Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 12

Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 12
Málhildur______ Angantýsdóttir: 12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Verkalýðsskóli Sjálfstæðisflokksins: Megintilgangurinn er að veita fræðslu um verkalýðshreyfinguna, VERKALÝÐSRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins ætlar að efna til fræðslunámskeiðs i verkalýðs- málum vikuna 14. —21. marz. í tilefni af því sneri launþegasíð- an sér til Hilmars Guðlaugsson- ar. framkvæmdastjóra Verka- lýðsráðs. og spurði hann um tilgang og viðfangsefni slíks námskeiðs. „Þetta námskeið er haldið á vegum Verkalýðsskóla Sjálf- stæðisflokksins, en hann var stofnaður 1975 og hafa slík námskeið verið haldin árlega síðan. Megintilgangurinn er að veita þátttakendum fræðslu um verkalýðshreyfinguna, uppbygg- ingu hennar, störf og stefnu. Þá er stór þáttur í námskeiðinu að þjálfa nemendur í að koma fyrir sig orði, taka þátt í almennum umræðum og ná valdi á hinum fjölbreyttu störfum í félagsmál- um. Rétt er að benda á, að einn þáttur námskeiðsins er fjöl- störf hennar og stefnu miðlatækni og framkoma í sjón- varpi. Þátttakendur munu fá ákveðin viðfangsefni til að leysa fyrir framan sjónvarpstökuvél og verður upptakan síðan skoðuð og gagnrýnd. Mikilvægur þáttur í þessu námskeiði er ennfremur atriði tengd vinnumarkaði — fræðsla um kjaramál og samn- inga og almenn atriði efna- hagsmála. Allt frá því að Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins var stofnað 1948 hafa fræðslunámskeið verið haldin um lengri eða skemmri tíma á vegum þess. Fyrst var um að ræða kvöld- og helgarnám- skeið og síðan þróaðist þetta upp í skóla. Eitt skiptið var slíkt námskeið haldið að Búðum á Snæfellsnesi og dvöldu þátttak- Hilmar Guðlaugsaon, fram- kvaamdastjóri Varkalýðsréðs Sjélfstaaðisflokksins. endurnir þar í um vikutíma. Að þessu sinni höldum við nám- skeiðið kvöld og helgar, þannig að menn þurfa ekki að taka sér frí frá vinnu þess vegna. Þátt- taka verður miðuð við 20 manns og er öllum velkomið að taka þátt í námskeiðinu, hvort sem þeir eru flokksbundnir eða ekki. Kristján Ottósson mun kenna ræðumennsku og Skúli Möller kennir fundarsköp. Gunnar Helgason mun fja.Ua um sögu og hlutverk verkalýðshreyfingar- innar og Guðmundur H. Garð- arsson talar um Sjálfstæðis- flokkinn og verkalýðshreyfing- una. Fjölmiðlatækni verður í höndum Markúsar Arnar Ant- onssonar. Um félags- og kjara- mál sjá þeir Ágúst Geirsson, Magnús L. Sveinsson og Pétur Sigurðsson. Hilmar Jónasson fjallar um vinnumarkaðsmál, Björn Þórhallsson talar um upp- byggingu og fjármagn verka- lýðsfélaga og Sigfinnur Sigurðs- son um efnahagsmál og vísitöl- ur.“ Rádstefna um ástand og horfur í atvinnumálum Dökkt útlit í málefnum byggingariðnaðarins Grundvall- arhugtök efna- hagslífsins EINN þáttur námsskrár Verka- lýðsskólans fjallar um efna- hagsmál og vísitölur, en leið- beinandi þess þáttar er Sigfinn- ur Sigurðsson. hagfræðingur. „Ég mun fjalla um grundvallar- hugtök efnahagslífsins,“ sagði Sigfinnur, þegar hann var innt- ur cftir því hvað fólgið væri í þessum námsþætti. „Ennfremur verður fjallað ít- arlega um vísitölur, s.s. fram- færsluvísitölu, kaupgjaldsvísi- tölu, verðbótavísitölu o.fl., rætt um hvernig þessar vísitölur eru reiknaðar og hvernig þær eru notaðar. Samhengi kaupgjalds- vísitölunnar við aðra þætti verð- ur skoðað og reynt að meta áhrif framfærsluvísitölunnar á kaup- Sigfinnur Sigurösson fjallar um •fnahagsmél og vísitölur é fraaöslunémskeiói Verkalýósskól- ans. gjald í sambandi við þróun efnahagsmála almennt og hvort sú leið, sem farin hefur verið hingað til, er yfirleitt sú heppi- legasta," sagði Sigfinnur að lok- um. DÖKKT útlit er nú í atvinnu- málurn landsmanna og þá sér- staklega í hyggingariðnaði. Nú þegar er mjög farið að bera á uppsögnum starfsfólks i verk- smiðju- og þjónustuiðnaði. Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks- ins mun ræða ástand og horfur i atvinnumálum á ráðstefnu, sem haldin verður i Valhöll, laugardaginn 7. marz nk. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 með ávarpi Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Að því loknu verða flutt fram- söguerindi. Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, mun fjalla um áhrif verðbólgu á fjármagnsstreymi í atvinnulíf- inu. Styrmir Gunnarsson, rit- stjóri, mun ræða um Sjálfstæð- isflokkinn og ísienzka atvinnu- vegi. Um ástand og horfur í atvinnumálum iðnaðarmanna og verksmiðjufólks munu fjalia: Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, Víglundur Þorsteinsson, framkv.stj., Gunnar S. Björns- son, formaður Meistarasam- bands byggingarmanna og Helgi St. Karlsson, formaður Múrara- félags Reykjavíkur. Sigurður Óskarsson, formaður verkalýðs- ráðs Sjálfstæðisflokksins, mun fjalla um atvinnumál dreifbýlis- ins. Eftir hádegið verða pallborðs- umræður undir stjórn Péturs Sigurðssonar, alþingismanns, en í palli munu sitja allir framsögu- menn og munu þeir ræða sín á milli um málin auk þess sem ráðstefnugestum gefst kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og spyrja framsögu- menn. Konur ófúsar að taka þátt í félagsstarfi „Þátttaka i Verkalýðsskóla Sjálfstæðisflokksins veitir manni góða þjálfun i ræðu- mennsku, auk þess sem maður öðlast öryggi við að stjórna og taka þátt i fundum. en slikt er mjög nauðsynlegt til að geta starfað af einhverjum krafti í verkalýðsfélögum,“ sagði Mál- hildur Angantýsdóttir. sjúkra- liði, þegar rætt var við hana i tilefni af því að 14.—21. marz Mélhildur Angantýsdóttir, gjald- keri Sjúkralióafólags íslands. nk. verður Verkalýðsskóli Sjálf- stæðisflokksins starfræktur, en Málhildur tók þátt i síðasta námskeiði skólans. Málhildur hefur starfað sfðustu tiu árin á Landakotsspítala og verið gjald- keri i stjórn Sjúkraliðafélags íslands siðustu sjö árin. — Finnst þér þátttaka kvenna í starfsemi stéttarfélaga hafa auk- ist á undanförnum árum? „Konur eru afskaplega ófúsar að taka þátt í félagsstarfi. Þær láta yfirleitt allt annað ganga fyrir og taka ekki þátt í félags- starfinu almennt fyrr en eitthvað sérstakt kemur upp. Málin þurfa að brenna mjög á þeim eða þær verða að vera reiðar til að sjá ástæðu til að taka til máls. Þessu er ekki svona farið með karl- menn, þeim finnst sjálfsagðara að skipta sér af málum og eru miklu virkari, jafnvel í þeim stéttarfélögum, þar sem konur eru þó í yfirgnæfandi meirihluta. Til dæmis eru í sumum stéttar- félögum konur um 70% félags- manna, en aðeins ein eða í mesta lagi tvær í stjórn. Hvar eru þær? Ástæðan fyrir þessu afskiptaleysi þeirra er að einhverju leyti sú, að konur eru óöruggari með sig og þora ekki að láta í sér heyra, nema ef þær eru alveg vissar með það, sem þær vilja segja. Nám- skeið eins og þetta, sem Verka- lýðsskólinn býður upp á, á ein- mitt að bæta úr þessu, þar sem gott tækifæri gefst til að æfa sig í fundarsköpum og að þora að tjá sig undirbúningslaust." — Hvað fannst þér helzt koma að gagni á þessu námskeiði? „Fyrir utan þetta sem ég hef þegar nefnt, þ.e. ræðumennsku og fundarsköp, fannst mér afar mik- ilvægt að fræðast um kjaramálin — um fjármagn, uppbyggingu og starfsemi lífeyrissjóðanna, enn- fremur um ýmsa aðra þætti, s.s. vísitölur. Ollum, sem eru í fyrir- svari í stéttarfélögum er nauð- synlegt að geta útskýrt fyrir félögum sínum hvernig laun eru reiknuð út, hvernig vísitalan hef- ur áhrif á þau og hver eru réttindi launþega almennt." Ég vil að lokum hvetja þá, sem áhuga hafa á að taka þátt í starfsemi síns stéttarfélags, að sækja námskeið Verkalýsðskól- ans, þar sem það veitir bæði innsýn í fjöldamörg málefni tengd verkalýðsbaráttunni og ör- yggi í að tjá sig,“ sagði Málhildur að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.