Morgunblaðið - 27.01.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANIJAR 1981
29
Theódór A. Jónsson, formaður Sjálfsbjargar, tekur við 50 þúsund króna gjöfinni úr hendi Eðvarðs
Sigurðssonar, formanns Dagsbrúnar.
Dagsbrún gefur stórgjafir
Ragnar Júlíusson:
Svar til Kristjáns
Benediktssonar
Verkamannafélagið Dagsbrún
átti 75 ára afmæli i gær, 26.
janúar. t afmælishófi í Lindarbæ
sl. sunnudag færði formaður fé-
lagsins, Eðvarð Sigurðsson, sex
styrktarfélögum stórar pen-
ingagjafir i tilefni afmælisins.
Eftirtalin félög fengu 50 þúsund
nýkrónur að gjöf: Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra, Styrktar-
félag lamaðra og fatlaðra, Hrafn-
ista, dvalarheimili aldraðra sjó-
manna í Reykjavík og Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund. Þá fékk
Hjúkrunarheimili aldraðra í
Kópavogi 25 þúsund krónur, og
ennfremur var gefin 25 þúsund
króna minningargjöf um Hannes
M. Stephensen, fyrsta formann
Dagsbrúnar, til Blindraheimilis-
ins í Reykjavík.
Borgarfulltrúi Kristján Bene-
diktsson formaður borgar- og
fræðsluráðs ætlar seint að kom-
ast yfir lokaorð mín í borgar-
stjórn 18. des. þar sem ég bendi á
að „sannsögli væri sem betur fer
enn þá talin til dyggða".
Eftir umræður í borgarstjórn
4. og 18. des. sl. um skýrsluna
„Nýting skólahúsnæðis í
grunnskólum Reykjavíkur" sá
borgarfulltrúinn ástæður til þess
að kveða sér hljóðs utan dag-
skrár á fundi borgarstjórnar 15.
jan. sl. Tilefnið var tilraun til
þess að sýna fram á að hann
hefði ekki haft grun um að
skýrslan kæmi fyrr en hún var
fullprentuð.
Sér til halds og trausts hafði
hann bréf hagsýslustjóra borgar-
innar sem hann hafði orðið sér
úti um. Hann las hluta bréfsins á
fundinum og gaf mér ljósrit af
því. Þegar bréf hagsýslustjóra og
ræða borgarstjóra eru skoðuð í
samhengi kemur berlega í ljós að
allar mínar fullyrðingar standa
óhaggaðar.
Borgarfulltrúinn vissi af
skýrslunni áður en til prentunar
kom eða með öðrum orðum
meðan hún var í vinnslu.
Til þess að fá svar við spurn-
ingu sinni ætti hann að lesa
betur bréf sent sér frá hagsýslu-
stjóra borgarinnar dags. 2. janú-
ar og lesa útskrift af ræðu
borgarstjóra á fundi borgar-
stjórnar 4. des. sl. Þar finnur
hann sannleikann í málinu, sem
virðist standa fastur í hálsi
borgarfulltrúans.
Ragnar Júlíusson.
Sigmon Vaughan
syngur í
Norræna húsinu
BRESKI baritónsöngvarinn Sig-
mon Vaughan syngur í Norræna
húsinu við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar annað kvöld.
Á efnisskránni eru sönglög eftir
Beethoven, Grieg, Wolf og Vaug-
han Williams. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 20.30.
Oddur ólafsson tekur við gjöf-
inni stóru úr hendi Magnúsar L.
Sveinssonar. Ljósm. G.E.
svarar til þess, að um 1000 félags-
menn VR búi við fötlun...
Ég vona því, að jafnframt því,
sem þessi fjárveiting félagsins
komi að góðum notum við þær
þýingarmiklu framkvæmdir, sem
öryrkjabandalagið vinnur nú að,
þá verði þetta framlag einnig til
þess að vekja bæði félagsmenn VR
og aðra til umhugsunar um þá
skyldu okkar allra að taka meira
tillit til málefna og þarfa fatlaðra
en hingað til hefur verið gert.“
Heiðursfélagar
Stjórn VR ákvað líka í tiléfni
afmælisins, að gera fjóra menn að
heiðursfélögum VR, þá Andreas
Bergmann, Ottó J. Ólafsson,
Björgúlf Sigurðsson og Guðmund
H. Garðarsson. Magnúsi L.
Sveinssyni fórust svo orð við þá
athöfn:
„Allir þessir fjórir menn hafa
verið í fremstu víglínu í starfi
félagsins áratugum saman, og
Frá afmælis-
hófi VR:
• •
Magnús L. Sveinsson og heiðursfélagarnir fjórir, Guðmundur H. Garðarsson, Björgúlfur Sigurðsson, Ottó
J. ólafsson og Andreas Bergmann. Ljósm. Kristján.
Stórgjöf til Oryrkjabandalags
Verzlunarmannafélag Reykjavik
ur hélt 90 ára afmæli sitt hátíð-
legt að Hótel Sögu sl. sunnudag.
Þar komu saman fjöldi félags-
manna og aðrir vinir og velunn-
arar félagsins, milli fimm og sex
hundruð manns. Magnús L.
Sveinsson formaður VR flutti
hátiðarræðu sem hér er birt, svo
fluttu ýmsir ávörp og félaginu
bárust fjöldi gjafa, heillaóska-
skeyta og blóma. Ólöf K. Harðar-
dóttir og Garðar Cortes sungu
dúett, Manúela Wiesler og Snorri
örn Snorrason léku saman á
flautu og gitar, og auk þess söng
kvartett Söngskólans i Reykja-
vik.
