Morgunblaðið - 27.01.1981, Síða 39

Morgunblaðið - 27.01.1981, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 Minning: Karl Lilliendahl Marteinsson Fæddur 17. mai 1906. Dáinn 24. desember 1980. Hinn 21. maí árið 1927 lést húsfreyjan að Hjáleigueyri við Reyðarfjörð úr blóðspýtingi. Stef- anía Elizabet Lilliendahl hét hún, fjórða barn hjónanna að Austur- Skálanesi við Vopnafjörð, þeirra Þóru Jakobínu Beck (1854—1989) og Carl Péturs Lilliendahl (1848—1899) hafnsögumanns og bókara þar. Önnur börn þeirra hjóna voru: Carl Jóhann (1873-1950), Sofia Oddný Jakobina (1881—1929), Amalia Friðrika (1882—1897), Stefanía Elizabet, sem að framan var talin (1884—1927), Lorenz Þorvaldur (1886-1898), Sofia Vil- borg (1888—1974), Oktavía Ágústa (1890—1908), Oddný Hansína (1892—1973), Jakob Christján (1896-1955). Sumarið 1891 kom Hans Kjart- an Beck bróðir Þóru til Vopna- fjarðar og hafði Ellu, en svo var Stefanía Elízabet kölluð, með sér heim til Reyðarfjarðar. Bjó Hans þá að Inn-Stekk (Svínaskálastekk- ur) ásamt Þorvaldi Kristni bróður sínum. Ólst þessi veikburða telpa upp hjá móðurbræðrum sínum og flutti með þeim að Litlu-Breiðuvík rétt fyrir aldamótin. Árið 1905 giftist hún Marteini Magnússyni formanni að Karlskála við Reyð- arfjörð. Bjuggu þau í Litlu- Breiðuvík fram til ársins 1910 að þau fluttu að Hjáleigueyri sem er aðeins innar við Reyðarfjörð. Marteinn Magnússon (1864— 1940) var elstur af þremur sonum Magnúsar Guðmundssonar og Steinunnar Jónsdóttur á Sellátr- um. Hinir vóru Guðmundur (1867-1942) og Jón (1865-1934). Marteinn var aðeins 5 ára gamall þegar faðir hans lést og var honum þá komið fyrir að Vattar- nesi hjá Kristínu Jónsdóttur móð- ursystur sinni. Snemma gerðist hann formaður hjá Eiríki á Karlskála og var úr því þar í heimili. Það hafa því verið hæg heimatökin hjá hinum aflasæla formanni að fastna sér konu á næsta bæ, en Litla-Breiðavík er næsta jörð fyrir innan Karlskála sem er utarlega við norðanverðan Reyðarfjörð. Fleiri heimasætur hafa líklegast litið hinn nánast fertuga piparsvein hýru auga, því auk þess að vera fengsæll formað- ur og góður glímumaður, var hann listaskrifari, forsöngvari á mannamótum og gjarnan í sviðs: ljósinu sem harmonikuleíkari. í lífi þeirra hjóna var tónlistin ríkur þáttur og létti þeim stundir í baráttunni fyrir brauði og heilsu, en mikil ástúð var með þeim hjónum þrátt fyrir tuttugu ára aldursmun. Þau eignuðust fjögur börn: Karl Lilliendahl (17. 5. 1906 - 24. 12. 1980), Hans Kristin (f. 13. 5. 1907), Steinunni (f. 11. 7. 1910), Magnús Guðjón (f. 5. 7. 1915 — dáinn í nóvember sama ár). Um það leyti sem hjónin flytja á Hjáleigueyri kennir Marteinn fyrsta astmakastsins, en sú veiki fylgdi honum jafnan upp frá því. Þeir bræður Karl og Kristinn fóru því snemma að hjálpa til við heimilisaðdrætti og urðu sam- rýndir mjög. Báðir sýndu þeir mikla námshæifleika, en fátæktin aftraði þeim frá langskólanámi og urðu þeir að láta sér nægja lestur góðra bóka, sem gnótt var af á heimilinu, og lestrarfélagsbækur. Ævistarf þeirra var því þegar mótað um 10—11 ára aldur með því að þeir fara