Morgunblaðið - 25.01.1981, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
Þorkell Sigurbjörnsson:
Merkisatburdur í
tónlistarsögu okkar
George Gerwhwin með mynd sína aí Seboeaberg
SNEMMA á þessari öld fæddust þrír
trúrtar nær samtímis, sem allir fengu
þegar sess i hugarheimi, hver á sinn hátt,
misáberandi og mismeðvitað þó. í tiltekt-
um þeirra »g fangbrögóum, vonbrigðum,
vonum og smásigrum, hafa milljónir séð
spegilmynd sina ófægöa, annað hvort með
þvi að sjá þá og heyra sjálfa, eða gegnum
eftirlíkingar og endursagnir, sem siöar
hafa komið fram i óteljandi rit-, mynd-, og
tónverkum.
í sjálfu sér er ekki mikiö athugavert við
þýðingar, endurprentanir. eftiriíkingar
eða endursagnir, þegar ekki er hægt að
mæta frumgerðunum sjálfum. Stundum er
slikt nauðsynlegur milliliður, likt og
endurrómur. sem beinir athyglinni að
grunntóninum.
bcssir þrir trúðar eru „ílakkari“ Chap-
lins, sem nær allir þekkja. „leikhrúða”
Stravinskys, sem færri hafa kynnst af
eigin raun. og loks „mánapési“ Schön-
bergs, sem e.t.v. hefur haft mcst áhrif
þeirra þriggja — þótt eðli sinu samkvæmt
hafi hann sjáifur ekki beinlinis þvælst
fyrir fólki á almannafæri. bess vegna hafa
fæstir haft tækifæri til að komast i beina
snertingu við hann sjálfan.
Hann kom hér við á seinustu Listahátið
og kynnti sig eftirminnilega vel, en fyrir
þröngum hópi sem hans var von og visa.
Nú er hann aftur væntanlegur i bjóðleik-
húsið annað kvöld með sama úrvaislið og
áður. og nú er ekki ástæða til að missa af
neinu, nema ef fólk hamstri miðum og þeir
seljist upp fyrir kaffi.
Flutningur Ruth Magnússon og Kamm-
ersveitar Reykjavikur undir stjórn Paul
Zukofsky var hrifandi afrek i fyrra og nú á
að veita stærra hópi áheyrenda hlutdeild i
þvi. Er það gott. betta er merkisatburður f
tónlistarsögu okkar, hér. bað er t.d. ekki
langt siðan. að sögur voru sagðar frá
grónum tónlistarborgum, að tónlistarfólk
hafi glimt við „Pierrot lunaire“ á 200
æfingum og rétt náð að koma honum til
skila — eða þá að heimsþekktar söngkonur
hafi gefist upp við hann eftir mánaða
yfirlegu og tugi æfinga.
Hér er samt ekkert sérmál fyrir tón-
listarfólk á ferðinni, þröngan klúbb eða
kliku, eins og sumir virðast halda. Schön-
berg sagði sjálfur, árið 1911, að margir
næmustu áheyrendur hans kæmu ekki úr
röðum tónlistarmanna eða annarra lang
skólagenginna. bá átti hann ekki síst við
reynslu sína af trúðum „Pierrot Lunaire“.
VILBORG SJORPtSOOnift
Þ0R6EMUR ÞOR6EIRS00TTIR
UNGA FÚLKID
0G ELDHÚSSTÚRFIN
,0
A.
s \ -'iiHM
fff
\ w
I
NAMSGAGNASTOFNUN
Unga fólkið og
eldhússtörfin i
nýrri útgáfu
NÝLEGA er komin út endurskoð-
uð útgáfa bókarinnar Unga fólk-
ið og eldhússtörfin eftir Vilborgu
Björnsdóttur og borgerði bor-
geirsdóttur. Útgefandi er Náms-
gagnastofnun, en bókin er ætluð
til kennslu i heimilisfræði fyrir
7.-9. bekk grunnskóla.
í frétt frá Námsgagnastofnun
segir m.a. að helztu breytingar á
bókinni séu þær, að vörufræði sé
mun ýtarlegri, getið sé geymslu og
frystingar matvæla og nýjum upp-
skriftum bætt við. bá hefur ágrip
af næringarfræði eftir sömu höf-
unda verið fellt inn í þessa útgáfu,
aukið og endurskoðað. Bókin kom
fyrst út 1967 og hét þá Unga
stúlkan og eldhússtörfin og hafa
uppskriftir bókarinnar verið not-
aðar í skólaeldhúsum allar götur
síðan. Helztu kaflar bókarinnar
eru: fæðan og gildi hennar, mál og
vog, steiking, innkaup og geymsla
matvæla, fæðuflokkarnir, egg og
eggjaréttir, mjólk og mjólkuraf-
urðir, feitmeti, bökun, þvottur og
fatamerkingar.