Morgunblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 2 1
1> betta var eins og að leika á heimavelli sogðu leikmenn Víkings eftir leikinn gegn Lugi. Mikill fjöldi
slendinga fylgdist með leiknum ytra. Á myndinni má sjá hvar hart er barist og hversu full höliin var.
Sjá bls. 24-25.
Frétt Vísis uppspuni:
„Gef ekki kost á mér
— segir Árni Indriðason
át
16 ára piltur
með 12 rétta
Ungur Seltirningur
fékk 69.400.-
fyrir 12 rétta
í 21. leikviku getrauna kom
fram einn seðill með 12 réttum
leikjum og var vinningurinn
fyrir hann kr. 69.415.- Eigand-
inn er 16 ára gamall piltur af
Seltjarnarnesi. Alls reyndust 9
raðir með 11 rétta og vinnings-
hlutinn fyrir hverja kr. 3.305,-
Guðjón
ÍKA
BAKVÖRÐURINN sterki, Guð-
jón Guðjónsson, er lék með
knattspyrnuliði ÍBK siðastliðið
sumar. leikur næsta sumar með
KA á Akureyri. Guðjón mun
flytjast til Akureyrar með fjöl-
skyldu sina norður og hefur
fengið atvinnu þar. Verður liði
KA mikill styrkur að fá Guðjón
i sinar raðir.
- þr
20 leik-
menn valdir
í VIKUNNI verða leiknir þrir
landsleikir gegn Frökkum i
handknattleik. Hilmar Björns-
son hefur valið 20 manna hóp
til landsleikjanna. Er það sami
hópur og lék gegn V-Þjóðverj-
um auk kjarna Vikingsliðsins
að Árna Indriðasyni undan-
skildum sem ekki gaf kost á sér.
- þr.
Feyenoord
er úrleik
Bikarkeppnin var á dagskrá i
Hollandi um helgina og litu
nokkur óvænt úrslit dagsins
Ijós. Til dæmis sló 2. deildar
liðið Haarlem Feyenoord úr
keppninni, þrátt fyrir að leikið
væri á heimavelli Feyenoord.
Eftir venjulegan leiktima var
staðan 3—3 og ekkert var
skorað i framlengingunni.
Haarlem bar loks sigur úr
býtum, er vitaspyrnukeppni fór
fram. Úrslit leikja urðu annars
sem hér segir:
Willem 2 — FC Utrecht 2—1
Wageningen — Pec Zwolle fr.
PSV Eindhoven — Roda JC 4—0
GAE Dev. — Maastricht 3—1
Groningen — VVV Venlo 3—2
Feyenoord — Haarlem 3—3
Ajax — Tvente 5—1
AZ 67 Alkm.— Vlaadringen 5—2
Þess má geta, að hinn 17 ára
gamli Willem Kieft skoraði
þrennu fyrir Ajax, en danski
landsliðsmaðurinn Frank Arne-
sen tvívegis. Annar Norður-
landabúi, Hallvar Thoresen,
skoraði eina mark Tvente.
ergler vann sína fyrstu heims-
bikarkeppni, er hann sigraði i
bruni í Wengen -í Sviss um
helgina. Aðstæður allar voru
góðar að þessu sinni og Buergl-
er náði timanum 2:27,91. Peter
Múller, landi Buerglers og efsti
maðurinn i stigakeppninni. féli
illa á hrautinni og verður frá
keppni i nokkrar vikur. Múller
„MÉR ER gjörsamlega óskilj-
anlegt hvernig blaðamaður Vís-
is hefur komist að þeirri niður-
stöðu, að ég hafi gefið kost á
mér i islenzka landsliðið," sagði
Árni Indriðason, leikmaður
Southampton og Everton, tvö
þeirra liða sem flestir tippa á
að sigri í FA-bikarkeppninni að
þessu sinni. drógust saman er
dregið var til fimmtu umferðar
keppninnar i gærdag. Everton
þarf að sækja Southampton
heim og verður leikurinn ör-
ugglega ekki auðveldari heldur
en sigurleikur liðsins á heima-
velli gegn Liverpool. Dráttur-
inn fór annars á þennan veg:
Peterbrough — Manch. City
Tottenham — Coventry
Watford/Wolves — Wrexham
Nott. For. — Carlisle/Bristol C.
