Morgunblaðið - 11.02.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1981
19
Birgir ísl. Gunnarsson
ríkisvaldsins (niðurtalningar-
gjald).
Ef þetta frumvarp verður sam-
þykkt, sagði Birgir, myndi ríkis-
Réttara að hverfa
frá prósentuálagn-
ingu verðskatta
yfir í fasta krónu-
tölu á hvem lítra
sjóður geta haldið sínum tekjum í
hlutfalli við verðlagsþróun hér
innanlands, en fengi ekki sérstakar
aukatekjur út á verðhækkanir er-
lendis. Það er algjör lágmarkskrafa
almennings í landinu.
Nýja bíó
frumsýnir
Brubaker
1 DAG frumsýnir Nýja bió nýja
handariska mynd, Brubaker, með
Robert Redford, Yaphet Kotto og
Jane Alexander í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Stuart Rosenberg.
Myndin fjallar um nýráðinn
fangelsisstjóra, sem tekur við emb-
ætti á nokkuð sérstæðan hátt og
vill koma ýmsum umbótum á í
málefnum fangelsisins. En þótt
honum sé umhugað um að bæta hag
fanganna, snúast þeir á móti hon-
um, svo og yfirboðarar hans og
ýmsir áhrifamenn aðrir. Og loks
dregur til hörkuuppgjörs milli hans
og andstæðinganna. Myndin er
byggð á sönnum viðburðum.
Leiðrétting
RANGUR texti var settur undir
mynd af danspari í Rokk-keppni
Hollywood og Karnabæjar, er birt-
ist sl. þriðjudag. Þar stóð að
myndin væri af Bryndísi Braga-
dóttur og Walter Sker og hefðu þau
fengið þriðju verðlaun. Hið rétta er
að þau hlutu önnur verðlaun, eins
og reyndar stendur í meðfylgjandi
frétt. Umrædd mynd er hins vegar
af Ingu Þorvaldsdóttur og Ola
Jóhanni Daníelssyni sem hlutu
þriðju verðlaun í keppninni. Biðst
Morgunblaðið afsökunar á þessum
mistökum.
Skíðalyfta
- leiðrétting
í FRÁSÖGN af hverfafundi borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
Árbæjarhverfi í gær, var rangt
farið með staðsetningu á skíðalyftu
í borginni. Þar var Páll Gíslason
ranglega sagður hafa sagt að lyfta
væri komin í Ártúnsbrekku. Hið
rétta er hins vegar að Páll sagði að
lyfta væri komin í Breiðholts-
hverfi, og vel kæmi til greina að
setja einnig lyftu í Ártúnsbrekku.
Er Páll hér með beðinn afsökunar á
ranghermi þessu.
I I I I I I I
BVERDmUNAl
KEPPNI
ÚTVEGSBANKANS
I I
I i I
I I I • I l l I
I I I I I I i I l •
Hvaóa strætó?
Útvegsbankinn efnir til verðlaunasamkeppni um hugmynd að
nýrri sjónvarpsauglýsingu sem fjalli um sparibauka bankans,
einn eða fleiri. Þeir baukar sem um ræðir eru:
Trölli, Trína, Jóakim frændi og Hippó flóöhestur.
Öllum er heimil þátttaka i samkeppninni.
Gamla svart-hvita sjónvarpsauglýsingin um Trölla og Trínu
vakti mikla athygli á sínum tíma. \ henni skýrði Trölli frá
því hvernig hann hefði safnað fyrir gítarnum:
„f kolli minum geymi ég gulliö,
sem grip ég höndum tveim.
Svo (æ ég vexti og vaxtavexti
og vexti líka af þeim.“
Hugmyndin núna gæti allt eins verið: Hvaða strætó
tók Trölli á leið sinni í Útvegsbankann og
hvernig gekk honum? Hvað bar við á leiðinni?
En hún getur lika fjallað um eitthvað allt annað. Nú er um að
gera að láta hugann reika.
Til mikils er að vinna, þvi verðlaunin eru> vegleg.
Fyrstu verðlaun eru
Önnur verðlaun eru
Þriðju verðlaun eru
kr. 2.000.
kr. 1.000.
kr. 500.
Þyki einhver hugmyndin nógu góð, þá verðurhún notuð og gerð
sjónvarpsauglýsing eftir henni.
Fyrir það fær höfundurinn kr. 1.000.- að verklaunum.
Dómnefnd skipa eftirtaldir: Reynir Jónasson,
aðstoöarbankastjóri og er hann formaóur
nefndarinnar. Bjarni Grimsson, auglýsinga-
maður, éryndis Schram, dagskrárgerðarmaður,
Jón Þór Hannesson, kvikmyndagerðarmaður
og Katla Maria, söngvari.
Ritari dómnefndar og um leið trúnaðarmaður
keppenda er Sigurður Sigurgeirsson deildar-
stjóri sparisjóðsdeildar aðalbankans.
Hugmyndum skal komið i einhverja afgreiðslu
Útvegsbankans fyrir 31. marz n.k. Lýsa skal
hugmynd i rituðu máli, bæði atburðarás mynd-
efnis og texta, sem og tónlist og leikhljóðum ef
einhver eru. Lýsinguna má gjarnan myndskreyta,
en það er ekki skilyrði.
Hugmynd skal skila i lokuðu umslagi merktu:
Útvegsbanki fslands
Verðlaunasamkeppni.
Hugmyndina sjálfa skal merkja einhverju
dulnefni, en í umslaginu á aö vera annað umslag
lokað, merkt sama dulnefni og í þvi á aö vera
hiö rétta nafn þátttakanda, heimilisfang hans og
símanúmer.
í Útvegsbankanum verður ekki gáö aö réttu nafni
annarra en verðlaunahafanna. Allir aðrir geta
sótt þangað tillögur sinar, aö lokinni keppni, án
þess að gefa upp annað nafn en dulnefnið.
Ekkert er þvitil fyrirstöðu að fjölskyldasameinist
um hugmyndargerðina. Vinna að þessu verkefni
stuölar að ihugun um sparnað yfirleitt og hefur
þvi góð uppeldisáhrif. Hlutverk sparibauks er
einmitt fyrst og fremst það að venja börn á að
stunda sparnað og gera þeim gildi hans sem
Ijósast.
Það er ósk okkar að sem flestirhafi mikla ánægju
og gagn af þátttöku í þessari samkeppni.
í tilefni samkeppninnar verður myndin umTrölla sparibauk sýnd í
fyrri auglýsingatíma sjónvarpsins á föstudögum meðan keppnin stendur.
Verðlaunasamkeppní Útvegsbanka íslands
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
tP
Þl Al’GLYSIR I M AI.LT LAND ÞEliAR
Þl Al'GLÝSIR I MORGl'NBLADINl