Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 Annar þáttur: Trúlega lærist flestum, sem setjast aö á Suöurlandi von bráöar aö láta sér þykja vænt um þær slóöir. Hér er mörgu aö una: Vetrarveörin eru til aö mynda í vænni veöra röö. Furöulega snjó- létt er í þessum héruöum, en blotar tíöir. Suma vetur er snjó- laust aö kalla. Raunar fylgja slíku annmarkar, og veröa þeir ekki tíundaöir í þessu máli af mannl, sem ekki kann tii búskapar. En feröalög eru allajafna auðveld og aödrættir hægir. Síöari mánuöir hafa í þessu efni veriö undantekning. Er þess skemmst aö minnast, hvernig hamfarirnar nýveriö ollu eyöi- leggingu víös vegar, en a.m.k. í einum staö sárum, sem seint munu gróa. Guö huggi þá, sem hryggöin því sinni sló — en lýsi hinum látnu. tekur sér eins konar miödegis- blund, en rís aö nýju vestan Vöröufells litlu síöar og heldur nú áfram sem leiö liggur niöur í Flóa. Það er ómaksins vert aö fylgjast með þessum búskapar- háttum sólarinnar. Einn góöan veöurdag er hún nefnilega hætt aö fleygja sér um hádegiö. Þá vita menn, aö nú er svartasta skammdegiö aö baki. Útivistir eru meö eindæmum hugþekkar á Skálholti, þegar vel viörar um vetur. Síödegis reynum viö gjarnan aö telja kjark hvert í annaö og arka af staö undir blæ himins blíöan. Hér er til bæöi lengri hringur og skemmri, auk annarra gönguieiöa. Lágmarks- raun er aö ganga upp aö Skóla- vöröunni, en þaöan má sjá Bláfell Séra Heimir Steinsson: , Skálholti Hækkandi sól FRÁ MORGNI TIL MIÐAFTANS Vetrardagur er í Skálholti sem annars staöar um flest ólíkur bróöur sínum á miöju sumri. Hinn síöar nefndi er úthverfur, en á vetur búa menn aö sínu og reyna aö minnast hins forn- kveöna, aö hollt er heima hvat. Leiöin liggur frá heimahúsum til skóla um þaö leyti sem Páil Heiöar er aö Ijúka viö aö gefa þjóöinni góöan daginn. Þá er enn myrkt af nóttu, e.t.v. blika klaka- skildir landsins viö skaröan mána, og Venus rennir hýrum hvörmum himni bláum frá. Kirkj- an liggur viö festar í morgun- kyrröinni, hlý og þung. Því næst kemur mjólkurbíllinn öslandi og með honum fréttir yfir kaffisopa frammi í matsal. Venjulega er færöin efst á baugi, en e.t.v. líka þjóömálin, í kyrrum tóni nýlega vaknaöra radda, meö forystu- greinar dagblaöanna í útvarpinu aö undirleik. Klukkan hálf níu er tekiö til starfa. Aö lokinni fyrstu kennslu- stund safnast allir saman til aö heyra gott orö og syngja. Þannig stillum viö stundaglasiö í Jesú nafni, og nú tekur sandurinn aö sáldrast milli hólfa. í Skálholti eru tvær sólarupp- komur um miðsvetrarleytiö. Fyrst Ijómar himinninn austan viö Tíöaholtið, og sólin fær sér morgungöngu upp í Vöröufell. Þar hvílist hún um stundar sakir, og Kerlingarfjöll í noröri. Undan- farin ár hefur Skálholtsskóli fariö noröur aö Hveravöllum í byrjun vetrar, og þess vegna er mönn- um þetta útsýni bæöi kunnuglegt og kært. Gaman er aö dvelja uppi viö Skólavöröu og horfa yfir staöinn og Skálholtstungu, en handan hennar koma þær saman Hvítá og Brúará. Skólavaröan á sér merkilega sögu og þó ekki bein- línis Ijósa. Varöan er hlaöin á fyrri öldum og virðist í senn hafa veriö kennileiti og samfundar- staður. Af og til gerum viö þar minni háttar kúnstir öll í einum hóp og látumst vera arftakar þeirra úrvalsmanna, sem hér lyftu grettistökum foröum. Skóla- varöan hnitar og skemmtilega saman hinn forna höfuðstað þriggja landsfjóröunga, Skálholt, og núverandi höfuöborg lands- ins, Reykjavík. Þar syöra eru nefnilega Skólavöröuholt og Skólavöröustígur, og allir þekkja uppruna þessara nafna. Þegar setið er undir Skólavöröunni, leitar hugurinn af holtinu hér eystra til holtsins vestan heiöar, þar sem turn Hallgrímskirkju leitar til himins á Herrans fund. Samhengi íslenskrar sögu rennur upp fyrir setumönnum. STIKLAÐ Á STÓRU Þó aldrei nema gestkomur séu færri á góu en um heyannir, eru