Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.02.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981 53 helgina, mann sem býr í sömu götu. Þar varð hún að gefa upp sína aukavinnu og annað sem hún vildi halda fyrir sig. Við vorum aðeins þrjár nánar vinkonur hennar sem vissum um þetta, af því að við höfðum spurt hana beint, hvernig þau hefðu eiginlega efni á því að fara í siglingu á hverju ári. Vin- konur geta spurt hver aðra svona spurninga. Lagði ekki í að skila minni skýrslu sjálf Eins og ég sagði áðan glotti ég að því fjaðrafoki sem varð út af þessum spurningalistum, mér fannst ekkert athugavert við spurningarnar. En það er fram- kvæmdin sem ég er að gagnrýna. Þegar ég vissi að það var nágranni minn sem átti að koma til mín og heimta skýrsluna, þá hringdi ég niður á Hagstofu og benti þeim á / hvað þetta væri nú fráleitt og spurði hvort ekki væri hægt að kippa þessu í liðinn, það væri ekki svo mikið fyrirtæki að víxla teljur- um á milli hverfa. Ekki lagði ég í að taka það ráð að skila minni skýrslu sjálf á Hagstofuna, þó að sá möguleiki kæmi mér í hug. Það hefði getað orðið til þess að ná- granninn hefði orðið sár eða jafn- vel reiður. Hann hefur haft það orð á sér að vera erfiður í sambýli, þótt við höfum aldrei haft neitt af því að segja. Það hefði þó getað breyst, hefði hann fundið inn á að sér væri vantreyst. Ég tók því þann kostinn að taka vel á móti honum og reyna að bera mig vel, í von um að þetta færi ekki lengra. Á þessu er hægt að sjá, að það er ekki af ánægju með könnunina sem fólk hefur tekið teljurunum vel, heldur af almennri kurteisi meðal annars og skilningi á því að þeir réðu engu um framkvæmdina. I framkvæmdinni hefur hins vegar illa láðst að taka tillit til þeirra sem ekki falla inn í hið hefðbundna fjölskylduform." Svar við fyrirspurn Onnu G. Kristjánsdótt- ur í Velvakanda í gær Guðni Baldursson, deildarstjóri á Hagstofu fslands skrifar: í manntalinu nú var dregið úr upplýsingabyrði almennings, frá því sem ella hefði verið, með því að fella niður nokkur atriði, sem fullnægj- andi upplýsingar eru fyrir hendi um í Þjóðskrá. Þar á meðal er hjúskap- arstétt. Hún verður sótt í þjóðskrá og notuð í úrvinnslu manntalsins, og hún kemur fram í niðurstöðum eins og um hana hefði verið spurt á manntalseyðublaðinu. Eins og komið hefur fram í kynningu og leiðbeiningum, er til- gangur 3. liðs á einstaklingsskýrsl- unni ekki sá, að upplýsa hjúskap- arstétt hlutaðeigandi, heldur á með svörum við 2. og 3. lið að afla heimilda um lengd hjónabands og um óvígða sambúð, bæði þá sem nú stendur og einnig óvígða sambúð sem var undanfari núverandi hjóna- bands. Spurningum um upphafsár sambúðar og hjónabands er einung- is beint til þeirra sem eru í sambúð manntalsdaginn, og þær eiga við þá sambúð eina. Tilgangur 4. liðs er alls óskyldur efni 2. og 3. liðs. Hann er sá, að fá fram hvaða munur er á barnatölu kvenna á ýmsum aldri, t.d. fertugra, sextugra og áttræðra kvenna, og hver meðaltala barnanna er. I því sambandi skiptir engu máli hvort börnin fæddust í hjónabandi eða ekki. Við undirbúning manntalsins var í hverju atriði reynt að taka tillit til tilfinninga og mannlegra viðbragða þeirra sem svara. í 4. lið er t.d. spurt hve mörg lifandi fædd börn kona hafi eignast, ekki hve mörg lifandi fædd börn hún hafi alið. Þetta er gert til þess að gefa konum, sem höfðu gefið eða fengið kjörbörn, kost á að svara spurningunni á þann hátt sem þær gætu hver og ein fellt sig við. — Einnig var hugað að því, hvort kona skyldi tilgreina hjúskap- arstétt sína í 4. lið, t.d. vegna þess að ekkjum kynni að falla miður að það kæmi ekki skýrt fram, að börn þeirra væru fædd í hjónabandi. En þarna þóttu vega þyngra tilfinn- ingar