Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 38

Morgunblaðið - 05.03.1981, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 + Bróöir okkar, JAKOB HERMANNSSON, bátsmaöur, andaöist í Osló, Noregi. Jaröarförin hefur þegar fariö fram. Fyrir hönd systkinanna, Haraldur Hermannsson, Keflavík. + Móöir okkar, tengdamóðir og amma, EDDA KVARAN, Efstasundi 94, sem lézt þann 21. febrúar, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. marz kl. 3. Þórarinn Jónsson, Ágúst Jónsson, Edda R. Erlendsdóttir, Rafn Jónsson, Sigríöur Rafnsdóttir, og barnabörn. + Utför móöur okkar, INGIBJARGAR STEFANÍU GUÐMUNDSDOTTUR, Bröttuhlíö 7, Hveragerði, fer fram frá Hverageröiskirkju, laugardaginn 7. marz, kl. 11 fh. F.h. vandamanna. Anna Friöbjörnsdóttir, Helga Frióbjörnsdóttir. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, JÓNA FINNBOGADÓTTIR, Asvallagötu 61, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 6. marz, kl. 13.30. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum innilega vináttu og samúö vegna andláts og útfarar SIGRUNAR STEFANÍU STEFÁNSDÓTTUR, Langholtsvegi 183. Ágúst A. Pélsson, Stefén Ágústsson, Lilja Bjarnadóttir, Pélmi Ágústsson, Guölaug Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför ÞÓRHILDAR GUDMUNDSDÓTTUR, áöur til heimilis aö Sörlaskjóli 13, Reykjavík. Sigríöur Kjartansdóttir, Jónatan Kristleifsson, Ágúst Kjartansson, löunn Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn og systur hinnar létnu. + Innilegar þakkir fyrir sýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför SIGURVEIGAR ILLUGADÓTTUR. Vandamenn. Hólmfríður Krístjáns- dóttir — Minning Fædd 27. október 1901. Dáin 24. febrúar 1981. Hólmfríður Kristjánsdóttir fæddist að Úlfsbæ í Bárðardal á heimili föðursystur sinnar og nöfnu. Foreldrar hennar voru Rósa Helgadóttir og Kristján Sig- urðsson. Faðir hennar og systur hans fjórar önnuðust uppeldi hennar. Dvaldist hún ýmist hjá þeim að Úlfsbæ eða Ingjalds- stöðum. Hún var svo lánsöm að eiga föðursystur búsetta á Húsa- vík, sem gerði henni kleift að stunda barnaskólanám þar á vetr- um. Amma mín var þá kennari á Húsavík og urðu faðir minn og Fríða þar skólasystkin. Skömmu eftir fermingu fluttist hún til Akureyrar. Átti hún þar skjól hjá móðurfólki sínu, en vann heimilisstörf á ýmsum góðum heimilum. Til Reykjavíkur fluttist hún árið 1923, og þar tók á móti henni Sigríður föðursystir hennar, sem rak þá veitingastofu í Templ- arasundi 3. Stuttu eftir komu sína til Reykjavíkur eignaðist Fríða dóttur sína Kristjönu Þorkelsdótt- ur og dvöldu þær mæðgur hjá Sigríði, sem síðar annaðist uppeldi Kristjönu að mestu. Fríða vann ýmis störf, sem til féllu, en lengst af vann hún við hreingerningastörf hjá Ríkisút- varpinu, eða um það bil 30 ár. Frá því að ég fyrst man eftir mér minnist ég Fríðu í heimsókn á heimili foreldra minna. Fylgdi henni æfinlega hressilegur and- blær og brá hún oft á leik við okkur systkinin. Væri eitthvað um að vera í fjölskyldunni var hún ætíð tilbúin að rétta fram hjálpar- hönd. í fyrsta sinn, sem ég fékk að fara norður í land, þá 12 ára gömul, var það í fylgd með Fríðu, en hún eyddi flestum sínum sumarleyfum hjá ættingjum sín- um á bernskuslóðunum, á Ingj- aldsstöðum í Reykdælahreppi. Var það mikið ævintýri fyrir telpu- hnokka á þeim tíma, að fá að fara í svona langt ferðalag og kynnast sveitinni hennar. Þessi tengsl við Fríðu héldust alla ævi og sést það best á því, að þegar dóttir mín var 12 ára, fékk hún að fara sömu ferðina með Fríðu og ég fór forðum á sama aldri. Vegna kynna minna af Fríðu, sá ég í raun nú síðustu árin, hve ömurlegt ástand öldrunarmála er á íslandi. Átti hún þó dóttur og tengdason, sem hlúðu að henni eins og þau gátu og voru talsmenn hennar, þegar á þurfti að halda, svo hún var betur sett, en margt einstætt gamalmennið í dag. Þrátt fyrir heilsuleysi og margar strangar sjúkrahúslegur, vildi hún alla tíð standa á eigin fótum og vera sjálfri sér nóg, enda tilheyrði hún aldamótakynslóðinni, sem gerði fyrst og fremst kröfur til sjálfrar sín. Á meðan kraftar leyfðu, vildi hún fá að vera í íbúðinni sinni, sem henni hafði tekist að eignast skuldlausa, með mikilli vinnu verkakonunnar og miklum sparnaði við sjálfa sig í hvívetna. Henni hraus hugur við að þurfa að