Morgunblaðið - 25.01.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
Tjón vegna brotsjóa
í „villta vestrinu“
(•rindavik 24. janúar.
ÞORSTEINN GK fékk á sík hnút
í „villta vestrinu“ aðfaranótt
fostudags ok brotnuðu þrjár rúð-
ur í hrú; töluverður sjór flæddi
inn ok skemmdi tæki. Somu nótt
fenKU fleiri bátar á sík slæma sjói
á þessum slóðum, en ekki er
kunnuKt um annað tjón en að
uppstilíinKar brotnuðu á dekki
SÍKurðar Þorleifssonar GK. MjöK
Kóður afli hefur fenKÍzt í „villta
vestrinu„; í kantinum 45 mílur
vestnorðvestur af Stafnesi, ok
hafa netabátar komið með allt
upp i 35 til 40 tonn úr róðri.
SeKja sjómenn þorskinn mánuði
fyrr á ferðinni en undanfarin ár.
Gunnar Gunnlaugsson, skip-
stjóri á Þorsteini GK, sagði í
samtali við Mbl., að hann hefði
verið að fara á milli trossa, þegar
allt í einu reis hnútur og reið á
bátinn bakborðsmegin. Hann var
einn í brúnni og mannskapurinn
rétt ókominn á dekk. Lýsti Gunn-
ar veðrinu þannig, að ekki hefði
verið beint aðgaezluveður. Þor-
steinn hefur nú farið í sjö róðra og
er aflinn orðinn 135 tonn, en í
morgun kom báturinn að með 31
tonn, þar af 18 tonn af vænum
þorski.
Guðfinnur
Attum töluverðar
birgðir um áramót
- segir Örn Ottesen, skrifstofustjóri Nóa-Síríus
„ÞESSI mikla hækkun á vöru-
gjaldi á súkkulaði um áramotin
er ekki farin að hafa nein áhrif á
okkur ennþá, því um áramótin
áttum við töluverðar birgðir, sem
ekki voru hækkaðar f verði,“
sagði Örn Ottesen skrifstofu-
stjóri SælKætisverksmiðjunnar
Nói-Siríus. í samtali við Mhl., er
hann var inntur eftir stöðunni
hjá þeim, í kjölfar fréttar blaðs-
ins þess efnis, að SælKætisverk-
smiðjan Linda á Akureyri hefur
orðið að segja upp þriðjunKÍ
starfsfólks sins m.a. vegna þess-
arar miklu hækkunar vörugjalds
á súkkulaði.
„Við höfum ekki þurft að segja
upp neinu starfsfólki, enda er stór
hluti þess nú bundinn í páska-
eggjaframleiðslunni, sem þegar er
hafin," sagði Örn, — „en um
framhaldið er auðvitað ekkert
hægt að segja á þessari stundu,"
sagði Örn ennfremur.
Um páskaeggjaframleiðsluna,
sagði Örn, að stefnt væri að því að
framleiða heldur meira magn í ár
en á því síðasta eða 2,2—2,5 tonn,
en nokkur óvissa væri þó um sölu
vegna hækkunarinnar, sem kemur
vegna hinnar miklu hækkunar á
vörugjaldi.
Hjálmar Vilhjálmsson fískifræðingur:
Engin loðnuviðbót
sem skiptir máli
„ÉG HEF ekki séð ennþá þá
viðbót, sem skiptir neinu veru-
legu máli,“ sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson, fiskifræðinKur, er
Mbl. ræddi við hann á föstudags-
kvöld um borð i Bjarna Sæ-
mundssyni ok spurði, hvort
loðnuieitin hefði borið þann
árangur að breyta hurfunum til
hins betra, en eftir stofnstærð-
armælinKar i október var loðnu-
kvótinn minnkaður um 200 þús-
und tonn, en hann hafði áður
verið ákveðinn 775 þúsund tonn.
