Morgunblaðið - 05.03.1981, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981
frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ... frá borgarstjórn ... frá
Davíð Oddsson í umræðum um mál fóstra:
Óveður utan dagskrár:
Guðrún Helgadóttir
Sjöfn SÍKurbjörnsdóttir
Birgir ísl. Gunnarsson
Alþýðubandalagið telur sig eiga í höggi
við samstarfsflokkana í borgarstiórn
Á fundi borgarstjórnar sem hald-
inn var fyrir nokkru urðu talsverð-
ar umræður um málefni fóstra.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins hóf umræðurnar og
sagði mál fóstra hafa verið mjög á
döfinni undanfarið. Sagði hann að
það hefði komið glöggt fram að
engin samstaða væri innan meiri-
hlutans um hvernig ieysa ætti
málið. Hingað til hefði alltaf verið
farið með launamál af ábyrgðartil-
finningu, því þetta væru viðkvæm
mál og vandasöm. Hins vegar hefði
það gerst nú að undanförnu, að
meirihlutinn, það er að segja aðilar
innan hans, væri með sífelld yfir-
boð og væri engin samstaða innan
hans. Því næst vitnaði Davíð í
tillögur sem lagðar voru fram í
borgarráði. Þar hlaut tillaga
Kristjáns Benediktssonar og Sjafn-
ar Sigurbjörnsdóttur ekki nægan
stuðning, aðeins tvö atkvæði, á
sama fundi hlaut tillaga í málinu
frá Sigurjóni Péturssyni sömu ör-
lög, þ.e. ekki stuðning. Sjálfstæð-
ismenn sátu hjá við þessar at-
kvæðagreiðslur og létu bóka að
meirihlutinn hefði enga heilstæða
stefnu í kjarasamningum sem
snerta fóstrur.
Davíð Oddsson sagði það afar
sérkennilegt að fylgjast með vinnu-
brögðum meirihlutans í þessu máli,
því öll yfirboð kæmu úr hans eigin
herbúðum en ekki frá minnihlutan-
um, eins og yfirleitt tíðkaðist. Þá
sagði Davíð að það væru engar
stjórnunarlegar forsendur hjá
meirihlutanum, það væri ljóst að
hann hefði engin tök á málinu. Þá
sagði Davíð að þeir Albert Guð-
mundsson, borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, hefðu á fundi
borgarráðs þar sem málið var tekið
fyrir, og skýrt er frá hér að ofan,
ekki treyst sér til að standa að
samþykkt tillagnanna frá aðilum
innan meirihlutans. Því hefðu þeir
setið hjá. Hins vegar væri það
fullljóst að meirihlutinn væri á
engan hátt fær um að leysa þetta
mál, enda væri engin samstaða
innan meirihlutans.
Lágmark að tala
við fóstrur
Næst tók til máls Guðrún Helga-
dóttir (Abl). Hún sagöi það nýja
stefnu í rekstri borgar, ef minni-
hlutinn ætlaði að sitja hjá við
afgreiðslu mála, nái meirihlutinn
ekki samstöðu um aðgerðir. Guðrún
sagði að innan meirihlutans kynnu
að vera skiptar skoðanir um máls-
meðferðina, en hún sagði að það
væri skoðun Alþýðubandalagsins að
laun fóstra væru of lág. Hún sagði
að það þjónaði engum tilgangi að
samþykkja að uppsagnartími fóstra
yrði þrengdur um 3 mánuði, því
slíkt næði aðeins til þeirra sem
fastráðnar væru, en þær væru
aðeins 20 af 141 fóstru. Hinar
myndu hætta eftir sem áður. Þá
sagði Guðrún að það væri lágmark
að borgin talaði við fóstrurnar, en
það hefði formaður launamála-
nefndar ekki gert.
Málið í flækju
Næstur talaði Albert Guð-
mundsson (S). Hann rifjaði upp
fóstrumálið og sagði að það mál
hefði átt að vera sama túnaðarmál
innan launamálanefndar eins og öll
önnur mál sem þar væru rædd. Þá
sagði Albert að það hefði mátt
skilja af máli Sigurjóns Pétursson-
ar þegar hann ræddi þessi mál á
sínum tíma að það væri einhverjum
öðrum að kenna að fóstrur fengju
ekki úrlausn sinna mála. Albert
sagði að það þýddi ekki að vera að
skamma minnihlutann vegna þessa
máls, ekki gætu sjálfstæðismenn
komið vitinu fyrir meirihlutann á
þeirra eigin fundum, þó slíkt væri
ef til vill mögulegt á sameiginlegum
fundum. Þá sagði Albert að sjálf-
stæðismenn í borgarráði hefðu ekki
talið það neina lausn að vísa
fóstrumálinu til borgarstjórnar,
eins og Sigurjón hefði viljað. Þá
sagði Albert að meirihlutinn ætti
• •
„Omurlegur
hráskinnsleikur
Alþýðubanda-
lagsins, einkum
Guðrúnar Helga-
dóttur,“ segir
Sjöfn Sigur-
björnsdóttir
bara að biðja sjálfstæðismenn um
að leysa málin, gæti meirihlutinn
ekki gert það sjálfur. Hann sagði
Davið Oddsson
meirihlutann vera búinn að klúðra
þessu máli, það væri komið í flækju.
Erindi borist
frá öðrum hópum
Næstur tók til máls Kristján
Benediktsson (F). Kristján sagði að
fóstrum hefði ekki tekist að rétta
sinn hlut í síðustu kjarasamning-
um, en hinsvegar kvaðst Kristján
telja að fóstrur ættu rétt á því að
hækka í launastiganum. Hann
sagði að þegar samið var um
sérkjör við starfsmenn borgarinnar
hefði launamálanefnd sett sér þann
ramma að launaflokkabreytingar
yrðu um 500 talsins og þar hefðu
fóstrur fengið 1. launaflokks hækk-
un.
