Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Pétur H. Blöndal, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna: Hækkun launa og láns kjaravísitölu svipað „ÞAÐ ER ekki raunhæft að bera þessar vísitólur beint saman. því inn i dæmið verður að taka almennar Krunnkaupshækkanir. sem eru ekkert annað en gervi- visitöluhækkanir, eins og t.d. i desember sl. — Sú launahækkun var i raun ekki launahækkun heldur leiðrétting á vísitölunni, sem hafði verið skert samkvæmt ákvæðum Ólafsla({a.“ sagði Pétur H. Blöndal. framkvæmdastjóri Lifeyrissjóðs Verzlunarmanna, i samtali við Mbl., er hann var inntur álits á þeim mikla mun. sem er á annars vegar lánskjara- visitölu og hins vegar verðbóta- visitölu. „Það munaði um 9,5% á þessum vísitölum síðustu 12 mánuðina, en það samsvarar einmitt til launa- hækkunarinnar i desember. Laun- þegar standa því nákvæmlega sléttir hvað þetta varðar, þegar verið er að tala um greiðslubirgði þeirra í sambandi við lífeyris- sjóðslán og önnur lán, sem verð- tryggð eru með lánskjaravísitölu. Það má reyndar segja, að ef verðlag, þar með taldar vísitölur, hækki mikið meira heldur en laun, þá verður óbærilegt að lifa í þessu landi. Ekki aðeins hvað varðar þessi lán, heldur einnig hvað varðar salt út á grautinn. „Við samanburð á vísitölum allt frá árinu 1940 sýnist mér bygg- ingavísitalan hækka um nánast 1% umfram framfærsluvísitölu og laun um það bil 1% yfir bygginga- vísitöluna. Það verður að taka fram að þetta er grófur saman- —Tilbúið undir tréverk— Nýr byggingarflokkur Jöklasel 3 Húsiö veröur jaröhæö og tvær hæöir — sex íbúöa stigahús — aðeins tvær íbúöir á hverjum stigapalli. íbúöirnar seljast tilbúnar undir tréverk og málningu, öll sameign frágengin, þ.m.t. garöur og bílastæöi. Vandaöur frágangur. tgU, * LJ' "Jf .L-r>-wíJ t Rest má dreyfa á allt aö einu og hálfu ári. ferm. 71.9 72.9 98,4 105.9 98,4 105,9 2ja herb. íbúö (0—1) fylgir sér lóö. 2ja herb. íbúö (0—2) fylgir sér lóö sér inngangur. Þessi íbúö er sérlega hentug fyrir fatlað fólk. Afhending um n.k. áramót. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni, þar sem teikningar og skipulagsuppdrættir liggja frammi. Byggingaraðili: Birgir R. Gunnarsson sf. áætlað verð 344 þús. 354 þús. 454 þús. 480 þús. 454 þús. 480 þús. Kjör útborgun við samn. 20% af verði Fasteignaþjónustan Austurstræti 17, 3. hæð. S.'mi 26600. Ragnar Tómasson lögmaður. burður. Þetta segir að laun hækki svona 1,3% yfir lánskjaravísitölu, sem er blanda af hinum tveimur. Sé horft til lengri tíma eiga 2% vextir að gefa örlítið meira heldur en launahækkanirnar," sagði Pét- ur. Þá sagði Pétur aðspurður um dæmi um lán úr Lífeyrissjóði verzlunarmanna, að hafi maður tekið 3 milljón gkróna lán í febrúar 1979, þá hefði viðkomandi átt að greiða 324 þúsund fyrsta árið, eða í fyrra, en í ár ætti hann að greiða 502 þúsund gkrónur. A sama tíma hafa laun verzlunar- manns hækkað úr 184 þúsundum gkróna upp í 529 þúsund gkrónur. — „Eftirstöðvar þessa láns eru í dag um 6,5 milljónir gkróna, það hefur því liðlega tvöfaldast, en launin hafa á sama tíma hækkað um tæplega 188%, eða mun meira," sagði Pétur að síðustu. Hinni nýju rafstöð, sem Lionsklúbburinn Týr gaf Flugbjörgunarsveit- inni hefur þarna verið komið fyrir aftan á dráttarsleða aftan i nýjum vélsleða, sem sveitin festi kaup á nýverið. Á myndinni eru félagar klúbbsins og sveitarinnar að skoða hin nýju tæki. Ljónmynd Mbl. Emilía. Flugbjörgunarsveitiimi barst höfðingleg gjöf frá Lionsklúbbnum Tý FLUGBJÖRGUNARSVEITINNI i Reykjavik barst nýverið höfð- ingieg gjöf frá Lionsklúbbnum Tý i Reykjavik. Afhentu klúbbfé- 2ja herb. 76 ferm. 1. hæð við Hraunbæ. 