Morgunblaðið - 11.02.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1981
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnæöi :
í boöi i
Njarövík
Til sölu 3ja herb. íbúö viö
Hjallaveg í ágætu ástandi.
166 ferm einbýlishús í mjög
góöu ástandí, skipti á ibúö í
Reykjavík koma til greina.
Eignamiölun Suöurnesja. Hafn-
argötu 57, sími 3868.
40 ferm verslunar-
húsnœöi
til leigu f verslunarmiöstöö f
Austurborginni. Væri heppilegt
fyrir rakara. Uppl. í síma 39522
eöa 34129.
Keflavík
Til sölu m.a. góö efri hæö ásamt
2 íbúöarherb., frystlklefa og fl. í
kjallara. Stór bílskúr. Góö eign.
4ra herb. hæö. Mjög stór bíl-
skúr. 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúöir
og elnbýlishús í Keflavík, Njarö-
vík, Garöi og Sandgeröi.
Eigna- og Veröbréfasalan,
Hrlngbraut 90, Keflavík,
sími 92-3222.
Innflytjendur
Get tekiö að mér aö leysa út
vörur. Tilboð merkt: „Vörur —
3333", sendist augld. Mbl.
Vanur starfskraftur
óskast f matvöruverslun, ekki
yngri en 20 ára. Tilboö sem
greini aldur og fyrri störf leggist
inn á augld. Mbl. fyrir 14. þ.m.
merkt: „Starfskraftur — 3475“.
' ýmislegt
Veröbréf
Fyrirgreiösluskrifstofan. Vestur-
götu 17, sími 16223.
O Hekjafell 598111027 — IV/V.
IOOF 7 = 16202117 = 1000.
f.B.h.e.f.
IOOF9 = 16202118’/! S 9.0
Hörgshlíö
Samkoma í kvöid kl. 8.
Aðalfundur Knatt-
spyrnudeildar Í.R.
veröur haldlnn mánudaginn 16.
febrúar kl. 21 í „Greninu" Arnar-
bakka 2. Venjuleg aöalfundar-
störf.
Stjórnin.
IOGT
Stúkan Veröandi nr. 9. Fundur í
kvöld, miövlkudag kl. 20:30.
Stúkan Andvari nr. 165 kemur (
heimsókn.
Æt.
Frá Sálar-
rannsóknarfélaginu
Hafnarfiröi
Fundur veröur miövikudaginn
11. feb. í Góötemplarahúsinu og
hefst kl. 20.30. Dagskrárefni
annast dr. Gunnlaugur Þóröar-
son og Elfa Björk Gunnarsdóttir
borgarbókavörður, þá veröur og
tónlist.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SlMAR 11798 og 19S33.
Feröafélag íslands heldur
myndakvöld aö Hótel Heklu,
Rauöarárstíg 18, miövikudaginn
11. febrúar, kl. 20.30 stundvís-
lega Magnús Kristinsson frá
Feröafélagi Akureyrar sýnir
myndir úr ferðum félagsins. Veit-
ingar seldar í hléi. Allir velkomnir
meöan húsrúm leyfir.
Feröfafélag íslands.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
ýmislegt
Laxveiðiá til leigu
Hallá í Vindhælishreppi A.-Hún., fæst leigö til
stangarveiöi á komandi sumri. Tilboð sendist
til veiöifélags Hallár fyrir 20. febr. nk. merkt:
„Aö Röðufelli, Skagaströnd".
Uppl. fyrst um sinn í síma 95-4649. Réttur
áskilinn til að taka hvaöa tilboði sem er.
Veiöifélag Hallár,
Elínborg Kristmundsdóttir.
Laxveiðimenn
Óskaö er eftir leigutilboöum í laxveiöiréttindi
í Bakkaá í Hrútafiröi. Tilboöum sé skilað fyrir
15. mars nk. til Björgvins Skúlasonar Ljót-
unnarstööum eða Þorsteins Elíssonar Laxár-
dal, sem veita upplýsingar. Sími um Brú.
Áskilinn réttur aö taka hvaöa tilboði sem er
eða hafna öllum.
Veiðifélag Bakkaár.
húsnæöi óskast
Geymsluhúsnæði
Óskað er aö taka á leigu ca. 200 ferm.
geymsluhúsnæði. Lítil umferö og hreinleg
verður um húsnæöiö.
Tilboð sendist afgreiöslu blaðsins fyrir 20.
febrúar nk. merkt: „Geymsluhúsnæöi —
3474.“
100 ferm.
iðnaðarhúsnæði
óskast á leigu fyrir léttan og þrifalegan iðnaö.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 15. febr. nk.
merkt: „Iðnaðarhúsnæði — 3191.“
húsnæöi í boöi
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Skrifstofuhúsnæði í Ármúla 40, 2. hæö, laust
nú þegar.
Uppl. á staðnum og í síma 34788 frá kl.
9—12.
Iðnaðarhúsnæði til leigu
450 ferm. iðnaðarhúsnæði til leigu á bezta
stað í Reykjavík.
