Morgunblaðið - 25.01.1981, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir Ótemjuna:
Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir i kvöld, sunnudatfs-
kvöld, hinn vinsæla Kamanleik
Shakespeares The Taminx of
the Shrew í íslenzkum bún-
in>ri- Verkið hefur hlotið heitið
Ótemjan eða Snetíla tamin. býð-
andi er Heltci Hálfdanarson ot?
leikmynd er eftir Steinþór
SÍKurðsson. en búninga tferði
Una Collins frá Bretlandi. Tón-
Hst við sýninKuna er eftir Etftf-
ert Þorleifsson sem jafnframt
flytur hana ásamt leikurunum.
Með verkinu er fluttur forleikur
otf eftirleikur sem Böðvar Guð-
mundsson hefur samið otf fært
i texta eftir hutfmyndum leik-
stjóra, sem er Þórhildur Þorleifs-
dóttir, en verkið að öðru leyti i
upprunalegri mynd.
Morgunblaðsmenn litu inn á
æfingu á Ótemjunni i vikunni, þar
sem leikarar, leikstjóri og aðrir
aðstandendur sýningarinnar voru
að leggja síðustu hönd á verkið, ef
svo má að orði komast. Og leik-
stjórinn, Þórhildur Þorleifsdóttir,
lét sér þá ekki muna um að skvera
sér upp á sviðið og fylla skarð sem
flensa hafði höggvið í það skiptið,
en einn og einn leikari hefur orðið
flensunni að bráð upp á síðkastið.
Leikfélagsmenn gerðu sér vonir
um að þegar að frumsýningu
kæmi yrðu allir leikararnir stál-
slegnir, því hópurinn hefði tekið
út sinn skammt af flensunni sem
herjað hefur á borgarbúa að
undanförnu.
Leikritið gerist á Ítalíu og segir
frá hinum auðuga aðalsmanni
Baptista í Padúu. Baptista á tvær
dætur. Sú yngri, Bjanka, er afar
eftirsótt; hin, Katrín, er fræg fyrir
skapofsa og erfiða iund enda hafa
engir karlmenn biðlað til hennar.
Baptista hefur ákveðið, að Bjanka,
sem á sér marga vonbiðla, fái ekki
að giftast fyrr en Katrín hafi
eignast mann. Ævintýramaður
frá Verónu, Petrútsíó að nafni,
tekur að sér að biðla til Katrínar
fyrir áeggjan vinar síns, Hortens-
íó, sem leggur ást á Bjönku.
Petrútsíó ákveður þó að kvænast
Katrínu ekki sízt vegna heiman-
mundarins, og sýnir leikritið við-
ureign hans við hana og hvernig
honum tekst að beygja hana til
hlýðni og undirgefni.
Petrútsíó kvænist semsé Katr-
ínu og tekur hana með sér til
sveitaseturs síns, þar sem hann
varnar henni bæði svefns og
matar og sveigir hana þannig til
hlýðni við sig.
A meðan hefur einn vonbiðla
Bjönku, Lúsentsíó, dulbúist eins
og flestir biðlar hennar og skotið
keppinautum sínum, Gremíó og
Hortensíó, ref fyrir rass og náð
ástum Bjönku í gervi læriföður
hennar. Þau gifta sig síðan. Hort-
ensíó gerir sér að góðu að giftast
auðugri ekkju. Hinir þrír ný-
kvæntu eiginmenn veðja um, hver
eiginkvenna þeirra sé hlýðnust og
manni sínum undirgefnust. Petr-
útsíó vinnur veðmálið.