Shrewsbury/Ipsw. — Charlton
Southampton — Everton
Middlesbr. — Barnsley/Enfield
Newcastle — Leicester/Exeter
Ipswich og Nottingham Forest
eru einnig meðal þeirra sigur-
stranglegustu og svo fremi sem
var þarna mjög óheppinn, því
millitimi hans var lang bestur.
Austurríkismaðurinn Harti
Weireither tryggði sér annað
sætið á 2:28,27 og Steve Pod-
borski frá Kanada, varð þriðji á
2:28,46. Podborski átti í miklum
erfiðleikum á miðri brautinni,
missti næstum jafnvægið, en
rétti úr kútnum og nældi þrátt
fyrir allt í þriðja sætið.
Víkings og fyrrum fyrirliði
islenzka landsliðsins í spjalli
við Mbl., en i Vísi i gær var
fullyrt, að Árni hafi gefið kost á
sér i landsliðið i handknattleik.
„Ég hef sagt Hilmari Björns-
Ipswich slær Shrewsbury út,
ættu bæði að komast í 6. umferð.
Sama má segja um Middles-
brough, en tvísýnari er viðureign
syni landsliðsþjálfara, að ég sé
ekki tilbúinn í slaginn í Frakk-
landi, ég hef ekki gefið kost á
mér í íslenzka landsliðið," sagði
Arni ennfremur.
Tottenham og Coventry. Þá má
segja, að hvorki Wolves eða
Manchester City séu örugg í
næstu umferð.
Lokeren í stuöi
Lokeren, lið Arnórs Guð-
johnsens. var i miklum ham
um helgina, en liðið gerði
sér lítið íyrir og skoraði tiu
sinnum hjá Berchem og sigr-
aði 10—1. óvenjulegar tölur
það. Standard vann góðan
sigur. 2—1, gegn Water-
schei á útivelli og héldu
„íslensku" liðin því sætum
sinum. Lokeren fjórða sæt-
inu og Standard þriðja sæt-
inu. Hagur Ánderlecht
vænkaðist mjög, liðið vann
leik sinn um helgina. 2—0
gegn Gent, en Beveren,
heísti keppinauturinn, tap-
aði illa á útivelli gegn FC
Brugge. Leikur sá endaði
3—0 fyrir Brugge.
Staðan er nú sú, að And-
erlecht hefur 32 stig að 19
leikjum loknum. em Beveren
hefur 28 stig. Þá kemur
Standard með 27 stig og
síðan Lokeren með 23 stig.
Snilldartaktar
hjá Stenmark
Ingemar Stenmark vann
giæsilegan sigur í stórsvigi
heimsbikarkeppninnar sem
fram fór í Adelboden í Sviss
um helgina. Stcnmark sýndi
ailar sinar bestu hliðar og
fékk iang besta tímann i
báðum ferðunum, samtals
2:45,00, á sama tima og þeir
Christian Orlianski frá
Austurriki og Boris Strel
frá Júgóslaviu voru jafnir i
öðru sæti með samtals
2:46,70 minútur.
McKinney
vann aftur
BANDARÍSKA stúlkan
Tamara McKinney sigraði í
stórsvigi heimsbikarkeppn-
innar i Les Gets i Frakk-
landi um helgina. annar
sigur hennar i röð. Sigur
Tamöru var gulltryggður er
helsti keppinauturinn, Irene
Epple. flaug á höfuðið i
siðari ferðinni, eftir að hafa
náð næstum jafn góðum
tima og McKinney i fyrri
ferðinni. Samanlagður timi
Tamöru McKinney var
2K)5,96 mínútur.
