Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 15

Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 15 stofnum. Eg vil benda á, að á þessu tímabili hefur möskvi í botnvörpu og flotvörpu tvívegis verið stækkaður, fyrst úr 120 mm í 135 mm og síðar í 155 mm. Þá hafa verið friðuð mikil veiðisvæði um lengri eða skemmri tíma, ýmist fyrir öllum veiðum eða botnvörpu-, flotvörpu- og drag- nótaveiðum. Settar hafa verið nýjar reglur um lágmarksstærðir fisktegunda og sérstakir veiði- eftirlitsmenn hafa verið ráðnir til þess að fylgja eftir að lögum og reglum um fiskvernd sé hlýtt. Veiðar hafa verið.stöðvaðar tiltek- in tímabil með setningu reglu- gerða. Allt er þetta byggt á lögunum um fiskveiðilandhelgi Is- lands, sem endurskoðuð voru á þessu tímabili og ný löggjöf var samþykkt á Alþingi 1976. Allar takmarkanir á veiðum hafa byggzt á samvinnu og umsögn hagsmunaaðila í sjávarútvegi, en helztu umsagnaraðilar ráðu- neytisins hafa verið og eru Haf- rannsóknastofnunin og Fiskifélag tslands. Ég fullyrði það, að engin þjóð hefur beitt jafnmiklum takmörk- unum og friðunaraðgerðum og íslendingar hafa gert, sérstaklega á þessum árum og síðan hefur verið framhald af því og byggt á þeim lögum sem þá voru sett. Stjórnun fiskveiða Stjórnun fiskveiðanna hefur mjög verið til umræðu á undan- förnum árum. Það er eðlilegt að svo sé þar sem allar aðgerðir í þeim efnum snerta lífsafkomu allra þeirra er fást við veiðar og vinnslu sjávarafla. Það er ekki geðfellt verk að þurfa að grípa inn í störf þessa fólks með boðum og bönnum — en þegar yfirvofandi er hætta á að fiskstofnar verði eyðilagðir, eins og fór um síldarstofnana, þá er óhjákvæmilegt að grípa til viðeig- andi varnaraðgerða. Vandinn er að slíkar aðgerðir komi sem jafn- ast niður. Meðan erlendir fiskveiðiflotar fóru ránshendi um miðin var erfitt að koma við ströngum frið- unaraðgerðum. Þeim hafði að vísu verið beitt í sambandi við síldveið- ar, humar og skelfiskveiðar, og þegar ljóst var að sigur var í nánd í landhelgismálinu, en sá sigur einn var stórfelld friðunaraðgerð, var óhjákvæmilegt að taka þessi mál föstum tökum. Þess ber að geta að allt frá árinu 1958 voru í gildi reglur um takmarkanir á togveiðiheimildum, sem lappað hafði verið upp á með minni háttar breytingum, unz lög voru sett 1973 um veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót i fiskveiðilandhelginni. Þau lög voru síðan leyst af hólmi með lögunum frá 1976, sem áður hafa verið rædd, en þau náðu til allra veiða. Á þessum árum voru sett mörg lög, sem varða fiskveiðar, þeirra á meðal lög um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem samþykkt voru í desember 1974. Með lögum þessum var lagt niður fiskmat ríkisins og Sildar- mat ríkisins og starfsemi þessara stofnana sameinuð í einni stofnun, Framleiðslueftirliti sjávarafurða. Var þetta gert til þess að nýta mætti betur bæði fjármuni og starfskrafta þessara stofnana. Jafnframt því sem deildum hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða var fjölgað og verkefni þess aukin, frá því sem var hjá Fiskmati ríkisins var með lögum þessum endurskoðað og breytt ýmsu í innra skipulagi og starfsemi þeirri sem Fiskmat ríkisins hafði á hendi. Þá voru samþykkt lög um sam- ræmda vinnslu sjávarafla og veið- ar, sem háðar eru sérstökum leyfum. Með lögum þessum er sjávar- útvegsráðuneytinu veitt heimild til þess að setja almennar og svæðisbunánar reglur í því skyni að samræma veiðiheimildir á rækju og skelfiski, þeirri vinnslu- getu, sem fyrir er í þessum greinum fiskiðnaðarins. Ennfremur þarf nú samkvæmt lögum þessum leyfi ráðuneytisins til þess