Morgunblaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
Kötlufellsmálið:
„Konan játaði ekkert fyrir mér“
- segir forstöðumaður Fíladelfíu
„MÁLID er á rannsóknarstigi ok
þvi vil ók ekki tjá mÍK um þaó
eínisleKa." saKÓi Ilallvarður Ein-
varðsson rannsóknarlöKreKÍu-
stjóri i samtali vió Mbl. i k«t
þeKar hann var spurður um
rannsókn vegna fréttar
DaKblaðsins um Kútlufellsmálið
þar sem se^ir að eÍKÍnkonan hafi
játað fyrir presti sínum að hafa
verið völd að dauða manns síns.
Hallvarður staðfesti að Einar J.
RÁÐSTEFNA um öryKKÍsmál
blindra og heyrnardaufra verður
haldin sunnudaKÍnn 8. marz að
Hótel Loftleiðum ok hefst hún kl.
10. Ráðstefnan er haldin á ve^um
J.C. Reykjavík. BlindrafélaKsins
ok FélaKs heyrnarlausra.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um viðhorf blindra og heyrnar-
daufra og framsöKumenn eru
Halldór S. Rafnar, formaður
Blindrafélagsins, Hervör Guðjóns-
Gislason forstöðumaður Fíla-
delfíusafnaðarins hefði beðið um
rannsókn málsins og sagði rann-
sóknarlöKreKÍustjóri fréttina
ranga að meginefni. „Samtal Ein-
ars við konuna var trúnaðarmál
hans ok konunnar ok þannig til
komið," saKði Hallvarður. „prest-
ur var að heimsækja safnaðar-
barn sitt ok helK bönd ok réttar-
ga-slan vernda slík samtöl."
Morgunblaðið hafði einnig sam-
dóttir, formaður Félags heyrnar-
lausra, Óli H. Þórðarson
framkvæmdastjóri Umferðarráðs,
og Eyjólfur Sæmundsson forstjóri
vinnueftirlits ríkisins. Svavar
Gestsson félagsmálaráðherra set-
ur ráðstefnuna. Þá starfa og
umræðuhópar og í lokin verða
almennar umræður.
Ráðstefnan er öllum opin og
hefst eins og áður segir kl. 10
árdegis.
band við Einar J. Gíslason og kvað
hann það hrapaleg mistök hvernig
Dagblaðið skrifaði þar sem þeir
segi að konan játi fyrir honum.
„Eg var sendur frá foreldrum
konunnar sem prestur hennar og
hún játaði ekkert fyrir mér, um
það var ekki að ræða. Það eru því
helber ósannindi Dagblaðsins um
trúnaðarmál," sagði Einar, „en
daginn sem fréttin kom í blaðinu
hafði ég samband við Dagblaðið
til þess að krefjast leiðréttingar.
Eg fékk ekki samband við neinn
blaðamann og ritstjórar blaðsins
voru ekki við, en mér var gefið
samband við Ólaf Eyjólfsson
skrifstofustjóra blaðsins og krafð-
ist ég þess við hann að þeim
boðum yrði komið til yfirmanna
blaðsins að ég krefðist leiðrétt-
ingar, en þeir hafa ekki haft fyrir
slíku.“
Ómar Valdimarsson fréttastjóri
Dagblaðsins sagði í samtali við
Mbl. í gær að þeir stæðu við frétt
sína, samkvæmt þeirra heimild-
um, en hann kvað þá aldrei hafa
haft samband við Einar J. Gísla-
son og eini maðurinn sem hann
vissi til að Einar hefði haft
samband við á Dagblaðinu vegna
þess máls væri skrifstofustjóri
blaðsins. „Ef konan talaði ekki við
Einar um þetta, hvað er hann þá
að kæra brot á trúnaðarsam-
bandi,“ sagði Ómar, „það er nokk-
uð sem okkur langar að spyrja um
og eins hver fór fram á þetta
samtal."
Ráðstefna um umferð-
ar- og öryggismál blindra
og heyrnardaufra
Nýjungar í viðskiptadeild
FÉLAG viðskiptafræðinga og
hagfræðinga gengst fyrir félags-
fundi í kvöld og verður rætt um
nýjungar í náms- og lesefni í
fyrirtækjakjarna viðskiptadeildar
Háskóla Islands.
Kennarar fyrirtækjakjarnans
munu kynna starfandi viðskipta-
og hagfræðingum það, sem efst er
á baugi í sínum fræðigreinum og
er hér gott tækifæri til endur-
menntunar.
Fundurinn verður haldinn í
stofu 201 í Árnagarði og hefst
klukkan 20.