vistast á stofnun og verða þannig upp á samfélagið komin. Við, sem erum á miðjum aldri í dag, hljótum flest okkar að gera okkur grein fyrir þeirri ósegjan- legu seiglu, sem aldamótakynslóð- in varð að sýna, til þess að við mættum taka við því Islandi, sem við eigum í dag. Okkur ber skylda til að sýna þakklæti okkar í verki, með því að búa þannig að öldruð- um, að það sé ekki fyrirkvíðanlegt að verða gamall, heldur gæti það jafnvel orðið tilhlökkunarefni. Nú kveð ég og fjölskylda mín Fríðu með söknuði, en jafnframt þakklæti og virðingu. Dóttur hennar, tengdasyni og öðrum ástvinum sendum við innilegustu samúðarkveðj ur. Guð blessi minningu hennar. Hildur Hálfdánardóttir + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför, eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa, ÞORKELS ÁRMANNS ÞÓRÐARSONAR, fulltrúa, Álftamýri 24. Sérstakar þakkir til Oddfellowreglunnar og samstarfsfólks hins látna. Ólöf Kristjénsdóttir, Gunnar Þorkelsson, Jóna Sigurbjartsdóttir. og sonardætur. + Innilegar þakkir þeim er sýndu okkur samúö og vináttu viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, BALDVINS EINARSSONAR. Kristín Pétursdóttir, Halldóra Baldvinsdóttir, Valdimar Bergstaö, Sigrún K. Baldvinsdóttir, Francis M. Douglas, og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför mannsins míns, SKÚLA LÍNBERG FRIDRIKSSONAR, húsasmföameistara, Mosgeröi 16. Svanfríóur Hjartardóttir. Lokað í dag frá kl. 12—4 vegna jaröarfarar Hólmfríöar Krist- jánsdóttur. Einar J. Skúlason, Hverfisgötu 89. + viö fráfall Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, JOHANNS JÓHANNESSONAR, Lagarési 2, Egilsstööum. Ragnhildur Ketilsdóttir, börn, tengdasynir og barnabörn. Margar eru þær konurnar (og jafnvel karlar líka), sem ganga með vatnsfötu, ryksugu og bón- kúst um skrifstofur og vinnustaði borgarinnar síðdegis eftir að al- mennum vinnutíma lýkur og þrífa að ryki og rusli. Slíkt þrýtur víst aldrei, þar sem umgangur og umsýsla er einhver. Þeir, sem hætta vinnu sinni á stundinni, vita lítið af þessari hreinsunar- sveit, nema hvað þeir verða þess þægilega varir að morgni, að allt er komið í annað og betra horf. Ekki get ég sagt að ég hafi fyllt þann flokk, enda varð ég æði oft var við hreingerningakonurnar hjá útvarpinu. Því miður kynntist ég þeim ekki að marki, nema helzt einni. Og nú er það einmitt þessi kona, sem hefur endað lífsgöngu sína á 80. aldursári. Hólmfríður Kristjánsdóttir var þingeyskra ætta og bar þess merki, að hún hafði alizt upp í menningarlegu umhverfi. Hún var t.d. bókelsk mjög, átti sjálf nokk- urt safn góðra bóka og las mikið lánsbækur. Oft fékk hún t.d. bækur að láni í safni útvarpsins og annarsstaðar. Þá var hún vel að sér til handanna, t.d. bæði til saumaskapar og matreiðslu — og bakari var hún það vel metinn, að kökurnar hennar og flatbrauðið voru söluvara í búðum og á matstöðum. Gestrisin var hún í bezta lagi. Hólmfríður vann við ræstingu hjá útvarpinu nær 30 ár en hætti um sjötugsaldur, enda var henni þá farið að vera nokkuð örðugt um gang. Mjög var hún félagslynd, var t.d. langoftast í sumarferða- lögum útvarpsfólks, svo og á öðrum samkomum. Var hún oft glöð í bragði — og víst var hláturinn hennar hressandi fyrir nærstadda. Vel undi hún sér á jólaskemmt- unum barnanna í útvarpssal, en þar hafði hún þann starfa um langt árabil að úthluta börnunum eplum og sælgætispokum um leið og skemmtun lauk. Fyrir nærfellt 20 árum, þegar Hólmfríður átti sextugsafmæli, setti ég saman svolítið stef. Ég er að hugsa um að setja hér undir lokin helming jieirra hcndinga: Þakka ég, HAImfriAur, þjónustuvorkin, um þau eru marxvlHleK sannindamerkin. Og aldrei verAur aA elllfu vegiA allt þaA ryk, aem var burtu þvegiA i fjórtán ár undan fótum mlnum. t'-K fullþakkaA get ekki hóndum þinum, þvi án þln væri ég eflaust dauAur og yfir mér grasi vaxiA hauAur. Þótt svo fari nú að ég standi yfir moldum Hólmfríðar vinkonu minnar, verður sú tilfinningaríka sæmdarkona áfram í minni mér og okkur fleirum, sem kynntumst henni. Loks flyt ég dóttur Hólmfríðar og tengdasyni samúðarkveðju okkar hjónanna. Baldur Pálmason Birting afmœlis- og minningar- greina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ckki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.