að sjá heimilinu fyrir sjávarföngum og forða því þannig frá sundrungu. Á vorin og sumrin var róið í fjörðinn á bátnum Lukku og undir haustið vóru lögð síldarnet. Heppni þeirra og dugnaði var viðbrugðið og nutu þeir óspart tilsagnar föður síns sem ekki komst til sjóróðra sökum andþrengsla. Á haustin var gengið til rjúpna og legið fyrir sjófuglum en veiðina sótti frækinn sjóhund- ur, Lappi. Einstaka sinnum tókst að ná í sel eða hnísu og silungur fékkst stund með klöppum og í Kerlingará. Nágrannarnir gauk- uðu einu og öðru að Hjáleigueyri og er fram liðu stundir og strák- arnir stækkuðu komst heimilið sæmilega af. Þegar húsmóðirin féll frá vóru bræðurnir nánast fulltíða menn og Steinunn systir þeirra komin yfir fermingu. Harmur systkin- anna yfir missi ástríkrar móður var mikill. Hún hafði sungið þeim vöggusöngva, kennt þeim sögur og leiki og grætt blæðandi undir. Ásamt manni sínum hafði hún séð til þess að fátæktin sem gisti heimilið náði aldrei að brjóta niður menningarlega reisn þess. Þá auðlegð höfðu börnin að vega- nesti við mótun síns eigin lísferils. í nóvember 1927 var heimilið leyst upp. Tímarnir vóru að breytast og framtíðin virtist í þéttbýlisstöð- unum. Bræðurnir fóru að Litlu- Breiðuvík en faðir þeirra og systir að Karlskála og innan fárra ára voru öll komin til Neskaupstaðar. Dalli, en svo var Karl Lillien- dahl jafnan nefndur, fór að vinna inni á Eskifirði eftir lát móður sinnar. Komandi sumar fór hann til Siglufjarðar og gekk svo næstu sumur. Árið 1933 dvaldi hann venju fremur lengi á Siglufirði. Það haust söng hann og æfði tvísöng og einsöng með Karla- kórnum vísi. Bauðst honum þarna tækifæri að þjóna sönggyðjunni sem hann dýrkaði mjög. Hins vegar mun hann hafa skort ákveðni til að stíga skrefið til fulls og hélt í þess stað til Neskaup- staðar en þangað var hann ráðinn til Jóns Benjamínssonar skip- stjóra og útgerðarmanns. í milli- tíðinni eyddi hann síðustu jólum áínum í Litlu-Breiðuvík en er svo alfarinn þaðan. Til Norðfjarðar kom árið 1937 ung stúlka frá Stokkseyri, Guðrún Eiríksdóttir ættuð úr Grímsnes- inu. Var hún í vinnumennsku hjá Gísla Bergsveinssyni útgerðar- manni. Varð ungum mönnum fljótt starsýnt á hina gerðarlegu snót og dugnaður hennar og verk- lagni spurðist víða. Felldu þau Dalli hugi saman og um haustið voru þau trúlofuð. Dvöldu þau um tíma á Stokkseyri þaðan sem Dalli stundaði meðal annars Bretavinnu á Kaldaðarnesi. Austur í Nes- kaupstað komu þau svo alflutt árið 1940 og hefja fyrst búskap í Kirkjuhvoli, en flytja fljótlega í Sólheima þar sem þau bjuggu nokkur ár áður en þau festu kaup á íbúð í Sólhól. Á þessum árum var Dalli í vinnu hjá Ölver Guð- mundssyni, útgerðarmanni, bræðrung sínum, auk íhlaupavinnu sem til féll. Síðustu þrjátíu ár ævi sinnar starfaði hann hjá bænum, aðallega við smíði og viðhald bæjareigna og frá árinu 1961 bjuggu Dalli og Gunna í húsnæði sínu að Þiljuvöll- um 21. Lengi mun Dalla hafa sviðið að hafa ekki átt þess kost að ganga menntaveginn svo sem hann hafði hæfileika og löngun til. Fróðleiks- fýsninni var því svalað með bóka- og blaðalestri