Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
Stjórnmálanefnd sovézka kommúnistaflokksins:
Fjórtán alls-
ráðandi öldungar
hátt á þriðja áratug, hann er 78
ára að aldri. Hann er sonur
rússnesks bónda og hefur verið
náinn samstarfsmaður Brésn-
effs frá því í stríðinu. Hann var í
hópi þeirra er mestan þátt áttu í
því að koma Krúsjeff á kaldan
klaka og hefur verið í stjórn-
málanefndinni frá 1955.
Nikolaí A. Tókhonoff, enn
einn úr Brésneff-klíkunni. Hann
er 75 ára, tók sæti í stjórnmála-
nefndinni fyrir tveimur árum og
varð forsætisráðherra í októ-
bermánuði sl., þegar Kosygin
dró sig í hlé. Tíkhonoff er einn
örfárra manna í stjórnmála-
nefndinni, sem ekki er Rússi.
Hann er frá Úkraínu, þar sem
hann hefur starfað í þágu
flokksins lengst af.
Dmitri F. Ústinoff, 72ja ára.
Eftir ellefu ára feril sem æðsti
fulltrúi flokksins í vopnaiðnaði
varð hann varnamálaráðherra
árið 1976. Samtímis tók hann
sæti í stjornmálanefndinni.
Hann er verkamannssonur frá
Rússlandi og hefur alla tíð
starfað í tengslum við hernað.
Vladimír V. Sjerbitskí, verka-
mannssyni frá Úkraínu. Hann er
63ja ára og hefur verið í stjórn-
málanefndinni í tíu ár. Hann var
ríkisstjóri í Sovétlýðveldinu
Úkraínu um sjö ára skeið, en
árið 1972 var hann hækkaður í
í stjórnmálanefnd sovézka
kommúnistaflokksins, —
innsta hring þeirrar stofnunar
— eru fjórtán menn. Meðalaid-
ur þeirra er rétt tæp 70 ár, en
einungis tveir menn eru undir
sextugu. í lok flokksþings sov-
ézka kommúnistaflokksins í
gær ætlaði allt um koll að
keyra í fagnaðarlátum þegar
Leóníd Brésneff, forseti Sovét-
ríkjanna og valdamesti maður
landsins, tilkynnti að hann og
allir hinir félagarnir í stjórn-
málanefndinni hefðu verið ein-
róma endurkjörnir. Á flokks-
þinginu kom ekkert fram sem
bendir til þess að breytingar í
flokksforystunni séu í aðsigi.
Endurkjör stjórnmálanefnd-
armanna fór fram í miðstjórn
flokksins á þriðjudagsmorgun.
Kosningin var hreint forms-
atriði. því að miðstjórnin getur
haft skipti á stjórnmálanefnd-
armönnum á leynifundum
fyrirvaralaust, eins og raunar
gerðist þegar Leóníd Brésneff
tók við af Nikita Krúsjeff árið
1964.
Stjórnmálanefnd sovézka
kommúnistaflokksins er skipuð
eftirtöldum mönnum:
Leóníd Brésneff, valdamesta
manni Sovétríkjanna. Hann er
74 ára að aldri, borinn og
barnfæddur Rússi, og komst
óvænt til valda þegar Krúsjeff
var útskúfað fyrir 17 árum.
Júrí V. Andropoff, sem er 66
ára. Andropoff hefur verið yfir-
maður KGB, sovézku leyniþjón-
ustunnar, frá 1967. Hann er
Rússi, sonur járnbrautarstarfs-
manns, en í stjórnmálanefndinni
hefur hann átt sæti sl. fimm ár.
Michail S. Gorbacheff, rússn-
eskum bóndasyni. Hann er lang-
yngstur flokksbroddanna, aðeins
50 ára, og hefur setið skemmst í
stjórnmálanefndinni. Hann var
skipaður í nefndina í fyrra, en af
hálfu flokksins hefur hann yfir-
umsjón með landbúnaði, þeim
atvinnuvegi landsmanna, sem
verst er á vegi staddur.
