Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981 44 Asta Faaberg, deildarstjóri i vixladeild. íyrir miAju með samstarfs- menn sína á báðar hendur. Asta hóf störf hjá Verzlunarsparisjóðnum í júnímánuði 1958. Bára Guðmannsdóttlr og starfsfólk hennar i innheimtudeild. Bára hefur unnið óslitið hjá Verzlunarbankanum frá stofnun hans 1961. Verzlunarbanki íslands 25 ára: „Ég hefði ekki viljað missa af þessu starfi“ Björgúlfur Bachmann er aðal- gjaldkeri Verzlunarbanka ís- íands, og hefur gegnt þeirri stöðu frá upphafi. Hann er ný- lega fimmtugur, sonur önnu Böðvarsdóttur og Eggerts Bach- manns, bókara i Landsbanka Íslands, og fæddur Reykvíking- ur. Hann héit ungur utan til að kynna sér hankamál og læra enska tungu, en sneri heim eftir 2ja ára dvöl og hóf þá störf bókara hjá Landsbanka íslands 1952. Þar var hann svo gjaldkeri til ársins 1956, þegar hann var ráðinn gjaldkeri að nýstofnuðum Verzlunarsparisjóði 1. september 1956. — Það eru minnisstæð ár, þeg- ar ég byrjaði í Verzlunarspari- sjóðnum, segir Björgúlfur.— Við vorum þarna að ýta nýju fleyi úr vör, og þau voru mörg málin sem þurfti að leysa. Þá vorum við einungis þrír, en það var ekki lengi. Sparisjóðurinn tók strax svo vel við sér. Þetta voru skemmtileg ár og margar minn- ingarnar: Það var allt svo náið í þá daga. Hver gekk í það sem þurfti að gera, og starfið var ólíkt fjölbreytilegra, heldur en það er í dag. En erfitt var það á stundum. Jú, tæknivæðingin hefur verið mikil, en samt erum við íslend- ingar nú aftarlega á merinni í þeim efnum, miðað við það sem gerist útí hinum stóra heimi. Við hljótum líka alltaf að vera það. — segir Björgúlf- ur Bachmann, aðalgjaldkeri Verzlunar- bankans frá upphafi Björgúlfur Bachmann Fámenn þjóð stendur ekki undir allri þeirri vélvæðingu, sem á sér stað hjá stórþjóðum á ýmsum sviðum, og svo er t.d. um tækni- hlið bankaviðskipta. Við höfum sem sé ekki fjárhagslegt bolmagn til að fara útí það, sem kannski þyrfti og heldur ekki frelsi. Hér á landi er allt rígbundið í reglugerð- ir og lagaákvæði. Við í Verzlunarbankanum tók- um fyrstir banka upp tölvu- vinnslu árið 1965. Sú vélvæðing gerði okkur kleift að fella niður t.d. innlánsdeildirnar sem slíkar og tókum við upp beina gjaldkera- afgreiðslu. Sá háttur tíðkast í Bandaríkjunum, þar sem banka- viðskipti ganga hvað greiðlegast og nútímalegast fyrir sig. Þetta fyrirkomulag er til mikils hag- ræðis fyrir bankann, auk þess sem það gerir starf gjaldkerans ólíkt fjölbreyttara heldur en það var. Og það eiga ekki að sjást oft biðraðir í Verzlunarbankanum, því það er margsannað mál að þetta fyrirkomulag flýtir mjög fyrir afgreiðslu. Það er illskiljan- leg íhaldssemi sumra íslenskra banka að hafa ekki tekið þennan háttinn upp fyrir löngu síðan. Það er mér skylt, þegar ég minnist liðins tíma, að þakka mörgum samstarfsmönnum gegn- um árin. Ég hef kynnst fjölda ágætra manna, og hér ganga góðir kúnnar um gólf. Hér hefur oft verið fjörugt, enda góður hópur- inn. Þessi 25 ár, uppbyggingar og mikils árangurs, hafa verið mér ánægjuleg, og ég hefði ekki viljað missa af þessu starfi. Enginn víxill — en þú getur fengið vinnu! Spjall við Kristján Oddsson, bankastjóra — Ég er fæddur i Reykjavík 1. september 1927, segir Kristján Oddsson, bankastjóri. Foreidrar mínir voru Oddur Björnsson, stýrimaður, ættaður af Akranesi og Sigriður Halldórsdóttir. Ég lauk prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1947 og hóf þá læknanám við Háskóla Islands. Þar hætti ég síðan eftir tvo vetur, enda kominn með fjölskyldu, konu og barn. Þá voru engin námslánin. Ég réðst til ísafoldarprentsmiðju hf. og vann fyrst á bókaforlaginu, siðan á skrifstofunni, þar til ég varð verslunarstjóri i bókaversluninni. Þar var ég til ársins 1958 að mér sinnaðist við yfirboðarana og sagði upp. Eftir það var ég rúmt ár hjá Innkaupasambandi bóksala. Eg var sem sé milli vita, þegar ég gekk á fund Höskuldar Olafs- sonar í Verzlunarbankanum vorið 1960, að slá mér víxil. Við vorum skólabræður við Höskuldur. Ég fékk ekki víxilinn, en Höskuldur sagði mér aftur á móti að það vantaði mann í víxladeild