Morgunblaðið - 05.03.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
23
Karpov ákveður
sig á mánudag
L«» Palmas. 4. marz. AP.
ANATOLY Karpov heimsmeistari
i skák satfðist mundu |{era upp við
si|? á mánudaK hvar hann kysi að
tefla einvÍKÍð um heimsmeistara-
titilinn i skák. Þrir staðir koma
til Kreina fyrir einvÍKÍð. Las
Palmas. Meranó á ítaliu ok
Reykjavik.
Karpov, sem er að kynna sér
aðstæður á Las Palmas, sagði að
hann kynni vel við sík á Kanaríeyj-
um, þar hefði hann teflt á skákmóti
með KÓðum árangri.
„En þetta er ekki venjulegt
skákmót sem mig langar til að
vinna, heldur þarf ég að verja
heimsmeistaratitilinn. Ég verð að
ígrunda það vel hvar ég vil helzt
verja titilinn," sagði Karpov. Hann
kom til Kanaríeyja í boði hótel- og
ferðaskrifstofueigenda þar en sam-
tök þeirra standa að tilboði um
einvígishaldið í Las Palmas.
Fyrstu skyldu-
störflafði Díönu
FRELSI FEGNIR — Bresku trúboðarnir er hafðir voru i haldi i íran i nokkra mánuði og sakaðir um
njósnir þar i landi, voru frelsinu fegnir er þeir komu heim úr prisundinni um helgina. Myndin var
tekin á Lundúnaflugvelli við heimkomuna. Maðurinn með gleraugun er erkibiskupinn af
Kantaraborg. en hann tók á móti trúboðunum við heimkomuna.
E1 Salvador:
Hershöfðingi hvetur
til hallarbyltingar
London, 4. marz. — AP.
LAFÐI Diana Spencer, sem
kvongast Karli Bretaprins i
júlílok, framkvæmir sín fyrstu
skyldustörf i nafni krúnunnar
Islamahad. 4. marz. — AP.
FLUGRÆNINGJARNIR er
rændu pakistanskri þotu í inn-
anlandsflugi slepptu í dag 27
farþegum frá borði er einni
kröfu þeirra hafði verið fullnægt.
Enn eru 121 farþegi og flugliðar
i haldi um borð i þotunni, sem
Útskipa
hveiti
til Iran
New York, 4. marz. — AP.
BANDARÍSK yíirvöld ha-
fa veitt leyfi fyrir því að
útskipað verði allt að 25
þúsund _ smálestum af
hveiti til íran, og er það til
marks um að viðskipti
ríkjanna séu að komast í
eðlilegt horf.
Reyndar var ekki sett
bann við sölu matvara til
Iran er Jimmy Carter for-
seti greip til viðskipta-
þvingana vegna gíslatök-
unnar, en bandarískir
hafnarverkamenn neituðu
með öllu að vinna að út-
skipun á hveiti og öðrum
vörum til íran meðan gísl-
arnir væru hafðir í haldi.
næstkomandi mánudag. er hún
verður viðstödd sérstaka fjár-
öflunarsamkomu til styrktar
konunglegu óperunni.
Meðal þeirra sem þátt taka í
skemmtiatriðum verður Grace
prinsessa af Monakó. Prinsess-
an, sem sneri baki við Hollywood
árið 1956 til að ganga að eiga
Rainier fursta, fer með hlutverk
í einu atriða samkomunnar, sem
samanstendur af söng, tónlist og
upplestri.
Efnt er til samkomunnar til að
afla fjár í byggingarsjóð óper-
unnar. I þann sjóð vantar níu
milljónir sterlingspunda til að
hægt verði að byggja við óperu-
húsið. Þegar hafa safnast 8,1
milljón af þeim 17 miiljónum
sem til þarf.
Um 300 gestir hafa greitt 50
sterlingspund fyrir aðgöngu-
miða sinn. Eftir samkomuna
efna Karl prins og lafði Diana til
mótttöku fyrir viðstadda. Búist
er við að lafði Diana framkvæmi
fjölmörg skylduverk í nafni
krúnunnar á þeim tíma sem enn
er fram að hinni konunglegu
hjónavígslu, sem fram fer í St.
Pauls-dómkirkjunni í Lundún-
um með pomp og prakt.
beint var til Kabulflugvailar í
Afganistan.
Þriggja manna nefnd pakist-
anskra embættismanna er á leið-
inni til Kabúl til viðræðna við
flugræningjana, sem sagðir eru
vera þrír að tölu. Krefjast þeir
þess að fá að halda til íran, og að
látnir verði lausir úr haldi ætt-
ingjar og ýmsir aðrir er teknir
voru fastir í nýlegum pólitískum
óeirðum í Karachi.
Ein af kröfum flugræningjanna,
var að útvarpið í Pakistan lýsti
því yfir að þeir tilheyrðu ekki
flokki sem kenndur er við Ali
Bhutto, fyrrum forsætisráðherra,
og er bannaður. Slepptu þeir 27
farþegum, þar á meðal veikum
manni, er þeir heyrðu yfirlýsingar
af þessu tagi í útvarpinu.
San Salvador. 4. marz. AP.
HERSHÖFÐINGI, sem
seztur er í helgan stein.
hvatti í dag til „hallarbylt-
ingar“ í E1 Salvador, þar
sem (ulltrúar kristilegra
demókrata í landsstjórn-
inni yrðu hraktir frá og
herinn tæki völdin í sínar
hendur. Kvað hershöfðing-
inn byltingu af því tagi
eiga miklu fylgi að fagna í
röðum ráðamanna í her
landsins.