Albert Guðmundsson
Kristján kvað óheppilegt að ræða
um launamál innan borgarstjórnar,
ekki væri vaninn að gera það. Slíkt
myndi leiða það af sér að erfitt
myndi reynast að leysa málin. Þá
sagði hann að erindi hefðu borist
frá öðrum starfshópum þess efnis
að ef mál fóstra yrði tekið upp þá
myndu þeir grípa til sinna ráða.
Kristján sagði að allt þetta mál
væri flókið og viðkvæmt.
Ber keim af
sýndarmennsku
Næstur talaði Birgir ísl. Gunn-
arsson (S). Hann sagði í ræðu sinni
að hann hefði átt sæti í borgar-
stjórn frá 1962 og alltaf hefðu
launamál verið erfið og viðkvæm.
Kristján Benediktsson
Stjórnvöld íhugi
hvernig hægt sé
að aðstoða þá er
harðast urðu úti
— segir Magnús L. Sveinsson
Adda Bára Sigfúsdóttir
Ólafur B. Thors
Á borgarstjórnarfundi sem
haldinn var fyrir skömmu, tók
Magnús L. Sveinsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
til máls utan dagskrár. Magn-
ús gerði þá nýafstaðið óveður
að umtalsefni og sagði: „Eg
leyfi mér að kveða mér hljóðs
utan dagskrár vegna þess
tjóns sem fjöldi Reykvíkinga
varð fyrir í fárviðrinu sl.
mánudagskvöld og þriðju-
dagsnótt. Þetta er í annað sinn
á átta árum sem landsmenn
verða fyrir gífurlegu tjóni af
völdum fárviðris og það er
vitað að þetta tjón hefur bitn-
að á fjölda Reykvíkinga, ein-
staklingum og fyrirtækjum,
sem eru misjafnlega í stakk
búnir til að taka á sig þær
byrðar sem tjónið leiddi af sér.
Enda þótt einhverjir hafi
verið tryggðir fyrir hluta af
því tjóni sem þeir urðu fyrir,
er næsta víst, að meginhluti
þeirra sem fyrir tjóni varð, var
ekki tryggður fyrir slíkum
áföllum. I lögum um Bjarg-
ráðasjóð segir að hlutverk
sjóðsins sé „að veita einstakl-
ingum, fyrirtækjum og sveit-
arfélögum fjárhagsaðstoð til
að bæta meiriháttar tjón á
fasteignum og lausafé af völd-
um náttúruhamfara, svo sem
óveðurs". Nú er það upplýst að
þrátt fyrir þessi lagafyrirmæli
um verkefni Bjargráðasjóðs, er
hann algerlega févana og hef-
ur meira að segja þurft að taka
bráðabirgðalán til að mæta
nauðsynlegum greiðslum á síð-
ustu vikum, samkvæmt því
sem segir í ályktum stjórnar
sjóðsins.
Viðlagatrygging íslands,
sem er skyldutrygging á öllum
fasteignum og hefur það hlut-
verk að tryggja gegn tjóni af
völdum náttúruhamfara, nær
hins vegar ekki til tjóns af
völdum fárviðris. Engu að síð-
ur er slíkur veðurofsi, sem nú
gekk yfir landið ekkert annað
en náttúruhamfarir í hugum
fólks. Það breytir hins vegar
ekki þeirri staðreynd, að við-
lagatrygging bætir ekki tjón
sem af slíku fárviðri hlýst að
óbreyttum lögum. Sú spurning
hlýtur því að vakna, að feng-
inni biturri reynslu, hvort ekki
sé nauðsynlegt að breyta
ákvæðum þessara laga, þannig
að þau tryggi tjón, sem verður
af völdum fárviðris.
Hvað sem því líður, verður
ekki hjá því komist, að stjórn-
völd íhugi á hvern hátt hægt
er að koma til móts við og
aðstoða það fólk sem harðast
hefur orðið úti af völdum
veðurofsans sem nú gekk yfir
landið.
Félagsmálaráðherra hefur
fjallað um þessi mál og sagði
m.a. í viðtali við Dagblaðið:
„Meginatriðið er að átta sig á
því hve tjónið er mikið, það
stendur næst sveitarfélögun-
um að gera það og þau myndu
síðan senda skýrslur til ráðu-
neytisins."
Ég vil því leyfa mér að flytja
eftirfarandi tillögu og vona að
afbrigði verði samþykkt og
hún tekin á dagskrá," sagði
Magnús L. Sveinsson.
Tillaga Magnúsar er svo-
hljóðandi:
— Borgarstjórn samþykkir
að safna upplýsingum um það
tjón sem Reykvíkingar urðu
fyrir í fárviðrinu sem gekk yfir
landið sl. mánudagskvöld og
þriðjudagsnótt.
Safnað skal sem gleggstum
upplýsingum um tjónið, ann-
ars vegar á fasteignum og hins
vegar á lausamunum.
Vitað er að fjöldi fólks hefur
orðið fyrir mjög miklu tjóni og
samkvæmt fréttum má gera
ráð fyrir að heildartjónið
skipti milljörðum g.króna. Það
er því viðbúið að gera þurfi
sérstakar ráðstafanir til að
létta undir með þeim, sem
orðið hafa fyrir tilfinnanlegu
tjóni.
Borgarstjórn lýsir stuðningi
við ályktun stjórnar Bjarg-
ráðasjóðs sl. þriðjudag, þar