bank- ans, og sló ég til eftir nokkra umhugsun. Byrjaði ég að vinna í Verzlunarsparisjóðnum 15da apríl 1960, og hef verið hér síðan og gengið i flest störfin á þessum bæ. Á miðju ári 1962 var ég farinn að gegna fyrir Höskuld í forföll- um hans og um haustið sama ár var ég ráðinn skrifstofustjóri bankans. Aðstoðarbankastjóri varð ég síðan 1966 og bankastjóri 1973. Verzlunarbankinn er eins og aðrir bankar almennur viðskipta- banki, og hlutverk hans er hið venjulega hlutverk banka, að taka við sparifé viðskiptamanna og veita því síðan útí atvinnulifið, og einn af aðalþáttum atvinnulífsins er auðvitað verslun og viðskipti. Oft hefur manni sviðið gegnum árin, hvernig farið hefur verið með sparifjáreigendur í landinu. Aukin verðbólga þýðir meiri láns- fjárþörf til atvinnuveganna; frumskilyrði er að þeir haldist gangandi, og þar sem sparifé streymir ekki sem skyldi inn í bankakerfið, þýðir hin aukna lánsfjárþörf atvinnuveganna, minni getu til annarra útlána. Það er fyrst núna, sem það er að verða á þessu breyting með raunhæfari vaxtastefnu stjórn- valda: Á sl. ári jukust innlán að meðaltali um 67% og aðallega vegna hárra vaxta. Stjórnvöld eru nú loksins að fást til að sveigja inná raunvaxtastefnuna. Mér líður vel í bankastjórasæt- inu. Það er reglulega gaman að geta hjálpað uppá sakirnar, veitt mönnum eðlilega fyrirgreiðslu. Við höldum okkur að mestu við þá reglu, að reyna að greiða fyrir viðskiptamönnum bankans. Verzlunarbanki íslands er fyrst og fremst banki viðskiptamanna sinna og það er ánægjulegt að geta stundum hjálpað góðu fólki í erfiðleikum þess. En mesta ánægjan væri auðvit- að sú, að menn gætu ávaxtað fé sitt eðlilega í bönkum og spari- sjóðum, og þyrftu ekki að vera eins og útspýtt hundskinn að leita uppi eitt eða annað til að festa i sparifé sitt, svo það gufi ekki upp í verðbólgunni. Raunvaxtastefnan er nauðsynleg, svo sparifjármynd- un geti verið með eðlilegum hætti í landinu. Öll starfsaðstaða hefur ger- breyst frá því ég hóf störf í bankanum. Þá var allt saman handfært og reiknað á einfaldar reiknivélar. Það var mikið verk að gera upp alla vaxtareikninga í lok ársins í þann tíma. Verzlunar- • bankinn hefur alltaf verið í farar- broddi með nýjungar í tækjabún- aði og fyrstir manna hérlendis tókum við upp skýrslugerðarvélar í bókhaldið. Síðan hefur þróunin orðið sú, að nú erum við með öll okkar verkefni tölvuunnin, og sjáum á tölvuskjám að morgni öll viðskipti gærdagsins. Við eigum orðið okkar eigin tölvu, sem sér um mörg okkar verkefni, en svo erum við í samvinnu við aðra banka í Reiknistofu bankanna, með verðtryggðu reikningana, veltureikninga og ávísanareikn- inga. Það er þess vegna geysilegur munur að vinna bankastörf í dag, eða var. Umfram allt er öryggið meira. Færslufjöldinn er nú orð- inn svo mikill, að það verður ekki aftur snúið í tölvuvæðingunni. Það má segja að við séum þegar orðnir þrælar tölvunnar — ég hugsa ekki þá hugsun til enda, hvernig allt væru nú án tölvunn- ar. Samt eru Islendingar auðvitað eftirbátar annarra þjóða í þessari tækni: Við erum rétt að byrja í tölvuvæðingunni. Ég held að bankakerfið þróist svo í framtíðinni, að stórum afgreiðslueiningum fækki mikið, en minni einingum fjölgi að sama skapi vitt og breitt um borgina og landið: Margir staðir, fátt fólk og fullkominn tækjabúnaður. Þannig held ég að þróunin verði. Og þá er nú okkar að reyna að varðveita mannlega þáttinn í starfinu. En við í Verzlunarbankanum höfum orðið útundan í sambandi við úthlutun útibúa og er það mjög miður. Mér finnst líka í hæsta máta óeðlilegt, að bankinn hafi ekki leyfi til kaupa og sölu erlends gjaldeyris. Ég aðhyllist frjálsræði í þessum efnum, og hef þá trú að bankarnir geti valdið frjálsræðinu. Á þessum tímamótum í starfi bankans, á ég þá von besta að hagur landsmanna verði svo góð- ur, að þeir geti lagt fyrir sparifé og leggi það i banka, sem síðan gæta þess að verja því með skynsamlegum hætti til atvinnu- veganna og einstaklinga. Það tel ég Verzlunarbankann hafa gert og ég er viss um, að hann heldur áfram að dafna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.