Morgunblaðið - 25.01.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANIJAR 1981
21
„Líkaninn - annað ekki“ á
Litla sviði Þjóðleikhússins
Nk. þriðjudagskvöld, 27. janúar,
frumsýnir Þjóðleikhúsið nýlegt
breskt leikrit eftir James Saun-
ders á Litla sviðinu. Leikritið
heitir „Bodies“ á frummálinu, en
hefur i islenskri þýðingu örnólfs
Árnasonar hlotið nafnið „Líkam-
inn — annað ekki“.
Benedikt Árnason leikstýrir, en
Jón Svanur Pétursson gerir leik-
mynd og búninga. Er þetta fyrsta
leikmyndin sem Jón Svanur gerir
fyrir Þjóðleikhúsið, en hann hefur
starfað sem leiktjaldamálari við
stofnunina nokkur undanfarin ár.
Páll Ragnarsson sér um lýsinguna í
sýningunni.
Hlutverkin í leiknum eru aðeins
fjögur og eru í höndum Kristbjarg-
ar Kjeld, Gísla Alfreðssonar, Stein-
unnar Jóhannesdóttur og Sigmund-
ar Arnar Arngrímssonar.
„„Líkaminn — annað ekki“ er
meðal þeirra leikrita sem hvað
mesta athygli hafa vakið í Bret-
landi á síðari árum,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.
James Saunders hefur samið fjölda
leikverka bæði fyrir leiksvið, útvarp
og sjónvarp. Þjóðleikhúsið hefur
áður sýnt leikrit eftir Saunders,
„Næst skal ég syngja fyrir þig“, sem
sýnt var á Litla sviðinu í Lindarbæ
veturinn 1966—67.
Leikritið fjallar um tvenn hjón,
Önnu og Margeir, sem Kristbjörg
og Gísli leika, og Helenu og Davíð,
sem Steinunn og Sigmundur Örn
leika. Hjón þessi hittast eina kvöld-
stund eftir níu ára aðskilnað, en
áður fyrr hafði verið mjög náinn
vinskapur með þessu fólki. Níu ár
eru langur tími af mannsævi og
ýmislegt hefur breyst, ekki síst
fólkið sjálft.
co
• ** pTnudt&»»hr ^
Colb?rfÖt V 6 janú°r.
°S ra» GikáiCÓróna ’ Co°PerBal,
kr. 600 /i/i Verð fiauelsbu%aPo~ oB
• Staki- ’°,' 9°0,Oo *r. 125baXUr> Verð 8
n'iklu tóvenju. * KuldQflikurí°’00
kr. 350 on l’ Verð Urvali Ve - ,fl,k/u
* Stakar Z' °>00 - S°>00 K 19°>°0 -
Tiklu ÍÓVeuJu- fy?ur, mikið '
kr- 200,oo b’ Verð . Verð kr. 50,oZ_ZVal>
KlauekblúZ. 90,00
Jj kK ^.oo ’ Verð
!
# PeVsur op 0
. Sverð %%***
tí°hr, frahh ° kr' 19$ -
treflar> &llk9Ur>
ndt ° fl. o.j
rc?ti 4
C