Morgunblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 38 Minning: Hallur Björnsson hreppstjóri Rangá Fæddur 9. júní 1902 Dáinn 17. janúar 1981 í dag, þ. 27. jan., fer fram frá Egilsstaðakirkju útför Halls Björnssonar hreppstjóra frá Rangá í Hróarstungu á Héraði. Hann verður greftraður í heima- grafreit á Rangá þar sem gamlir söngbræður munu syngja yfir moldum hans. Hallur andaðist á Landspítalan- um þ. 17. jan. eftir nokkra legu, ekki mjög þunga að því er séð varð. Fyrir tveimur árum hafði hann verið skorinn upp við þeim sjúkdómi er nú leiddi hann til bana. Virtist hann þá ná góðri heilsu þangað til sl. haust að veikindin tóku sig upp að nýju. Hallur var fæddur á Rangá 9. júní 1902, sonur hjónanna Hólm- fríðar Eiríksdóttur frá Bót i sömu sveit og Björns Halissonar, bónda á Rangá og alþingismanns. Hallur bar nafn afa síns, Halls Einarssonar er lengi bjó á Steins- vaði í Tungu og oft kenndur við þann bæ. Hann keypti Rangána niðurnídda og breytti í stórbýlis- jörð. Nafni hans, Hallur yngri Björnsson, sótti framhaldsnám sitt í Eiðaskóla á árunum 1922— 24 og dáði jafnan síðan skólastjór- ann sr. Asmund Guðmundsson, síðar biskup og við aðalkennar- ann, Guðgeir Jóhannsson bast hann ævilöngum vináttuböndum. Eftir skóladvölina var Hallur með föður sínum er þá rak stórbú á Rangá, en brátt dró að því að hann færi að eiga með sig sjálfur, eins og sagt var er menn voru í svokallaðri sjálfsmennsku, þ.e. voru útaf fyrir sig með gripi sína og heyjuðu fyrir þeim. Þennan háttinn höfðu ungir menn gjarnan á, sem höfðu ástæður til og hugðu síðar á sjálfstæðan búskap. Arið 1938 hóf svo Hallur sjálfstæðan búskap á nýbýli er hlaut nafnið Rangá og 2 var byggt útúr landi aðaljarðarinnar. Á nýbýli sínu reisti hann sér íbúðarhús sem hann bjó í æ síðan. Á 1939 gekk Hallur að eiga heimasætu frá Skeggjastöðum í Fellahreppi, Gunnhildi að nafni, var hún dóttir Þórarins bónda þar Jónssonar, eins þeirra þriggja bræðra sem gert höfðu Skeggja- staði að stórbýli. Þeim Halli og Gunnhildi varð fimm barna auðið. Elsta son sinn, Björn, misstu þau aðeins tveggja ára gamlan, hið mesta efnisbarn. Helga varð næsta barn þeirra, gift Gunnari Axelssyni og hafa þau dvalið í föðurhúsum Helgu. Næst- ur í barnaröðinni var svo annar Björn, einstakur efnispiltur en hann missa þau aðeins 25 ára gamlan, sárt syrgðan af öllum sem hann þekktu. Þórarinn er fjórða barn þeirra, ógiftur og bjó með föður sínum. Yngst er svo Hólm- fríður, gift Baldri Sigfússyni frá Krossi í Fellum. Hann er húsa- smiður og eru þau búsett á Hlöðum við Lagarfljótsbrú. Á sínum yngri árum var hrepp- stjórasonurinn frá Rangá með glæsilegri mönnum á Héraði. Spengilogur á velli, velfarinn í andliti og með höfðingsyfirbragð og var því eigi nema von að hann veldist snemma til forystu. Ung- mennafélag sveitarinnar, sem ver- ið hafði lífvana um skeið, endur- reisti Hallur ásamt öðrum og varð formaður þess um hríð. Þótt Hallur væri sérlega hóglátur í allri framgöngu og ósýnt um að láta á sér bera, völdu sveitungar hans hann snemma til margvís- legrar forgöngu, og tók hann smátt og smátt við flestum þeim störfum í þágu sveitar sinnar sem Björn faðir hans hafði gegn um langa hríð. I sýslunefnd var hann valinn 1937 og sat þar óslitið til 1978, í hreppsnefnd var hann í 20 ár og þar af 8 sem oddviti sveitarinnar. Við hreppstjóra- starfinu tók Hallur af föður sínum 1956, en þá hafði Björn gegnt því um hálfrar aldar skeið. Umboðs- maður Brunabótafélags íslands var Hallur frá 1948 og fulltrúi sveitar sinnar á aðalfundum