Morgunblaðið - 25.01.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
23
sérverzlanir og hin frægu pönnu-
kökubakarí í París snarhækki
vöru sína einungis í upphafi ferða-
mannatímans ár hvert. Nú þarf
ekki lengur slíkrar hvatningar við,
því vöruverð og þjónusta hækka
nú orðið a.m.k. þrisvar sinnum á
ári í París. Ástandið kemur ís-
lendingum einkar kunnuglega
fyrir sjónir. Borgaryfirvöld og
franska ríkið eru alls engir eftir-
bátar Parísarkaupahéðna í verð-
hækkana-kapphlaupinu: nöldr-
andi brugðust Parísarbúar við enn
nýjum hækkunum á farmiðum
strætisvagna og dýrari miðum
með neðanjarðarbrautinni,
„métro", núna skömmu fyrir jól.
Verðbólgan gegnsýrir andrúms-
loftið í Parísarborg eins og eitt
allsherjar mengunarský. Út á við
eru borgarbúar þó gjarnan kok-
hraustir eða jafnvel allt að því
ósvífnir í tali, meðfædd kátína
þeirra er ódrepandi: „Það sem
kostar ekki neitt, er einskis virði!"
... dýrt skal það vera
Fínni veitingahús borgarinnar
bjóða upp á kvöldverð fyrir þetta
25—40.000 ísl. krónur (200—
300franka), næturklúbbar og
víðfrægir kabarettar Parísar eins
og Folies-Bergére, Alhambra,
Cirque d’Hiver og Les Ambassa-
deurs guma af aðgangseyri frá
rúml. 30.000 og allt upp í 45.000 kr.
— kvöldverður innifalinn í verð-
inu!
Það er líka langt frá því, að
menningin sé ókeypis: leikhús,
söfn og sýningaskálar myndlist-
armanna hafa snarhækkað að-
gangseyrinn núna í haust. Að
skreppa eina kvöldstund í L’Opera
er orðið svo dýrt, að maður hugsar
sig um tvisvar áður; aðeins vel
efnað fólk kaupir miða í óperuna
umhugsunarlaust. Chirac, borgar-
stjóri, hefur gefið Parísarbúum
ákveðið loforð um nýja, ódýra
borgaróperu í Chatelet, sem á að
verða fyrir allan almenning.
... nóg af menning-
ararfleifð
í ár halda Frakkar upp á
„patrimoine", ár hinnar miklu
arfleifðar franskra lista • og
franskrar sögu. Þeir snúa sér af
alvöru að því, sem áunnist hefur;
hver yfirlitssýningin á fætur ann-
arri hefur verið sett upp í París
allt þetta ár, list og saga snotur-
lega flokkuð niður í sýningarsöl-
unum. Einnig í sýningarsölum í
einkaeign hefur hið viðtekna,
gamalgróna, löngu viðurkennda í
myndlist tekið yfirhöndina — og
þar með sjálf leiðindin, þrátt fyrir
eina Picasso-mynd hér eða Mat-
isse þar. Þeir tilheyra líka fyrir
löngu menningararfleifðinni. Hví
skyldu menn svo sem vera að
leggja á sig allt þetta erfiði við að
skapa eitthvað nýtt í listum, úr
því að menningararfleifðin
franska er svo auðug og marg-
slungin?
Einustu biðraðirnar, sem maður
sér í París, eru fyrir framan
kvikmyndahúsin við Champs-
Élysées og Boulevard Mont-
martre, þar sem frumsýndar eru
nýjustu kvikmyndirnar — og svo
fyrir framan safn impressionist-
anna „Jeu de Paume“, þar sem
biðröðin nær langt út í lystigarð-
inn. Parísarbúar berjast allt að
því með hnúum og hnefum við að
drífa sig inn á listasöfn borgar-
innar í vetrarkuldanum og fá
þannig að njóta síns réttláta
skerfs af menningararfleifðinni
miklu.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir:
Tvö leikrit eftir Daríó Fó
TVÆR frumsýningar verða hjá Al-
þýðuleikhúsinu í nýju húsnæði.
Hafnarhíói, í þessari viku. Eru það
tvö leikrit eftir ítalskan mann.
Darió Fó að nafni. sem mun hafa
skrifað fjölda leikrita. og einhver
sýnd hérlendis.
„Kona“ heitir leikritið sem frum-
sýnt verður nk. þriðjudag, 27. janúar.