Viktor V. Grishin. Hann er
Rússi, sonur járnbrautarstarfs-
manns og er 66 ára að aldri.
Grishin hefur verið yfirmaður
Moskvudeildar kommúnista-
flokksins frá 1967 og í stjórn-
málanefndinni hefur hann setið
frá árinu 1971.
Andrei Gromyko, rússneskum
bóndasyni, 71 árs að aldri. Hann
varð þekktur utan Sovétríkjanna
þegar í annarri heimsstyrjöld-
inni, þegar hann fór til Banda-
ríkjanna sem stjórnarerindreki,
en utanríkisráðherra varð hann
árið 1957. Hann hefur setið í
stjórnmálanefndinni frá 1973.
Andrei P. Kirilenko, 74ra ára
Rússi, nánum samstarfsmanni
Brésneffs um árabil. Hann hefur
verið sérstakur ráðgjafi um inn-
anríkismál frá 1966, stjórnmála-
nefndarmaður frá 1962, en sæti
á hinni sovézku löggjafarsam-
kundu hefur hann átt frá 1974.
Dinmukhamed A. Kúnaeff,
eina Asíumanninum, sem sæti á
í stjórnmáianefndinni. Hann er
69 ára og hefur verið yfirmaður
kommúnistaflokksins í Kazak-
stan frá 1964, en íbúar þess
lands eru langflestir múhamm-
eðstrúar. Hann var tekinn í
stjórnmálanefndina árið 1971.
Arvid Y. Pelshe, 82ja ára.
Hann er aldursforseti öldung-
anna, ættaður frá Litháen, og
tók þátt í byltingunni 1917.
Hann hefur verið í stjórnmála-
nefndinni frá 1966, þar sem
hann gegnir hlutverki yfirum-
sjónarmanns nefndar þeirrar
sem fylgist með því að stjórn
flokksins haldist í föstum skorð-
um. Pelshe mun vera mágur
annars stjórnmálanefndar-
manns, — Michail Susloffs.
Grigori V. Rómanoff, rússn-
eskum bóndasyni, sem er næst-
yngstur nefndarmanna, 58 ára
að aldri. Hann hefur verið yfir-
maður flokksdeildarinnar í Len-
ingrad frá 1970, en settist í
stjórnmálanefndina árið 1976.
Mikhaíl A. Súsloff, helzta
hugmyndafræðingi flokksins
tign og gerður að yfirmanni
Úkraínudeildar kommúnista-
flokksins.
Þá er ótalinn Konstantín
Sjernenko, sem talinn er Brésn-
eff mjög handgenginn. Hann er
Rússi, kominn af bændafólki, 69
ára að aldri. Hann hefur verið
flokksstjóri í öryggismálum frá
1976, en sama ár settist hann í
stjórnmálanefndina.
Eins og sjá má eru tíu nefnd-
armenn af fjórtán Rússar, en
allt frá upphafi hefur sú þjóð
ráðið lögum og lofum í lýðvelda-
sambandinu, enda þótt hún telji
rétt um helming þeirra 258
milljóna, sem Sovétríkin byggja.
Valdhafar í Peking
óttast „gagn-
byltingarsinna44
oMk. THE OBSERVER
Jiang Qing, ekkja Maós, fyrir rétti. Réttarhöldin í Peking vöktu
heimsathygli, en þau voru aðeins fyrirboði viðtækari réttarhalda í
Kína.