Bún- aðarsambands Austurlands frá 1959 svo og á aðalfundum Kaupfé- lags Héraðsbúa sem fulltrúi deild- ar félagsins í hreppnum. Enn er ótalið eitt trúnaðarstarfið sem oddvitar Fljótsdalshéraðs völdu hann til, en það var seta í sjúkrahússnefnd sem sér um rekstur sjúkrahússins á Egils- stöðum. Það sem hér hefur verið upptal- ið af trúnaðarstörfum sem Hallur Björnsson var kjörinn til, má sjá í uppsláttarbókum, en upptalningin sýnir betur og á órækari hátt en með öðru móti hvílíks trausts hann naut hjá þeim er kynntust honum. Þeir vissu að einstök samviskusemi hans leifði honum ekki að níðast á neinu sem honum var tiltrúað. Enginn var hann málskrafsmaður á fundum, Mál- flutningur hans var hógvær og hófstilltur en svo vel studdur rökum að eftir var tekið. Persónulega kynntist ég ekki Halli fyrr en ég kom út á Hérað í námunda við hann sem kennari við Alþýðuskólann á Eiðum, var það haustið 1930. Annan veturinn sem ég kenndi við skólann var ég samkennari Guðgeirs Jóhannsson- ar, sem áður var nefndur. Hann kom aftur að skólanum um eins vetrar skeið áður en hann hvarf þaðan alfarinn. Eftir skólaslit bauð Guðgeir mér með sér er hann fór til að heilsa uppá og kveðja vini sína og nemendur í Bót og á Rangá. I Bót voru tveir nemendur hans, þeir Eiríkur og Stefán Pét- urssynir, en á Rangá var það Hallur Björnsson en hann var elstur þeirra Rangárbræðra, yngri voru þeir Björn og Eiríkur sem urðu skömmu síðar nemendur mínir. I þessari fyrstu för minni vestur yfir Lagarfljót kynntist ég þessum tveimur höfðingsheimilum, í Bót og á Rangá, sem hafa orðið mér æ síðan ógleymanleg. í Bót var það skörungskonan Sigríður Eiríks- dóttir er réði húsum með tilstyrk sona sinna er áður voru nefndir. Sigríður í Bót var mikil höfðings- kona sem stýrt hafði heimili sínu í rúmlega tuttugu ára ekkjudómi með mikilli reisn, — og á Rangá var það héraðshöfðinginn Björn Hallsson er skipaði húsbóndasess- inn og Soffía síðari kona hans, Hallgrímsdóttir. Þótt ég, hinn lítt þekkti Fljóts- dælingur, nyti í fyrstu vináttu þessara heimila við Guðgeir, þá varð þessi heimsókn upphaf ævi- langrar vináttu við tvo þessara frænda, þá Stefán í Bót og Hall á Rangá, enda á svipuðu reki. Á báðum heimilunum voru til hljóð- færi. Hólmfríður móðir Halls hafði áður leikið á hljóðfæri og nú var það Stefán sem lært hafði til hljóðfæraleiks og gerði það af leikni og kunnáttu, og hann kenndi síðan Birni yngra frænda sínum á Rangá. Allir voru þessir frændur frá Bót og Rangá sérlega söngelskir og lagvísir og var því ekki nema eðlilegt að fljótlega yrði tekið lagið, síðar bættist svo í hópinn frændi þeirra, Pétur Einarsson frá Fjallsseli og Haraldur Þórar- insson frá Skeggjastöðum, mágur Halls, svo úr varð smá-kór. í nokkur ár mátti það heita föst venja að Eiðakennarinn brygði sér vestur yfir Fljótið að afloknum skóla á vorin og við tækjum lagið saman ýmist á Rangá eða í Bót, okkur til ánægju og gleði, og kennaranum til sálubóta og af- slöppunar eftir erilsamt og lýjandi vetrarstarf, og húsráðendur tóku söngnum með örvandi gleði þótt nokkurt ónæði fylgdi. Á engan okkar söngfélaganna tel ég hallað þótt haldið sé fram að Hallur á Rangá hafi verið söngglaðastur okkar allra. Söngurinn virtist honum hrein lífsnautn, andar- dráttur til andlegrar vellíðunar. Langt fram á efri ár sótti hann söngæfingar um langan veg eftir að hann fór að syngja með karla- kór Fljótsdalshéraðs sem Stefán frændi hans frá Bót stofnaði og stýrði eftir að hann var fluttur í Egilsstaði. Hallur söng af sérstök- um innileik og innlifun í