Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 48
Síminn á afgreióslunni er
83033
2H«r0unbI«t>ib
^Síminn á afgreiöslunni er
83033
JM*r0unbIabib
ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981
Fokker hlekkt-
ist á í Líbýu
ANNARRI Fokker fluKvél Flui?-
leiða sem verið hefur i farþena-
ÍIukí í Líbíu hlekktist á i lendinKU
fyrir nokkrum dðKum er nefhjól
véiarinnar bilaði ok er vélin ófluK-
fær til farþeKaflugs ennþá að sógn
Björns Theodórssonar fram-
kvæmdastjóra markaðsdeildar
FluKleiða. fslenskir fluKvirkjar
eru nú á leiðinni til I.ibíu með
varahluti til þess að Kera við
bilunina ok gan^a úr skuKKa um
hvað hefur hilað. Vélin var full af
farþeKum, en enKÍn slys urðu á
mönnum.
Erfitt hefur verið að fá nákvæm-
ar freKnir af því hvað bilaði, en þó
reyndist unnt að ferja vélina flug-
leiðis án farþega á annan flugvöll.
Islenskur flugstjóri var með vélina,
en erlendur aðstoðarflugmaður.
Reiknað er með að vélin komist í
gagnið á næstu dögum, en það
kemur ekki í Ijós fyrr en íslensku
flugvirkjarnir hafa skoðað vélina
nánar.
Þorskveiðar loðnuskipa:
Lögðu sameig-
inlegar tillögur
fyrir ráðherra
LANDSSAMBAND islcnzkra útvegsmanna, Sjómannasamband fslands
og Farmanna- ok fiskimannasamband íslands logðu i gær fyrir Steingrim
Hermannsson. sjávarútvegsráðherra, sameiginlegar tillogur um fram-
kvæmd þorskveiða loðnuveiðiskipa, sem verið hefur til umfjöllunar að
undanförnu. Ráðherra kvaðst ekki geta tekið ákvörðun i málinu, fyrr en
það hefði verið lagt fyrir sjávarútvegsnefndir Alþingis. Morgunblaðinu
tókst ekki í gær að ná tali af ráðherra, en hann mun vera á förum til
útlanda.
Tillögur hagsmunaaðilanna
þriggja voru þess eðlis, að þeir
samþykkja þann 30 þúsund smálesta
kvóta, sem ráðherrann hafði lagt til,
en þar er heildaraflinn, sem heimilt
er að veiða af þorski hækkaður um
20 þúsund lestir í 420 þúsund. Hvor
sínar 5 þúsund lestirnar eru svo
teknar af togurum og bátum. Sam-
kvæmt sameiginlegu tillögunum
skiptast þessar 30 þúsund lestir á
þessu ári milli þeirra, sem fara á net
og þeirra, sem fara á troll í hlutfalli
við það, hve margir fara í hvorn
flokk. Þannig verða þetta tveir
aðgreindir kvótar, sem menn hafa
heimild til að fiska úr svo lengi sem
kvótinn endist. Menn verða þó að.
hlýta þeim veiðitakmörkunum, sem
almennt eru settar, netabátarnir
hlýti sömu reglum og aðrir netabát-
ar og sama er að segja um þá, er fara
á troll, þeir verða að hlýta skrap-
dagakerfi togaranna.
Með þessum reglum er sameigin-
legur kvóti, en ráðherrann hafði gert
að tillögu sinni, að 600 lesta kvóti
yrði á hvert skip. Þessu hafa hags-
munaaðilarnir hafnað, þar sem þeir
vilja láta aflaklærnar njóta sín. Þá
er einnig í tillögunum ákvæði um
það, að þeir bátar, sem ekki fari til
þorskveiða fái að veiða viðbótar-
magn af loðnu, ef um það verði að
ræða.
Viðræður í Luxemborg um flugið:
Kannaðir möguleikar
á víðtækara samstarfi
VIÐRÆÐUR forráðamanna í
flugmálum íslands og Luxem-
borgar hittast i Luxemborg nk.
miðvikudag til viðræðna i fram-
haldi af viðra-ðum samgönguráð-
herra landanna um samgöngu-
mál. Fundinn i Luxemhurg sitja
Sigurður llelgason, forstjóri
Flugleiða. Agnar Koefoed-IIan-
scn, flugmálastjóri ok Örn O.
Johnson, stjórnarformaður
Flugleiða, en af hálfu Luxem-
borgarmanna stija fundinn Rog-
er Sietzen. forstjóri Luxair ok
stjórnarformaður Cargolux, auk
ráðuneytismanna og talsmanna
flugfélaKa i I.uxemborg.
Agnar Koefoed-Hansen, flug-
málastjóri, sagði í samtali við
Mbl. í gær, að þessar viðræður
væru til þess að kanna möguleika
á því að framkvæma hugmyndir
samgönguráðherra landanna skref
fyrir skref í þeirri stefnu sem þeir
hafa mótað og byggist á hugmynd-
um um víðtækari samvinnu um
flugrekstur á Atlantshafsleiðinni.
Svipað veður áfram
VEÐUR verður væntanlega mjög
svipað í dag eins og það var i
Kærdag að sögn Trausta Jónssonar,
veðurfræðings, þ.e. tiltölulega hlýtt
i lofti og rigning viða, eða a.m.k.
rigningargusur.
