Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 18

Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Nýja, sovéska gasleiðslan: Fjárfesting í framtíðinni eða kverkatak áVestur-Evrópu? Vestrænum fyrirtækjum bjóðast verk- samningar fyrir 2 milljarða dollara Á sama tíma og Sovétmenn standa gráir fyrir járnum á landamærum Póllands fara fram fióknar samningaviðræður í Moskvu og höfuðborgum ým- issa vestrænna ríkja. Það, sem verið er að semja um, er gífur- lega mikil gasleiðsla, fjórum sinnum lengri en olíuleiðslan frá Alaska til Bandaríkjanna. Ef um semst, verða þessir samningar þeir langstærstu, milli austurs og. vesturs sem um getur á þessari öld, en á hinn bóginn gæti lagning leiðslunnar, sem verður 6000 km löng frá Norð- vestur-Síberíu til Vestur- Evrópu, einnig orðið fyrsta fórn- arlamb hugsanlegrar innrásar Varsjárbandalagsríkjanna í Pólland. Lagning gasleiðslunnar yrði gífurlega mikið verk. Upphaf hennar yrði á míðjum Yamal- skaga þar sem fundist hafa einhverjar mestu gaslindir i heiminum, eða um 20 trilljónir rúmmetra. Síðan er áætlað að leggja hana yfir þver og endilöng Sovétríkin og Austur-Evrópu þar sem hún greindist til hinna ýmsu Vestur-Evrópulanda. Búist er við, að seint á þessum áratug verði svo gasið farið að streyma til V-Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Hollands, Belgíu, Svíþjóð- ar, Austurríkis, Sviss og e.t.v. til Bretlands og Spánar og verði eftir það verulegur þáttur í orkunotkun þessara þjóða nokk- uð fram á næstu öld. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort lögð verður ein stór pípa eða fleiri og smærri en Rússar leggja áherslu á, að hægt verði að flytja árlega um 60—65 millj- arða rúmmetra af gasi. Verksamningar fyrir milljarða dollara Þetta verkefni hefði í för með sér stærstu pantanir á pípum, tækjabúnaði og ýmsum mann- virkjum sem um getur bæði fyrr og síðar og er talið að fjárhags- legir hagsmunir vestrænna fyrirtækja, sem fengju í sinn hlut bróðurpartinn af útvegun alls efnis, nemi 11 milljörðum dollara. Gasvinnslan og flutningurinn yrðu mikil prófraun á kunnáttu manna og tækniþekkingu. Yam- al-skagi liggur langt fyrir norð- an heimskautsbaug og þar er vetrarríki mikið og frostið lang- tímum saman 50 gráður á Celsí- us. í svo miklum kulda vilja ýmsir málmhlutir hrökkva í sundur við minnsta átak og ekki bætir úr skák ískaldur strekk- ingurinn, sem á sér greiða leið norðan af heimskauti. Svo virðist sem Sovétmenn hafi ákveðið það seint á síðasta áratug að ráðast í verkið en þeir hafa þó gert sér grein fyrir, að þeir höfðu ekki bolmagn til þess tæknilega eða fjárhagslega. Þess vegna snúast samningaviðræð- urnar um það núna, að banka- stofnanir á Vesturlöndum útvegi fjármagn til kaupa á tækjabún- aði og að greiðslurnar fyrir gasið gangi fyrst upp í þá skuld. En þegar Rússar hafa greitt þessa 11 milljarða dollara sjá þeir fram á betri tíð og ómældan erlendan gjaldeyri sem þá van- hagar mjög um. Flestir telja með öllu ógerlegt að geta sér til um fjárhagslegan hagnað Rússa af gassölunni en öllum ber saman um, að hann yrði gífurlegur. Þeir hafa líka lagt mikla áherslu á að hraða samningagerðinni og hafa trú- lega stefnt að því að geta tilkynnt um hana með pomp og prakt á flokksþinginu nú í febrú- ar. Á Vesturlöndum er þó litið á þær áætlanir sem barnalega bjartsýni enda hefur enn ekki verið samið um endanlegt verð á gasinu. Ekki bara tæknilegir erfiðleikar Það eru þó ekki aðeins tækni- legir erfiðleikar, sem við er að glíma, pólitíkin kemur hér einn- ig mikið við sögu, t.d. framferði Sovétmanna gagnvart Pólverj- um. Ef Rússar ásamt öðrum Varsjárbandalagsríkjum réðust inn í Pólland væri óhætt að leggja allar frekari samninga- viðræður á hilluna um ófyrirsjá- anlega framtíð. Þeir eru einnig margir í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, sem vara við því að Vesturlandabúar verði of háðir rússneskri orku. Þeirri röksemd hefur einnig verið mjög á loft haldið gegn gaskaupunum af Rússum, að ef til aukinnar spennu kæmi í samskiptum austurs og vesturs eða beinna stríðsátaka gætu Rússar lokað fyrir þessa mikil- vægu orkulind þegar þeim byði svo við að horfa. Rússar svara þessu og segja, og vitna í því sambandi til síðari heimsstyrj- aldar, að gasið myndi halda áfram að streyma allt fram undir síðustu mínútu hugsan- legra átaka — og eftir það yrði orkuöflunin