Morgunblaðið - 25.01.1981, Síða 7

Morgunblaðið - 25.01.1981, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 7 /7 C7 Í7 w n n l\Al ql Umsjónarmaður Gísli Jónsson______________84. þáttur Hvað er Ijóð og hvers vegna heitir það svo? Með miklum lærdómi hafa mál- fræðingar rakið uppruna orðsins þannig til rótar, að ætla má að frummerking eigi skylt við lof eða ljós. En hvernig á að skilgreina hug- takið ljóð? Hvað þarf til að koma, svo að einhver sam- setningur orða verðskuldi þetta viðfelldna heiti? Ég leyfi mér að tilfæra orðrétt úr Bókmenntum eftir Hann- es Pétursson (bls. 67): „Engin afmörkuð skil- greining er til, sem greini ljóð frá kvæði, og eru orðin notuð jöfnum höndum (t.d. ástarljóð, ástarkvæði, erfi- ljóð, erfikvæði), enda þótt þess gæti í seinni tíð að tengja ljóð fremur en kvæði við bundið mál, sem þykir ljóðrænt (lyrískt); einnig hefur komizt á að nota ljóð í samsetningunum óbundið ljóð og prósaljóð, þ.e. um ljóðrænt efni, sem hlítir ekki bragreglum. Þó eru þessi mörk ekki heldur glögg, því að bæði er talað um atómljóð og atómkvæði. í fornu máli merkti ljóð erindi, og kemur orðið fyrir í heitum kvæða um ólík efni og undir ólíkum háttum, sbr. Hyndluljóð (undir fornyrðingslagi) og Sólarljóð (undir ljóðahætti)." I orðabók Menningarsjóðs er ljóð m.a. skilgreint á þann veg, að það sé ljóðrænn texti, þótt í lausu máli sé. Ég hef enn úr nýrri bók Eysteins Þorvaldssonar um Atómskáldin eftir Grétari Fells að „andi ljóðsins, ljóð- úðin, getur mæta vel birst í órímuðu máli, og meira að segja notið sín betur en í hinum þrönga stakki ríms- ins.“ Tilefni alls þessa er bréf frá Skeggja Skeggjasyni í Reykjavík. Meginatriði bréfsins eru þessi: 1) Hann hefur látið sér skiljast að ljóð þýddi formun máls í stuðla og rím, þótt sumir skjóti sér bak við annars konar texta, t.d. Ljóðaljóðin í Biblíunni. 2) Hann spyr hvort þýð- endum beri ekki að færa erlenda ljóðtexta til þess „sem kallast getur ljóð á okkar tungu.“ 3) Hann heldur því fram að mun auðveldara sé að læra og muna stuðlað og rímað mál en óbundið, og því auðveldara sem betur sé ort. 4) Honum þykir margt lofsungið sem sé formlaust og af ásettu ráði gert sem óskiljanlegast. 5) Hann segir orðrétt: „Mér er því spurn: Hefur hver sem er málfræðilegan rétt til að kalla formlausa framsögn ljóð? Hörmulegt finnst mér að sjá þetta frá mönnum sem ég veit fullvel að geta leikandi vel haft vald á góðum rímformum. 6) Skeggi hélt þann tíma liðinn hjá, er Jóhannes úr Kötlum, sem hann dáði mjög, „neyddist til að senda frá sér Ó-ljóð“ til að styggja ekki önnur ó-ljóðaskáld. 7) Lokaorð Skeggja: „Svo má heita að nær allir sem maður talar við um þetta órímaða, segist hvorki skilja það né vilja lesa og alveg viðburður ef nokkur kann línu úr því. Ef þessir menn munu vilja einhvern boðskap á borð bera, sem þeir vilja túlka, af hverju leggja þeir það ekki fram sem laust mál?“ Hér er sem sagt ekkert smámál til úrlausnar, og verður ekki reynt nema að litlu leyti að leita þeirrar lausnar í þessum þætti. En áður en reynt verður að svara spurningum Skeggja og fjalla að öðru leyti um efni bréfs hans, þykir mér við eiga að rifja upp hvernig Guðmundur meistari Finn- bogason skilgreindi hugtakið ást: „Ástin er það, sem vér finnum, að hún er.“ (E.Ben. Ljóðmæli, I, 41). Um fyrsta efnisatriði Skeggja: Érá elstu tíð hefur verið ort á tungu okkar það sem við köllum, hvort heldur sem er, kvæði eða ljóð án ríms. Völuspá er órímuð, Hávamál eru órímuð. Þessi forni kveðskapur var hins vegar alltaf stuðlaður og með ákveðinni hrynjandi þar að auki. Biblíuþýðendur okkar hafa hvorki stuðla né höfuð- stafi í þeim ljóðum ljóða sem þeir hafa snarað á íslensku og má þó sá maður undar- legur heita sem ekki vill hafa þann texta í ljóðatölu. Spurningu Skeggja um starf íslenskra ljóðaþýðenda er í rauninni svarað með þessu. Meira að segja orkar tvímæl- is, þegar ágætir þýðendur eins og Magnús Ásgeirsson, hafa gert það sem Skeggi ætlast til að sé ófrávíkjanleg regla, þ.e. þýtt „óbundinn" erlendan texta með stuðlum og rími. A