Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981
33
Halldór Árnason:
Áskorun til rík-
Prentsmiðjueigendur
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33.
Electrolux eldavélarnar eru
meðal þeirra þekktustu í heimi.
Fyrst og fremst vegna gæða- og
svo auðvitað vegna tækni-
nýjunga. Electrolux hefur oftast
verið á undan samtíðinni í eld-
hústækni.
Þegar þú velur Electroluxeldavél
geturðu valið eldavélagerð, sem
hentar plássi og þyngju. Úrvalið
og möguleikarnir eru margvís-
legir.
Electrolux
Kynningarbæklingur ókeypis.
Það er óráðlegt, að kaup eldavél
án þess að kynna sér vandlega
hvaða möguleikar standa til
- boða.
Vörumarkaðurinn sendir þér í
pósti ókeypis, litprentaðan
mynda- og upplýsingabækling.
Sendu okkur nafn þitt og
heimilisfang, eða hringdu í
Electrolux deildina, sími: 86117
og við sendum þér bækling um
hæl.
Vörumarkaðurinn hl.
ÁRMÚLAIa
Atvinnu-
leysi í fær-
eyskum
fiskiðnaði
TALSVERT atvinnuleysi er nú í
fiskvinnslunni i Færeyjum ok á
þessu ári hefur nánast ekkert
verið unnið í frystihúsum þar,
segir færeyska blaðið 14. Sept-
ember þann 24. þessa mánaðar.
Þá hefur verið litið um atvinnu i
frystihúsunum siðan i október og
hefur fiskvinnslufólk varla haft
meira en 10.000 nýkrónur alls i
laun síðustu þrjá mánuði og allt
niður i 3 til 4 þúsund.
Samkvæmt því sem blaðið segir
stafar þetta helzt af því að
færeysk fiskiskip hafa gert mikið
af því að undanförnu að sigla til
Danmerkur og Englands með
ferskan fisk og á síðasta ári
lönduðu þau alls 2.474 tonnum af
ferskum fiski erlendis. Færeysku
verkalýðsfélögin hafa mótmælt
siglingum fiskiskipanna og vilja
að þau verði skylduð með lögum til
þess að landa heima á meðan
frystihúsin geta tekið á móti afla
þeirra.
isstjórnarinnar
„Hefur þú tekið eftir breyting-
unni?“ spurði kunningi minn mig
og beindi hendi sinni í áttina að
lágreistu húsi sem stóð skammt
frá.
Ég rýndi gaumgæfilega á húsið.
Nei, ekki gat ég merkt neina
breytingu, enda átti ég vart von á
að konan sem þar bjó stæði í
einhverjum stórframkvæmdum og
það um hávetur.
„í stað þess að gefa fuglunum
fyrir framan stofugluggann, þá er
konan farin að dreifa fóðrinu yfir
þakið," sagði sá sem spurt hafði.
„Já, kerlingin er greinilega farin
að kalka," sagði ég til skýringar á
þessu furðulega uppátæki.
„Nei, síður en svo,“ svaraði
kunninginn. „Fyrir fáeinum dög-
um horfði hún upp á ókunnan kött
svipta einn fuglinn lífi sem
grandvaralaus var að tína upp
brauðmylsnu. Þá uppgötvaði hún
sér til mikillar skelfingar að
matargjöfin sem átti að forða
vinunum hennar frá hel hafði
verið þeim dulbúin dauðagildra."
Því rifja ég þetta upp, að oftar
en við höldum leynist vá í athöfn-
um sem í huga okkar virðast
ákaflega saklausar. Ein þessara
athafna er veiting áfengra
drykkja í samkvæmum (kokteil-
partí, veislur) á vegum hins opin-
bera. Eigi óalgengt er að slík
samkvæmi séu haldin strax að
loknum vinnudegi. Vill þá oft
verða sem og annars staðar að
öðruvísi fer en ætlað var í upphafi.
Ekki er ólíklegt að einhverjir eyði
lengri tíma við glasið en upphaf-
lega var ráðgert. Næstum senni-
legt er að einhverjum verði það á,
að setjast undir stýri og aka heim,
eftir að hafa neytt áfengis í áður
nefndum samkvæmum. Ekki þarf
akstur þess manns nauðsynlega að
orsaka óhapp en athöfnin er alltaf
jafn vítaverð. Augljóslega er verið
að bjóða hættunni heim og alltof
oft þiggur hún boðið.
Samkvæmi þessi eiga öll sín
tilefni. Það heyrir samt til al-
gjörrar undantekningar að tilefn-
ið sé drykkjan sjálf. Oftast er
safnast saman í tilefni ákveðins
áfanga, viðburðar eða dags. Vel er
það skiljanlegt að gestgjafinn vilji
haga veitingum þannig að þær séu
frábrugðnar því sem fólki er
hversdagslegt. En er nauðsynlegt
eða mikilvægt að áfengir drykkir
séu hafðir á boðstólum? Margir
þeirra sem sótt hafa samkvæmi á
vegum hins opinbera munu eflaust
telja að svo sé, enda vart vanir
öðrum óáfengum drykkjum við
þau tækifæri en kók eða
appelsínusafa.
. En heimurinn er stærri en við
höldum. ör þróun hefur orðið hjá
veitingamönnum sem og hjá öðr-
um starfsstéttum og eiga þeir í
litlum erfiðleikum með að tilreiða
fjölbreytilegar tegundir áfengis-
lausra drykkja sem gestgjafanum
ætti ekki að verða nein skömm af
að bjóða. Með því að bjóða slíka
drykki er ekki lengur þörf áfengra
drykkja auk þess sem að minni
líkur verða fyrir því að áðurnefnd-
ar hættur, sem fæstir vilja fá í
heimsókn, finni sér fórnarlömb.
Nýjum herrum fylgja gjarnan
nýir siðir. Með það í huga, til
viðbótar því sem að framan hefur
verið sagt, leyfi ég mér að skora á
ríkisstjórnina að hætta veitingu
áfengra drykkja í samkvæmum á
vegum hins opinbera. Sú ákvörð-
unartaka þarfnast ekki álits sér-
fræðinga eða rannsóknar í nefnd,
forsenda hennar er augljós. Hér
sem svo oft áður gilda orð skálds-
ins: „Vilji er allt sem þarf.“
Aöeins
25%
útborgun
Tilboð
Aöeins
25%
útborgun
í febrúarmánuði bjóöum við hagstæö greiðslukjör á Electrolux eldavélum. Útborgun
aöeins % og eftirstöðvar lánaöar í 5 til 8 mánuöi.
ADAST
DOMINANT
714
414
!Getum útvegaö á hagstæöu
veröi beint frá verksmiöju
Offset, prentvél af geröinni
DOMINANT 714.
Vélin tekur pappírsstærö
485x660 mm.
Veröum meö á næstunni í
sýningarsal okkar offset-
prentvél af geröinni DOMIN-
ANT 414 meö númeringu og
ritföngum max. pappírsstærö
27,0x37,0 cm. min. 11.0x14,8
cm. Kynniö ykkur verð og
greiösluskitmála.