Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 28

Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 LIVERPOOL ok Manchester Utd., tvö af frægustu og sterkustu liðum 1. deildarinnar i ensku knattspyrnunni, féllu út úr bikarkeppninni, er fjórða umferðin fór fram á laugardaginn. Liverpool sótti nágrannaliðið Everton heim og mátti þola tap. Manchester Utd. beið ósijcur sinn gegn Nottingham Forest, þannig að risar féllu fyrir risum. Annars var slatti af merkilegum úrslitum og þá ekki síst jafntefli Barnsley og utandeildarliðsins Enfield. sem vann stórsigur gegn Port Vale i siðustu umferð. Peter Burton. barnaskólakennari, skoraði jöfnunarmark Enfield gegn Barnsley aðeins 2 minútum fyrir leikslok. Áður hafði Trevor Aylott skorað fyrir Barnsely. Enfield verður vafalaust erfitt viðureignar á heimavelli sínum. En úrslit leikja í 4. umferðinni urðu sem hér segir: Barnsley — Enfield 1—1 Carlisle — Bristol City 1—1 Coventry — Birmingham 3—2 Everton — Liverpool 2—1 Fulham — Charlton 1—2 Leicester — Exeter 1—1 Manch. City — Norwich 6—0 Middlesbrough — WBA 1—0 Newcastle — Luton’ 2—1 Nott. Forest — Manch.Utd. 1—0 Notts County — Peterbr. 0—1 Shrewsbury — Ipswich 0—0 Southampt. — Bristol Rov. 3—1 Tottenham — Hull 2—0 Watford — Wolves 1—1 Wrexham — Wimbledon 2—1 Skellur hjá Liverpool Everton var mun sterkari aðil- inn lengst af gegn Liverpool og liðið náði forystunni á 17. mín- útu leiksins. Peter Eastoe spyrnti knettinum þá að mark- inu úr góðu færi, Phil Neal rak tána fyrir á marklínunni, en knötturinn þaut þaðan af Avi Cohen og í markið. Everton sótti áfram af kappi og Imre Varadi bætti öðru marki við á 60. mínútu, eftir að Eamon O’Keafe hafði leikið vörn Liverpool grátt. Þegar staðan var orðin 2—0, fór að færast dálítið líf í lið Liver- pool og þegar 14 mínútur voru til leiksloka skoraði Jimmy Case með góðu skoti frá markteigs- horninu. Case kom inná sem varamaður fyrir Ken Dalglish, sem meiddist rétt einu sinni. Síðasta stundarfjórðunginn sótti Liverpool síðan af gríðarlegu afli, en allt kom fyrir ekki og það var Everton sem var nær því að skora þrátt fyrir allt, Imre Varadi komst einn í gegn um vörn Liverpool, lék á Ray Clem- ence, en brenndi síðan af ... Og United lá einnig Manchester Utd. náði sér eng- an veginn á strik í fyrri hálf- leiknum gegn Forest, sem Iék þá mjög vel. Voru leikmenn United heppnir að sleppa með aðeins eins marks mun í fyrri hálfleik, 3—0 hefði gefið réttari mynd af gangi leiksins þá. Það var Trevor Francis sem skoraði það sem reyndist vera sigurmarkið á 21. mínútu. En í síðari hálfleik snerist dæmið algerlega við, United sótti þá látlaust og vörn Forest var oft grátt leikin. En Peter Shilton sýndi þá hvers hann er megnugur og hélt hreinu. Risaslagur í nokkrum öðrum tilvikum áttust 1. deildar liðin við inn- byrðis. Coventry sló Birming- ham úr keppninni með mjög vafasamri vítaspyrnu. Dómar- inn taldi að Colin Todd hefði fellt Steve Hunt og dæmdi víti sem Gerry Daly skoraði úr. Þetta var annars hörkuleikur, Coventry komst í 2—0 með mörkum Gerry Daly og Andy Blair, en Birmingham tókst að jafna með mörkum Frank Wort- hington og Alan Ainscow. Margir töldu WBA sigur- stranglegt iið i keppninni að þessu sinni, en liðið lék illa gegn Middlesbrough, sem hefði hæg- lega getað unnið enn stærri sigur. Bakvörðurinn Ian Bailey skoraði sigurmark Boro í fyrri háifleik. Manchester City rótburstaði Morwich. Phil Boyer varð að hverfa meiddur af leikvelli snemma leiks. Dave Bennett tók stöðu hans og fór mörkunum þá fljótlega að rigna niður. Kevjn heldur en tölurnar gefa til kynna. Steve Fox og Dixie McNeil skoruðu mörk Wrexham, en Mike Denny minnkaði mun- inn fyrir Wimbledon. Úlfarnir sluppu vel í