Veður
víða um heim
Akurayri -6 alskýjað
Amsterdam 2 skýjaó
Aþena 16 skýjað
Berlín 2 skýjaó
BrUssel 9 skýjaó
Chicago 5 snjókoma
Feneyjar 8 alskýjaó
Frankfurt 10 skýjað
Færeyjar -1 skýjaó
Genf 4 rigning
Helsínki -4 rígning
Jerúsalem 13 heióskírt
Jóhannesarb. 22 rigning
Kaupmannahöfn 0 heióskirt
Las Palmas 19 skýjaó
Lissabon 14 skýjaó
London 5 skýjaó
Los Angeles 226 skýjaó
Madrid 17 skýjað
Malaga 20 léttskýjaó
Mallorca 16 skýjaö
Miami 23 heióskírt
Moskva -3 heióskýjaó
New York 1 skýjaó
París 10 skýjaó
Reykjavík -4 snjókoma
Ríó de Janeiro 40 skýjaó
Rómaborg 14 heiðskírt
Stokkhólmur 0 heióskírt
Tel Aviv 19 heióskírt
Tókýó 8 rigning
Vinarborg 1 skýjaó
Vancouver 7 rígning
Nú eru teikn á lofti í Kína um
meiriháttar hreinsanir i land-
inu í kjölfar réttarhaldanna
yfir „fjórmenningaklíkunni*4.
Wang Guangmai, ekkja Liu
Shaogi, fyrrum forseta lands-
ins, en hann féll í ónáð í
menningarhyltingunni, hefur
varað við nýrri menningarbylt-
ingu. Fyrir skömmu skriíaði
hún í „Dagblað alþýðunnar“:
„Sumir bíða þess í ofvæni að
hefja nýja menningarbyltingu.
Við megum ekki vanmeta þessi
öfl.“ bessi orð ekkjunnar
endurspegla viðhorf og ótta
ráðamanna við „gagnhyltingar-
öfl“ í landinu.
Valdhafar hafa þungar
áhyggjur af hugsanlegri menn-
ingarbyltingu og þeir eru sér vel
meðvitandi um, að milljónir
flokksmeðlima högnuðust vel á
menningarbyltingunni á árunum
1966 til 1976. Þá hefur borið á
óánægju með hreinsanir í kín-
verska hernum og víst er, að
yfirmenn hersins margir hverjir
eru allt annað en ánægðir með
þróun mála, en ekki síst hafa
hermenn verið dregnir fyrir rétt
upp á síðkastið. Þannig voru
fimm háttsettir herforingjar
leiddir fyrir rétt, þegar réttar-
höldin yfir fjórmenningaklík-
unni stóðu sem hæst.
Réttarhöld yfir
frænda Maós í
Mansjúríu
Þá verða fimm herforingjar í
Mansjúríu dregnir fyrir rétt, að
sögn dagblaðs í héraðinu. Fyrir
dyrum standa réttarhöld yfir
Mao Yuanxin, frænda Maós heit-
ins. Mao Yuanxin var stundum
nefndur „herra norð-austursins“
manna á meðal og voru völd
hans víðtæk. Maó og herforingj-
arnir eru ákærðir fyrir að hafa
verið með í ráðum um að sýna
Maó formanni banatilræði á
sínum tíma. En það er raunar
sama ákæran og borin var á
hendur sakborningum í Peking.
Þá hafa borist fréttir um
réttarhöld í Yunan-héraði. Þar
eru sakborningar sakaðir um að
fylgja „gagnbyltingarstefnu
fjórmenningaklíkunnar" eins og
það er orðað.
Um gervallt Kínaveldi eru
stjórnvöld á varðbergi fyrir
hugsanlegum „gagnbyltingaröfl-
um“. í Tíbet hefur aðalritari
flokksins hvatt til „útrýmingar á
gagnbyltingaröflum" og í Sich-
uan hefur miðstjórn flokksins
hvatt til „öflugrar sóknar gegn
gagnbyltingaröflum" og sama
máli gegnir í Guangxi-héraði.
Innan skamms kemur mið-
stjórn kommúnistaflokksins
saman til fundar og yfirvöld
hafa gert lýðum ljóst, að þeir
sem efna vilja til vandræða í
landinu, munu sjálfir uppskera
slíkt hið saman.