INNLENT
EFTIR vikulangt verkfall undirmanna á farskipum hafði
töluvert af vörum safnast upp í höfnum erlendis. Álafoss.
skip Eimskipafélagsins, var á ferðinni um meginlandið í
vikunni og kom til Reykjavíkur í gærdag drekkhiaðinn
vörum. Með skipinu nú voru liðlega 2000 tonn, sem er það
mesta, sem flutt hefur verið með skipinu. Ennfremur voru
með skipinu fjölmargir bílar. Ljósmynd mm. ói.k.m.
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
Á MORGUN, föstudaginn 6. marz. er hinn alþjóðlegi bænadaKur kvenna og
verða samkomur þá haldnar viða um landið. AlþjMlegur bænadagur
kvenna er vaxinn úr iitium bænahópum upp i aiheimssamfélag og hafði um
miðja 19. öld myndazt visir að bænahring.
Árið 1887 báðu forystukonur ým-
issa trúflokka hinnar kristnu kirkju
um að einn dagur yrði ár hvert
sérstaklega helgaður bæn fyrir öllu
kristniboðsstarfi heima og erlendis.
Þá var fyrsti föstudagur á föstunni
valinn, en nú er bænadagurinn alltaf
fyrsta föstudaginn í marz. Hreyfing-
in hefur aðalstöðvar sínar í New
York, en konur hinna ýmsu landa
eru beðnar að velja yfirskrift og
undirbúa guðsþjónustuna hverju
sinni. Sömu meginatriðin eru þá
notuð á samkomunum um heim
allan.
Að undanförnu hafa þær verið
undirbúnar af konum í Kanada,
Nýja Sjálandi, Ástralíu, Ameríku,
Englandi, Indlandi, Þýzkalandi, Jap-
an, Argentínu, Chile, Kóreu, Skot-
landi, Tonga-eyjum, Ceylon, Afríku
og fleiri löndum. Að þessu sinni
kemur bænarefnið frá Indíana-
konum í Bandarikjunum, en ein-
kunnarorð dagsins eru: Jörðin heyrir
Drottni til, Sálm. 24,1.
I Reykjavík verður samkoma hald-
in í Dómkirkjunni kl. 20:30 og eru
allir velkomnir. Að undirbúningi
bænadagsins á íslandi starfar nefnd
skipuð konum úr Aðventkirkjunni,
Elím, Fríkirkjunni, Hjálpræðishern-
um, Hvítasunnusöfnuðinum, KFUK,
Kaþólska söfnuðinum, Kristniboðs-
félagi kvenna og Þjóðkirkjunni.
Blönduvirkjun:
„Langanir, þrár eða gróða-
von einstakra manna eiga
ekki að hafa úrslitaáhrif4
- segir Páll Pétursson um ályktun stjórnar kjördæmisráðs
Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra.
„ÉG TEL þetta ekki vantraust á
mig persónulega. Það er rétt að
taka það fram, að þessir menn,
sem að ályktuninni stóðu eru
vinir mínir og velviljaðir flestir
eða allir,“ sagði Páll Pétursson
framsóknarmaður og 1. þing-
maður Norðurlandskjördæmis
vestra, er Mbl. ræddi við hann
símleiðis til Kaupmannahafnar í
gær, en þar situr hann þing
Norðurlandaráðs. Mbl. bar undir
hann fréttir og blaðaskrif um
ályktun stjórnar kjördæmisráðs
Framsóknarflokksins í kjör-
dæmi hans og við spurðum hann
fyrst hvort hann liti á þetta sem
vantraust af hendi samflokks-
manna og kjósenda til hans sem
þingmanns.
„Sumir þessara vina minna
hafa verið áhugamenn um virkj-
un Blöndu í mörg ár og mér
kemur afstaða þeirra ekki á
óvart. Ég tek undir með þeim að
ég vona að lausn finnist á
málinu. Að vísu er þetta ekki í
mínum höndum nú. . Það eru
viðræður í gangi milli nefndar
sveitarstjórnarmanna í viðkom-
andi hreppum og RARIK, og þar
eru úrvalsmenn að starfi, sem ég
vona að finni farsæla lausn.“
Lumhra ekki á
föllnum andstæðinRÍ
— Hverja telur þú ástæður
þess að flokksbræður þínir
álykta á þennan hátt nú?
„Ég vil ekki gera áhrif mín
minni heldur en ástæða er til, en
Finnur minn Torfi Stefánsson
hefur haldið því fram, og margir
trúað honum, að ég sé að stöðva
þessa virkjun og geri það ein-
samall. Ég er kannske stór og
ógurlegur maður í augum Finns
Torfa. En þannig stendur nú á,
að m.a. fyrir minn tilverknað
missti hann það lifibrauð, sem
hann ætlaði að verða sér út um í
síðustu kosningum. Ég lumbra
ekki á föllnum andstæðingi og
þess vegna hef ég síðan Finnur
féll aldrei rekið þetta ofan í
hann. Að vísu sá flokkurinn
hans um að koma honum á
launaskrá í dómsmálaráðuneyt-
inu, sem frægt varð, svo ég er
víst e.t.v. óþarflega viðkvæmur."