að koma á fót rækju- og skelvinnslu eða auka afkastagetu þeirra, sem fyrir eru. Lög þessi gera ráðuneytinu kleyft að hafa virkari stjórn á sókn og veiðum á rækju og skelfisk, ennfremur getur ráðu- neytið forðað því, að aukin vinnslugeta í landi kalli á aukið hráefni og er það eðlilegt þar sem ráðuneytið ákveður í samráði við Hafrannsóknastofnunina afla- magn rækju og skelfisks, sem aka má á hverju svæði á hverjum tíma. Minna má á lög frá 1975, um breyting á lögum um Verðjöfnun- arsjóð fiskiðnaðarins, sem nú eru mjög til umræðu. Til þess að tryggja að eign sjóðsins í vörzlum Seðlabankans héldi verðgildi sínu var bankanum heimilað að lána bönkum og opinberum sjóðum fé með þeim kjörum að endur- greiðsla höfuðstóls og vaxta sé háð breytingum á gengi erlends gjald- eyris gagnvart íslenzkri krónu. Frá 1. janúar 1975 var ákveðið að ríkissjóður tæki að sér það sem á vantar að samanlagt verðmæti hreinnar gjaldeyriseignar Seðla- bankans og skuldabréfa hans með gengistryggingu nægi til þess að tryggja verðgildi innstæðu Verð- jöfnunarsjóðs hjá bankanum, en Seðlabankinn fram til þess tíma. Þá voru 1976 samþykkt lög um greiðslu vátryggingariðgjalda fiskiskipa. Eftir að tekjur Tryggingasjóðs fiskiskipa voru skertar um því sem næst helming með útflutn- ingsgjaldalögunum og ljóst var að útvegsmenn yrðu að greiða beint til tryggingafélaganna stærri hluta en áður af vátryggingarið- gjöldum fiskiskipa óskaði Lands- samband íslenzkra útvegsmanna eftir því að sett yrðu sérstök lög um fyrirkomulag á innheimtu iðgjalda af vátryggingum fiski- skipa með milligöngu viðskipta- banka. Um þetta fjalla ofangreind lög, en samkvæmt þeim er við- skiptabanka útgerðarmanns skylt að halda eftir fjárhæð sem nemi 5% af heildarsöluverðmæti afla sem landað er hérlendis en 4% af heildarsöluverðmæti afla sem landað er erlendis og skila and- virðinu inn á reikning L.Í.Ú. sem mánaðarlega skal gera skil við viðkomandi vátryggingarfélag. Þessi fjögur skiptust á um að svara i símann á fimmtudagskvöldið. Alls starfa átta laganemar við lögfræðiaðstoðina — þannig að tveir f jögurra manna hópar skiptast á og taka sina vikuna hver. Á myndinni eru f.v. Magnús Guðlaugsson, Magnús Gylfi borsteinsson, Guðrún H. Brynleifsdóttir og Guðný Höskuldsdóttir. Ljósm. Kristinn Ókeypis lögfræðiaðstoð Orators: „Fólk yfirleitt ánægt með þær úrlausnir sem við höfum veitt“ SVO SEM kunnugt er veita laga- nemar nú ókeypis lögfræðiaðstoð í síma 21325 milli kl. 19:30 og 22:00 hvert fimmtudagskvöld. Hefur lögfræðiaðstoðin aðstöðu í kjall- ara Lögbergs, húsi lagadeildar Háskóla íslands. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins komu við í Lögbergi síðastliðið fimmtudagskvöld og fylgdust með starfseminni á meðan á lögfræði- aðstoðinni stóð. Segja mátti að síminn væri rauðglóandi allan tímann, því aldrei varð lát á upphringingum. Fjórir laganemar skiptust á um að svara í símann en einnig var viðstaddur lögmaður sem hvert einstakt mál var lagt fyrir áður en ráðgjöf var veitt. Þetta var annað fimmtudags- kvöldið sem lögfræðiaðstoðin var starfrækt en á því fyrra voru tekin til afgreiðslu 19 mál og voru þau hin margvíslegustu, — þrjú um erfðarétt, tvö um samninga- og neytendarétt, tvö um almennan kröfurétt, eitt um vinnurétt, þrjú um fasteignagjöld og svo fimm um ýmis önnur efni. Lögfræðiaðstoð var veitt strax í 15 þessara mála en frestun fengin á fjögur. í þeim tilvikum voru öll málsatvik tekin niður og samið við úrlausnarbeið- anda um að haft yrði samband við hann síðar. Þessi mál voru svo könnuð nánar þegar tími gafst til og leitað nauðsynlegra upplýsinga áður en hringt var