Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
15
Hótel Loftleiðir:
Búlgaríukynning
LAND og ferAakynningarvika
um Búlgaríu hefst í kvöld að
Hótel Loftleiðum og mun hún
standa til sunnudagskvölds og
verður þar margt til skemmtun-
ar auk þess sem gestum gefst
kostur á að bragða á hinum
ýmsu þjóðarréttum Búlgaríu.
Það eru Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar, Flugleiðir,
Ferðamálaráð Búlgaríu og Balk-
an Airlines ásamt Hótel Loft-
leiðum, sem gangast fyrir kynn-
ingunni og er þessi sú fimmta í
röðinni. Að sögn Kjartans
Helgasonar, mun ferðaskrifstofa
hans skipuleggja ferðir til Búlg-
aríu í sumar eins og undanfarin
ár og sagði hann að ferðamanna-
straumurinn þangað færi ört
vaxandi ár hvert og að í fyrra
hefðu um 5 milljónir ferða-
manna frá um 120 þjóðlöndum
lagt leið sína þangað. Hann
sagði ennfremur að á þessu ári
héldu Búlgaríumenn hátíðlegt
1300 á afmæli þjóðarinnar og
væri því óvenjumargt þar um að
vera og að í tilefni afmælisins
hefði verið stofnuð búlgörsk-
íslenzk hátíðarnefnd undir for-
sæti Ingvars Gíslasonar,
menntamálaráðherra.
Kvöldin, sem búlgarska vikan
stendur, verður framreiddur
þarlendur matur í Víkingasal, en
jafnframt koma fram listamenn,
sem sýna töfrabrögð, þjóðdansa
og tónlistamenn syngja og leika
búlgörsk þjóðlög og alþjóðlega
klassíska tónlist. Þá mun
hljómsveit leika fyrir dansi.
nGaldrakarlinn“ Koev leikur listir sinar.
HAFA Classic
Nýtísku
Hafa
baðinnréttingar
i baðherbergið
ykkar
Útsölustaöir:
Málningarþjónustan Akranesi,
Atlabúöin Akureyri,
Valberg Ólafsfiröi,
Húsgagnaverslun
Patreksfjarðar,
JL-húsiö Reykjavík,
JL-húsiö Borgarnesi,
JL-húsiö Stykkishólmi,
GÁB Selfossi,
Brimnes Vestmannaeyjum,
Har. Jóhannesson Seyöisfiröi.
Kf. Hvammsfjarðar Búðardal,
KASK Hornafiröi,
Kf. Þingeyinga Húsavík,
Kf. V-Húnvefninga Hvammstanga,
Kf. Rangæinga Hvolsvelli,
Kf. Fram Neskaupstaö,
Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki.
Innréttingadeild II. hæö
Vald Poulsen h/f
Suöurlandsbraut 10 — Sími 86499.
dagurinn
í dag höldum við K-tel daginn hátíðleg-
ann í verslunum Karnabæjar og kynn-
um 5 frábærar plötur frá K-tel sem hver
um sig inniheldur fjölbreytt safn góðrar
tónlistar.
Ýmsir — Chart Explosion
Chart Explosion er stuðplata
sem inniheldur 20 af vinsælustu
lögunum þessa stundina. Þessi
plata er ómissandi á hverjum
þeim stað þar sem fjör á að
ríkja. Hvort sem slá á upp veislu
eða bara að hafa það náðugt í
faðmi fjölskyldunnar, þá er
Chart Explosion auðfúsugestur á
hvert heimili.
David Bowie —
Pierre Belmonde —
Themes For Dreams
Themes For Dreams inniheldur
fallegar tónsmíðar sem leiknar
eru á svonefndar pan-viðarflaut-
ur. Þetta er í senn hugljúf og
seiðandi plata og hin sérstæði
flutningur ljær lögunum róm-
antískan blæ. Meðal laga á
þessari plötu eru Ave Maria,
Feelings, Whiter Shade of Pale,
Amazing Grace, Love Story,
Don’t Cry For Me, Argentina og
Nights in White Satin. •
Ýmsir — Axe Attack
Axe Attack er kjörgripur og góð
eign fyrir alla unnendur kraft-
mikils rokks. Ef þú ert að feta
þín fyrstu spor sem aðdáandi
þungarokksins, þá er þetta einn
besti leiðarvísirinn á þeirri
braut. Hafir þú hins vegar fylgst
með þungarokkinu í gegnum
árin, þarf ekki að mæla með
þessari plötu, því þú veist að hún
gerir það sjálf.
Best of Bowie
David Bowie er einn litríkasti
persónuleiki síðasta áratugar í
poppinu og inniheldur þessi
plata 18 af bestu lögum hans og
er þeim raðað niður í rétta
tímaröð á plötunni. Best of
Bowie er í senn merk heimild um
sérstakan tónlistarmann og
góð plata sem allir ættu að
eignast.
Ymsir — The Love Album
V___
Love Album er rómantísk 20
laga plata með jafnmörgum lista-
mönnum sem flytja þekkt lög
sem öll fjalla um tilhugalífið og
ástina. Love Album er hugljúf
plata sem inniheldur lög sem
allir þekkja. Meðal flytjenda eru
Diana Ross, Abba, Leo Sayer,
Rod Stewart, Roxy Music og
Commondores.
Heildsöludreifing
slttinorhf
Símar 87542 — 85055.