Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 26
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981
ínsœldarlistar
ISLAND
Stórar plötur
1. 1 — DOUBLE FANTASY ... .John Lennon/Yoko Ono
2. — PARADiSE THEATER.....................Styx
3. 2 MAKING MOVIES ................Dire Straits
4. — BEATLES BALLADS ..................Beatles
5. 4 GEISLAVIRKIR................Utangarösmenn
6. — THE RIVER................Bruce Springsteen
7. — SHAVED FISH...................John Lennon
8. 9 SCARY MONSTERS................David Bowie
9. 3 SANDINISTA........................ Clash
10. — RICHARD CLAYDERMAN
Lítill innflutningur hefur haft þau áhrif aö ýmsar plötur sem hafa veriö
mun neöar a listanum færast nú upp og aðrar plötur færast upp og niöur
listann eftir því hversu vel þeim er dreift í búöir hverju sinni. í síöustu viku
kom nýjasta plata Styx ein fárra í búöir, en skömmu síöar kom nýjasta
platan frá Toto og safnplatan Axe Attack, sem báöar hafa möguleika á
aö vera á næsta lista ef ekki koma aðrar nýjar plötur. John Lennon er
greinilega virtur fyrir sína tónlist, þar sem plötur hans ganga aö öllu jöfnu
nokkuö jafn vel þó aöeins séu tvær af hans plötum á þessum lista.
BRETLAND
Stórar plötur
1. 3 KINGS OF THE WILD FRONTIER .Adam & The Ants
2. 2 DOUBLE FANTASY ....John Lennon /Yoko Ono
3. 5 THE VERY BEST OF DAVID BOWIE . .David Bowie
4. 4 GREATEST HITS...................Dr. Hook
5. 1 SUPER TROUPER.....................Abba
6. 6 GUILTY ....«,............Barbra Streisand
7. — IMAGINE.......................John Lennon
8. 9 MANILOW MAGIC ..............Barry Manilow
9. — MONDO BONGO ...............Boomtown Rats
10. — PARADISE THEATER.......................Styx
Litlar plötur
1. 1 IMAGINE......................John Lennon
2. 2 ANTMUSIC.................Adam & The Ants
3. — WOMAN........................John Lennon
4. — IN THE AIR TONIGHT ...........Phil Collins
5. 4 DO NOTHING.................. ... .Specials
6. — I AM THE BEAT ..........................Look
7. 7 TOO NICE TO TALK TO.....................Beat
8. — DON’T STOP THE MUSIC .. .Yarbrough & Peoples
9. 3 HAPPY CHRISTMAS..............John Lennon
10. 10 FLASH ...............................Queen
BANDARIKIN
Stórar plötur
1. 1 DOUBLE FANTASY......John Lennon/Yoko Ono
2. 2 CRIME OF PASSION ............Pat Benatar
3. 3 GREATEST HITS............. .Kenny Rogers
4. 4 HOTTER THAN JULY...........Stevie Wonder
5. 5 THE JAZZ SINGER............Neil Diamond
6. 6 BACK IN BLACK .. ..:............AC/DC
7. 7 ZENYATTA MONDATTa...............Police
8. 8 GUILTY.................... .Barbra Streisand
9. 9 GAUCHO ......................Steely Dan
10. 10 AUTOAMERICAN.................Blondie
Litlar plötur
1. 3THETIDE IS HIGH ................Blondie
2. 1 STARTING OVER ...............John Lennon
3. — CELEBRATION...........Kool And The Gang
4. 8 I LOVE A RAINY NIGHT.......Eddie Rabbitt
5. 6 EVERY WOMAN IN THE WORLD.....Air Supply
6. 7 PASSION .....................Rod Stewart
7. 2 LOVE ON THE ROCK...........Neil Diamond
8. — 9 TO 5.......................Dolly Parton
9. 9 ITS MY TURN..................Diana Ross
10. — I MADE IT THROUGH THE RAIN .. .Barry Manilow
ROCKPILE:
Seconds oí Pleasure
„Seconds of Pleasure- er
sannkölluð skemmti-rokk-plata.
Þessir náungar vita fullkomlega
hvernig á að spila rokk.
Þó platan sé fyrsta plata Rock-
pile má geta þess að þessi hópur er
búinn að gefa út minnst tvær
Dave Edmunds-plötur og tvær
Nick Lowe-plötur á undanförnum
tveim árum og léku líka undir á
plötu frá Carlene Carter sem kom
út nýlega, en hún er eiginkona
Nick Lowe.
