Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 7 Félag viöskiptafræöinga og hagfræöinga Nýjungar í Viðskiptadeild Almennur félagsfundur verður haldinn í Árnagaröi, stofu 201, kl. 20.00 í kvöld, fimmtudaginn 5. mars. Kennarar í fyrirtækjakjarna Viöskiptadeildar kynna nýjungar í námsefni, nýjar bækur o.fl. Fundanefnd. Lærið vélritunl Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 5. marz. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima- vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13. Vélritunarskólinn, Suðurlandsbraut 20. Aðalfundur Nemendasambands Menntaskólans á Akureyri verö- ur haldinn á Hótel Esju í kvöld og hefst klukkan 20.30. Venjuleg aöalfundarstörf. Allir gagnfræöingar og stúdentar frá M.A. velkomnir. Stjórnin Stevie Wonder reynir sífellt að komast nær hinu fullkomna. Hann vinnur lög sín skref fyrir skref er hann hljóðritar þau. Stevie leikur upptökurnar aftur og aftur til að kanna til fullnustu fráganginn og gæðin. TDK á margt sameiginlegt með Stevie. TDK kassettan er samsett af vísindalegri nákvæmni úr 250 hlutum. 1117 atriði eru athuguð á kassettuhylkinu einu saman. Hver einasta TDK kassetta er prófuð við hinar ólíkustu aðstæður hita og kulda og ávallt skila þær fullkomnum gæðum. Þess vegna haldast tóngæði TDK óskert um langan aldur. Við komumst að því að Stevie Wonder hóf að nota TDK kass- ettur löngu áður en við leituðum til hans. Það segir sína sögu um gæðin þegar svo vandvirkur tónlistar- maður á í hlut. Höldum þeim við efnið Tíminn fjallar i for- ystuKTCin um febrúar- lögin frá 1978 og þróun- ina síðan og scgir: „Nú stendur rikisstjórn Gunnars Thoroddsens að efnahagsaðgerðum, sem á allan hátt eru sambærilegar og sam- rýmanlegar við aðgerð- irnar i febrúarlögunum 1978. Aðgerðirnar nú hafa sama markmið og febrúarlögin: að draga úr verðbólgu og tryggja kaupmátt með þvi m.a. að draga ur krónutölu- þenslunni hvort sem er i Íaunum eða i öðrum þáttum efnahagslifsins. En nú verða vist engin ólæti á vinnumarkaðin- um. Reynslan hefur kennt forystumönnum launþegasamtakanna dýrmæta lexíu. Og þeir hafa reynzt menn tií að meðtaka dóm reynslunn- ar. beir viðurkenna nú i verki mistökin miklu sem þeir gerðu i flokks- pólitisku skyni árið 1978. Að visu er Ás- mundur Stefánsson nýr á stóli forseta ASt en flestir bjuggust reyndar við að hann léti skyn- semi ráða gerðum sin- um. En aðrír eru lika menn að meiri og má i þeim hópi nefna þá Kristján Thorlacius leið- toga opinberra starfs- manna og Guðmund J. Guðmundsson alþýðu- foríngja. Guðmundur J. Guðmundsson hófst til þingmannstignar eftir upphlaupin og útflutn- ingsbannið 1978. Nú vex hann i augum alþjóðar er hann nýtir þing- mannsumboð sitt til þess að bæta fyrír mistökin frá 1978“ Siðan segir Timinn, að þegar forystumenn verkalýðssamtakanna hafi lært af mistökum Kauprán eöa slétt skipti? Tíminn telur aögeröir núverandi ríkisstjórnar sambærilegar viö febrúarlögin 1978. Þjóöviljinn taldi þau kauprán en telur aögeröirnar nú slétt skipti. Samkvæmt skilningi Tímans ætti Alþýöubandalagiö aö líta á aðgeröirnar nú sem kauprán. Hvernig getur staöiö á því aö tveir höfuöflokkar ríkisstjórnarinnar hafa gjörólíkan skilning á því sem þeir voru aö gera um síðustu áramót? sinum hafi aðrir gleymt flestu þvi góða og gagn- lega, sem þeir áður höfðu á takteinum. Blað- ið segir: „Fremstir i þessu óhappaliði eru skríffinnar Morgun- blaðsins... Morgunblað- ið hefur algerlega gleymt allri ábyrgðar- tilfinningu og skilningi á þörfum og hagsmun- um þjóðarinnar Vegna úlfúðarinnar i garð Gunnars Thor- oddsens og rikisstjórnar- innar hefur Morgun- blaðið nú tapað áttun- um. Það er álika sorg- legt og lærdómar laun- þegaforystunnar eru gleðiefni.