Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
11
Tilraunaverksmiðja Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, sem er til
húsa á neðstu hæð útvarpshússins að Skúlagötu 4.
' (Ljósm. Emilía).
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins:
Ætlar að framleiða
humarkraft á næstu
vertíð og flytja út
AÐ ÞVÍ er stefnt, að tilrauna-
verksmiðja Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins geti tekið til
starfa fyrir humarvertíðina á
næsta sumri. Meðal þess, sem
verksmiðjan verður notuð til,
verður framleiðsla á humar-
krafti, sem mikið er notaður við
súpugerð i Frakklandi, Hollandi,
Bandaríkjunum og víðar. Þá er
hugmyndin að nota verksmiðj-
una á fleiri vegu, t.d. til að vinna
fiskikraft úr ýmsum úrgangi, svo
sem flökunarbeinum og smáfiski
eins og spærlingi og loðnu, en
fyrst í stað verður lögð áherzla á
humarinn. þ.e. klær hans og búk.
*»
Björn Dagbjartsson, forstjóri
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins, sagði í samtali við Mbl. að
alliengi hefði verið unnið að þess-
ari tilraunaverksmiðju með það í
huga að fullvinna í henni ýmsar
aukaafurðir sjávarafla. Hann
sagði að byrjað væri að „keyra"
verksmiðjuna með því að nota
vatn til að draga kraft úr fiski.
Það gengur þó ekki við humarinn
því til að fá hinn rauða lit hans til
Árshátíð Rang-
æingafélagsins
á laugardaginn
ÁRSHÁTÍÐ Rangæingafélagsins í
Reykjavík verður haldin í Domus
Medica við Egilsgötu iaugardag-
inn 7. marz kl. 19. Hefst hátíðin
með sameiginlegu borðhaldi kl.
19:30, en að því loknu syngur kór
félagsins undir stjórn Þóru Guð-
mundsdóttur. Gestur kvöldsins,
Þórður Tómasson safnvörður,
flytur ávarp. Síðan verður rabbað
og dansað. Miðar verða seldir í
anddyri Domus Medica í dag kl. 17
til 19 og óseldir miðar verða
fáanlegir við innganginn á laugar-
daginn.
að halda sér þarf að nota alkóhól
við vinnsluna.
— Alkóhólið hefur íkveikju-
hættu í för með sér og því hafa
öryggisyfirvöld gert það að skil-
yrði fyrir starfrækslu verksmiðj-
unnar að byggt verði eldtraust hús
í kringum hana, sagði Björn Dag-
bjartsson, en verksmiðjan er til
húsa á neðstu hæð hússins að
Skúlagötu 4. Útboðsgögn hafa
verið send út og er ætlunin að
eldtraustu veggirnir verði byggðir
í vor, þannig að verksmiðjan verði
tilbúin fyrir humarvertíðina.
Rannsóknastofnunin safnaði
nokkru af hráefni í fyrra, en
aðilar á Hornafirði, Djúpavogi og
í Vestmannaeyjum hafa tekið vel í
beiðni stofnunarinnar um að
safna humri til þessarar vinnslu í
sumar. Ekki er ætlun Rannsókna-
stofnunarinnar að fara út í fram-
leiðslu á næstu árum, hér er
aðeins um tilraunaverksmiðju að
ræða, en ef tilraunin tekst vel
gætu slíkar verksmiðjur risið á
þeim stöðum, þar sem mest er
unnið af humri.
Aðeins lítill hluti humarsins er
hirtur og um % hlutar hans fara
beint í sjóinn aftur ónýttir. Ef
reiknað er með, að þrjú þúsund
tonn veiðist af humri á næsta
sumri, má áætla að um 2 þúsund
tonn megi nýta til vinnslu eins og
nú er verið að fara af stað með.
Rannsóknastofnunin hefur fengið
um 5% af þurrum krafti í tilraun-
um sínum og miðað við það
hlutfall mætti fá um 100 tonn af
humarkrafti úr humaraflanum.
Hollenskt fyrirtæki seldi nokk-
ur kíló fyrir rannsóknastofnunina
og fengust þá 75 gyllini fyrir kílóið
af kraftinum. Miðað við þær
forsendur gætu fengist um 20
milljónir nýkróna fyrir humar-
kraftinn á ári eða um 2 milljarðar
gkróna í útflutningsverðmæti
fyrir afurð, sem áður hefur ekki
verið unnin hérlendis.
Vörumarkaðurinn hf.
[ Sími 86112.
Ýmislegt:
Korktöflur — speglar —
margar teg. — blómapottar
— kassettustatíf — setjara-
kassar — lyklaskápar —■
fatahengi — skógrindur —
hornhillur og fl.
í eldhúsið:
Kaffipokastatíf — snagar —
hnífaparaskúffur — kryddhill-
ur — puntuhandkl.hengi —
bakkar — vegghillur — eld-
húsrúllustatíf — eggjabikarar
og fl.
í baðherbergið:
WC rúllu statíf — handkl.
hengi — sápustatíf — glasa-
statíf — bekkir — snagar —
kollar — baöskápar — spegl-
ar og fl.
FUNDUR ER
SETTUR!
Þegar þessi orð eru sögð er undirbúningi fundarins lokið og sjálf
fundarstörfin framundan.
Eigiþau að ganga fyrirsig á fljótan og árangursrikan hátt, verður aðstaðan að
vera fyrsta flokks.
Á Hótel Loftleiðum eru funda- og samkomusaliraf öllum gerðum og stærðum.
Og öll þau tæki sem nútima fundatækni krefst, myndvarpar, sýningarvélar,
töflur-aðstaða til að vélrita og fjölrita, jafnvel túlka yfir á ólík tungumál.
Veitingareftir þvi sem óskað er.
Leitið upplýsinga þar sem reynslan er mest og aðstaðan best.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
Sími22322
öW
Idi
Se
ndan?
Furu smávörur
Glæsilegt úrval