2ja herb. um 60 ferm. kjallaraíbúð í tvfbýlishúsi við Miötún. 2ja herb. 4. hæö viö Gaukshóla. 2ja herb. 85 ferm. samþykkt jarðhæð við Flúöasel. 3ja herb. 90 ferm. 2. hæð við Hraunbæ. 3ja herb. 96 ferm. 4. hæð viö Hvassaleiti. Viö Æsufell 4ra herb. rishæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr við Hófgerði í Kópavogi. 4—5 herb. hæð og ris í þríbýlishúsi við Þórsgötu. 4ra herb. 105 ferm. 1. hæð viö Klepps- veg. 4ra herb. 117 ferm. jaröhæö við Háaleit- isbraut. 4ra herb. um 100 ferm. 7. hæð við Kleppsveg, endaíbúö. fallegt út- sýni. 4ra—5 herb. um 120 ferm. 1. hæð við írabakka ásamt 18 ferm. herb. í kjallara. Þvottahús og búr í íbúöinni. Skipti Rúmgóð 3ja eða 4ra herb. íbúð ásamt bílskúr helst í austur- bænum í Reykjavík óskast t' skiptum fyrir glæsilega 3ja herb. 100 ferm. jarðhæð við Rauöalæk. Sér hiti og inngang- ur. UMNIVGU ifiSTGIGNIB AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆO Sf/ni 24850 og 21970. Helgi V. Jónsson hrl. heimasími sölumanns 38157. lagar sveitinni nýja færanlega rafstöð til notkunar í leitar- og björgunarstörfum. Með rafstöð- inni fylgja svo sérstakir ljóskast- arar til notkunar með, segir í fréttatilkynningu. sem Morgun- blaðinu barst. Ljósleysi hefur löngum háð við leitar- og björgunarstörf og kemur þessi höfðinglega gjöf Týsmanna í mjög góðar þarfir. Rafstöðin og aukabúnaðurinn kostuðu tæplega 3 milljónir gkróna. Flugbjörgunarsveitin í Reykja- vík var stofnuð árið 1950 upp úr Geysisslysinu fræga og var því 30 ára á síðasta ári. Starfandi félag- ar í dag eru liðlega eitt hundrað, en auk þeirra eru um 50 félagar á varaskrá, sem hægt er að kalla til ef þörf krefur. Lionsklúbburinn Týr er yngsti Lionsklúbburinn, var stofnaður í mai 1973. Félagar eru nú liðlega 30. Að sögn Týsmanna var kveikj- an að því, að þeir ákváðu að færa Flugbjörgunarsveitinni þessa gjöf umtal eftir snjóflóðaleit í Esju fyrir tæpum tveimur árum, en þá háði ljósleysi leitarmönnum mjög. Síðan kom það berlega í ljós við þyrluslysið á Mosfellsheiði sl. vet- ur hversu góður ljósabúnaður er nauðsynlegur. Starfsemi klúbbsins byggist fyrst og fremst í kringum fjárafl- anir og síðan útdeilingu fjárins. Af öðrum verkefnum, sem klúbb- urinn hefur unnið að að undan- förnu, er styrkur til sundlaugar- sjóðs Sjálfsbjargar, styrkur til félagsheimilis Foreldrafélags heyrnardaufra, en aðalverkefni klúbbsins mörg undanfarin ár hefur verið stuðningur við skóla fyrir fjölfötluð börn í Kjarvals- húsinu á Seltjarnarnesi og verður þeim stuðningi haldið áfram. Þessi gjöf nú til Flugbjörgun- arsveitarinnar í Reykjavík er sennilega stærsta einstaka fjár- framlag klúbbsins, segir að sið- ustu. MYNDAMÓTHF. PRENTMVNDAGERÐ ADALSTRÆTI • SlMAR: 171S2- 173*5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.