Uppl. gefnar í síma 19433 og 82602.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
1*1 AIGLVSIR I M AI.LT I.AND ÞEGAR
Þl AIGLYSIR I MORGINBLAÐINL
Eggert Haukdal:
Iðnaður verði efld-
ur með opinber-
um innkaupum
Eggert Haukdal (S) mælti í
síðustu viku fyrir tillögu til þings-
ályktunar er hann flytur varðandi
innkaup opinberra aðila á íslensk-
um iðnaðarvörum. Tillaga Eggerts
er svohljóðandi: Alþingi ályktar
að fela ríkisstjórninni að beita sér
fyrir, í samstarfi við Samband
íslenskra sveitarfélaga, að fram
fari athugun á því eftir hvaða
leiðum sé unnt að auka verulega
frá því sem nú er innkaup ríkis,
sveitarfélaga og stofnana og fyrir-
tækja þeirra, er leiði til eflimrar
'.o.QrisRs íonaöar, og útboð verði
notuð á markvissan hátt til að
stuðla að iðn- og vöruþróun í
landinu.
í framsöguræðu Eggerts kom
fram, að samhljóða tillaga hefur
verið lögð fram af flutningsmanni
á tveimur þingum, án þess að hún
hafi hlotið endanlega afgreiðslu.
Undirtektir hafi þó verið jákvæð-
ar. Þar sem hér sé hins vegar um
mikið nauðsynjamál að ræða, sem
Alþingi þurfi að taka afstöðu til,
sé málið nú endurflutt.
Er tillagan var upphaflega flutt,
fylgdi henni greinargerð þar sem
meðal annars sagði svo:
Fyrir ári lauk skipulagðri kynn-
ingu og upplýsingastarfsemi um
íslenskan iðnað undir nafninu
„íslensk iðnkynning". Tilgangur
hennar var að efla sölu á íslensk-
um iðnaðarvörum, glæða almenn-
an skilning á mikilvægi iðnaðar-
ins, á þeirri miklu atvinnu, sem
hann veitir, gjaldeyrisöflun og
þeim gjaldeyrissparnaði, sem
hann hefur í för með sér. Frá því
að kynning þessi hófst hafa mál-
efni iðnaðarins verið mjög til
umræðu og skoðanakannanir, sem
fr«ITi iúru at hálfu aðstandenda
kynningar þessarar, þóttu leiða í
ljós, að innkaupavenjur almenn-
ings hefðu breyst íslenskum iðnaði
í hag.
Staðreynd er, að það er á
ýmsum öðrum sviðum, sem mögu-
ALÞINGI,
Eggert Haukdal
legt ætti að vera að hafa áhrif á
innkaup, er varða hag íslensks
iðnaðar. Umsvif fjármála ríkis og
sveitarfélaga eru mikil í þjóðar-
Kninn é . 1 1 , . - ,
mu.uu. rtUK pess sem utgjold
opinberra aðila hafa bein áhrif á
heildareftirspurn í þjóðarbú-
skapnum, getur markviss beiting
þeirra reynst mikilvægt tæki til
áhrifa á einstakar atvinnugreinar,
ekki síst á hagræna og tæknilega
framþróun islensks iðnaðar.
Jón Helgason alþingismaður:
Hannað verði tilrauna-
hús úr léttsteypu og
það byggt á þessu ári
Jón Helgason (F) hefur í sam-
einuðu Alþingi mælt fyrir þings-
ályktunartillögu er hann flytur
um aukna hagnýtingu innlendra
byggingarefna og hagkvæmni við
byggingarframkvæmdir. Þings-
ályktunartillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta nú þegar
hanna og síðan reisa á árinu 1981
tilraunahús úr léttsteypu. Mark-
miðið með því skai vera að hag-
nýta sem mest innlend hytruinDrar-
efni til byggingarframkvæmda og
nýta jafnframt þá bestu tækni
sem þekkist hjá öðrum þjóðum til
að lækka byggingarkostnað, stytta
byggingartíma og reisa vandaðar
byggingar, er henta sem best
íslenskum aðstæðum.
í greinargerð með tillögunni
segir svo meðal annars:
Að undirbúningi að hönnun
tilraunahúss þyrfti að standa
Húsnæðisstofnun ríkisins, rann-
sóknastofnanir og tæknifróðir að-
ilar undir forustu iðnaðarráðu-
neytis. Enda þótt hér þurfi að
vanda undirbúning verður að
vinna rösklega að því, svo að af
framkvæmdum geti orðið á næsta
ári. Slíkt hús, sem nyti viðurkenn-
ingar Húsnæðisstofnunar og ann-
arra opinberra aðila, er forsenda
Jón Helgason
þess, að húsbyggjendur leggi út í
slíkar byggingaraðferðir og fram-
leiðsla hefjist hér innanlands á
byggingareiningum í þessu skyni,
en hvort tveggja verður að vera
fyrir hendi til þess að þessi
byggingaraðferð ryðji sér til
rúms.
En takist hér vel til um fram-
kvæmdir ætti þetta að geta mark-
að þáttaskil í íslenskri byggingar-
sögu, þar sem byggt yrði úr
innlendum byggingarefnum, sem
íslendingar ynnu að öllu leyti
sjálfir.