hvort eð er hreint fræðilegt viðfangsefni. Skuldir Rússa tvöfaldast Sovétmenn gera ráð fyrir, að ef af samningum verður muni skuldir þeirra við útlönd næst- um tvöfaldast en þær nema nú um 12,9 milljörðum dollara. Vestrænar bankastofnanir hafa þó ekki miklar áhyggjur af þeirri hlið mála því að Rússar hafa orð á sér fyrir skilvísi og ráða yfir miklum auðlindum í orku, timbri, gulli og öðrum jarðefnum. Bankamenn á Vest- urlöndum hafa hins vegar meiri áhyggjur af því, að Rússar fara fram á að lánin verði óvenjulega eða jafnvel óeðlilega hagstæð hvað varðar vexti og afborganir. Ástæða til varkárni í upphafi fóru Rússar þess á leit við Vestur-Þjóðverja, að þeir gengjust fyrir samsteypu allra þeirra fyrirtækja og banka á Vesturlöndum, sem áhuga hefðu á málinu og féllust Vestur- Þjóðverjar á það, en með nokkr- um semingi þó. Frá þessu hafði þó ekki fyrr verið gengið en Rússar ventu sínu kvæði í kross og tóku að semja við þessa aðila hvern í sínu lagi og léku þann leik að etja einum gegn öðrum til að ná hagstæðari samningum. Hverjar sem niðurstöður samninganna við Rússa verða þá er þó alveg ljóst, að stórfyrir- tæki, bankar og ýmsar ríkis- stjórnir á Vesturlöndum hafa mikinn áhuga á þessum fram- kvæmdum því að auk gassins, orkunnar, sem gæti enst nokkuð fram á næstu öld, er það ekki á hverjum degi sem slíkir risa- samningar bjóðast og hvað þá nú þegar samdráttur og atvinnu- leysi ríkir víðast hvar. Á hinn bóginn er ljóst, að ef Vestur- landabúar kunna ekki fótum sínum forráð í samningunum við Rússa getur svo farið að þeir þurfi að greiða miklu hærra verð fyrir gasið en eðlilegt getur talist og það vegna fram- kvæmda, sem að flestu leyti eru fremur í þágu Rússa en þeirra sjálfra. Fiskarnir ganga á stultum HVERNIG ELSKAR MAÐUR HENDUR? Ljóðabálkur eftir Sjón og Matthias Sig. Magnússon. Myndir eftir Þór Eldon. Medúsa 1981. Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Þegar súrrealisminn var og hét, einkum í Frakklandi á þriðja áratugnum, gerðu skáldin ýmsar tilraunir í anda stefnu sem boðaði að listin ætti að vera sköpuð af öllum. Skáldin unnu með öðrum lista- mönnum, ekki síst myndlistar- mönnum. En þau unnu líka sam- an, ortu saman Ijóð þar sem tilviljun var látin ráða hver út- koman yrði. Margt af þessu var ferskt, en fátt af því var birt, aðeins litið á sem tilraun tilraun- arinnar vegna. Tveir ungir íslenskir súrrealist- ar, skáldin Sjón og Matthías Sig. Magnússon, hafa nú sent frá sér ljóð sem þeir kalla Hvernig elskar maður hendur? og er það ort á fimm stundum sunnudagskvöldið 25. janúar sl. Þeir segja um ljóðið: „Við vélrituðum það upp átómat- ískt og reyndum að vera undir sem mestum áhrifum frá hvor öðrum. Ljóðið var því sem næst fullgert eftir fyrstu uppskrift, stöku orða- lagsbreytingar voru þó gerðar. Við viljum benda lesendum á að vara- samt er að lesa ljóðið sem bók- menntaverk. Fyrir okkur vakti eingöngu að skrifa því sem næst hreinan súrrealískan texta." Það er skemmst frá því að segja að þetta uppátæki skáldanna er skemmtilegt, en fyrst og fremst þjónar það þeim tilgangi að vera í æfingarskyni. Með Hvernig elskar maður hendur? getum við fylgst með þroska skáldanna, hvernig þau stuðla að því að ljóðheimur þeirra víkkar og eru óhrædd við orð og myndir. Súrrealisminn er skáldskaparstefna frelsis (lífs- stefna einnig) og er miög við hæfi ungs fólks. Súrrealisminn hefur oft og tíðum helsta gildi sem útrás, tilfinningarnar fá að ryðj- ast fram án þess að vera heftar, rökrétt hugmyndatengsl og reglur máls fara veg allrar veraldar. Tvö brot úr Hvernig elskar maður hendur? geta ef til vill skýrt þá staðhæfingu skáldanna að hér eftir muni fiskarnir ganga á stultum: og vaknar i kuöungi djúpt I fjörubordinu þar sem mælistikan með skrýtna höfuÖiA i kjöltunni á heima. Rákirnar i hörÖum strinunum eru eftir klær hafmeyjarinnar sem blakar sporÖi sinum fyrir sundmenn en hvílir brjóst i lófum minum heitum og lysandi því ég haöaöi þá uppúr ryki borösins. og: Mjúkt hold finlega rispaö veitir unaö en ilmandi glas af hári fullnægir þörfinni fyrir bitandi dvergkrókódil sem rekur ættir sinar til þyrnasólarinnar. Hún festir þig lamaAan viÖ byssuskeftiö meöan kúlan slitur strengi fiölunnar á legubekknum. Teikningar Þórs Eldons eru i anda ljóðsins. Matthías Sig. Magnússon og Sjón, tvihöfða skáld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.