“ Margt er athyglisvert í þvi, sem hér hefur verið vitnað til úr skrifum Timans. Hins vegar er bersýnilegt. að rítstjórar Timans hafa ekki lesið Morgunblaðið nægilega vel. Lesi þeir betur munu þeir komast að raun um að Morgunblað- ið hefur engu gleymt frá 1978, hvorki ábyrgðar- tilfinningu né öðru. En það veitir ekki af að halda þeim Ásmundi Stefánssyni, Kristjáni Thorlacius og Guðmundi J. Guömundssyni við efnið. Einungis með þvi að rífja rækilega upp atferli þeirra frá 1978 og minna þá á það nægilega oft er von til þess, að þeir hafi ekki gleymt mistökum sinum. þegar ný rikisstjórn tekur við völdum, rikisstjórn, sem ekki er skipuð fulltrúum Alþýðubandalagsins. Morgunblaðið mun sjá til þess, að þeir þre- menningar og aðrír úr þeirra hópi muni ekki gleyma fortið sinni. Morgunblaðið mun sjá til þess um langa fram- tíð, að þeir gleymi ekki mistökum sinum. Ef það er rétt hjá Timanum, sem ekki skal fyrírfram dregið i efa, að þeir hafi i raun lært af mistökun- um er það til þess fallið að halda þeim við efnið að rifja þau upp við og við. Þess vegna getur upprifjun Morgunblaðs- ins ekki verið neitt sorg- arefni, þvert á móti hlýt- ur hún að vera sérstakt gleðiefni, ekki sizt fyrir ábyrga menn eins og ritstjóra Ttmans. Og þess vegna ættu þeir að taka þátt i þvi með Morgunblaöinu að halda þeim félögum við efnið. Sambæri- legar við 1978? Annars er það athygl- isvert, að Timinn skuli komast að þeirri niður- stöðu. að aögerðir ríkis- stjórnar Gunnars Thor- oddsens séu á allan hátt sambærílegar við febrú- arlögin. Morgunblaðið hefur vakið athygli á þvi, að eitt sé a.m.k. sameiginlegt með þess- um lögum. þ.e. visitölu- skerðingin. Alþýðu- bandalagið vill hins veg- ar ekki viðurkenna það og kallaði febrúarlögin kauprán en bráða- birgðalögin nú slétt skipti. Miðað við skiln- ing Timans ætti Alþýðu- bandalagið að kalla að- gerðirnar nú kauprán. Hvernig getur á þvi staðið að tveir höfuðaðil- ar núverandi ríkisstjórn- ar leggi gjörólikan skilning i þær aðgerðir, sem þessir tveir flokkar stóðu að um siðustu ára- mót? Sviptingar í Eyjalögreglu SVIPTINGAR hafa átt sér stað að undanförnu innan lögreglunnar i Vestmannaeyjum vegna manna- ráðninga og hefur ráðuneytið breytt ráðningum vegna ættartengsla manns sem búið var að ráða. en þar var um að ræða son yfirlögreglu- þjóns. í framhaldi af þvi tók yfir- lögregluþjónninn lyklavöld af varð- stjóra sem mótmælti þvi að lausráð- inn lögregluþjónn sem starfað hef- ur i Eyjum i þrjú ár hafði ekki verið endurráðinn. Aðdragandi málsins var sá að auglýst var ein föst staða lögreglu- þjóns og auk margra umsækjenda voru tveir lögregluþjónar sem voru lausráðnir. Var öðrum þeirra veitt staðan. Að auki voru tveir nýir menn lausráðnir en hinn lögregluþjónninn, sem sótti um fasta stöðu og hafði verið lausráðinn í þrjú ár, fékk ekki endurráðningu. Kvartaði hann til dómsmálaráðuneytisins og breytti ráðuneytið ákvörðun embættisins í Eyjum, að sögn Hjalta Zóphonías- sonar, á þeirri forsendu að ráðuneyt- ið hefur þá grundvallarreglu að ráða ekki menn með náin ættartengsl í fámennt lögreglulið, en embættinu í Eyjum var ekki kunnugt um þessa afstöðu að sögn Hjalta. Var ráðning lögreglumannsins með þriggja ára starfsreynsluna því endurnýjuð en ættingi yfirlögreglu- þjónsins verður aðeins í starfi til vors. í framhaldi af þessu hefur skorist í odda milli yfirlögreglu- þjónsins og eins varðstjórans og að sögn Hjalta veitti yfirlögregluþjónn- inn varðstjóranum áminningu fyrir afskipti af kjara- og samningamálum og einnig tók hann lykil af varðstjór- anum að skrifstofu þar sem talstöðv- ar og fleiri neyðargögn eru geymd ef slíkt ástand kemur upp. Að sögn Hjalta hafa menn hótað uppsögnum vegna þessa máls, en unnið er að sáttum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.