Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Loðnan orð- in hæf til hrognatöku LOÐNUSKIPIÐ Krossanes land- aði í fyrradax um 300 tonnum á Höfn í Hornafirði. 18—19% hrognafyliing var í loðnunni. en það þykir «ott hlutfall til hroKnatoku. Loðnan fékkst við HroIlauKseyjar. en hún næst nú aðeins að dejji til. í loðnunni, sem fékkst vestur af Reyðarfjarðar- dýpi fyrir skommu, var aðeins um 10% hroKnafyllintf. Ekki virt- ist sjómonnum mikið vera af loðnu á þessum slóðum. Mörg skipanna 28, sem leyfi hafa feng- ið til að veiða loðnu fyrir hrotfna- töku og frystinKu. eru tilhúin á veiðar ok nokkur þeirra eru löí?ð af stað. Ekkert hefur fundist af loðnu á vestursvæðinu, en þar hefur verið leyft að veiða án tillits til kvóta fram til 15. marz. Á mánudag tilkynnti Krossanes um 180 lestir og Jón Kjartansson um 200 lestir til Loðnunefndar og á þriðjudag var Krossanes með 300 lestir. Frá áramótum til síðustu mán- aðamóta hafði um 31 þúsund lestum af loðnu verið landað á Eskifirði, um 19 þúsund lestum á Neskaupstað, tæplega 10 þúsund lestum hjá Hafsíld á Seyðisfirði, 5.246 lestum hjá SR á Seyðisfirði og 6.680 lestum á Raufarhöfn. Talsverðu hafði einnig verið land- að á Bolungarvík, Krossanesi, Vestmannaeyjum og Vopnafirði, en sáralitlu hjá öðrum verksmiðj- Frimerkjamálið: Sleppt úr gæzlu- varðhaldi STARFSMAÐUR Seðlabankans, sem setið hefur í gæzluvarðhaldi síðan 23. febrúar vegna rannsókn- ar á hvarfi ýmissa verðmæta, aðallega gamalla frímerkja, var látinn laus í gær. Víðtæk rannsókn hefur farið fram í málinu og fjöldi manns verið yfirheyrður. Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Oliufélagsins hf.: Útsöluverð aðeins mið- að við birgðir í landinu „STYTZT af að segja. þá er þetta alger misskilningur hjá Kristjáni Ragnarssyni. l>að hefur aldrei verið ákveðið útsöluverð á olíu miðað við annað innkaupsverð. en það sem er á olíum. sem þegar eru komnar til landsins." sagði Vilhjálmur Jónsson. forstjóri Olíufélagsins hf.. í samtali við Mb!.. er hann var inntur álits á þeim ummælum Kristjáns Ragnarssonar. formanns LÍÚ. i Morgunblaðinu í gær. að oliufélögin væru með oliuverðshækkuninni nú að fá inn hækkun á væntanlegum svartoliuförmum frá Evrópu, þar sem Rússar gætu ekki afgreitt nauðsynlegt magn. „Sú hækkun, sem samþykkt var á útsöluverði í Verðlagsráði um dag- inn, er einungis byggð á hækkun innkaupsverðs. Otsöluverðið, sem þar var ákveðið á svartolíu, er miðað við þær birgðir sem eru nú þegar komnar til landsins. Hækka irnar stafa í fyrsta lagi af því, i það hafa orðið FOB-verðshækkán á olíu og í öðru lagi vegna þess í gengið hefur breytzt," sagði Vi hjálmur ennfremur. Frá hinum fjölmenna fundi lækna i Domus Medica i fyrrakvöld. Ljóemynd Mbl. Emllla. Útsending sjón- varps á sunnudög- um verður stytt ÁKVEÐIÐ hefur verið að stytta útsendingar sjónvarps á sunnu- dögum. þ.e. á tímanum milli kl. 16 og 18. Á þessum tíma standa eftir dagskrárliðirnir Helgistund og Stundin okkar, en aðrir dagskrárliðir, sem verið hafa á þessum tima. falla niður. Tekur breyting þessi gildi sunnudaginn 15. marz. Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri ríkisútvarpsins, tjáði Mbl. að hér væri aðeins stigið fyrsta skrefið varðandi sparnað, frekari aðgerðir væru á döfinni. Útvarps- Tillaga um nýtt prófessorsembætti við Háskólann: Yrði tengt nafni dr. Kristjáns Eldjárns HÁSKÓLARÁÐ mun i dag fjalla um tillögu heimspeki- deildar þess efnis að stofnað verði nýtt prófessorsembætti við Háskólann tengt nafni dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum forseta. Guðmundur Magnús- son háskólarektor sagði i sam- tali við Mbl. að búist væri við að tillagan fengi samþykki háskólaráðs. Tillaga heimspekideildar er um að samþykkt verði að stofna nýtt embætti er tengist nafni dr. Kristjáns Eldjárns og hann einn gegni. Yrði það rannsóknarstaða og myndu ekki fylgja því kvaðir um kennslu né stjórnunarstörf. ráð hefði átt viðræður við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og eftir að at- hugun hennar væri lokið á fjár- málum myndu verða teknar ákvarðanir. Hörður sagði að um leið og útvarpsráð tæki ákvarðan- ir um að draga saman seglin í dagskrárgerð, ynnu aðrir starfs- menn útvarpsins að því að spara á öðrum sviðum. Það kæmi að nokkru leyti af sjálfu sér að með minnkandi álagi starfsmanna við dagskrárgerð yrði minna um yfir- vinnu o.s.frv. I frétt frá útvarpsráði segir að nú blasi við annað tveggja varð- andi sjónvarpið: 1. Að lengja lokunartíma að sumrinu um viku, binda síðdegissjónvarp á sunnu- dögum við 3 mánuði í skammdeg- inu, stytta daglegan útsendingar- tíma um 30 mínútur fjóra daga vikunnar og stytta tímabil vetrar- dagskrár, sem er viðameiri en sumardagskrá, um hálfan annan mánuð. 