Hjálmar tók fram, að leitarleið-
anKrinum væri enKan veginn
lokið, hann myndi standa fram
að mánaðamótum.
Hjálmar sagði Bjarna Sæ-
mundsson staddan norður af
Langanesi og væri þar norðaustan
bræla. Hann sagði, að loðnuleitin
hefði verið mjög erfið vegna veð-
urs og ís's og hegðunar loðnunnar.
„Það er loðna hér á nokkuð löngu
svæði frá austur af Langanesi og
yfir í vestur af Kolbeinsey," sagði
Hjálmar. „Þetta er ekki almenni-
lega samhangandi og svæðið er
mjög takmarkað á breiddina.
Þetta finnst mér að mörgu leyti
svipað og var til dæmis 1978; sama
rútan og frekar lítið af loðnu,
þannig allt í meira og minna
samræmi við það, sem áður var
talið.“
Hjálmar sagðist halda næst í
suðurmörkin á loðnusvæðinu, þar
sem veiðisvæðið væri nú, og síðan
yrði haldið norður og vestur um
aðra umferð. Mikill ís hefði verið á
Vestfjarðamiðunum, þegar leiðin
lá þar um og kynni svo að fara, að
hann hamlaði leit líka í bakaferð-
inni.
Ragnar Arnalds:
Fyrst og fremst
þrýstiaðgerðir
gegn stjómvöldum
„MÉR finnst nú gengið nokkuð
geyst til verks með þessum upp-
sögnum og skil vei viðbrögð
starfsfólksins. En af hálfu gos-
drykkjaframleiðenda er fyrst og
fremst um að ræða þrýstiaðgerð-
ir gegn stjórnvöldum, því mér
skilst að þeir leggi mesta áherzlu
á að fá að hækka sjálfir vöruna
um 27%. Sú hækkunarbeiðni
þeirra brann inni fyrir áramótin,
en væntanlega hefði hún ein ekki
siður valdið sölusamdrætti en
vörugjaldið og svo er nú reynslan
sú, að alltaf verður einhver sam-
dráttur í sölu vöru eftir verð-
hækkun,“ sagði Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, er Mbl. spurði
hann á föstudagskvöldið álits á
mótmælum K«sdrykkjaframleið-
enda og starfsfólks i gosdrykkja-
iðnaði gegn hækkun vörugjalds
ok uppsögnum hjá Vifilfelli hf.
„Þetta vörugjald, sem hefur
verið á gosdrykkjum um tveggja
áratuga skeið, hefur á síðustu
árum ekki hækkað til jafns við
almenna verðlagsþróun í landinu,"
sagði Ragnar. „Þetta gjald hefur á
undanförnum árum verið í fastri
krónutölu og hefur því rýrnað
feikilega mikið í verðbólgunni. En
það hefur stundum á þessum
tveimur áratugum verið hlutfalls-
lega hærra, en það er nú eftir
þessa hækkun, til dæmis 1960; í
upphafi viðreisnar.
Það er auðvitað gefið mál, að
einhver samdráttur verður í
neyzlu vöru eftir verðhækkun.
Reynslan sýnir að þetta á við um
allar vörutegundir, en reynslan
sýnir líka, að þegar frá líður, þá
færist neyzlan aftur í svipað horf
og áður. Það er gert ráð fyrir því,
að eins fari nú með gosdrykkina.
Það er álitið, að sala í ýmis konar
smásöluverzlun hafi heldur dreg-
izt saman fyrst eftir áramótin,
bæði vegna gjaldmiðilsbreytingar-
innar; að fólk velti nýju krónunum
eitthvað meira fyrir sér en þeim
gömlu, og einnig komi alltaf slíkur
afturkippur í verzlun eftir hátíð-
irnar.
En varðandi gosdrykkina, þá
trúi ég ekki öðru en neyzlan færist
aftur í fyrra horf að tiltölulega
skömmum tíma liðnum. Það er
sjálfsagt að láta reynsluna skera
úr um þetta."