Þeir félagar fylgja fullkomlega
góðri en að mestu útdauðri rokk-
stefnu, nefnilega hinu svokallaða
„pub-rokki“. Dave byrjaði reyndar
fyrir langa löngu og fyrsta vin-
sæla lagið sem hann gerði var
„Sabre Dance" á meðan hann lék
með Love Sculpture, en Lowe var
hins vegar í Brinsley Schwarz,
sem síðan varð að Rumour að
nokkru leyti.
Tilgangur hljómsveitarinnar er
einfaldur: hann er að gera hressa
og skemmtilega hluti, einfalda,
jafnvel barnalega, eins og rokkið
var í upphafi. Dave Edmunds er
einn af allra bestu gítarleikurum
Breta, þó hann hafi ekki oft verið
nefndur í þeirra hópi þar sem
hann hefur gefið sér drjúgan tíma
í að ná hæfileikum annarra í stað
þess að sitja úti í horni og reyna
að finna nýjan gítarstíl. Gítar-
hljómur hans er þó nú orðið
orðinn nokkuð sérstakur og má
Fyrsta
plata
þeirra
á þriggja
ára ferli!
líkja honum við kappa eins og
James Burton, Scotty Moore og
Albert Lee. Dave hefur líka sér-
stæða rödd sem hefur fleytt hon-
um upp vinsældalistana nokkrum
sinnum með lög eins og „I Hear
You Knocking“ og „Girls Talk“.
Nick Lowe er aðallagasmiðurinn.
Hann á það til að semja jafn
sérstakar og sætar melódíur og
Neil Sedaka og Carole King sömdú
í gamla daga. Hann og Dave eru
líka miklir aðdáendur country-
rokkara eins og Everly Brothers,
en áhrifa þeirra hefur lengi gætt í
tónlist þeirra. Reyndar átti að
fylgja EP-plata með þessari plötu,
þar sem Dave .og Nick sungu
fjögur Everly Brothers-lög við
undirleik 2ja kassagítara, en þar
sem platan var pöntuð allt of
seint, kom sú útgáfa ekki hingað
til lands.
Terry Williams var trommu-
leikari í velsku sýrugrúppunni
Man áður en hann gekk í þessa
margrómuðu „búsgrúppu". Willi-
ams er einn af þéttari trommurum
sem komist hafa á plast og mættu
margir af yngri trommurunum
hérna taka hann sér til fyrir-
myndar áður en þeir festast í
einhverjum óþægilegum stílum.
Billy Bremner, er annar gítarleik-
arinn og þriðji söngvarinn í
hljómsveitinni. Rödd hans minnir
einna helst á Cliff Richard þegar
honum tekst best upp.
Unun er að hlýða á mörg lag
plötunnar vegna einfaldleika,
léttleika og fágunar, má þar nefna
bæði lögin sem valin hafa verið
hingað til á litlar plötur, „Wrong
Way“ og „Teacher Teacher“, lög
Lowes „Now And Always“,
„Heart" sem Bremner syngur, og
„When I Write The Book“, og lag
Joe Tex „If Sugar Was As Sweet
As You“ svo nokkur dæmi séu
nefnd.
Það voru svona lög sem fengu
fólk til þess að dansa fyrir nokkr-
um árum og eru að byrja að gera á
ný. Hreinræktað, einfalt og gott
ROKK.
hia.
Mannabreytingar í Þey:
Tveir af meðlimum hljóm-
sveitarinnar Þeyr hættu um
áramótin af „persónulegum
ástæðum“. Það voru þau Elin
Reynisdóttir, sem söng með
þeim og Jóhannes Helgason,
gitarleikari.
í stað Jóhannesar er kominn
Þorstein Magnússon, sem var vel
þekktur fyrir nokkrum árum sem
gítarleikari Eikarinnar sálugu.
Þorsteinn hefur undanfarið leik-
ið með hljómsveit Rúnars Júlí-
ussonar, Geimsteini.
Þegar Guðlaugur Óskarsson
gekk í hljómsveitina fyrir um
það bil tveim mánuðum stóð
Þorsteini staðan opin, en þá
virtist hann ekki hafa verið nógu
snðggur að ákveða sig.
Þorsteinn leikur þó í nokkrum
laganna á plötu þeirra, „Þagað í
hel“.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á lögunum í kjölfar breyt-
inganna, og ný lög eru á efnis-
skránni, sem Þeyr fluttu á fyrstu
tónleikunum eftir breytinguna, á
miðvikudaginn var (28. jan.) í
Súlnasal Hótel Sögu.
Eftir þessa tónleika fara þeir í
skólana og leika á hljómleikum
þar fram eftir vetri.
hia