Morgunblaðið - 05.03.1981, Side 27

Morgunblaðið - 05.03.1981, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 27 Veiðisókn og veiðiþol: Fiskiskipastóll- inn ekki of stór - sagði sjávarútvegsráðherra í cfri deild Alþingis i gær vóru fjögur mál á dagskrá. öll ten>?d sjávarútvegi: heimild fyrir ríkisstjórnina að veita sjálfskuldarábyrKÓ til kaupa á skuttogurum. IlaKkvæmni i endurnýjun skipastólsins. greiðslutrygKÍnj?arsjóður fiskiskipa og efling aldurslagatrygginga fiskiskipa. Tvö hin fyrri málin fengu umræðu og var visað til þingnefndar. Nokkrar deilur urðu um frumvarp til laga um hagkvæmni i endurnýjun skipastólsins. Frumvörp Kjartans Jóhannssonar Kjartan Jóhannsson (A) mælti fyrir tveimur frumvörpum. Hið fyrra fól í sér að lög nr. 28/1972 um heimild fyrir ríkisstjórn að veita sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á skuttogurum falli niður. Tilgangur þessarar lagagreinar var að örva togarakaup, sagði Kjartan. Aðstæður eru nú gjörbreyttar. Því er eðlilegt að Alþingi þurfi um að fjalla, hvort ástæða er til að veita slíka ábyrgð. Síðara frumvarpið felur í sér að „á hverju ári frá og með 1983 skuli viðbætur og endurnýjun fiskiskipa nema að hámarki 50% af meðaltali úrfalls tveggja næstliðinna ára, mældu í brúttórúmlestum. Úrfall telst ef skip er afmáð af skipaskrá, og viðbætur og endurnýjun teljast nauðsynlega endurnýjun fiskiskipa- stólsins i næstu framtíð. Spurningin sé, hvern veg við nýtum fiskveiði- landhelgi okkar sem bezt, hvort það verði gert með stórum togurum eða öðru vísi samansettum fiskveiði- flota. Guðmundur gagnrýndi of mikla aukningu of stórs togaraflota en lagði áherzlu á hverskonar fram- farir í veiðum og vinnslu í harðnandi sölusamkeppni sjávarafurða. Þá þyrfti að hlúa að því rekstrarformi, sem verið hafi aflgjafi í íslenzkum sjávarútvegi, þ.e. eignaraðild ein- staklinga, skipstjóra og sjómanna, en að því rekstrarformi væri nú hert með margvíslegum hætti. 50%-reglan fjarstæða Steingrimur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra, sagði m.a. að ýmis Bíðum átekta Tómas Arnason, viðskiptaráð- herra, tók í sama streng og sjávar- útvegsráðherra. Rétt væri að bíða með afgerandi ákvarðanir. Stutt væri síðan fiskifræðingar hefðu bundið tillögur sínar við 250 þúsund lestir af þorski. Nú töluðu þeir um 400 þúsund lestir. Þannig væru viðhorf að breytast. Þorskstofninn væri að styrkjast. Brotthvarf er- lendra veiðiflota af íslandsmiðum væri mikilvægari ávinningur en menn gerðu sér grein fyrir í fljótu bragði. Hömlur í þessu efni væru og ætíð varhugaverðar. Víti landbúnaðarins Kjartan Jóhannsson (A) sagði veiðisókn ráða því hve ör uppbygg- ing þorskstofnsins væri. Fyrri tillög- ur fiskifræðinga væru miðaðar við örari uppbyggingu í hámarksaf- rakstur þorskstofnsins en þær síð- ari. Ekki mætti rugla þessum tölum saman nema vita um forsendur þeirra: stefnumótun varðandi upp- byggingu stofnsins. Kanadamenn gengju varlega á sinn þorskstofn, tækju ekki meira úr honum en svo Sjávarútvegsráðherra ræðir málin við starfandi forseta efri deildar, borvald Garðar Kristjánsson. nýsmíði fiskiskipa innanlands og erlendis og kaup á fiskiskipum erlendis frá. Opinberar lánastofnan- ir og gjaldeyrisyfirvöld skulu — að höfðu samráði sín í milli — sjá svo um að veitt lánsloforð og gjaldeyris- yfirfærslur séu innan ofangreindra marka.