— Telur þú að hann eigi
einhvern hlut í tilkomu þessarar
ályktunar?
„Hann vill hafa uppþotið sem
mest þarna, telur að hann hagn-
ist á því. Hann myndi áreiðan-
lega telja sér gagn í að sprengja
allt samkomulag."
— Hvert er þitt álit á þessum
virkjunarmálum?
„Mergurinn málsins er sá, að
ég hef ekki þessa ákvörðun í
mínum höndum. Ég átti þátt í
því að koma af stað samninga-
viðræðum. Samkomulag er auð-
vitað það, þegar báðir slaka til
og gefa eftir, en ekki að annar
gefist upp og hinn fái allt sem
hann heimtar. Ég tel rétt að
nota vatn Blöndu til raforku-
framsleiðslu. Ég vil hins vegar
koma í veg fyrir að ónauðsynlega
miklu landi sé eytt. Menn hafa
misjafnt verðmætamat. Ég met
ísland mikils. Ég tel mig ekki
hafa umboð eða leyfi frá sam-
vizku minni eða eftirkomendum
til að eyða verulegu landsvæði að
óþörfu. Ég viðurkenni að okkur
vanta miðlunarlón. Þetta er mitt
sjónarmið. Það er að vísu ekki
sjónarmið allra. Sumir meta
Island ekki svo mikið, segja t.d.
að hverjir tíu ferkílómetrar af
Islandi gætu verið jafngildi eins
togara."
Eru þeir borjfunarmenn?
— Hver eru andsvör þín við
yfirlýsingum flokksbræðra
þinna fyrir norðan, þeirra sem
eru hvað heitastir út.í þig. skv.
fréttum í Tímanum?
Páll Pétursson
„Ég spyr menn í alvöru, hvort
þeir séu borgunarmenn fyrir
þetta land, þ.e.a.s. geta þeir búið
til land eins og það sem þeir
eyðileggja og í sama náttúrulega
ástandi. Þeir sem treysta sér til
að búa til Galtarárflóa, Sand-
árstokka, Kólkuflóa, Ullarflóa,
Langaflóa eða þá flæmið norður
af Helgufelli, ættu að gefa sig
fram. Ég hefði gaman af að
kynnast svoieiðis mönnum. Hvað
það varðar, hvort ég sé á móti
Blönduvirkjun, þá stend ég alveg
nákvæmlega við það sem ég
sagði fyrir síðustu kosningar, að
það væri óvitaskapur að nota
ekki þetta vatn, en það yrði að
reyna að gera það búmannlega."
— Telur þú að þú eigir
skoðanabræður fyrir norðan?
„I þeim sveitum sem hér um
ræðir liggur minn pólitíski bak-
fiskur. Ég kippi mér ekki upp við
það þó einhverjir verði óánægðir
með mig. Það gengur svona í
pólitík."
— Verður Blönduvirkjun ekki
næsta virkjun landsmanna, ef þú
fengir einn að ráða?
„Ég vona að viðunandi lausn
finnist og ég veit að það þarf
ekki að eyðileggja alla þessa 60
ferkílómetra af Islandi og þó er
hægt að reisa Blönduvirkjun.
Hvar hún verður í röð virkjana
er ekki tímabært að fullyrða á
þessu stigi málsins og langanir,
þrár eða gróðavon einstakra
manna eiga ekki að hafa úrslita-
áhrif á það, heldur dómgreind
þeirra. Hins vegar stendur
Blanda mjög framarlega í röð-
inni, þar sem unnt er með henni
að bæta úr hinum verkfræðilegu
mistökum sem hafa verið gerð
við lónamyndun á Þjórsár- og
Tungnársvæðinu. Austurlands-
virkjun er hins vegar of stór til
að vera toppstöð fyrir þær.“
Hlakka til að
hitta vini mína
— Hræðist þú ekki að missa
þingsætið?
„Nei. Það þýðir ekkert að vera
hræddur við umbjóðendur sína
vegna þess að þeir hafa það í
hendi sinni, t.a.m. kjördæmis-
stjórnin, hvort menn verða í
framboði lengur eða skemur. Ég
fæst ekki til að gera það sem
mér þykir rangt, jafnvel þó
þingsætið sé í húfi.“
— Tíminn segir, að raddir séu
uppi um það fyrir norðan að
sumir séu jafnvel farnir að hafa
orð á því, hvort ekki megi
framlengja fundi Norðurlanda-
ráðs. Hvað viltu segja um það?
„Mér líður að vísu ágætlega
hér í Kaupmannahöfn og nóg er
hér að starfa. Ég kem væntan-
lega heim laust fyrir helgina og
ég þoli vart við því ég hlakka svo
til að hitta vini mina, — einnig
fyrir norðan," sagði Páll í lok
viðtalsins.