ljóð og lag, svo gat virst sem draumlynd lund hans fengi einhvers konar útrás í söngnum, slæfði áhyggjur og deyfði sáran harm, er hann bar ávallt í brjósti eftir horfna ást- vini. Jafnvel á banasænginni rifj- aði hann upp hve söngur okkar félaganna forðum hefði verið hon- um mikil sálubót. Eftir að hafa þekkt þennan horfna vin minn, Hall á Rangá, um nærfellt hálfrar aldar skeið finnst mér hann hafa verið einna trygglyndasti og hjartahreinasti maður sem ég hefi kynnst. Vinátta slíkra manna er mönnum vissu- lega hamingjuauki og verður seint þökkuð. Þegar ég nú, við brottför þessa vinar míns héðan af heimi, rifja upp minningarnar um hann og ýmsa aðra sem kannski hefur meira borið á, koma mér í hug ummæli þau sem höfð eru eftir Gissuri Hallssyni er hann mælti eftir vin sinn Þorlák Þórhallsson biskup, en þau eru þessi: „En svo mikið traust höfum vér á hans verðleikum að ég uggi að fáir muni vonarmenn vera ef hann er ei fullsæll, svo sem vér vitum hann ólíkastan verið hafa öllum mönnum öðrum í sínu góðlífi." Gunnhildi og börnum þeirra Halls vottum við hjónin innilega samúð og biðjum guð að blessa okkur öllum vinum hans minn- ingarnar um þennan dæmafáa dreng. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum. + OLAFUR PÁLSSON, fyrrverandi sundkennari. Safamýri 36, Reykjavík, lézt að heimili sínu þann 23. janúar sl. Jústa Siguróardóttir, Páll Ólafsson, Sigríóur Ólafsdóttir, Helga Ólafsdóttir. + Maöurinn minn, faöir okkar. stjúpfaöir, tengdafaöir. afi og langafi, JÓN HAFLIDASON fulltrúí, Hátúni 10 A, lézt aö kvöldi 24. janúar í Oldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10 B. Arnbjörg Stefánsdóttir, Kristin Jónsdóttir, Marteinn Kristinsson, Hafliöi Jónsson, Jónheiöur Níelsdóttir, Örn Ólafsson, Inga Þorsteinsdóttir, Gunnar Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, DAVÍÐ SIGURÐSSON forstjóri, lést i Landspítalanum þann 24. janúar. Anna Einarsdóttir. + Móöir okkar, STEINUNN MAGNÚSDÓTTIR frá Miövogi, lést aö Elliheimilinu Grund sunnudaginn 25. janúar. Elín Guöjónsdóttir, Guójón Guöjónsson, Magnús Guöjónsson. + Móöir okkar, ANNA HANNESDÓTTIR, Hellu, Hafnarfiröi, lézt í Landakotsspítalanum 25. þ.m. Geir Gíslason, Hanna Gisladóttir. + GUONY SVEINSDÓTTIR frá Sasbóli í Aöalvík, andaöist í Sjúkrahúsi ísafjaröar 25. janúar. Kveöjuathöfn á ísafiröi og útför hennar í Reykjavík veröa auglýstar síöar. Vandamenn. + Faöir okkar, BJÖRN JÓNSSON, fyrrverandi verkstjóri hjá Landssmiöjunni, lézt föstudaginn 23. janúar síöastliöinn. Börnin. + Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi, OLIVERT A. THORSTENSEN, lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 25. janúar. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Katrfn Hildur Síguröardóttir, Ölvir Thorstensen, Guöbjörg Grétarsdóttir, Rikard Thorstensen, Anný Berglind Arnardóttir, Ágúst Thorstensen, Bergþór Olivert Arnarson, örn Thorstensen. Fööursystlr mín, ÞÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR, áöur Smáratúni 8, Selfossi, er lést í hjúkrunardeild Landspítalans, Hátúni 10, 17. janúar sl., veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 28. janúar kl. 1.30. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ólafur Vigfússon. + Hjartkaer eiginmaöur minn, faöir og tengdafaðir, ÞORKELL ÁRMANN ÞORDARSON fulltrúi, Alftamýri 24, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mlövikudaginn 28. janúar klukkan þrjú síödegis. Ólöf Kristjánsdóttir, Gunnar Þorkelsson, Jóna Sigurbjartsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.