Fjolmenn sýning
Það eru þau Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir og Þorsteinn Gunnars-
son sem leika Katrínu og Petrúts-
íó, höfuðpersónur verksins. Jón
Sigurbjörnsson leikur Baptistu
föður Katrínar og Bjönku, sem
Lilja Þórisdóttir leikur. Aðrir
helztu leikendur eru Ragnheiður
Steindórsdóttir, Hanna María
Karlsdóttir, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Sigríður Hagalín,
Sigurður Karlsson, Jón Hjartar-
son, Karl Guðmundsson, Guð-
mundur Pálsson, Kjartan Ragn-
arsson, Harald G. Haraldsson og
Eggert Þorleifsson. Að sögn Þór-
hildar leikstjóra taka 15 manns
þátt í sýningunni, svo til allt
fastalið Iðnó.
„Þetta er stór og mikil sýning,
mjög fjölmenn. Við höfum verið
að æfa verkið frá því í nóvember,
og allt gengið samkvæmt áætlun,
er mér næst að segja, þótt flensa
gerir grín að
sambúð kynjanna
hafi herjað á leikarana, einn af
öðrum," sagði Þórhildur.
Hún lagði áherzlu á að hér væri
um viðamikla og litríka sýningu,
og að þetta væri í fyrsta sinn sem
verkið væri flutt í atvinnuleikhúsi
á ísland. Hún sagði að Ótemjan
væri líklega eitt vinsælasta leikrit
sem um getur, það væri sífellt í
sýningu einhvers staðar í heimin-
um, uppsetningar á verkinu skiptu
áreiðanlega þúsundum.
InnlegR Shakespeares
í jaínréttisumræðu?
„Verkið fjallar á gamansaman
hátt um sambúð kynjanna, efnið
er nokkuð umsnúið nú á tímum
jafnréttis. Umræður hafa átt sér
stað á dögum Shakespeare um
þetta efni, og hefur hann dregið
upp ýkta mynd af sambúð kynj-
anna, enda er verkið fyrst og
fremst „kómedía". Við reynum að
gera okkar bezta til að koma
efninu til skila og færa það nær
okkar tíma, þótt fjórar aldir séu
síðan það var samið. Það er gaman
að gera grín að okkur sjálfum og
að því sem okkur sjálfum er
heilagt," sagði Þórhildur, og bætti
við að eflaust hefðu margir gaman
að að skoða efni leiksins í Ijósi
jafnréttisumræðu síðustu ára.
Marghrotin leikmynd
Eins og áður segir, er Eggert
Þorleifsson höfundur og útsetjari
tónlistarinnar í sýningunni. Þetta
er í fyrsta skipti sem Eggert tekur
að sér að semja tónlist fyrir
sýningu hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur, en hann hefur í vetur leikið og
sungið í söngleiknum Gretti hjá
félaginu. Eggert hefur leikið í
ýmsum leiksýningum Alþýðuleik-
hússins. Hann hefur að baki
margra ára tónlistarnám, spilaði
um skeið í Sinfóníuhljómsveit
Islands og söng með sönghópnum
Þokkabót.
I leikmyndinni, sem er marg-
brötin, felast margar andstæður.
Bregður þar fyrir myndum, sem
sóttar eru í hundruð ára gamlar
frummyndir frá Ítalíu en inn á
milli bregður fyrir Dómkirkjunni í
Brúðkaupsdagurinn. Fyrir miðri mynd eru þau hjón Petrútsió og Katrin (Þorsteinn Gunnarsson og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir). Aðrir á
myndinni (f.v.) eru; Jón Sigurbjörnsson (Baptista), Jón Hjartarson (Grúmíó þjónn Petrútsió) Karl Guðmundsson (Bíondelló þjónn Lúsentsíós),
Sigurður Karlsson (Tranió) þjónn Lúsentsíós), Hanna M. Karlsdóttir (Hortensíó), Kjartan Ragnarsson (Kúrtis þjónn hjá Petrútsió), Eggert
Þorleifsson (Skyrtusali og þjónn Petrútsíós), Harald G. Haralds (Skraddari og þjónn Petrútsíós) Lilja Þórisdóttir (Bjanka) og Ragnheiður
Steindórsdóttir (Lúsentsió aðaismaður frá Písu).