Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.01.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1981 31 Ellefu listamenn taka aö þessu sinni þátt í Vetrarmynd aö Kjarvalsstöðum og kennir þar margra grasa í listsköpun af ýmsum toga. í vali þátttakenda í Vetrarmynd er lögö áhersla á fjölbreytni og sá tónn ræöur ríkjum á sýningunni, þar sem sýnt er þaö nýjasta frá hverjum listamanni. Vetrarmynd lýkur um mánaðamótin. Grein: ÁrniJohnsen Myndir: Emilía Björg Björnsdóttir Ur myndinni Klippt • ekki skorið. en „Sækir í það fígúratíva* „Ég er að vinna í aðra sýningu af krafti um þessar mundir,“ sasjði SÍRurður örlygsson, „við ómar Súiason ætlum að sýna saman í maí á Kjarvalsstöðum ok það er ekkert annað en að vinna mikið til þess að allt gangi upp. Ég hef verið í Danmörku og Svíþjóð að undanförnu og ég vona að það komi fram nokkur breyting á mínum verkum, ég nota nokkuð fótotækni, silkiprentun og fleira og held að stíllinn sé orðinn frjálsari, þetta sækir í það fígúratíva." Sigurður örlygsson Hámynd og lágmynd Magnúsar „Vinn eins og kontóristi“ „Ég er að vinna að myndum i svipuðum dúr og eru i Vetrar- mynd,“ sagði Magnús Tómasson og einnig er ég með ýmislegt nýtt á prjónunum, grafik er i seilingu og ég er að gera tilraunir með þrivið- ar myndir. cins konar veggmyndir steyptar í pappír. Annars má segja að ég vinni að myndlistinni eins og kontór- isti, reglulega á hverjum degi.“ Magnús Ein af teikningum Haltasars. Að velja sitt föðurland „Ég er að undirhúa af- mælissýningu fyrir 9. janú- ar 1983. þá á ég 20 ára afmæli á Islandi. verð eig- inlega tvitugur íslending- ur. Ég verð með allt nýtt á þeirri sýningu sem ég ætia að tileinka íslandi.“ sagði Baltasar sem er fastur lið- ur í Vetrarmynd. Baltasar kvaðst hafa ferð- ast til Bandaríkjanna á sl. ári og væri hann ennþá að melta áhrifin frá þeirri ferð eftir að hafa upplifað land- ið. „Það eru því ýmsar hræringar á iofti,“ sagði hann, nýjungagirni hefur alltaf fylgt mér og að því leyti er ég líkur íslenska verðurfarinu, þar sem sí- breytileikinn ræður ferð- inni. í Arizona var alltaf sól- skin, en veðrabrigðin líka mér betur til lengdar. Það var skemmtilegt að fara út og finna það virkilega að hér á ég heima og valdi rétt. Það eru ekki allir sem geta valið sitt föðurland." Hlustað á eigin verk. Ein af seríum Þórs. Vinna í mynd- röðum Þór Vigfússon er yngstur Vetrarmynd- armanna að þessu sinni, en hann sýnir Ijósaverk og þríhyrninga. Þór nam í Handiðaskólanum og hefur sýnt í mörgum samsýningum. Hann vinnur talsvert mikið í myndröðum eins og má t.d. sjá á meðfylgj- andi mynd sem er þó ekki í Vetrarmyndinni. Þór sagðist vinna aðra vinnu með listsköpuninni, hann kæmist ekki upp með annað, og væri því eins konar frístundamálari. Þór Vigfússon. Úr Tölvuvæðingunni. Allt nýlegar myndir „Þetta eru allt nýlegar myndir á sýningunni,“ sagði Einar Þorláksson, en hann sýnir í Vetrarmynd verk sem heita; Haust, Aðventa, Iiúm, Tölvuvæðing, Fæðing, Feigð, Að vestan, Nemesis og Inni. Við birtum ekki mynd af Einari þar sem hann er slíku mótfallinn, en meðfylgjandi mynd er úr verki hans: Tölvuvæðingunni. Leirinn og brauð- stritið eiga samleið „Um þessar mundir vinn ég aðallega í leir og sigli þar í mínum stíl,“ sagði Haukur Dór, „ég fæst lítið við að mála, en teikna svolítið. Það er brauðstritið sem situr í fyrirrúmi svo allt hafi sinn gang. Ein af Grímum Hauks Dórs, en auk þeirra sýnir hann teikn- ingar í Vetrarmynd. Haukur Dór mamma setur það saman“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.