj-
ónir manna hefðu orðið við áskor-
un Samstöðu og setið heima.
Talið er að aðgerðir Samstöðu í
dag hafi orðið enn árangursríkari
en 10. janúar. Samheldni eykst
meðal pólskra launþega um kröfur
um fimm daga vinnuviku, sem
yfirvöld lofuðu eftir verkföllin
síðastliðið sumar, en við þau
loforð hefur enn ekki verið staðið.
Málgagn pólska kommúnista-
flokksins, Trybuna Ludu, sakaði í
dag ýmsa af leiðtogum óháðra
verkalýðsfélaga um að hafa fram-
ið „andleg hryðjuverk" að undan-
Herlög
úr gildi
Seoul, 24. janúar. — AP.
CHUN Doo-hwan tilkvnnti í dag.
að frá og með miðnætti á sunnu-
dagskvöld yrðu herlög ekki leng-
ur í gildi í landinu. en herlög hafa
verið í gildi í Suður-Kóreu frá því
að Park Chung-hee forseti var
ráðinn af dögum i október 1979.
Við sama tækifæri skýrði Chun
frá því, að 11. febrúar næstkom-
andi færi fram val kjörmanna er
kjósa forseta. Kjörmenn kjósa síð-
an nýjan forseta S-Kóreu 25. febrú-
ar næstkomandi.
Þrátt fyrir að herlög verði úr
gildi numin á sunnudagskvöld gild-
ir áfram útgöngubann frá mið-
nætti til klukkan fjögur að morgni,
en það bann hefur verið í gildi frá
því er Suður-Kórea losnaði undan
japönskum yfirráðum 1945.
Talsmaður stjórnarinnar í Seoul
bar í dag til baka fregnir um að
Kim Dae-jung, sem dæmdur var til
dauða í september, yrði leyft að
fara úr landi til Bandaríkjanna.
100 farast í
jarðskjálfta
Peking, 24. jan. — AP.
MIKILL jarðskjálfti varð i Suð-
vestur-Kína í dag og er talið að
a.m.k. 100 manns hafi farist, eink-
um tibeskir hjarðmenn. Jarð-
skjálftinn mæidist 6,9 stig á rich-
ter-kvarða.
Jarðskjálftinn varð í Daofu í
Sicbuan-héraði skammt frá Tíbet
þar sem jarðhræringar eru mjög
tíðar. Flest hús í Daofu hrundu til
grunna og miklar skemmdir urðu á
vegum, símalínum og öðrum mann-
virkjum. Þegar var hafist handa um
hjálparstarf en erfiðleikum veldur,
að engir flugvellir eru þar nálægt
sem mestu hamfarirnar urðu.
Mesti jarðskjálfti í Kína á síðari
tímum varð 1976 í Tangshang í
Norðvestur-Kína og fórust þá
250.000 manns.
Jiang Qing, ekkja Maós
Yfir öllum sakborningunum
vofir dauðadómur, en samkvæmt
kínverskum lögum skal tekið
mildilegar á þeim, sem eru aðeins
verkfæri í höndum annarra og
iðrast gerða sinna. Það á við um
þá fiesta að undanskilinni Jiang
Qing, ekkju Maós.
Haft er eftir heimildum í Kína,
að miklar greinar séu með ráða-
mönnum og er um það deilt m.a.,
"hvaða dómur skuli lagður á þátt
Maós formanns í „menningarbylt-
ingunni". Einnig eru menn ekki á
eitt sáttir um hvort dæma skuli
Jiang Qing, ekkju Maós, til dauða,
og bendir margt til þess, að Deng
Xiao-ping mæli gegn því af ótta
við að látin verði hún talin
píslarvottur í augum fylgismanna
sinna.
FAGNA FRELSI — Bandarisku gíslarnir fagna frelsi sínu í
flugvélinni sem flutti þá til Algeirsborgar frá Teheran.
Gíslamálið:
Skorar á Reagan að
virða samkomulagið
Los Angeles, 24. jan. — AP.
WARREN Christopher, aðal-
samningamaður Handaríkja-
manna í gísladcilunni, skoraði í
gær á rikisstjórn Ronalds Reag-
ans að virða samkomulagið við
írani í hvívetna og sagði, að þar
Laugardagsverkfall árangursrikt öðru sinni:
Milljónir Pólverja
mættu ekki til vinnu
Varsjá, 24. janúar. — AP.
MILLJÓNIR Pólverja
urðu í dag við áskorun
leiðtoga Samstöðu og sátu
heima í stað þess að sækja
vinnu á laugardegi öðru
sinni í janúarmánuði.
Höfðu aðgerðirnar víð-
feðm áhrif, þar sem öll
meiriháttar iðnstarfsemi í
höfuðborginni og víðar lá
niðri af þeirra sökum.
Allt athafnalíf lá niðri í
Gdansk, Varsjá og fleiri
borgum. Aðgerðirnar
náðu þó ekki til almenn-
ingssamgöngutækja og
matvælaverzlana, sem
förnu og hvatti verkamenn til að
snúast gegn þeim.
Blaðið Zycie Warszawy, sem
kom ekki út í gær vegna skyndi-
verkfalls prentara, birtir í dag
langt og ýtarlegt viðtal við einn
helzta talsmann Samstöðu í fé-
lags- og trúmálum, nokkuð sem
ekki gæti gerst annars staðar á
áhrifasvæði Sovétríkjanna, að
sögn AP. í viðtalinu segir tals-
maðurinn m.a., að Samstaða og
kirkjan hafi viðamiklu hlutverki
, að gegna við „þjóðlega endur-
reisn". Þeim sé fært að skapa hið
rétta andrúmsloft sem þurf i til
þess.
Talsmaðurinn segir einnig í
viðtalinu, að þörf sé nýrrar stjórn-
stefnu, nýtt stjórnform, þar sem
þegnarnir verði m.a. betur upp-
lýstir um efnahags- og félagsmál
því viðhorf þeirra breytist ekki að
öðrum kosti.
við lægi heiður og æra Randa-
ríkjamanna sjálfra. Auk þess
væri það hin mesta ósvinna í
garð þeirra þjóða. sem lagt
hefðu Bandaríkjamönnum lið.
ef ekki yrði við það staðið.
Á blaðamannafundi í Los Ang-
eles sagði Warren Christopher, að
vitneskja sin um meðferðina á
gíslunum hefði gert hann staðráð-
inn í að „ljúka þessari martröð
sem fyrst“ en hins vegar hefði
hann alltaf verið undir það búinn,
að allt færi út um þúfur. Warren
sagði, að Bandaríkjamenn hefðu
undirritað alþjóðlegt samkomulag
og að þeir mættu ekki gerast
ómerkir orða sinna.
Bandarísku gíslarnir fyrrver-
andi munu fara til Bandaríkjanna
á morgun, sunnudag, og hitta
fjölskyldur sínar í háskóla banda-
ríska hersins í West Point. Nk.
þriðjudag fara gíslarnir til Wash-
ington þar sem efnt verður til
athafnar á Andrews-herflugvell-
inum að viðstöddum Ronald Reag-
an Bandaríkjaforseta. Daginn eft-
ir munu þeir halda hver til síns
heima.