en þjóðmálavafstrið varð honum mjög hugleikið. Var hann einlægur sósíalisti, fylgdi þeim í blíðu og stríðu og gegndi m.a. trúnaðarstörfum fyrir verka- lýðshreyfinguna. Stundvísi og samviskusemi vóru honum eðlis- lægir þættir og vandvirkni í blóð borin. Fjölskyldan, velferð hennar og öryggi vóru honum ofarlega í sinni, enda mótaður af erfiðum æskukjörum þar sem minnsta óhapp gat kostað sundrun fjöl- skyldu. Það var því mikið lán fyrir Dalla að eignast jafn kjarkmikinn og dugandi kvenkost og Gunnu, en þau vóru mjög samhent í uppeldi barna sinna: Eiríks Marteins (27. 8. 1939) og Elísabetar Guðbjargar (15. 3. 1948) og létu sér mjög umhugað um barnabörnin. En fleiri nutu umhyggju þessara hjóna og dvöldu í lengri eða skemmri tíma á þeirra heimili, vandamenn sem vandalausir og þar á meðal undirritaður sem átt hefur þar sitt annað heimili. Börn hændust gjarna að Dalla enda sýndi hann þeim áhuga og skilning og meðal síðustu verka hans var í þeirra þágu. Dalli tók þátt í skáklífi og sat lengi í stjórn Taflfélags Norð- fjarðar sem hann átti mestan þátt í að endurreisa 1956 og var fyrsti og eini heiðursfélagi þess. Hann var mjög minnugur á marga verkhagi sem og atburði og kímni- sögur en hann var sögumaður góður. Undrum sætti hve fróður hann var um mið og aðra stað- hætti með sjávarsíðunni og bar vitni um ríka athyglisgáfu. Og þótt hann hafi orðið að hætta sjósókn sökum ólæknandi sjóveiki fylgdist hann með veiðum og fiskigengd af áhuga og var glögg- ur á veðrabrigði. Þetta ár hefur verið hoggið stórt skarð í frænda- flokkinn sem forðum lék sér í Litlu-Breiðuvík. Fyrst Ríckarð Beck, síðan Þorvaldur bróðir hans og nú Karl Marteinsson. Það er okkar sem á eftir göngum að halda merki góðra manna á lofti og hafa minningu þeirra okkur að leiðarljósi. Það verður tómlegt að koma heim og finna ekki Dalla, en ég veit að Gunnu er gefinn sá styrkur að sefa söknuð annarra þótt hennar harmur sé mestur. Hið almáttka veiti henni og að- standendum styrk sinn á þessari stundu. J.B. Á aðfangadag jóla andaðist í sjúkrahúsinu á Neskaupstað Karl Lillendahl Marteinsson, og fór útför hans fram frá Norðfjarðar- kirkju þann 30. desember. Það mun nú vera meira en hálfur annar áratugur síðan ég kynntist Karli heitnum persónu- lega, en áður vissum við talsverð deili hvor á öðrum, þar eð fjöl- skyldur ökkar voru nátengdar. Mér eru glöggt í minni móttök- urnar, þegar við heimsóttum fyrst skyldfólk konu minnar á Neskaup- stað. Það var úrhellis rigning og hvassviðri, gekk eiginlega á með hvössum krapaéljum, þótt þetta væri um hásumar, og við orðin slæpt eftir margra klukkutíma ferð í slíku foráttuveðri. Þá var gott að koma að Þiljuvöllum 21, farangur og utanyfirflíkur hengt upp til þurrks á augabragði, en gestum boðið til veisluborðs. Og það gleymist ógjarnan, hve inni- lega Karl fagnaði syni okkar, fjögurra ára snáða, enda var hann einstaklega barngóður maður, hlýr og ljúfur í umgengni við börnin. Viðmót hans gagnvart þeim var svo elskulegt, að manni komu ósjálfrátt í hug orð meistar- ans: „Leyfið börnunum að koma til mín ...