Þýska stúlkan Krista
Kinshofer krækti í annað
sætið i Les Getz. tími hennar
var samtals 2:07,65. Ilanni
Wenzel frá Lichtenstein
varð þriðja á 2:08,03 minút-
um.
Enn tapar
Þór Ak
GRINDAVÍK sigraði Þór
frá Akureyri með 71 stigi
gegn 69 um hclgina í 1.
deiíd. Leikur liðanna fór
fram á Akureyri. Staðan í
hálfleik var 30 — 35 fyrir
Grindavík.
Sigur KR-
kvenna
ÞÓR OG KR léku um helg-
ina i 1. dcild kvenna á
Akureyri. KR sigraði örugg-
lega i ieiknum mcð 16 mörk-
um gegn 13. Staðan i hálf-
leik var 8—7 fyrir KR.
KR-stúlkurnar voru betri
aðilinn i lciknum og sigruðu
verðskuidað.
Mörk Þórs: Valdís Hall-
grimsdóttir 4, Þórunn Sig-
urðardóttir 4, Soffia 2, Dýr-
finna Torfadóttir 2, Anna
Halidórsdóttir 1.
Mörk KR: Kristbjörg 6,
Jóhanna 3, Hansina 3, Hjör-
dis 2, Karolina og Birna 1
mark hvor.
Allison rekinn!
Malcolm Allison hefur verið
sagt upp störfum sinum hjá
Crystal Palace, næst neðsta liði
1. deildarinnar i ensku knatt-
spyrnunni. Allison hefur sem
kunnugt er gengið illa að festa
rætur meðal enskra liða og er
raunar furðulegt að hann skuli
jafnan fá vinnu sem fram-
kvæmdastjóri eftir hvern
brottrekstur, því árangur hans
talar ótvir&'ðu máli: Lið hans
hafa annað hvort fallið með
hann við stjórnvölinn, eða
skömmu eftir að hann hefur
verið rekinn frá þeim. Ilann
hefur áður stjórnað hjá Palace
og liðið féll þá i 3. deild. Og
Manchester City var á góðri
leið beinustu leið i 2. deild. er
stjórnin þar sá að sér og losaði
sig við gripinn. Og nú hefur
hann verið rekinn öðru sinni
frá Palace, eftir aðeins 55 daga
stjórnartið.
Allison tókst ekki að rífa
Palace upp úr öldudalnum og
liðið hefur aðeins unnið einn leik
af þeim tíu sem það hefur leikið
undir hans stjórn. Dario Grady,
framkvæmdastjóri Wimbledon,
hefur verið ráðinn eftirmaður
Allisons. Grady hefur skrifað
undir samning upp á hálft fjórða
ár.
Buergler vann
sinn fyrsta sigur
Svisslendingurinn Toni Bu-
H.Halls.
Lánleysi okkar réði úrslitum
„ÞETTA VAR mjög góður leik-
ur tveggja stcrkra liða, en lán-
leysi okkar, sérstaklega heima í
Reykjavik kom i veg fyrir að við
kæmumst áfram," sagði Bogdan.
þjálfari Vikings eftir leikinn.
„Við lékum betri handknatt-
leik, en markvarzla Svíanna var
betri en okkar og það hafði mikið
að segja. Hefði Kristján varið
eins vel og heima hefði sigurinn
örugglega lent okkar megin í dag.
Við lendum einnig í svipuðum
vandræðum hér úti eins og
heima, Þorbergi var tvívegis vís-
að af leikvelli og gat hann því
ekki beitt sér fyllilega í vörninni
eftir það og því opnaðist hún
meira en venjulega.
Þetta var leikur sterkra liða, en
spilið var ekki fallegt og einstakl-
ingsframtakið var of mikið, sér-
lega í lokin þá léku menn meira
af kappi en forsjá.
Hvað með stuðning áhorfenda?
Áhorfendurnir frá íslandi
studdu okkur mjög vel og það var
mikil hjálp af því, þetta var
nánast eins og að leika á heima-
velli. HG
Everton mætir Southampton