Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 30

Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 30 ---i--------- Landsvirkjun: Raforkuskömmtunin orðin 36% af aflþörf Járnblendifélagið hættir starfrækslu bræðsluofnsins LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að auka skommtun raforku úr orkuöflunarkerfi sínu um 40 meKawött og mun skerðinn þessi koma til framkvæmda á næstu döKum. Kemur skömmtun þessi niður á ÍSAL og Járnblendifélaií inu. 17 MW hjá ísal og 23 MW hjá Járnblendifélaginu. Hefur verið samið um það við Járn- hlendifélagið. með fyrirvara um staðfestingu stjórnar þess. að lokað verði fyrir rekstur þess ofns. sem þar er enn í notkun. en með því cr forðað, að þessi nýja Ólafsvik: Sjö hrepps- nefndarmenn í stað fimm r Ólafsvik. 27. janúar. Á FUNDI hreppsnefndar ólafsvíkurhrepps hinn 22. janúar var samþykkt tillaga frá meirihlutanum um. að við næstu kosningar verði kosnir sjö menn í hreppsnefnd í stað fimm. Fyrir tveimur árum bar fulltrúi D-listans upp sams konar tillögu, en þá hlaut hún ekki afgreiðslu. Ennfremur var á síðasta fundi samþykkt tillaga frá meirihluta hrepps- nefndar um að gerð verði könnun á því hvort hagkvæm- ara sé fyrir Ólsara, að sækja um bæjarréttindi fyrir Ólafs- vík. Getur því svo farið, að ekki líði á löngu, þar til almenn atkvæðagreiðsla fari hér fram um þetta mál. — Ilelgi skerðing leiði til beinnar skömmtunar rafmagns til al- menningsveitna eða kalli á aukna orkuframleiðslu i olíu- kyntum stöðvum. Alls nemur skerðing þessi nú um 36,2% þeirrar forgangsorku af aflþörf þessa árstima eða 122,5 MW. í frétt frá Landsvirkjun segir m.a. svo um orsakir þessarar skömmtunar: „Því miður hafa aðstæður breyst enn til hins verra í þessu efni, þar sem veðráttan hefur, eins og kunnugt er, verið mjög óhagstæð undanfarnar vik- ur, og hefur ísmyndun í Þjórsá á köflum verið meiri en dæmi eru til og ísskolunarþörfin aukist eftir því. Hefur þannig þurft að ganga á miðlunarforðann í Þórisvatni meira en góðu hófu gegnir og langt umfram það, sem gert var ráð fyrir og er vatnsborð Þóris- vatns nú í um 565 m.y.s., sem er um 3,4 m lægra en á sama tíma í fyrra." Halldór Jónatansson aðstoðar- framkvæmdastjóri Landsvirkjun- ar tjáði Mbl., að það væri algjör- „VITASKULD er það rétt hjá Benedikt. að Alþýðuhandalaginu hafi verið afhent óeðlilega mikil völd miðað við fylgi þess og stærð og vitaskuld er þörf á langtum betri og sterkari rikisstjórn en lega háð veðurfari hve lengi skömmtun þessi yrði að standa, en búast mætti við nokkrum vikum eða mánuðum. Ákvörðun þessi væri fyrst og fremst tekin í öryggisskyni, þar sem vatnsforð- inn í miðlunarlóninu væri lægri en nokkru sinni fyrr og langt að bíða vors og öruggs bata í vatnsrennsli. í fyrrasumar hefði með ýmsum framkvæmdum verið reynt að auka vatnsrennsli í Þórisvatn og yrði athugað nú hvort hægt væri að auka það enn frekar næsta sumar. Ragnar Halldórsson forstjóri ÍSAL sagði í samtali við Mbl., að af 320 kerjum myndi 140 verða lokað þegar skömmtunin væri að fullu komin til framkvæmda á næstu dögum. Er þar um að ræða um 40% samdrátt á framleiðslu- getu Álversins, en ekki kvað Ragnar ljóst hvort uppsagnir væru framundan. Uppsagnar- frestur væri það langur að e.t.v. yrði komið að því að undirbúa gangsetningu að nýju þegar upp- sagnir kæmu til framkvæmda. þeirri, sem nú situr. Og ég er sannfærður um að slika ríkis- stjórn er hægt að mynda,“ sagði Kjartan Jóhannsson, formaður Al- þýðuflokksins. er Mbl. spurði hann álits á hugmyndum Bene- dikts Gröndal um myndun nýrrar rikisstjórnar án þáttöku Alþýðu- bandalagsins. Morgunblaðið spurði Kjartan, hvort hann teldi stjórnarmyndun framkvæmanlega án undangeng- inna kosninga. „Það er ennþá hægt að mynda nýja ríkisstjórn án kosn- inga,“ svaraði hann. Þá spurði Mbl., hvort hann og/eða aðrir stjórn- málamenn hefðu reifað slíkar hug- myndir sín í milli. „Það er nú tæplega hægt að segja það,“ svaraði Kjartan.'