Stórgjöf til Ör-
yrkjabandalagsins
í tilefni af Alþjóðaári fatlaðra
ákvað stjórn VR að veita öryrkja-
bandalaginu 30 milljónir g.kr. eða
300 þúsund nýkr. úr Sjúkrasjóði
VR Magnús L. Sveinsson sagði
m.a. þegar hann færði Oddi
Ólafssyni formanni hússtjórnar
öryrkjabandalagsins gjöfina:
„Það er talið að um 10% af fólki
sé fatlað í einhverri mynd. Það
stendur félagið í mikilli þakkar-
skuld við þá. Allir vita að þeir,
sem í forystu slíkra félaga eru,
leggja á sig ómældar vinnustund-
ir, sem seint verður fullþakkað.
Störf þeirra í þágu félagsins verða
aldrei mæld í vinnustundum eða
krónum.
Andreas Bergmann var í trún-
aðarmannaráði félagsins í ára-
tugi, allt frá því að félagið varð
hreint launþegafélag og þar til
fyrir fáum árum, að hann óskaði
vegna aldurs að víkja fyrir yngri
manni.
Hann hefur um langt árabil
verið félagslegur endurskoðandi
félagsins og er það enn í dag.
Þeir hafa ekki verið margir
fundirnir, sem félagið hefur hald-
ið á undanförnum áratugum, sem
Andreas Bergmann hefur ekki
mætt á.
Hann starfaði á skrifstofu hjá
sama fyrirtækinu, Völundi, í 51 ár
samfleytt.
Björgúlfur Sigurðsson hefur
unnið við verzlunarstörf frá 1935.
Hann var formaður Afgreiðslu-
mannadeildar VR, sem starfaði
um nokkurn tíma áður en félagið
varð hreint launþegafélag.
Hann var í samninganefnd fé-
lagsins, sem undirritaði fyrsta
kjarasamninginn, sem félagið
gerði við vinnuveitendur, 18. janú-
ar 1946.
Björgúlfur var um langan tíma í
trúnaðarmannaráði VR, m.a. þeg-
ar félagið varð hreint launþegafé-
lag.
Hann var í undirbúningsnefnd
fyrir stofnun Landssambands ísl.
verzlunarmanna 1957.
Ottó J. Olafsson var í stjórn VR
frá 1957 til ’63,er hann óskaði að
vera ekki lengur í kjöri.
Hann var gjaldkeri stjórnarinn-
ar þau ár, sem hann var í
stjórninni.
Hann hefur verið félagslegur
endurskoðandi frá því að hann
hætti sem gjaldkeri.
Ottó hefur verið í trúnaðar-
mannaráði félagsins sl. 24 ár.
Ég held að Ottó þyrfti að vera
mjög veikur til að mæta ekki á
öllum fundum, sem boðað er til.
Guðmundur II. Garðarsson
kom í stjórn VR 1956 og var
formaður VR frá 1957 til 1980 eða
í 23 ár.
Það má því segja, að mótun og
viðgangur félagsins hafi allt frá
því, að það varð hreint launþega-
félag, verið undir forustu hans. Sú
forusta hefur verið traust og
heillarík fyrir verzlunar- og
skrifstofufólk.
23 ár eru út af fyrir sig ekki
langur tími í sögu eins félags, en
tekur hins vegar yfir nær hálfa
meðal starfsævi manns.
Ég hefi áður rakið hér þá
áfanga, sem unnist hafa í for-
mannstíð Guðmundar og endurtek
það því ekki hér.
Hann hefur varið blómaskeiði
lífs síns í þágu verzlunar- og
skrifstofufólks.
Góðir hátíðargestir.
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur vill nú sýna þessum góðu
mönnum þakklætisvott og virð-
ingu fyrir mikil og gifturík for-
ustustörf með því að gera þá að
heiðursfélögum VR.
Og vil ég hér með afhenda þeim
heiðursskjöl því til staðfestu."
Gullmerki
Ennfremur samþykkti stjórn fé-
lagsins í tilefni afmælisins, að
sæma eftirtalda 16 menn gull-
merki VR fyrir mikil störf þeirra í
þágu félagsins á umliðnum árum:
1. Björn Þórhallsson,
2. Daníel Gíslason,
3. Gísli Gíslason,
4. Guðmundur Jónsson,
5. Gunnar Magnússon,
6. Gunnlaugur Þorbjarnarson,
7. Helgi E. Guðbrandsson,
8. Höskuldur Egilsson,
9. Njáll Símonarson,
10. Ólafur Þ. Guðmundsson,
11. Óttar Októsson,
12. Ragnar Guðmundsson.
13. Sigurgeir Kristjánsson,
14. Stella M. Jónsdóttir,
15. Sæmundur Gíslason,
16. Þórður Guðmundsson.
Magnús L. Sveinsson þakkaði
þessu fólki svofelldum orðum:
„Allt þetta fólk á langt og mikið
starf að baki í þágu félagsins.
Framlag félagsstarfsins verður
með ýmsum hætti; allt frá því að
sækja svo til alla fundi félagsins
til þess að taka þátt í æðstu stjórn
þess. Allt þetta fólk, hefur skilað
ómetanlegu starfi, hver með sín-
um hætti. En þeim hefur öllum
verið það sameiginlegt í starfi
sínu fyrir félagið, að varða svo
veginn, að ganga þeirra, sem á
eftir koma verði þeim auðveldari.
Félagið vill votta þessu ágæta
fólki þakklæti sitt og virðingu
fyrir störf þeirra í þágu verzlunar-
og skrifstofufólks, með því að
sæma það gullmerki félagsins,
sem ég vil nú afhenda."