Um þriðja atriði. Ég held allir séu sammála um það, að auðveldara sé að læra bundið mál en laust. Einar í Eydöl- um kvað: Kvæðin hafa þann kost með sér, þau kennast betur og lærast ger, en málið laust úr minni fer, mörgum að þeim skemmtan er. Rúmsins vegna læt ég bíða að fjalla frekar um efni Skeggjabréfs, en vendi mínu kvæði í kross með því að láta þess getið að Steindór Steindórsson á Akureyri hringdi til mín út af efni síðasta þáttar og fræddi mig á því að til væri vestur við Djúp örnefnið Blævadalsá. Ljósmyndafyrirsætur Ungfrú Útsýn Val á Ijósmyndafyrirsætum í keppnina „Ungfrú ÚTSÝN 1981“ stendur nú yfir. Þátttakendur skulu vera á aldrinum 17—25 ára. Allir þátttakendur fá feröaverölaun og ca. 10 stúlkur, sem valdar veröa til úrslita hljóta ókeypis ÚTSÝNARFERÐ til sólarlanda. Kynning stúlkn- anna fer fram á Útsýnarkvöldum á Hótel Sögu. ATH.: Stúlkur, sem þegar hafa skráö sig í keppnina, eru beönar aö koma til viötals á Útsýn, sunnudaginn 25. janúar kl. 4 síödegis. Nýir þátttakendur geta einnig skráö sig á sama tíma. Sími 20100. Alf Boe, forstööumaður listasafs Oslóarborgar heldur fyrirlestur um Edvard Munch og list hans. „Facetter av Edvard Munchs kunst“ sunnudag 25. jan. kl. 16:00. Sýning í anddyri og bókasafni Norraena hússins á málverkum og grafík eftir Edvard Munch stendur yfir til 22. febr. Opin á opnunartíma hússins. Verið velkomin. Norræna húsið NORR4NA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS BÓKFÆRSLA I Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiös í Bók- færslu í fyrirlestrarsal félagsins aó Síðumúla 23. Námskeiöiö er haldiö dagana 2.—5. febrúar frá kl. 13:30—19:00 alla dagana (4 dagar). Fjallað verður um sjóðbókafærslur, dagbókafærslur og færslur í við- skiptamannabækur. Sýnt verður uppgjör fyrirtækja og rædd ýmis ákvæöi bókhaldslaganna. Námskeiöió er sniðið fyrir ein- staklinga sem: — hafa litla eöa enga bókhalds- menntun. — vilja geta annast bókhald smærri fyrirtækja. — hyggja á eða hafa meö hönd- um eigin atvinnurekstur. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands í síma 82930. i . ____________________________________ ASTJÓRNUNARFÉIAG fSIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930 Kristjén Aðslstæinsson vtdskiptsfrssðingur. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RIKISSJOÐS: Innlauanarvarð 25. janúar 1981 Seðlabankans Kaupgengi m.v. 1 árs Ylir- p« kr. 100.- tímabil frá: gengi 1969 1. flokkur 5.603,37 20/2 '80 3.303,02 69,6% 1970 1. tlokkur 5.130,76 15/9 '80 3.878,48 32,3% 1970 2. flokkur 3.726,67 5/2 '80 2.163,32 72,3% 1971 1. flokkur 3.386,70 15/9 '80 2.565,68 32,0% 1972 1. flokkur 2.994,92 25/1 ’81 2.907,69 3,0% 1972 2. flokkur 2.516,67 15/9 ‘80 1.914,22 31,5% 1973 1. flokkur A 1.878,16 15/9 '80 1.431.15 31,1% 1973 2. flokkur 1.759,18 25/1 '81 1.707,94 3,0% 1974 1. flokkur 1.193.07 15/9 '80 910,11 31,1% 1975 1. flokkur 990,73 10/1'81 961,87 3.0% 1975 2. 1976 1. flokkur flokkur 734,73 697,06 VERÐTRYGGÐ 1976 2. 1977 1. flokkur flokkur 565,98 525,67 HAPPDRÆTTISLÁN 1977 2. 1978 1. flokkur flokkur 440,33 358,84 RÍKISSJÓÐS: 1978 2. flokkur 283,22 Kaupgengi 1979 1. flokkur 239,48 pr. kr. 100.- 1979 2. flokkur 185.82 m.v. 10% sffOII. 1980 1. flokkur 139,45 A — 1972 1.652.67 1980 2. flokkur 109,97 B — 1973 1.417.86 C — 1973 1.235.61 O — 1974 1.072.17 E — 1974 758.70 F — 1974 758.70 G — 1975 528.48 H — 1976 511.74 1 — 1976 402.30 J — 1977 380.43 Ávöxtun spariskírteina síöustu 12 mán. = 62—71% VEÐSKULDA- Kaupgengi m.v. nafnvexti Ávöxtunar- BRÉF:* 12% 14% 16% 18% 20% 38% krafa 1 6r 65 66 67 69 70 81 70— 72% 2 6r 54 56 57 59 60 75 71—74% 3 ár 46 48 49 51 53 70 72—76% 4 ár 40 42 43 45 47 66 73—78% 5 ár 35 37 39 41 43 63 74—80% *) Miðað er við auðseljanlega fasteign. NÝTT ÚTBOÐ VEROTRYGGÐRA SPARI- SKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS: 1. flokkur 1981. Sala hefst 26. janúar. MfRKITIfMiARfáM IflMIM HP. VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R. Iðnaðarbankahúsinu. Sími 28566. Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.