Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 19 Bridge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Landsliðskeppni í undirbúningi Bridgesamband Islands hefir ákveðið að senda lið á Evrópumótið í bridge sem fram fer í Birmingham á Englandi dagana 11.—25. júlí nk. Keppt verður um sætin í liðinu og verður keppnin með sama fyrirkomulagi og í fyrra. Fjöldi para í keppninni verður mest 16 og ef fleiri pör sækja um þátttöku mun stjórn BSÍ velja þau 16 sem þátt taka. Undankeppnin verður hald- ið helgina 28.-29. marz og úrslitin spiluð 9. og 10. maí. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir um að hafa sam- band við forseta BSI, Þorgeir Eyjólfsson, í vinnusíma 84033 eða heima í síma 76356 fyrir 16. marz nk. Þátttökugjald verður 160 krónur á par. Bridgespilarinn Annað hefti af Bridgespil- aranum er komið út og kennir þar margra grasa. Guðmund- ur Hermannsson skrifar um Reykjavíkurmótið í tvímenn- ingi sem fram fór í október og nóvember sl. Þá er grein eftir Sigurð B. Þorsteinsson sem heitir Opal-kerfið og er í léttum dúr. Guðjón Guð- mundsson kynnir starfsemi Bridgeklúbbs Akraness og einnig er fjallað um boðsmót klúbbsins sem fram fór fyrir rúmum mánuði. Þá er löng grein eftir Guðmund Her- mannsson um Evrópumót yngri spilara 1980 sem fram fór í Tel Aviv en hann var einn af þátttakendum fyrir íslands hönd. Þórir Sveinsson kynnir Bridgefélag Kópavogs og einnig er fjallað um boðsmót BK sem fram fór í desember sl. Guðmundur Páll Arnarsson skrifar grein sem nefnist Stoppreglan og er þar fjallað um skyldur spilara til að taka sér 5—10 sekúndna umhugs- unartíma áður en sagt er. Þá er sagnkeppnin á sínum stað þar sem nýja og gamla kerfið takast á ef svo má að orði komast. Ýmislegt fleira er í blaðinu sem ekki verður tí- undað hér. Er nú til afgreiðslu á aðeins 61.200. Kr. (gengi 27.02.81) Þetta er ótrúlega hagstætt verð fyrir bíl, sem hefur bæði afl og styrk til að endast lengi við íslenskar aðstæður. Erfiða vegi og óblítt veðurfar. En POLONEZ er ekki bara kraftakarl. Hann er líka búinn flestum þeim þægind- um, sem miklu dýrari bílar státa af. Við bendum á vandaða innréttingu, tvöfalt hemlakerfi, stillanlegt stýri, Halogen þoku- ljós, rafknúna rúðusprautu, upphitaða aft- urrúðu með þurrku og svo mætti lengi telja. Þú færð mikið fyrir peningana og FIAT þjónustu í kaupbæti. Það skiptir líka máli. Skoðaðu POLONEZ 1981 fyrst. FIATUMBODIÐ h.f SMIDJUVEGI4 KOFftMDGI &77200 RÍKISSKIP Sími ími:28822 BROTTFARARDAGAR FRÁ REYKJAVÍK: VESTFIRÐIR: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag NORÐURLAND: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag NORÐ- AUSTURLAND: Vikulega fimmtudaga eða föstudaga AUSTURLAND OG VESTMANNAEYJAR: Alla fimmtudaga Biðjið um áætiun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.