„Auðvitað ber ýmislegt á góma í spjalli manna annað veifið, en ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt milli flokkanna eða talsmanna þeirra.“ Mbl. spurði þá Kjartan, hvort Alþýðuflokkurinn ætlaði að beita sér fyrir „viðræðum milli flokkanna eða talsmanna þeirra". „Ætli það sé nú ekki rétt, að sjá fyrst viðbrögðin við þessum hugmyndum á þessum punkti. Þetta er ágætt til umhugs- unar,“ svaraði Kjartan. Skáldkonur lesa úr verkum sínum í Breið- holtsskóla KVENFÉLAG Breiðholts verður með bókmenntakynningu i Breið- holtsskóla i kvöid klukkan 20.30. Þar munu skáldkonurnar Ás- laug Ragnars og Líney Jóhannes- dóttir koma og lesa úr verkum sinum. Þá verður lesið úr verkum Fríðu Sigurðardóttur. Þetta er fjórða árið, sem Kven- félag Breiðholts efnir til bók- menntakynningar á verkum skáldkvenna. Hyggst aka hring- veginn af turábak Hallgrlmur Marinósson hyggst aka hringveginn afturábak I vor og til að þurfa ekki að horfa stoðugt um Oxl er ráðgert að koma fyrir mörgum og góðum speglum, sem nota á I ferðina. MAÐUR nokkur i Reykjavík hyggst næsta vor aka hringveg- inn, sem i sjálfu sér er ekki i frásögur færandi, nema vegna þess, að hann ætlar að aka afturábak. Hallgrímur Marin- ósson heitir maðurinn, en með þessu uppátæki er m.a. stefnt að þvi að komast i heimsmeta- bók Guinness. Timaritið Sam- úei tekur einnig þátt i leiknum. í frétt í síðasta tölublaði Samúels segir frá þessari fyrir- ætlan Hallgríms, en ráðgert er að ferðin hefjist um miðjan maí og taki viku til tiu daga. Ekki er ákveðið hvaða tegund af bíl verður notuð, en stuttir bílar með stórri afturrúðu eru taldir henta bezt. Bílinn þarf að útbúa með framljósum að aftan og eins þarf að koma fyrir góðum spegl- um, því hætt er við að ökumaður þreytist fljótt á að horfa um öxl og fái jafnvel hálsríg eftir akst- ur með þessum hætti. Þá segir í Samúel að vitað sé um tvo menn sem óku með þessum hætti um Bandaríkin. Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokks: Ennþá er hægt að mynda stjórn án kosninga Sauðárkrókur: Eyþór Stefánsson tónskáld og heið- ursborgari 80 ára Sauðárkróki, 26. janúar 1981. EYÞÓR Stefánsson. tónskáld og heiðursborgari Sauðár- króks, átti 80 ára afmæli sl. föstudag, 23. janúar. Af því tilefni var efnt til kvöldvöku i Safnahúsi Skagfirðinga við Faxatorg. Að henni stóðu nokk- ur félagasamtök í bænum, sem Eyþór hefur lagt lið á langri ævi, svo og bæjarstjórn Sauð- árkróks. Páll Ragnarsson, formaður Umf. Tindastóls, setti samkom- una með stuttu ávarpi, en Mar- teinn Friðriksson formaður Tónlistarfélagsins, stjórnaði henni. Aðalræðu kvöldsins hélt Þorbjörn Árnason, forseti bæj- arstjórnar, sem flutti Eyþóri og konu hans Sigríði Stefánsdóttur, árnaðaróskir og þakkir bæjar- búa fyrir áratuga störf að menn- ingarmálum, og færði þeim að gjöf málverk eftir Elías B. Hall- dórsson. Kirkjukór Sauðárkróks söng undir stjórn Jóns Björnssonar tónskálds, undirleikari var Eva Snæbjarnardóttir. Nemendur úr Tónlistarskólanum komu fram og félagar úr Leikfélagi Sauð- árkróks lásu upp. Friðbjörn G. Jónsson, söngvari, söng lög eftir Eyþór við undirleik Jónasar Ingimundarsonar, sem einnig lék einleik á píanó. Afmælis- kveðju í bundnu máli flutti Hólmfríður Jónasdóttir skáld- kona og einnig var flutt kveðja frá sóknarprestinum séra Hjálmari Jónssyni. I hléi þágu samkomugestir veitingar í boði bæjarstjórnar. Að lokum talaði Eyþór og þakk- aði heiður, góðar gjafir og mikla vinsemd í garð þeirra hjóna. Fyrr um daginn heimsótti Lúðrasveit Tónlistarskólans Ey- þór og spilaði nokkur lög fyrir utan heimili hans undir stjórn Lárusar Sighvatssonar, tónlist- arkennara. Kári Lúðrasveit Tónlistarskólans lék nokkur lög fyrir utan heimili Eyþórs, sem hér sést þakka einum hljóðfæraieikaranum. Frá samkomunni i Safnahúsi Skagtiröinga. ttyþór Stefánsson og frú Sigriður fyrir miðju. Við hlið þeirra stendur Þorbjörn Árnason forseti bejarstjórnar Sauðárkróks. i mS Safnahúsið var þéttsetið. Hér má sjá hluta samkomugesta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.