“ Síðar, í notalegum samræðum, fann ég fljótlega, að Karl var afburða fróður og vel að sér, ekki aðeins um sögu síns eigin byggð- arlags, heldur sögu lands og þjóð- ar að fornu og nýju. Það leyndi sér 39 ekki að hann var mjög vel lesinn og stálminnugur. Þennan lifandi áhuga hans á öllu, sem varðaði land og þjóð, fann ég einnig glöggt síðast liðið sumar, þegar fjöl- skyldur okkar dvöldu saman í Munaðarnesi, og við áttum þess kost að ferðast dálítið um sveitir Borgarfjarðar og Dali. Hann naut þess innilega að sjá þessar blóm- legu byggðir og rifja upp ýmsan sagnafróðleik tengdan þeim, og hann kunni ótrúlega góð skil á staðháttum og sögu byggðarlaga, sem hann hafði þó ekki augum litið fyrr, en lesið um og fest sér í minni fróðleikinn. Kærust allra byggða á Islandi var honum þó Norðfjörðurinn, Neskaupstaður- inn hans, enda var þar starfssvið hans og heimili í nærfellt hálfa öld. Karl Lillendahl var fæddur 17. maí, 1906. Hann var Austfirðingur að ætt, og bjuggu foreldrar hans í Reyðarfirði. Unglingur að aldri missti Karl móður sína, en faðir hans bjó áfram, ásamt þremur börnum þeirra. Var Karl þeirra elstur. Framan af ævi stundaði Karl sjómennsku, var á vertíðum á Suðurnesjum og síldveiðum fyrir Norðurlandi, og vann þá m.a. um tíma á Siglufirði. Til Neskaupstaðar fluttist Karl árið 1934, og stundaði þar fyrst sjó- og landmennsku hjá útgerðar- mönnum þar. Vann hann þá mest í landi, enda hafði sjóveiki alltaf háð honum. Síðustu þrjátíu árin, eða rúmlega það, var Karl starfs- maður hjá bænum, og vann þá einkum við smíðar og viðhald mannvirkja. Hann vann fullan vinnudag þar til fyrir tæpu ári, að heilsan setti honum skorður. Síð- ustu mánuðina vann hann stund úr degi hverjum að ýmsu viðhaldi á leiktækjum dagheimilisins, og var, eins og vænta mátti um slíkan barnavin, í miklu uppáhaldi hjá börnunum þar. Karl var gæddur miklum áhuga um landsmál og félagsmál yfir- leitt. Hann átti sæti í stjórn Verkalýðsfélags Norðfirðinga um skeið, og tók virkan þátt í starfi Sósíalistaflokksins og síðar Al- þýðubandalagsins. Karl var ágætur skákmaður og mat skákíþróttina mikils, enda innti hann af höndum mikið og óeigingjarnt starf fyrir skákfélag- ið þar á staðnum. Má geta þess, að þegar helgarskákmót var haldið á Neskaupstað síðást liðið haust, var Karl heiðraður fyrir störf sín í þágu skákíþróttarinnar. Eftirlifandi konu sinni, Guð- rúnu Eiríksdóttur, kvæntist Karl 3. janúar, 1941. Varð þeim tveggja barna auðið, og eru þau bæði búsett á Neskaupstað og eiga ung börn. Þarf varla að geta þess, að Karl var barnabörnunum ein- staklega góður afi, enda tóku þau miklu ástfóstri við hann. Þau skulu verða lokaorð þessar- ar greinar að þakka hjartanlega góð kynni og ánægjulegar sam- verustundir, en því miður allt of fáar. Mágkonu minni og öðrum nánum ástvinum Karls heitins votta ég innilegustu samúð mína. B.G. Ólöf Guðmundsdótt ir - Minningarorð Laugardaginn 17. þ.m. andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri, Ólöf Guðmundsdóttir, Fjólu- götu 10 hér í bæ. Ólöf var fædd 19. okt. 1894 á Gæsum í Glæsibæjarhreppi, dóttir hjónanna Guðmundar