þeirra kvenna, sem þætti miður að þurfa að taka beinlínis fram, að börn þeirra væru ekki fædd í hjónabandi. — Eins og einstakl- ingsskýrslan er úr garði gerð, er ekki nokkur ástæða til að álykta eitt eða neitt um það, hvort börn voru fædd í hjónabandi eða ekki, enda má það, sem fyrr segir, einu gilda fyrir úrvinnslu manntalsins. Þessir hringdu Svar póst- og símamála- stjóra við fyrirspurn „Útaf fyrirspurn í „Velvakanda" sunnudaginn 1. febrúar 1981, um nánari upplýsingar um tímamæl- ingu innanbæjarsímtala skal upp- lýst að samkvæmt skýrslu, sem ÞessirhrinSdi^T þýska stórfyrirtækið SIEMENS hefur gefið út, eru talin 15 lönd, sem höfðu slíkt kerfi 1. janúar 1979: Argentína, Austurríki, Braz- ilía, Colombía, Danmörk, E1 Salvador, Guatemala, Ungverja- land, Japan, Nicaraqua, Noregur, Senegal, Spánn, Sviss og Stóra- Bretland og í fyrra var hliðstætt kerfi tekið upp í Vestur-Þýska- landi." Passíusálm- ana fyrr Kona hringdi og bað Vel- vakanda að koma þeirri beiðni á framfæri við Ríkis- útvarpið frá níræðri konu, sem ekki vildi missa af Pass- íusálmalestri, að hann yrði færður fram í dagskránni og hafður ekki seinna en um níuleytið. Gamla fólkið er farið að sofa á þeim tíma sem valinn hefur verið fyrir þenn- an árvissa dagskrárlið og getur ekki beðið eftir honum. Gamla konan óskar eftir að fá sinn Passíusálma-lestur ekki seinna en klukkan níu. Henni leiðist að geta ekki hlustað, hún hefur alltaf gert það, en treystir sér nú ekki lengur að bíða svona lengi fram eftir kvöldinu. Tillitsleysi af Gjaldheimtunni B.G. hringdi og furðaði sig á því, að fólk skyldi hafa verið að býsnast yfir mann- talinu. — En það er annað sem mig langar að færa í orð og snertir opinbera stofnun ekki síður en manntalið. Mér finnst það vítavert tillits- leysi, og jafnvel ruddaskapur, af hálfu Gjaldheimtunnar, sem gerir ríkar kröfur til okkar borgaranna, að gjald- heimtuseðlunum gjörsamlega umbúðalausum í hús. Mér finnst það ætti ekki að vera til of mikils mælst að þessi stofnun slægi utan um seðl- ana umslagi eða a.m.k. hefti þá saman, þar sem þeir hafa að geyma persónulegar upp- lýsingar sem hver og einn vill hafa fyrir sig, miklu persónu- legri upplýsingar en nokkurn tímann var farið fram á í manntalinu. í fjölbýlishúsinu þar sem ég bý mátti sjá þessa seðla liggjandi í einni hrúgu á gólfinu í anddyrinu, af því að póstkassar eru ekki komnir upp — til reiðu hverjum sem vildi hnýsast í einkahagi sambýlisfólksins. Mér finnst svona framkoma af hálfu opinberrar stofnunar hrein móðgun við okkur borgarana. SIGGA V/öGA £ AlLVERAU Skíðaferðir Til Lech og Kitzbúhel í Austurríki Lech 7. febr. Uppselt Kitzbuhel 7. febr. 2 vikur Örfá sæti laus Lech 14. febr. Uppselt Kitzbuhel 21. febr. 2 vikur Laus sæti Lech 28. febr. 2 vikur Laus sæti Verð frá kr. 6.100. Inniff. flug, flugv.skattur, akstur til og frá flugvelli á hótel og gist- ing meó morgunverói. Feröaskrifstofan OTSÝN Austurstræti 17, símar 26611 og 20100. I ■ ■ ■ » I «1 Framleiðum tvær stærðir af sumarhúsum 38 fm og 50 fm og afhendum þau á ýmsum byggingarstigum eftir óskum kaupenda. Gangiö frá pöntunum tímanlega fyrir voriö. Rangá h/f, Hellu, s. 99-5859. ara í tilefni 5 ára afmælis verzlunarinnar bjóðum við 15% afmælisafslátt á Guerlain ilmvötnum í dag Fyrirspurn til Póst- og síma- málastjóra Jón öicmundur Þorm.lÖK- rSvðfír!BÖÍTr hri"Kdi^K baö Velvakanda að koma eftir? fa.rancd'. spurnín(?u á framfæri hlfr 'xOl' 08 8lmaiTl4l»stjóra í l«nd?b?r*T nVaða Fvrópu- Kanada "f BaníiariÚanna. M do ’,,Japans’ Astralfu oe Nyja Sjálands, er greitt {yrír ^r*nT''lnanb«jarsfmtðl eft- £o W/V®Itf W&, $ W m AV /to&Elfa QLÁ- weim vfoKrwóstf 'W eitt/w fóKí vmm mv- MtóA YKfíWft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.