þær allt aö einu skart vetrar- dagsins í Skálholti. Ætla mætti, aö hver stundin væri annarri áþekk hér langt uppi í sveit. En svo er ekki — nema ef vera skyldi í þeim skilningi, aö allir dagar eru meö nokkrum hætti merkisdagar. Á mánudögum koma þeir Glúmur Gylfason og Jóhannes Sigmundsson um langan veg og kenna okkur músík og mælsku- list. Svipaöar eru helgarnar þessa mánuöina. Strax á föstu- dagskvöldi er Oddur Albertsson í anddyrinu, ásamt hvers konar úrvalsliöi. Þaö fólk dvelur hér laugardag og sunnudag. Sjálf erum viö raunar ævinlega aö reyna aö standa á tánum um helgar, meö kvöldvökur, ærsl og les. En gestirnir hefja alla þessa tilburöi okkar í æöra veldi. Auö- vitaö lýkur laugardegi aö vanda meö æsilegri diskótónum en undirrituöum þykir hóf aö á helgum staö. En um þaö tjóir ekki aö fást: Lífiö heldur áfram og spyr einskis. Eina bótin, aö þeir gömlu eru ianglyndir. Var ég búinn aö nefna fimmtu- dagskvöldiö? Þá er ævinlega mikiö um aö vera hér eins og víöar. Menn draga saman þær félagslegar tiltektir, sem ekki komast aö endranær. Skyldi þaö vera satt, aö gott fólk um land allt togist á um þetta sjónvarps- lausa kvöld til aö koma nauö- synjaverkum af? í rauninni er það ekkert undarlegt. Sannleik- urinn er sá, aö mjög oft er prýöilegt efni í sjónvarpinu á vetrarkvöldum og þar af leiöandi erfitt aö hafa sig á brott frá þessum litskrúöuga kassa. Af einhverjum ástæöum hefur það oröiö viöurkenndur heldrimanna háttur aö tala fálega um sjón- varpiö. Eigi aö síöur horfa flestir á sjónvarp. A.m.k. eru menn upp til hópa viðræðuhæfir um þaö, sem þar er aö finna. Ég er smeykur um, aö þaö sé einhver utanbókarlærö útlenzka á bak viö svartagallsraus okkar um sjónvarpiö. Mig grunar, aö á sjónvarpsbænum geri hver maö- ur þaö, sem hann getur, rétt eins og annars staöar — og ætti oftar aö þakka þaö en gert er. Yfirleitt ættum viö aö gera meira af því aö þakka hvert ööru þaö, sem vel er unnið — og líka hitt, sem illa er unniö en reynt aö gera vel. Síödegis á þriðjudögum er hátíö á Skálholtsskóla. Þá koma fyrirlesarar í heimsókn. Hann er ósmár sá skari, sem heimamenn standa í þakkarskuld viö eftir níu vetra vikulegt fyrirlestrahald. Þetta fólk kemur yfir fjöll og firnindi um hávetur til þess eins aö segja litlum hópi manna í uppsveit nokkur deili á óskyld- ustu efnum. Nýlega luku stjórn- málaflokkarnir árlegum heim- sóknum sínum, svo aö nú vitum viö öll, hvar Davíö keypti hiö pólitíska öl snemma árs 1981. í þeirri sundurleitu sveit eigum viö oröið ýmsan hollvininn og af margvíslegasta tagi. Þaö litróf mismunandi skoöana, sem birtist í þessu fyrirlestrahaldi, er reynd- ar uppistaöan í fræösludraumi lýöháskólamanna fyrr og síöar og minnir mig á, aö ég á eitthvaö ósagt um þaö efni. ÚTMÁNAÐADÆGUR Útmánaöadægur eru alls staö- ar löng á íslandi, en vonandi hvergi mjólkurlaus framar. Ævin- lega þykir mér þessi tími búa yfir fágætari töfrum en jafnvel voriö sjálft og sumariö meö. Aö sínu leyti minna útmánuöir á aðvent- una, en hún getur þrásinnis veriö sælli en jólin. Fátt jafnast á viö eftirvæntingu ókominna gleöi- stunda, sem menn telja sig eiga nokkurn veginn vísar. í dag er helgarleyfi og nem- endur suöur í Reykjavík, starfs- kynning á næsta leiti og stundar- hlé í Skáiholti. Æskulýösdagur Þjóökirkjunnar rennur upp, bjartur og fagur. Sóknarprestur- inn okkar, séra Guömundur Óli Ólafsson, talar stillt og spaklega viö börn og fulloröna úr Skál- holtssókn. Þessu sinni lifum viö hér eiginlega heimamannastund, og dæmalaust eru einnig þess konar stundir góöar — engu síöur en feginsdagar pílagrím- anna á miöju sumri. Vetrarveðrin eru gengin niður í svip. Kannski góa ætli aö sýna okkur þá kvenlegu mildi, sem Árni Björnsson eignar henni. Sólin er löngu hætt aö tylla tánum á Vöröufelliö, hvaö þá heldur hafa þar viödvöl. Daglangt skín hún yfir vígöan reitinn um- hverfis Skálholtskirkju. Sjövikna- fastan er hafin. Þaö hillir undir páska og vor og upprisu — og þaö er sérlega gaman aö lifa. Heimir Steinsson Tðnllst eftir Ragnar Björnsson Þegar hljómsveitarstjóri hlustar á söngvara, sem hann ekki þekkir, í fyrsta skipti held ég að undantekningarlaust reyni hann að gera sér grein fyrir hvaða raddtegund sé um að ræða að því tilskyldu að viðkomandi 2 að ræða og kannske vegna þess er hann ennþá mjög smitaður af R. Strauss og eru þessi fjögur ljóð að öllum líkindum fremur ætluð lyr.