í viðkomandi. Afgreiðsla flestra málanna gekk hratt fyrir sig — tók að meðaltali tæplega tíu mínútur. Nokkur mál tóku þó nokkuð lengri tíma eða rúmlega tuttugu mínútur. Vilja lögfræðinemar koma þeirri áskor- un á framfæri til fólks sem hyggst leita til þeirra um aðstoð, að það undirbúi sig vel og hafi tilbúnar spurningar sem það vill fá svör við og öll nauðsynleg málsgögn við hendina áður en það hringir, því - segir Tómas Þor- valdsson, formaður undirbúningsnefnd- ar Orators um lögfræðiaðstoð það myndi flýta mjög fyrir af- greiðslu. Morgunblaðið ræddi við Tómas Þorvaldsson, formann undirbún- ingsnefndar Orators um lögfræði- aðstoð, og var hann fyrst spurður hver hefði verið aðdragandi þess að laganemar fóru af stað með ókeypis lögfræðiaðstoð. „Þetta hefur verið í undirbún- ingi hjá Orator, félagi lögfræði- nema, í tvö ár,“ sagði Tómas. „Við höfum m.a. aflað upplýsinga af svipaðri starfsemi á hinum Norð- urlöndunum og áður en við byrj- uðum höfðum við samráð við háskólayfirvöld hér, stjórn lög- mannafélagsins, dómsmálaráðu- neytið, réttarráðgjafa, Jussbuss í Noregi og Köbenhavns retshjælp. Okkur tókst svo að fá því fram- gengt að þessi starfsemi okkar var styrkt á fjárlögum 1981 og þar með var ekkert til fyrirstöðu að byrja á þessu.“ Teljið þig að mikil þörf sé á ókeypis lögfræðiaðstoð hérlend- is? „Sú reynsla sem fékkst af ókeypis réttarráðgjöf, sem þrír lögfræðingar voru með í tílrauna- skyni um fimm mánaða skeið árið 1979, þótti sýna að hér væri brýn þörf fyrir svona þjónustu. Laga- nemar í Osló og Kaupmannahöfn eru með svona lögfræðiaðstoð á sínum vegum og hefur það gefið góða raun. Það má segja að við höfum fengið hugmyndina þaðan. — Það fer ekki á milli mála að mörgum vantar ráðgjöf af þessu tagi hér, — reynsla okkar er að sjálfsögðu ekki mikil ennþá, en þessi tvö kvöld sem við höfum starfað hefur síminn ekki stoppað og áreiðanlega færri komist að en vildu. Fólk hefur yfirleitt verið mjög ánægt með þær úrlausnir sem það hefur fengið hjá okkur og þetta hefur allt gengið vel. Ég tel mjög heppilegt að laga- nemar annist þessa lögfræðiað- stoð. Þannig verður hún tiltölu- lega ódýr í rekstri og einnig veitir þetta okkur verulega reynslu í að finna lausnir lögfræðilegra vanda- mála — og mörgum okkar þykir ekki vanþörf á því eins og lög- fræðikennslu er hagað við Há- skóla íslands." Nú veitið þið ekki fyrirgreiðslu nema fóik gefi upp fullt nafn og heimilisfang — fælir þetta ekki frá? „Nei, fólk tekur því almennt mjög vel. Það er nausynlegt fyrir okkur að hafa þessar upplýsingar, t.d. ef sú lausn sem við höfum gefið veldur misskilningi. Þá get- um við flett upp viðkomandi máli og komið leiðréttingu á framfæri við aðstoðarbeiðanda. Þetta kem- ur líka útá eitt fyrir fólk — við sem að þessu störfum erum bundnir trúnaðarskyldu og þessar upplýsingar verða aldrei gefnar upp. Hvað um framhald þessarar starfsemi? „Það er allt undir því komið hvernig þetta gengur hjá okkur. Eins og málin standa höfum við fjárveitingu til maíloka og munum allavega starfa þangað til. Að þessu reynslutímabili loknu er ætlunin að taka saman þau mál og málaflokka sem komið hafa upp og á grundvelli þessara upplýsinga verður starfsemi skipulögð til frambúðar og sótt um áframhald- andi fjárveitingu", sagði Tómas að lokum. fráPEUGEOT Til viðbótar við Peugeot fólksbilana getum við nú boðið ótal afbrigði af þessum bilum. Latið okkur vita um þarfirnar og við útvegum bil við ykkar hæfi. Komid skodid leitid upplýsinga UMB00 A AKUREYRI HAFRAFELL HF. VÍKINGUR SF. VAGNHOFÐA 85 2-11 FURUVOLLUM 11 2T6-70

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.