Watford. Gerry Armstrong náði foryst- unni fyrir Watford í fyrri hálf- leik og heimaliðið sóaði síðan nokkrum mjög góðum tækifær- um áður en Úlfarnir náðu sér betur á strik. John Richards jafnaði síðan metin. Ray Clarke og Mick Martin skoruðu sigurmörk Newcastle gegn Luton og Dave Shaw og Derek Hales skoruðu mörk Charlton gegn Fulham, sem svaraði með marki Gordon Dav- ies. Loks má geta þess að, Kevin Mabbutt náði forystunhi fyrir Bristol City gegn Carlisle, en Brian Coady jafnaði metin. Hefðu leikmenn Carlisle nýtt færi sín, hefði liðið sigrað örugg- lega. 2 deild Tveir leikir fóru einnig fram í 2. deildinni. Bolton sigraði Derby 3—1 á heimavélli sínum og skoraði Alan gamli Gowling tívegis. Þá mættust Cambridge og Sheffield Wednesday á heimavelli Cambridge. Shef- field-liðið sigraði 2—0 og voru það óvænt úrslit, þar sem Wednesday hefur tapað nær öllum útileikjum sínum í vetur. • Steve Archibald skoraði 20. mark sttt gegn Hull City. Pólverjar sigruðu Japani í vin- áttulandsleik i knattspyrnu sem fram fór í Tokyo, höfuð- borg Japana, um helgina. Ann- ar Ieikur fer fram í Tokushima seint i kvöld. Lokatölur leiksins á sunnudaginn urðu 2—0 Pól- verjum i vil og voru bæði mörkin skoruð i fyrri hálfleik. Reeves (19.) og Gerry Gow (25.) skoruðu fyrir Manchester-liðið í fyrri hálfleik, en Dave Bennett, Steve McKenzie, Paul Power og Bobby McDonald bættu mörkum við í síðari hálfleik. Ipswich og Leicester heppin Ipswich átti undir högg að sækja gegn 2. deildar liðinu Shrewsbury. Paul Cooper í marki Ipswich varð nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum og markvarsla hans hélt Ipswich á floti framan af. Undir lokin náði Ipswich sér betur á strik og markvörður Shrewsbury varð tvívegis undir lokin að verja snilldarlega frá Paul Mar- iner og John Wark. Leicester fékk 3. deildar liðið Exeter í heimsókn og þrátt fyrir að Henderson næði forystunni fyrir Leicester snemma í leikn- um, gekk ekkert upp hjá liðinu. Lið Exeter færðist smám saman í aukana og jafnaði verðskuldað um miðjan hálfleik með marki David Pullar. Víðar Einhver merkilegustu úrslit dagsins voru í leik Notts County og Peterbrough, þar sem fjórðu deildar liðið sló út eitt af efstu liðum 2. deildar. Robbie Cooke skoraði sigurmark Peterbrough í síðari hálfleik. Southampton átti í töluverðu basli með Bristol Rovers og það þurfti sjálfsmark Don Gillies til þess að brjóta ísinn í fyrri hálfleik. I síðari hálfleik náði lið Southampton sér betur á strik og þeir Steve Williams og Steve Moran bættu mörkum við áður en Geraint Williams tókst að minnka muninn fyrir Rovers með góðu marki. Tottenham lék hörmulega gegn botnliði 3. deildar, Hull City. Það var ekki fyrr en á 85. mínútu, að liðið skorað fyrra mark sitt, Garry Brooke, en hann hafði komið inn á sem varamaður fyrir Osvaldo Ardi- les, sem var lélegur í leiknum. Brooke braut sem sagt ísinn og strax á eftir bætti Steve Archi- bald öðru marki við, 20. marki sínu á þessu keppnistímabili. Bikarliðið gamalfræga, Wrexham, skaust örugglega í 5. umferðina, en 2—1 sigur liðsins gegn Wimbledon var öruggari • Leikmenn Ipswich voru oft heppnir gegn Shrewsbury. 6000 áhorfendur horfðu á við- ureign þessa og strax á níundu mínútu riðaði japanska liðið til falls. Buda Kozimierze skoraði menn liðsins bókstaflega óðu dauðafærum það sem eftir va fyrri hálfleiks. Þeir bættu þ aðeins einu marki við, Nowicl Jaroslaw skoraði á 29. mínútu. iiiwiura Liverpool og Manchester Utd ambi wmm'm mmmm |A=|. - Enfield litla lifir enn Glll nU ur I6IK - heppnin meö Ipswich Pólverjar tóku Japani í kennslu : rniíin) hi >?'iii;íh r/ 1 li; ;ií i ^ > í 1; 4 i . i i »• i jijú vhh .m . *» itov niu » j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.