„Kona“ er þrjú eintöl og innlegg í
Jafnréttisbaráttu kynjanna".
Þetta leikrit er beiðni um skilning,
sagði einn leikari Alþýðuleikhússins.
— En það er samt enginn halelúja-
tónn í þessu leikriti, bætti annar við:
Þessi „beiðni" er mjög kröftug, sagði
hann, nánast frekjuleg!
Leikstjóri „Konu“ er Guðrún Ás-
mundsdóttir, leikmynd er eftir Ivan
Török; Gunnar Reynir Sveinsson
samdi tónlist og „áhrifahljóð", David
Walters sér um lýsingu og leikendur
eru: Edda Holm, Guðrún Gísladóttir
og Sólveig Hauksdóttir. Fram-
kvæmda- og sýningarstjóri „Konu“
er Guðný Helgadóttir.
Þá frumsýnir Alþýðuleikhúsið nk.
fimmtudag, 29. janúar, leikritið
„Stjórnleysingi ferst af slysförum",
sömuleiðis eftir Daríó Fó. Að sögn
Alþýðuleikhúss-manna er það leikrit
b.vggt á sannsögulegum heimildum:
— Þetta virðist við fyrstu sýn vera
farsi, sagði leikstjórinn; en þetta er
allt sannleikanum samkvæmt. Leik-
ritið er unnið uppúr lögregluskýrsl-
um og blaðagreinum. Það er gengið
út frá raunveruleikanum, en útkom-
an virðist mjög óraunveruleg, segir
leikstjórinn.
í stuttu máli segir leikritið af
stjórnleysingja sem verður fyrir
barðinu á „vondum yfirvöldum" á
ítaliu!
Leikstjóri Stjórnleysingjans sem
ferst af slysförum er Lárus Ymir
Óskarsson, leikmynd teiknaði Þór-
unn Sigríður Þorgrímsdóttir, „hljóð
og tónar“ eru eftir Leif Þórarinsson,
og leikendur eru: Arnar Jónsson,
Bjarni Ingvarsson, Björn K. Karls-
son, Elísabet Þórisdóttir, Viðar Egg-
ertsson og Þráinn Karlsson. Fram-
kvæmda- og sýningarstjóri er Sigur-
björg Árnadóttír.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir semsé
tvö leikrit í Hafciarbíói í þessari viku:
„Kona“ nk. þriðjudag, 27. jan. og
„Stjórnleysingi ferst af slysförum"
nk. fimmtudag, 29. jan. Svo mun
leikhúsið taka unglingaleikritið
„Pæld’í’ðí" til sýningar í Hafnarbíói
mjög bráðlega.
Innlent lán rikissjóós íslands
____________1981 l.fl.___________
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
Fjármálaráðherra, f. h. ríkissjóðs, hefur
ákveðið að bjóða út til sölu innanlands
vertryggð spariskírteini að fjárhæð allt
að 20 millj. kr. Kjör skírteinanna eru í
aðalatriðum þessi: Skírteinin eru lengst
til 22 ára, bundin fyrstu 5 árin. Þau bera
vexti frá 25. þ. m., meðalvextir eru um
3,25% á ári. Verðtryggingin miðast við
breytingar á lánskjaravísitölu, sem tekur
gildi 1. febrúar 1981.
Um skattskyldu eða skattfrelsi skírteina
fer eftir ákvæðum tekju- og
eignarskattslaga eins og þau eru á
hverjum tíma, en nú eru gjaldfallnar
vaxtatekjur, þ. m. t. verðbætur, að fullu
frádráttarbærar frá tekjum manna, enda
séu tekjur þessar ekki tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi,
sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980.
Skírteinin eru framtalsskyld.
Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum,
500, 1.000, 5.000 og 10.000 krónum
og skulu þau skráð á nafn. Sala hefst
26. þ. m. hjá Seðlabanka íslands, einnig
hjá bönkum, bankaútibúum og
sparisjóðum um land allt, svo og
nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja
frammi hjá þessum aðilum. Athygli er
vakin á því, að lokagjalddagi
spariskírteinaí l.fl. 1968erhin25.þ. m.
og hefst innlausn skírteina í þeim flokki
mánudaginn 26. þ. m. hjá Seðlabanka
íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík.
oVAR-ti.
Islfi
Janúar1981
SEÐLABANKIISLANDS