Jónssonar, síðar bæjarpósts á Akureyri, og konu hans Anínu Arinbjarnardótt- ur. Faðir Ólafar, Guðmundur, varð fyrstur manna til þess að gegna bæjarpóstsstarfi hér á Akureyri og ég minnist þess frá æskudögum mínum að það var reisn yfir Guðmundi og hann var í hópi þeirra borgara sem settu svip á bæinn eins og þá var komist að orði. Ég kynntist ekki Ólöfu fyrr en hún var orðin fullorðin kona, og myndaðist kunningsskapur okkar vegna vináttu minnar við eigin- mann hennar Sigfús Baldvinsson útgerðarmann, sem var náinn vin- ur minn. Þau Ólöf og Sigfús giftust 1917 og lengst af var heimili þeirra hér á Akureyri eða nánar tiltekið að Fjólugötu 10 hér í bæ en það hús byggðu þau á sínum tíma og bjuggu þar við mikla rausn. Samvistir þeirra Ólafar og Sig- fúsar voru með ágætum og ástríki mikið milli þeirra hjóna. Heimili þeirra var hlýlegt og notalegt og þau voru með afbrigðum gestrisin enda mikið um gestakomur á heim- ili þeirra. Mér mun ávallt verða minnisstætt hve góðar móttökur voru í Fjólugötu 10 þegar maður kom þangað. Það voru ekki alltaf hljóðlátar heimsóknirnar þegar við ærslafengnir vinir Sigfúsar vorum á ferðinni, en það var sama, hvernig sem stóð á og í hvaða ástandi maður var, þá brást ekki að húsmóðirin Ólöf tók alltaf á móti manni með einstakri hlýju og vinsemd, og mikið var nú stundum spilað á orgelið og sungið, og alltaf var Ólöf tilbúin að taka þátt í gáskafullri glaðværð okkar. Hjá þeim hjónum Ólöfu og Sigfúsi átti maður oft dýrðlegar stundir, sem aldrei munu úr minni líða. Sigfús lést 3. júní 1969. Að honum var mikil eftirsjá, en Ólöf bar harm sinn í hljóði og hélt heimilishaldi áfram, og reyndist heimili hennar mikill griðastaður börnum hennar og barnabörnum. Ólöf heitin var einstök öðlings- manneskja. í hennar huga var það ofar öllu, að geta miðlað öðrum, vera veitandi, og þessi eðlishvöt hennar brást ekki fram á síðustu stundu. Ég minnist þess, að nú á síðari árum þegar aldurinn færðist yfir hana, og maður var að líta til hennar við og við, sem var því miður alltof sjaldan, þá var það með ólíkindum hvað samræður við þessa öldnu konu gátu verið mikil upplyfting fyrir mann. ólöf var gædd óvenjulega mikilli sálarró og trúartrausti, og hún dvaldi alltaf við hinar bjartari hliðar tilverunn- ar og hafði líf hennar þó sannar- lega ekki alltaf verið dans á rósum. En hjá ólöfu fann maður að í hennar huga var ávallt efst þakk- læti til forsjónarinnar fyrir allt það góða, sem henni fannst hún hafa orðið aðnjótandi í lífinu. Eftir heimsókn til slíkrar konu fer mað- ur léttári í lund og bjartsýnni á tilveruna. Nú er þessi góða vinkona mín gengin á vit eilífðarinnar. Þrátt fyrir það að Ólöf bæri ellina vel að mínu mati, þá held ég að lausnin hafi verið henni kær komin, og áreiðanlega bíða hennar „vinir í varpa“ í hinum nýju heimkynnum hennar. Ég kveð þessa látnu heiðurskonu með hlýjum huga, þakklæti og mikilli virðingu. Það mun ávailt verða bjart yfir minningu Ólafar Guðmundsdóttur. Eftirlifandi ástvinum Ólafar færi ég innilegustu blessunaróskir. Jón G. Sólnes

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.