Hershöfðinginn fyrrver-
andi, Roberto D’Abuisson,
sem var yfirmaður leynilög-
reglunnar í valdatíð Carlosar
Humberto Romero forseta, og
kunnur hægrisinni, sagði
kristilega demókrata vera ha-
lla undir marxisma, og víkja
þyrfti þeim úr landsstjórn-
inni, þar sem þeir eiga þrjá
fulltrúa á móti einum fulltrúa
hersins.
D’Abuisson er einnig kunn-
ur fyrir andúð sína á ýmsum
gerðum landsstjórnarinnar og
var á sínum tíma fyrirskipað
að varpa honum og vinum
hans í fangelsi. Landsstjórn-
arfulltrúinn sem það fyrir-
skipaði var síðan hrakinn frá
völdum, og er talið að D’Abu-
isson hafi staðið á bak við
áróðursherferð gegn honum.
Til harðra átaka kom í dag
milli stjórnarhermanna og
skæruliða í norðausturhluta
landsins, þar sem sagt er að
herinn sé að „þurrka upp“
Noregur:
Osló, 4. marz. frá Jan Erik Laure
fréttarltara Mbl.
HERÖR hefur verið skorin upp
gegn starfsemi nýnasista í Nor-
egi, og nokkrir forsprakkar
þeirra teknir fastir.
Fyrir viku siðan myrtu tveir
nýnasistar félaga sina tvo af ótta
við að þeir skýrðu lögregiunni
frá vopnaráni. Ekki komst upp
um tengsl morðingjanna við nas-
istahreyfinguna fyrr en eftir
morðin. Hinir myrtu, sem voru
rétt rúmlega tvítuKÍr, voru einn-
ig i nasistahreyfingunni.
Þegar verið var að rannsaka
morðin, komst lögreglan á slóðir
svæði er skæruliðar höfðu
hreiðrað um sig á.
Einnig kom til átaka á
Ilopango-flugvellinum, sem er
austur af höfuðborginni, en
þar hefur lofther E1 Salvador
aðalbækistöðvar sínar. Lítið
mannfall varð í átökunum og
fáir særðust.
forsprakka samtakanna, sem
reyndist vera norskur undirliðs-
foringi er þjónaði í friðargæzlu-
liði Sameinuðu þjóðanna í Líban-
on. Hann var umsvifalaust sóttur
tii Líbanon og hnepptur í varð-
hald.
í ljós kom, að foringinn hafði
keypt vopn, sem morðingjarnir
komust yfir er þeir rændu eina
vopnageymslu hersins skammt
frá Osló, en þar var framið eitt
mesta vopnarán í sögu Noregs.
Samtök nýnasista, sem ekki eru
talin fjölmenn, hafa það m.a. á
stefnuskrá sinni að berjast gegn
skækjulifnaði og eiturlyfjaneyzlu.
Höfðu samtökin áætlanir á prjón-
unum um að efna til ofbeldisað-
gerða víða í Noregi.
Heldur er ekki talið, að samtök
nýnasista, hafi bein tengsl við
nasistíska flokkinn Þjóðarfylk-
ingin, sem blandar sér í norska
stjórnmálabaráttu.
Viss óróleiki hefur gert vart við
sig meðal forsvarsmanna norska
hersins, þar sem margir nasist-
anna eru ákaft hlynntir vopna-
burði og koma margir þeirra úr
röðum hermanna. Hefur af þessu
tilefni verið ákveðið að róttækir
hægrisinnar fái ekki aðgang að
herskólum. Þá hefur unglinga-
heimavarnarliðið verið undir
smásjánni, þar sem morðingjarn-
ir tveir tilheyrðu því. Heimavarn-
arliðið samanstendur af ungum
norskum mönnum, sem fengu
þjálfun í vopnaburði er þeir náðu
17 ára aldri, en sinna ekki her-
skyldu sem slíkri.
Mikið gullmagn
finnst í Svíþióð
Stokkhólml, 4. marz,
frá GuAfinnu RaKnarsdóttur,
SÆNSKA námafélagið Boliden
hefur nú fundið gifurlegt
Kullmagn i jarðlögum við
Holmtjárn nálæKt Skellcfteá i
Norður-Svíþjóð. Ilér er um að
ra-ða mesta KullmaKn sem
nokkru sinni hefur fundist i
Sviþjóð. Gullið uppKötvaðist við
boranir með nýrri tækni niður
á 200 metra dýpi. Auk Kullsins
er berKÍð mjög auðugt af silfri
og kopar. Bolidcn fyrirtækið er
eitt auðugasta fyrirtæki Sví-
þjóðar og gróðinn á siðastliðnu
ári var 430 milljónir sænskra
króna. Fengu þá allir starfs-
menn fyrirtækisins 2.800
sænskar krónur i kaupuppbót.
Gróðinn 1981 verður líklcga
rúmlcga 500 milljónir sænskra
króna.
Það eru aðeins nokkrir mán-
uðir síðan Boliden uppgötvaði
geysilegt silfurmagn í jarðlögum
í Dölunum. Fyrirtækið var upp-
haflega stofnað í kringum starf-
rækslu mikilla gullnáma í N-Sví-
þjóð og var unnið úr þeim gull í
samfellt 30 ár, frá 1925 til 1955.
Aðalnámasvæði Boliden-félags-
ins í N-Svíþjóð er rannsakað
niður á 20 metra dýpi, en með
hinni nýju bortækni er nú auð-
veldara að gera rannsóknir á
miklu dýpi, og verður þeim
haldið áfram á öðrum svæðum,
svo ekki er útilokað að fleiri
góðmálmar komi í leitirnar á
næstunni.
Þotan í Kabúl
Herferð gegn
nýnasistum