Kuldaskil ganga siðan væntanlega
yfir landið í kvöld eða nótt og gæti
hitastig þá farið niður undir núll-
gráðurnar.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar, að flestir aðalvegir á
landinu væru þokkalega færir, en
mikil hálka væri víðast hvar. Til-
tölulega lítið var farið að bera á
vatnsskemmdum á vegum í gær, en
ef sama tíðarfar verður eitthvað
áfram má búast við skemmdum.
Fréttir bárust þó af snjóflóðum í
Hvalfirði og á Bíldudal í gærkvöldi.
Á Bildudal rann snjóflóðið á raf-
magnsspennistöð og eyðilagði einn
spenni. Varð því að skammta raf-
magn.
Sjötíu og fimm ára afmælis verkalýðsfélagsins Dagsbrúnar er minnst um þessar mundir, og hafa mcðal
annars verið haldnar hátiðasamkomur i þvi tilefni. — En hvað segja verkamenn á þessum tímamótum, þeir
sem vinna við uppskipun og önnur störf, jafnt á stórafmælum sem aðra daga? Sjá blaðsiður 16 til 17 i
Morgunblaðinu i dag. I.jósm.: Emilía Björg Björnsdóttir.
Enn frekarí rafmagnsskömmtun Landsvirkjunar:
Járnblendifélagið hætt-
ir starfrækslu um sinn
*
Um 40% samdráttur á framleiðslugetu ISAL
„VIÐ gerðum þetta samkomu-
lag við Landsvirkjun um lok-
un þess ofns sem er i gangi,
með fyrirvara um samþykki
stjórnar fyrirtækisins, enda
teljum við, að rekstur verk-
smiðjunnar komi eigi laklegar
út þótt starfrækslu oínsins
verði hætt um stundarsakir,“
sagði Jón Sigurðsson, forstjóri
íslenzka járnblendifélagsins.
en Landsvirkjun hefur ákveðið
að auka skömmtun raforku úr
orkuöflunarkerfi sinu um 40
megawött. Raforka Járn-
blendifélagsins verður skert
um 17 Mw, en raforka til ísal
um 23 Mw.
„Allt er þetta byggt á því, að
markaðurinn hefur verið lélegur
að undanförnu, og áhættan á
sölutapi því minni en ella. Þau
teikn sem verið hafa á lofti benda
ekki til þess, að auka megi fram-
leiðslumagnið á næstunni, en
hinsvegar er hugsanlegt að verðið
hækki eitthvað á komandi mánuð-
um,“ sagði Jón Sigurðsson.
Ragnar Halldórsson, forstjóri
ísal, sagði í samtali við Mbl., að
þegar skömmtunin væri að fullu
komin á, myndu aðeins verða
starfrækt 180 ker af 320 og væri
þar um að ræða um 40% samdrátt
á framleiðslugetu fyrirtækisins.
Sjá nánar bls. 30.
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra:
Verð á norskri olíu
undir BNOC-verðinu
„ÞAÐ KOM fram í samtali mínu
við Arvid Johnson, framkvæmda-
stjóra Statoil, að Norðmenn eru
reiðubúnir til að taka upp viðræð-
ur við okkur um oliuviðskipti og
að þeir telja æskilegt að fá okkar
óskir og viðhorf fram sem fyrst,“
sagði Hjörleifur Guttormsson, iðn-
aðarráðherra, er Mbl. ræddi við
hann i Kær um opinbera heimsókn
hans til Noregs 20.—24. janúar sl.
Hjörleifur saKði það hafa komið
fram, að verð á norskri hráolíu
væri nú um 40 dollarar tonnið, sem
þýddi tæplega 290 dollara á Kasol-
iutonnið, en það vcrð væri eitthvað
yfir núverandi skráninKarverði á
Rotterdammarkaðnum, en undir
BNOC-verði, sem Hjörleifur sagði
vera um 320 dollara Kasoliutonnið.
Hjörleifur sagði Norðmenn vilja
fá fram vilja Islendinga sem fyrst,
þar sem löng biðröð viðskiptavina
væri við dyr þeirra, en þeir hefðu þá
meginstefnu að vilja láta grann-
þjóðir njóta norskrar olíu umfram
aðra og til dæmis hæfust viðræður
við Dani í næsta mánuði.
„Persónulega tel ég, að við eigum
að taka upp olíuviðskipti við Norð-
menn og þá fyrst og fremst með
örugg og tiltölulega hagkvæm lang-
tímaviðskipti í huga,“ sagði Hjör-
leifur. „Það mál er á sviði viðskipta-
ráðuneytisins svo ég geri ekki
annað en að koma þessu tilboði
Norðmanna á framfæri í ríkis-
stjórninni." Hjörleifur sagði það
hafa komið fram í samtölum sínum
við Norðmenn, að þeir reiknuðu
fyrst og fremst með því að selja
létta olíu; gasolíu og bensín, en ekki
svartolíu og hefðu þeir sagt, að við
þyrftum að gæta þess að halda
okkar hagstæðu svartolíuviðskipt-
um við Sovétmenn.