-dramatiskum sopran. Nokkuð það sama má segja um Brahms þótt sum lögin væru vel flutt eins og t.d. Stándchen. „Fjögur ljóð“ Þorkels Sigur- björnssonar, sem eins og segir í efnisskrá að Margrét frumflytji nú á Islandi voru einskonar fjórar laglega gerðar hendingar og kannske eru það meðmæli með lögunum að mér fannst hvert þeirra of stutt. íslensku lögin eftir Kaldalóns formaði Margrét vel. Kinderstubelieder Musorgskys gefa söngvaranum tækifæri til þess að sýna á sér Ljóðatónleikar í Norræna húsinu hafi söngrödd. Margrét Bóas- dóttir er sópran, en hvaða radd- gerð meðal sóprana er hún? Líklega á það eftir að koma betur í ljós síðar og hún sjálf á vafalaust eftir að finna sig. Eins og er virðist mér hún vera superetta, hugsanlega með kol- eratur. Oft heyrir maður að þessi eða hinn hafi ekki mikla rödd og hljómar sú niðurstaða gjarnan sem neikvæð. Hér er vitanlega um hugsanavillu að. ræða eða þekkingarleysi. Flaut- an er jafn nauðsynleg í hljóm- sveitinni og básúnan, hlutverk þessara tveggja hljóðfæra eru einungis ólík og fráleitt væri að halda því fram að básúnan sé merkilegra hljóðfæri vegna þess að hún hefur voldugri tón. Í óperunni er superettan jafn nauðsynleg og dramatiski sópr- aninn, aðeins er um tvö ólík hljóðfæri að ræða. Margrét virðist ágætum tón- listargáfum gædd og sýndi hún skilning á annars erfiðum verk- efnum. Ennþá vantar röddina öryggi í dýptinni og stundum brá fyrir ónógum stuðningi og kom því fyrir að hún var aðeins neðan í tóninum. Þetta síðar nefnda ætti að vera auðvelt að laga með einbeitingu að þessu atriði. Dýptin kemur með þjálfun og þroska. Eins og fyrr segir valdi Margrét sér kröfumikla efn- isskrá og kannske er vafasámt af suprettu að velja sér verkefni eins og Fjögur ljóð eftir Schön- berg. Þrátt fyrir að hér sé um op. margar hliðar og kannske ekki hvað síst þá leiklegu. Humorinn í þessum ljóðaflokki freistar margra til þess að ganga of langt og aðrir voga ekki. Margrét gekk hvergi of langt og hún vogaði — punkturinn kemur vonandi síð- ar. Yfir tónleikunum var menn- ingarlegur blær og segir það ekki lítið. Ulrich Eisenlohr lék með miklum ágætum á píanóið en hljóðfærið sjálft er ekki boðlegt í menningarstofnun sem Norræna húsið er. Kammer- tónleikar Efnisskrá: Bartek .. 15. d fiðludúettar Mozart .. Strengjakvartett K. 387 Bartok ... Strengjakvartett nr. 1 Márkl-strengjakvartettinn hefur komið áður til íslands á vegum Kammermúsikklúbbsins og tóku þá þátt í heildarflutningi á strengja- Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON kvartettum Beethovens. Tónleikarn- ir hófust á fiðludúettum Bartoks og verður það að segjast eins og er, að þessi fallegu smóverk eru ekki heppileg viðfangsefni á tónleikum. Annað atriði er vert að gaumgæfa og það er flutningur fiðlaranna, sem var yfirvegaður og fínlegur, en rúinn allri spennu og leik með blæbrigði, sem fiðluleikarar frá Balkanlöndunum eru frægir fyrir. Mozart-kvartettinn var fallega leik- inn en það var ekki fyrr en í síðasta kaftanum á kvartett Bartoks að leikur Márkl og félaga náði ein- hverri skerpu. Það var eins og hefðu átt sér stað hamskipti, þar sem fjötrar ögunar brustu og leikur félaganna varð frjáls og þrunginn spennu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.