“ Kjartan sagði frumvarp þetta þjóna þeim tilgangi að miða stærð fiskiskipastólsins við veiðiþol fiski- stofna, þ.e. að stuðla að hagkvæmni og hagnaði í útgerð, bæði fyrir sjómenn, útvegsmenn og þjóðarbúið í heild. Vaxandi samkeppni við aðrar fiskveiðiþjóðir um helztu markaði okkar knýi okkur til að stuðla að sem minnstum kostnaði í veiðum og sem mestri vöruvöndun í vinnslu, auk þess sem uppbygging helztu nytja- fiska okkar haldist í hendur við hyggilega veiðisókn. Stjórnun um fjárfestingarsjóði Guðmundur Karlsson (S) sagðist líta á þetta frumvarp sem jákvætt innlegg í tímabæra umræðu um sjávarútvegsstefnu. Sín skoðun væri hinsvegar sú að ná megi þeim markmiðum, sem frumvarpið stefnir að, með stjórnun um fjárfestingar- sjóði og úreldingarsjóð fiskiskipa, sem auðveldi útvegsaðilum að leggja gömul og óhagkvæm skip til hliðar. Búa þurfi mun betur að innlendri skipasmíði en nú er gert, sagði Guðmundur, auka á samkeppnis- hæfni hennar, m.a. með því að létta á tollum og aðflutningsgjöldum, þann veg að innlendur skipasmíða- iðnaður geti því sem næst annast ákvæði í frumvarpi Kjartans Jó- hannssonar væru orðrétt upp úr bókunum nefndar, sem hann hefði skipað til að rannsaka þessi mál öll. Sú nefnd hefði þó ekki skilað niður- stöðum enn, né væri samstöðu náð í henni um einstök efnisatriði. Hann taldi 50%-regluna fjarstæðu, m.a. af þeim sökum, að menn mundu halda um of í úrelt skip, ef enginn kostur væri á endurnýjun, og myndi það koma niður á hvorutveggja: öryggis- atriðum og hagkvæmni. Hann sagði núverandi skipastól vera hæfilegan, hann mætti þó ekki stækka. Eftir- tektarvert væri að árið 1976 hefðu 25—30% þorskaflans verið 3ja ára fiskur eða yngri en nú væri þetta hlutfall nálægt 5%. Sitt mat væri að fiskiskipastóllinn væri ekki of stór, ef byggða- og atvinnusjónarmið væru tekin með í myndina, þegar til nokkurs tíma væri litið. Smíði smærri skipa Eyjólfur Konráð Jónsson (S) fjallaði einkum um innlendan skipa- smíðaiðnað, sér í lagi smíði smærri fiskiskipa, sem ekki nytu eðlilegrar lánafyrirgreiðslu hjá Fiskveiðasjóði. Nefndi hann sem dæmi skipasmíða- stöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd, sem byggð hefði verið upp af dugnaði og fyrirhyggju, og skilað fyrirmyndar framleiðslu lít- illa veiðiskipa, en verið settur stóll- inn fyrir dyrnar í lánakerfinu. Spurði hann ráðherra um, hvað liði athugun á lánafyrirgreiðslum til slíkra stöðva. Ráðherra kvaðst hafa knúið á dyr Fiskveiðasjóðs um þetta efni. að hann þyldi 2—3 ár þar sem klak mistækist. Þó ættu þeir ekki eins mikið í húfi og við, hvað þennan sjávarútveg varðaði. Er það meining okkar, spurði Kjartan, að koma sjávarútveginum i sama vandræða- básinn og landbúnaðinum? Frumvörpunum var báðum vísað til annarrar umræðu og sjávarút- vegsnefndar. Nýr þingmaður TRYGGVI Gunnarsson, skipstjóri Vopnafirði, hefur tekið sæti á Alþingi sem varamaður Sverris Hermannssonar, vegna fjarveru þess síðarnefnda erlendis. Tryggvi er fyrsti varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Austfjarðakjör- dæmi. Þingfréttir i stuttu máli Úrelt lög feUd niður Verður Bakkusi úthýst úr veizlum ríkisstjórnar? Sjómannafrádráttur Sighvatur Björgvinsson (A) mælti i gær fyrir þingsályktun. sem hann flytur ásamt Pétri Sigurðssyni (S), þess efnis. að sjómannafrádráttur til skatts skuli miðast við ráðningartíma en ekki lögskráningardaga. Ilér er um einfalda leiðréttingu að ra>ða. sem sjómenn hafa óskað eftir, segja flutningsmenn. Námsmannafrádráttur Friðrik Sóphússon (S) mælti fyrir frumvarpi, sem hann flytur