2. Útsendingardagar sjón- varps verði aðeins fimm í viku í stað sex. Útvarpsráð telur afnotagjöld Ríkisútvarps óeðlilega lág og segir í frétt ráðsins að fjársveltistefna sú, sem stjórnvöld hafi lengi fylgt gagnvart þessari menningarstofn- un geri ríkisútvarpinu ókleift að rækja menningarhlutverk sitt. Landað úr skuttogaranum Rauðanúp i Reykjavik i gær. (Ljósm. Kristinn) Norðlenzkir togarar landa í Reykjavík SKUTTOGARINN Rauðinúpur ÞH 160 frá Raufarhöfn landaði í gær um 160 lestum hjá frystihúsi Isbjarnarins í Reykjavik. Uppi- staðan i aflanum var karfi, en skipið hefur undanfarið verið að veiðum fyrir suðvestan land. Ástæðurnar fyrir því, að Rauði- núpur landar i Reykjavik, en ekki á Raufarhöfn, eru aðallega tvær, þ.e. mikill oliukostnaður við að sigla norður með aflann. en sú sigling er talin kosta um 2 milljónir nýkr. eða um 200 millj- ónir gkróna. Þá mun vanta vélar á Raufarhöfn til að flaka karfa. Það er ekki aðeins Raufarhafn- artogarinn af togurum Norðlend- inga, sem landað hefur hjá ísbirn- inum undanfarið, en bæði Arnar HU frá Skagaströnd og Sigluvík SI frá Siglufirði hafa landað hjá ísbirninum, en togararnir hafa flestir verið á „skrapi" undanfarið. Hörður Arnþórsson, skrifstofu- stjóri ísbjarnarins, sagði í gær, að þorskafli togara hefði verið ein- staklega tregur síðustu vikur. Hins vegar hefðu togararnir fisk- að vel af góðum karfa og hefðu margir togarar verið á „skrapi" lengur en þeir hefðu þurft vegna þess hve lítið hefði fengizt af þorski. Kjaramál lækna: Nefnd kanni mögu- leika á aðgerðum Á FJÖLMENNUM fundi lækna i Domus Medica þar sem 130 læknar mótmæltu harðlega niðurstöðu Kjaradóms um 6% kauphækkun til lækna sem höfðu krafist 20 — 30% kauphækkunar ræddi Mbl. við formenn læknafélaganna, örn Smára Arnaldsson formann Læknafé- lags Reykjavikur, Þorvald Veigar Guðmundsson formann Læknafé- lags íslands, Arinbjörn Kolbeinsson formann Sérfræðingafélags lækna og Sigurð Hektorsson formann ungra lækna. Sögðu þeir að læknar væru mjög ir. Laun yngstu sérfræðinga sem óánægðir með niðurstöðu Kjara^ dóms sem gildir út febrúar 1982. í dómnum fólust einnig leiðrétt- ingar á greiðslum til aðstoðar- lækna fyrir bundnar vaktir á sjúkrahúsum, en læknarnir, sem verða að vera til taks á þeim vöktum, fá 24 kr. í kaup á tímann fyrir þann tíma sem þeir bíða, en ef þeir eru kallaðir út á vaktinni fá þeir eftirvinnukaup í minnst tvo tíma. Áður var þessi kaup- greiðsla 14 kr. (1400 kr. gamlar). Byrjunarlaun aðstoðarlækna sem hafa 7 ára háskólanám að baki eru 7426 kr. eða ámóta og laun mjólkurbílstjóra, sögðu læknarn- hafa að loknu kandidatsprófi margra ára sérnám að baki er 11470 kr. miðað við dagvinnu, en þar er um að ræða lækna á aldrinum 32—40 ára. Þá kom það fram að Reykjavík- urborg hefur boðið hliðstæða samninga, en niðurstöður Kjara- dóms varða einungis laun sjúkra- húslækna á ríkisspítölum. Læknafundurinn fól Félagi sér- fræðinga og Félagi ungra lækna að tilnefna menn í nefnd til þess að fjalla um hvað unnt sé að gera í stöðunni og mun sú nefnd hefja störf í vikunni, en þeir sögðu að fyrir lægju fjöldauppsagnir ein- stakra lækna ef svo færi sem reynslan hefði sýnt í þessum efnum í kjarabaráttu lækna sl. 20 ár. Læknar hafa ekki neitað að sinna sjúkum í slíkri stöðu, en hins vegar hafa þeir unnið sam- kvæmt taxta Læknafélags Reykja- víkur þar til samið hefur verið á ný. Þá kom það fram hjá læknunum að mikil óánægja ríkti í stéttinni með þróunina í skattamálum þar sem sífellt væri höggvið meira og meira af tekjum lækna, nú síðast hefði verið felldur niður sem frádráttur til skatts, kostnaður lækna af bílum í sambandi við starf þeirra og einnig kostnaður við bækur og tímarit, en þó eru læknar eina stéttin á landinu sem er skyldug samkvæmt lögum að viðhalda menntun sinni og er slíkur kostnaður ærinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.