ásamt Halldóri Blöndal (S) og Matthíasi Á Mathiesen (S), þess efnis, að nýtist námsmanni eða maka hans ekki námsfrádráttur þá skal honum heimilt að draga íjárha'ð, er svarar hinum ónýtta námsírádrætti, frá tekjum næstu 5 árin eftir að námi lýkur. Enn- fremur skal heimilt að draga frá sem vaxtagjöld vexti og gjald- fallnar verðbætur af námslánum sem veitt eru með heimild í lögum um námslán og námsstyrki. Frið- rik sagði í framsogu að nám væri tegund fjárfestingar. sem hag- kva’mt væri að ýta undir. Eftirstöðvar í launaumslaRÍ Albert Guðmundsson (S) og Guðmundur J. Guðmundsson (Ahl) hafa flutt frumvarp til laga sem kveður svo á að launagreið- endur megi aldrei seilast svo djúpt i launaumslog fólks í þágu skattheimtunnar að nemi meira en 75% „heildarlaunagreiðsina hverju sinni“. Bakkusi úthýst hjá stjórnvöldum? Tiu þingmenn úr öllum flokk- um (Jón Helgason. Salome Þor- kelsdóttir. Karvel Pálmason, Stef- án Valgeirsson, Pétur Sigurðsson. Haraldur ólafsson. Árni Gunn- arsson. Ólafur Þ. Þórðarson og Alexander Stefánsson) hafa flutt tillögu til þingsályktunar. þess efnis. að „Alþingi skori á ríkis- stjórnina að hætta vinveitingum i veizlum sinum". Lagahreinsun. Árlegt lagasafn. Benedikt Gröndal og Sighvatur Björgvinsson. þingmenn Alþýðu- flokks, hafa flutt tillngu til þings- ályktunar, þess efnis, að skipuð skuli laganefnd er geri skrá yfir lög. sem þegar hafa gengt hlut- verki sinu og hafa ekki lengur raunhæfa þýðingu. Rikisstjórn leggi síðan frumvörp fyrir Al- þingi um að fella þau niður, svo timanlega að það megi verða áður en næsta lagasafn verði gefið út. Jafnframt skal gefin út árlega skrá yfir ný lög, breytt lög og brottfallin. og verði þeim skipað i bálka á sama hátt og i lagasafni með efnisyfirliti og skrá um atriðisorð. Innlondur lyfjaiðnaður Guðmundur G. Þórarinsson, Páll Pétursson, Jóhann Ein- varðsson. Davíð Aðalsteinsson og Jón Helgason. þingmenn Fram- sóknarflokks, hafa flutt þings- ályktunartillögu um eflingu inn- lends lyfjaiðnaðar. m.a. að Lyfja- verzlun ríkisins verði efld og kerfisbundið hafin framleiðsla innlendra lyfja í stað lyfja sem flutt eru inn og hagkvæmt væri að framleiða hér. Lyfjanend verði gefin fyrirmæli um að skráning innlendra sérlyfja gangi fyrir erlendum. Rikisspitölum og öðr- um opinberum stofnunum verði gefin „fyrirmæli um að kaupa innlend lyf i stað eriendra þar sem gæði og verð eru samberi- leg“. „Sjúkrasamlög taki ekki þátt í kostnaði við erlend sérlyf ef innlend lyf eru samha'ríleg að verði og ga'ðum." Ýmis fleiri ákvæði eru i tillögunni. ÞýðinKarsjóður Guðrún Ilelgadóttir (Abl) flyt- ur frumvarp til laga um þýð- ingarsjóð. sem „styrkja skuli út- gáfu vandaðra erlendra bók- mennta á íslenzku máli“. Tekjur sjóðsins skulu vera „framlag úr rikissjóði samkvæmt fjárlögum hvers árs, þö aldrei lægri en 500 þúsund krónur á verðlagi ársins 1981“. Rannsóknir á háhitasva'ðum Guðmundur G. Þórarinsson og fleiri þingmenn Framsóknar- flokks flytja tillögu. sem felur i sér, cf samþykkt verður. að ríkis- stjúrnin láti gera „heildaráætlun um og framkvæma rannsóknir á háhitasvæðum landsins, þannig að virkjunarstaðir á tveim háhita- svæðum verði á verkhönnunar- stigi að fimm árum liðnum og fimm háhitasvæðum að tíu árum liðnum". Blöndu- eða Fljótsdalsvirkjun? Pálmi Jónsson. landbúnaðarráðherra og Hjörleifur Guttormsson. iðnaðarráðherra. Þröngt mega sáttir sitja, segir máltækið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.